Dagur - 15.08.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 15.08.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 15. ágúst 1990 - DAGUR - 3 fréftir Akureyri: Bæjarniála- punktar ■ Stjórn Tónlistarskólans hef- ur samþykkt aö veita Sigurlínu Jónsdóttur og Michael Jóni Clarke launalaust leyfi tíma- biliö l. september 1990 til 31. ágúst 1991. ■ Jófríftur Traustadóttir, fóstra, Einholti 5, hefur verið ráðin yfirfóstra við Árholt í 100% stöðu frá 1. júní sl. ■ Þá hefur félagsmálaráö samþykkt að ráða Maríu Kctilsdóttur, fóstru, Holta- götu 6 í 75% stöðu deildar- fóstru við skóladagheimilið Brekkukot. ■ Heilbrigðisnefnd hefur samþykkt starfsleyfi fyrir ann- ars vegar „gistiskála" að Hrafnagilsstræti 23 fyrir allt að 8 manns og hins vegar Gisti- heimili að Eyrarlandsvegi 22. ■ Fram kom á fundi hús- næðisnefndar nýverið að Erlingur Aðalsteinsson væri að liætta störfunt hjá skrifstofu verkamannabústaða. ■ í bókun umhverfisnefndar frá 8. þessa mánaðar keniur fram að hún hafi „lengi verið þeirrar skoðunar að ónotuð og vanhirt skip við Torfunefs- bryggju séu mjög til óprýði umhveri Miðbæjarins. Um- hverfisnefnd vonast til 'að hafnarstjórn gcri allt sem í hennar valdi stendur til þess að finna lausn á málinu.” ■ Heilbrigftisncfnd hefur samþykkt starfsleyfi fyrir sundlaug viö Sólborg á Akur- eyri. ■ Kjaranefnd hefur úthlutað Hclgu Frímannsdóttur 50 þús- und króna styrk til Danmerk- urferðar til þcss að kynna sér aðbúnað aldraðra. ■ íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt að leggja til að keypt verði lítil rennibraut sent sett verði upp við grynnri hluta núverandi laugar Sund- laugar Akureyrar. Áætlaður kostnaður er 800 þúsund krónur, sent greiðist af áætl- uöu framkvæmdafé sundlaug- arinnar. ■ Anna Árnadóttir, for- stööumaður á Krógabóli, hef- ur verið fastráðin frá 1. ágúst sl. ■ Fclagsniálaráð hefur sam- þykkt að ráða Guðnýju Önnu Annasdóttur, fóstru, í 50% stöðu yfirfóstru á Flúðunt frá I. september sl. ■ Michael Jacques, málm- blásturskennari, Anna Rodhajski, fiðlukennari og Andrzeej Rodhajski, píanó- kennari, hafa verið ráöin til eins árs að Tónlistarskólanum á Akureyri. ■ Fram koni á fundi menn- ingarmálanefndar nýverið að framkvæmdir vegna lista- verksins „Sigling" eftir Jón Gunnar Árnason hafa farið fram úr áætlun. í ljósi þess fór menningarmálanefnd þess á leit að menningarsjóði yrði tryggt viðbótarfjármagn á þessu ári, sem samsvaraði þessum umframkostnaði: Nýleg breyting á mjólkurreglugerðinni: Haughús víð öll íjós fyrir næstu áramót Samkvæmt nýlegri breytingu á mjólkurreglugerðinni ber kúa- bændum að hafa komið upp lokuðu haughúsi við öll fjós fyrir næstu áramót. Fresturinn átti að renna út um síðustu ára- mót en að tilstuðlan Lands- sambands kúabænda fékkst hann lengdur um eitt ár, þar sem haughús vantaði við nokk- uð mörg fjós hérlendis. Mjólkurreglugerðin var sett 1986 þar sem m.a. var það ákvæði að þeir kúabændur sem ekki voru með haughús höfðu frest til 1. janúar 1990 að koma því upp við sín fjós. En á síðasta ári var Ijóst að ekki höfðu allir kúabændur tekið til