Dagur - 05.10.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 5. október 1990
fréttir
r-
Skagaíjörður:
Deilt við Hollustuvemd um hættu á salmonellufaraldri
„Það er fjarstæða sem þessir
menn eru að segja um meng-
unarmál tengd matvælaiðnaði í
Skagafírði. Birgir segir í grein í
Morgunblaðinu að salmonella
hafí reynst vera í % hluta sýna
teknum í Skagafírði og það
hefur hann ekki dregið til baka
þó að formaður heilbrigðis-
nefndar, heilbrigðisfulltrúi og
aðrir hafí hrakið þá yfírlýsingu
og fíeira sem fram kom í um-
iuæluin hans. Um hættu á salm-
onellufaraldri í Skagafírði held
ég að komið hafí fram að ástand-
ið hér sé jafnvel betra en
almenn fyrirstaða á landinu að
meðaltali,“ sagði Vésteinn Vé-
steinsson hjá Sláturhúsi KS á
Sauðárkróki um mál sem brenn-
ur nú mjög á Skagfírðingum.
Þann 23. september sagði
Birgir Þórðarson, hjá mengunar-
vörnum Hollustuverndar ríkis-
ins, í grein í Morgunblaðinu að
hætta væri á salmonellufaraldri í
Skagafirði sökum lélegrar eyð-
Þingílokkur Alþýðubandalagsins gagnrýnir
iðnaðarráðherra harðlega fyrir álmálið:
Telur imdirritun áfanga-
niðurstöðu fráleita
Af ályktun sem þingflokkur
Alþýðubandalagsins samþykkti
í gær má ráða að undiralda í
Hokknum varðandi málsmeð-
ferð iðnaðarráðherra í álmál-
inu sé þung. I ályktuninni segir
að flestir þættir hugsanlegra
samninga um nýtt álver þarfn-
ist nánari athugunar, t.d. hvað
varði umhverfísmál og meng-
unarvarnir, svo og ákvæði um
orkuverð, sem bersýnilega séu
ekki nógu hagstæð og feli í sér
mikla áhættu.
í ályktun Alþýðubandalagsins
er minnt á þá yfirlýsingu Stein-
gríms Hermannssonar, forsætis-
ráðherra, að ríkisstjórnin og
stjórnarflokkarnir hafi ekki tekið
afstöðu til neinna efnisatriða í
samningsvinnunni. Því telur
þingflokkurinn fráleitt að iðnað-
arráðherra undirriti áfanganiður-
stöðu í nafni ríkisstjórnarinnar
með hinum erlendu samingsaðil-
um þegar ekkert samkomulag
liggi fyrir um málið milli stjórn-
arflokkanna „og lýsir því yfir, að
Alþýðubandalagið er með öllu
óbundið af undirskrift ráðherrans
í þessu máli. Þá liggur fyrir að
Landsvirkjun hefur fyrir sitt leyti
ekki fallist á drög að orkusölu-
samningi og ekki veitt umboð til
undirskriftar.
Þingflokkurinn lýsir furðu
sinni á því að ráðherrar Alþýðu-
flokksins skuli hafa átt formlegar
viðræður við forystulið Sjálf-
stæðisflokksins unt málið, á með-
an það er til umfjöllunar í ríkis-
stjórninni, og harmar ef vinnu-
brögð ráðherrans verða til að
spilla annars ágætri samvinnu
stjórnarflokkanna.“ óþh
ingar úrgangs og að salmonella
hefði fundist í % sýna sem tekin
hefðu verið. Þetta sættu menn í
Skagafirði sig ekki við og m.a.
skrifaði Sveinn Guðmundsson,
heilbrigðisfulltrúi á Norðurlandi
vestra, grein á móti Birgi þar sem
hann lýsti furðu sinni yfir því að
ekki hefði verið tekið fram hvar
sýnin hefðu verið tekin. Hvort
þau hefðu kannski verið tekin úr
matvælum og segir að svona hátt
hlutfall salmonellumengunar hafi
ekki fundist á Skagafjarðarsvæð-
inu þau ár sem hann hefur gegnt
starfi heilbrigðisfulltrúa.
Sl. mánhdag var haldinn fund-
ur á Sauðárkróki þar sem m.a.
Birgir mætti frá Hollustuvernd og
fulltrúar matvælaframleiðenda,
bæjarstjórn og héraðsnefndar-
menn ræddu um þessi mál. Hart
var deilt á fundinum og fullyrtu
matvælaframleiðendur að þessi
ummæli Birgis gætu skaðað þá og
báðu um opinberar yfirlýsingar
frá HoIIustuvernd um að þetta
stæðist ekki. En er Birgir Þórðar-
son reiðubúinn að draga sín
ummæli til baka?
„Ég held að Skagfirðingar hafi
snúið afskaplega mikið út úr
þessu og ég skil vel að þeir séu
reiðir. Tilgangurinn með þessu
eftirliti mínu er að reyna að bæta
hlutina og ástandið í Skagafirði
er svo sem ekkert verra heldur en
sumstaðar annars staðar. Það
sem ég sá í Skagafirði núna var
mjög svipað og það sem ég sá á
Suðurlandi í fyrra þar sem mikið
tjón varð sl. haust. Ég fullyrði að
ástandið sé þannig að ýmislegt
getur komið upp á, en með
ákveðnum fyrirbyggjandi
aðgerðum er hægt að koma í veg
fyrir það og ég veit að verið er að
vinna að ýmsum úrbótum í
umhverfismálum í Skagafirði
sem víðar. Ég sé ekki ástæðu til
að draga neitt til baka af því sem
ég hef sagt, vegna þess að þetta
eru einfaldar staðreyndir sem
menn sjá ef þeir vilja. Þó má geta
þess að '/3 sýna úr frárennslisvatni
var jákvæður salmonellu en ekki
2/3 eins og kom fram í grein Morg-
unblaðsins. Ef maður má ekki
segja sannleikann og standa við
hann þá er best að hætta þessu
öllu,“ sagði Birgir Þórðarson í
samtali við Dag.
