Dagur - 19.07.1990, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 19. júlí 1990
Stefán Jónsson hefur lokið skráningu listaverka í eigu MA:
Fyrsta og ein verömætasta myndin
í safninu er umdeild
- Jónas frá Hriflu gaf MA myndina en Listasafn íslands telur sig eiga hana
Nú er lokið fyrsta áfanga við
skráningu listaverka í eigu
Menntaskólans á Akureyri.
Stefán Jónsson hefur aðallega
haft umsjón með verkinu, og
tók við því af föður sínum,
Jóni Arna, menntaskóla-
kennara. Listaverk í eigu MA
eru nú 127 talsins og þar má
finna mörg af þeim bestu í
íslenskri listasögu, el'tir lista-
menn á borð við Jóhannes S.
Kjarval, Asmund Sveinsson,
Finn Jónsson, Jón Stefánsson
og fleiri góða. Listaverkin eru
öll íslensk, nema ein grafík-
mynd, sem er eftir ekki ófrægari
listamann en Salvador Dali.
Það er ekki ofsagt að segja
að líklega er listaverkasafn
Menntaskólans á Akureyri eitt
það merkilegasta á landinu í
eigu einnar skólastofnunar.
Blaðamaður Dags hitti Stefán
að máli nýlega þar sem hann var
að ljúka við listaverkaskráning-
una í Möðruvöllum og flytja
listaverkin á milli húsa á skólalóð
MA. Hann gaf sér þó tíma í örlít-
ið spjall og var hann fyrst inntur
eftir því hvenær ákveðið var að
skrá listaverk í eigu skólans.
Það er ýmislegt
sem þarf að skrá
„Það var fyrir þrem árum að Jó-
hann Sigurjónsson, skólameist-
ari, bað föður minn, Jón Árna
Jónsson, sem þá var að hætta
kennslu, að taka að sér lista-
verkaskráninguna. Hann byrjaði
á verkinu en gafst upp þar sem
hann þekkti ekki almennilega
muninn á t.d. olíumynd eða
akrýlmynd, hvað var grafík og
hvers konar grafík það var
o.s.frv. Það var svo í vor að Jó-
hann bað mig um að taka við
verkinu og ég gerði það.“
Það var ekki að ósekju að Stef-
án var fenginn í verkið því hann
er við nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands og búinn
með tvö ár og byrjar næsta haust
í skúlptúrdeild. Námið hefur
komið honum vel við skráning-
una og Stefán segist hafa lært
mikið um íslenska listasögu.
„Jóhann hafði mjög mikinn
áhuga á að þetta yrði gert og vill
gjarnan að það verði haldið
áfram að skrá eigur skólans. Ekki
bara að skrá listaverkin heldur
einnig að láta taka ljósmyndir af
þeim og safna t.d. saman öllum
ljósmyndum af stúdentum frá
1927. Þannig að það er ýmislegt
sem þarf að skrá,“ sagði Stefán.
Eitt listaverk keypt á ári
frá 1975
Þegar Stefán byrjaði í vor á
skráningunni var fyrsta verkið að
ganga um skólann og skoða hvað
var til. Meðal þess sem Stefán
skráði voru nöfn höfunda, heiti
verkanna, stærð, efni og hvernig
skólinn eignaðist verkin. Stefán
segir að erfiðast hafi verið að
finna hvernig MA hefur eignast
þau listaverk sem skólinn á.
„Mikið af listaverkunum eru
gjafir gamalla nemenda til skól-
ans þegar þeir koma og fagna
útskriftarafmæli. Síðan er mikið
um verk sem skólinn hefur keypt
sjálfur. Sigurður Guðmundsson,
fyrrum skólameistari, keypti
nokkuð af myndum og margt af
þeim mjög merkilegar myndir,"
sagði Stefán og minntist um-
deildra kaupa Sigurðar á sínum
tíma á málverkum eftir Þorvald
Skúlason. „Þetta var 1937 og þá
var Þorvaldur óþekkt nafn, en í
dag er skólinn mjög stoltur af því
að eiga þessi verk þannig að
Sigurður hefur verið mjög fram-
sýnn maður,“ sagði Stefán.