hendinni, þannig að breytingu á mjólkur- reglugerðinni var komið á. Ekki er til nákvæm úttekt á því hvað vantar mörg haughús en tal- ið að þau séu nokkuð mörg. Framleiðsluráð landbúnaðarins ritaði héraðsdýralæknum bréf þar sem farið var fram á að þeir könnuðu ástand mála við fjós kúabænda, en að sögn Guð- mundar Lárussonar, formanns Landssambands kúabænda, hafa dýralæknar ekki sinnt þessu erindi sem skyldi. Guðmundur sagði í samtali við blaðið að ætl- unin væri að leita til mjólkursam- laganna, um að þau tækju út sín svæði. Guðmundur sagði að viðræður væru að fara af stað við heilbrigð- isráðuneytið þar sem Landssam- band kúabænda ætlar að leggja fram þá tillögu að kúabændur fái að enda sinn starfsferil með núverandi fjósbyggingar án þess að koma upp haughúsi, ef þeir eru og hafa verið með 100% mjólk. Einnig verður lögð fram sú tillaga að ekki verði leyfð ný fjós eða mjólkursöluleyfi án þess að þar verði lokuð haughús. „Þannig að ef það verða kyn- slóðaskipti eða ábúcndaskipti þá fái nýir ábúendur ekki leyfi til framleiðslu á mjólk nema vera með haughús," sagði Guðmund- ur. Samkvæmt mjólkurreglugerð- inni er hægt að sækja um undan- þágur. að uppfylltum vissum skilyrðum. Heilbrigðisnefndir og dýralæknir á viðkomandi stað þurfa að taka þær beiönir til athugunar, og þurfa síðan sam- þykki Hollustuverndar ríkisins og yfirdýralæknis. Guömundur sagði að af hálfu kúabænda væri Krossanesborgir: Leigutökum lands verður sagt upp og Krossanesborgir Mðaðar „Akureyrarbær stendur ekki nægilega vel aft friðun lands í Krossanesborgum, þegar litift er til laga um gróðurvernd, því vífta er ofbeitt á svæðinu. Rík- ið gaf Akureyrarbæ Krossa- neslandið fyrir alla EyFirðinga til útivistar í tilcfni 1100 ára byggðar á íslandi. Ekki er búið að segja upp leigu á landi í Krossanesi, við erum að setja niður fyrir okkur hverjir eru leigutakar, en það eru fjöl- margir hestamenn sem hafa beitaraðstöðu á svæðinu yfir sumartímann,“ sagði Árni Steinar Jóhannsson, garð- yrkjustjóri Akureyrarbæjar. „Við munum segja öllum upp. sem hafa land á Krossanesjörð- inni, en síðan verða viss svæði leigð út að nýju. Krossanesborg- irnar verða friðaðar, svæðið verður að fá að gróa upp og göngustígar verða gcrðir unt svæðið fólki til útivistar. Svæðið er gjöf frá ríkinu í því augnamiði að það verði friöað og útbúið sem útivistarsvæði. Vissulega þrengir að hesta- mönnum við þcssar aðgérðir, en Glerárdalur stendur þeim til boða sem fyrr. Nýjar leiðir hafa einnig opnast hestamönnum. Við höfum keypt lönd sem verða stykkjuð niöur og girt svo sem í Hamralandinu svo og ræktað land í Krossanesi, sent þeir hafa ekki nýtt fyrr. Kjarnaskógur er Blönduós: Þrjár kennslustofiir í notkun „Framkvæmdir í íþróttamið- stöðinni ganga samkvæmt áætlun og hægt verður að taka þrjár kennslustofur í notkun í haust eins og reiknað var með,“ segir Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri á Blönduósi. Fram- kvæmdir sumarsins á Blöndu- ósi hafa gengið vel og eru margar hverjar búnar eins og lögn plasts í holræsi og vinna við bryggjuna. Góð aðsókn hefur verið á tjaldstæðin á Blönduósi í sumar, en þau voru stækkuð um helming í vor og aðstaða öll bætt. Verið er að ganga frá samning- um við verktaka unt byggingu íbúða á vegum félags aldraðra í V-Hún svo bráðlega verður byrj- að á framkvæmdum við þá bygg- ingu enda á hún að vera orðin fokheld um áramót. Ófeigur sagði að reiknað væri með að haldið yrði áfram fram- kvæmdum við íþróttaaðstöðuna í íþróttamiðstöðinni í vetur, enda reiknað með að taka salinn í notkun innan tveggja ára. SBG mikiö notaður til útiveru, bæði sumar sem vetur, og þetta svæði kemur örugglega til mcð að þjóna útivistarfólki á marga vegu, enda gefið til þeirra nota. Ég hef gegnt starfi garðyrkju- stjóra í ellefu ár og vissulega hef- ur alltaf vantað land til ýmissa hluta, langir biðlistar eru fyrir- liggjandi á öllum tímum, en upp- sögn á landi í Krossanesborgum er ekki komin til af illvilja til hestamanna við erurn aöeins aö bregðast við þeim kröfum sem gjöfinni fylgdu,” sagði Árni Steinar. ój það algjört skilyrði til að fá undanþágu, að hafa framlcitt 1. flokks mjólk. Halldór Runólfsson hjá Holl- ustuvernd sagði í samtali við blaðiö að mjólkurframleiðsla væri eins og hver önnur matvæla- framleiðsla, og því þyrfti hún að uppfylla sömu kröfur. „Það voru ýmis grundvallaratriði sem bæði Stéttarsamband bænda og kúa- bændur féllust á þegar reglugerð- in var samþykkt. Það var ákveðið að fara hægt í málin en núna eru dagsetningar komnar," sagði Halldór. “ -bjb r Akureyringar - Eyfirðingar Guðmundur og Valgerður verða til viðtals á skrif- stofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, fimmtudaginn 16. ágúst frá kl. 17-19. Hestamót Vísitala framfærslukostnaðar: 6,8% verðbólga samkvæmt þriggja mánaða mælingu Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í ágústbyrj- un 1990. Vísitalan í ágúst reyndist vera 146,8 stig (maí 1988=100), eða 0,3% hærri en í júlí. Samsvarandi vísitala samkvæmt eldri grunni (febrú- ar 1984=100) er 360,1 stig. Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu manna við endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis skv. 2. grein bráðabirgðalaga um ráð- stafanir vegna kjarasamninga nr. 85 frá 17. júlí 1990 olli 0,4% lækkun á vísitölunni. Á móti kemur verðhækkun orlofsferða til útlanda sem olli um 0,2% hækkun og verðhækkun ýmissa vöru- og þjónustuliða sem olli 0,5% hækkun á vísitölu fram- færslukostnaðar. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 14,2%. Undanfarna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,7% og jafngildir sú hækkun 6,8% verðbólgu á heilu ári. óþh Kynbótasýning og hestamót verður haldið að Flötu- tungum Svarfaðardal dagana 18. og 19. ágúst. DAGSKRA: Laugardagur 18. ágúst Kl. 9.00 Kynbótasýning. Kl. 14.00 B-flokkur gæöinga, A-flokkur gæöinga. Úrslit í gæðingakeppni. Kl. 17.00 Sýning kynbótahrossa og dómum lýst. Kl. 18.00 Sölusýning. Sunnudagur 19. ágúst Kl. 11.00 Brokk 300 m, stökk 300 m. Kl. 12.00 Matarhlé. Kl. 13.30 Bæjakeppni. Kl. 14.00 Skeið 150 m, naglaboðreið. Bunaðarsamband Eyjafjarðar. Hestamannafélagið Hringur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.