Frá 1975 hefur það verið stefna
Menntaskólans á Akureyri að
kaupa a.m.k. eitt listaverk á ári
og fjármagn notað til þess úr sér-
stökum sjóði. Það er einmitt sami
sjóður sem styrkir listaverka-
skráninguna, en hún er alfarið
fjármögnuð af skólanum.
„Unglingarnir“
á veggi Möðruvalla
Stefán sagði að listaverkin væru
yfirleitt í góðu ásigkomulagi en
þau elstu þyrftu lagfæringar við.
Búið er að hreinsa tvær myndir
eftir Jón Stefánsson og sagði
Stefán að fleiri verk yrðu hreins-
uð. Sum þurfa varla annað en
nýjan ramma.
Af þeim 127 listaverkum sem
Menntaskólinn á eru flest olíu-
málverk, eða 74 talsins. Næst
koma 24 grafíkmyndir, 14 högg-
myndir, 9 vatnslitamyndir og 6
teikningar. Alls eru það 63 lista-
menn sem eiga þessi verk og á
Örlygur Sigurðsson áberandi
flest þeirra, eða 19 myndir. Það
eru mest portrettmyndir af kenn-
urum og starfsliði skólans.
Málverkin sem Stefán skráði
voru öll hangandi á veggjum
skólans og sagði Stefán að hug-
myndin væri að hengja myndirn-
ar aftur upp á skipulegan hátt.
Hann hefur sett fram þá hug-
mynd að hengja upp málverk
hinna elstu listamanna upp í
gamla skóla, „miðaldra" lista-
menn á heimavist og „ungling-
ana“ á veggi Möðruvalla. „Þetta
þarf ekki að vera eftir nákvæmu
kerfi en að myndirnar verði ekki
hengdar upp þar sem er veggur,
bara af því að hann er þar,“ sagði
Stefán.
Fyrsta myndin í safninu
umdeild
Árið 1927, þegar stúdentar voru
fyrst útskrifaðir frá Akureyri,
eignaðist skólinn eitt af sínum
fyrstu málverkum þegar Jónas frá
Hriflu, þáverandi menntamála-
ráðherra, gaf myndina „Baulu“
eftir Ásgrím Jónsson. Stefán
sagði að Listasafn íslands hafi
hins vegar aldrei viljað viður-
kenna að skólinn ætti þessa
mynd. „Jónas fór í Listasafnið og
tók þessa mynd og hafði til þess
leyfi samkvæmt reglugerð um
safnið, þar sem stóð að myndina
mætti hengja upp hvar sem er.
En þegar ég fletti í bók þar sem
Listasafnið skráir öll sín verk, er
mynd Ásgríms talin þar upp með
eftirfarandi athugasemd: „Var
lánuð Menntaskólanum á Akur-
eyri 1927 en hefur ekki verið skil-
að þrátt fyrir ítrekuð tilmæli.“
Myndin hefur verið í skólanum
síðan, enda telur hann myndina
sína eign,“ sagði Stefán og taldi
myndina „Baulu“ vera líklega
eina af þeim verðmætari í eigu
skólans, og væru þær þó margar
verðmætar.
Stefán var að lokum spurður
hvernig vinnan við skráninguna
hafi verið og sagði hann að hún
hafi verið mjög skemmtileg og
fræðandi. „Ég kem til með að
fylgja verkinu eftir, m.a. hug-
myndinni um upphengingu mál-
verkanna, en það verður ekki
meira gert í sumar. Kvótinn er
búinn í ár, en það verður meira
gert á næsta ári,“ sagði Stefán að
endingu. Fyrir liggur hjá Stefáni
mánaðardvöl í Danmörku þar
sem hann mun m.a. sækja 14
daga námskeið í myndhöggi við
Kunsthpjskolen í Holbæk. -bjb
Stefán Jónsson við myndina „Bauiu“ eftir Ásgrím Jónsson, sem Jónas frá Hriflu gaf skólanum fyrir 63 árum, en Listasafn íslands telur sína eign.Lengst til hægri er myndin „Af Kerlingar
skarði“ eftir Jón Stefánsson, semer ein af „perlunum“ í safni MA. Mynd: -bjb