En hvað hefur bæjarstjórinn á
Sauðárkróki um málið að segja?
„Mér finnst að sú umræða sem
þarna fer fram sé ekki með þeim
hætti að ástæða sé til þátttöku í
henni. Ég geri mér fulla grein fyr-
ir því að ástandið hér er ekki
nógu gott í umhverfismálum
almennt en í því er verið að
vinna. Þær aðfinnslur sem hingað
hafa komið finnast mér ekki
sanngjarnar og tel að skynsam-
legra hefði verið hjá Hollustu-
verndinni að koma þessum
athugasemdum sínum á framfæri
á annan hátt en þennan," voru
orð Snorra Björns Sigurðssonar,
bæjarstjóra. SBG
Bæjarstjórn Akureyrar:
Verður ákveðið að
endurbyggja Iðavöll?
Málefni leikskólans Iðavallar
urðu tilefni umræðu í bæjar-
stjórn Akureyrar á þriðjudag.
Gísli Bragi Hjartarson gagn-
rýndi aðgerðaleysi félagsmála-
ráðs, og kvað ekki sjáanlegt á
fundargerð þess að um málið
hefði verið fjallað.
Gísli Bragi og Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir báru fram tillögu á
Hvítasunnusöfnuðurinn á Akureyri:
Unnið að stækkun byggingar
saftiaðarins við SkarðshEð
- 11 ný safnaðarsystkin á þessu ári
I hvítasunnusöfnuðinum á
Akureyri eru nú starfandi 60
manns, ungir sem aldnir og
starfíð er mikið og víðtækt. A
síðasta ári fjölgaði í söfnuðinum
um ellefu. Hvítasunnukirkjan
og Leikskólinn Hlíðarból eru
við Skarðshlíð á Akureyri, en
nú er unnið að stækkun bygg-
ingarinnar því þröngt er orðið
um starfsemina. Forstöðumað-
ur safnaðarins er Vörður
Traustason.
Að sögn Varðar vinna safnað-
arsystkinin í sjálfboðavinnu við
byggingaframkvæmdina. Stækk-
unin nemur um 250 fermetrum,
en nokkuð þröngt er orðið um
starfsemi safnaðarins og ætlunin
er að koma upp plötunni fyrir
veturinn. „Þessi stækkun er hluti
af sjálfri kirkjunni. Með tilkomu
hennar losnum við út úr leik-
skólanum en þar höfum við átt
athvarf með helgihaldið jafn-
framt sem við getum innréttað
skrifstofur fyrir söfnuðinn og nýj-
ar snyrtingar. í kjallara nýju
byggingarinnar fær æskulýðs-
starfsemin aðstöðu svo og leik-
skólinn geymslupláss. Mjög
brýnt er að fá stærri sal því sífellt
fleiri sækja samkomur hjá hvíta-
sunnusöfnuðinum. Fólk leitar á
vit trúarinnar og mátt bænarinn-
ar, allar aðstæður í þjóðlífinu
kalla á slíkt. Ellefu ný safnaðar-
systkin hafa gengið til liðs við
hvítasunnusöfnuðinn á Akureyri
á þessu ári. Að mínu mati er mik-
il trúarvakning á íslandi meðal
ungs fó!ks,“ sagði Vörður
Traustason.
Á Hlíðarbóli, leikskóla hvíta-
sunnusafnaðarins eru 72 börn í
dagvist og starfsmennirnir eru 14.
„Reksturinn er alfarið í höndum
hvítasunnusafnaðarins en Akur-
eyrarbær leggur fram fjármagn
með hverju barni á móti foreldr-
um á sama hátt og hjá öðrum
dagvistunarstofnunum. Dagvist-
unarmál og leikskólar eru stór
málaflokkur og við viljum leggja
okkar af mörkum,“ sagði for-
stöðumaður hvítasunnusafnaðar-
ins á Akureyri, Vörður Trausta-
son. ój
fundi bæjarstjórnar 18. septem-
ber varðandi Iðavöll. Tillagan
var á þá leið að þegar skyldu
hafnar framkvæmdir við endur-
bætur á Iðavelli. Tillögunni var
vísað til bæjarráðs.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir kvað
það ásetning félagsmálaráðs að
láta dagvistunarmálin hafa
forgang. Það hefði þó óneitan-
lega komið eins og reiðarslag yfir
ráðið þegar því var lýst yfir í júlí
að Iðavallarhúsið væri stór-
skemmt eða ónýtt. Tillaga Gísla
Braga og Úlfhildar væri til
umfjöllunar í bæjarráði, en
félagsmálaráð hefði mikil áform
á prjónunum um að bæta úr dag-
vistunarþörfinni í bænum.
Sigfríður Þorsteinsdóttir sagði
að engin gögn hefðu verið lögð
fram sem fengju sig til að trúa því
að Iðavallarhúsið væri ónýtt.
Fyrsta tillagan sem félagsmálaráð
hefði gert væri sú besta, þ.e. að
endurbyggja húsið samkvæmt
úttekt sem gerð var, og byggja
síðan við. „Það er hægt að gera
við húsið í áföngum án þess að
loka dagvistinni. Svo má byggja
við í framhaldi af því. í mínum
Hofsós:
„Vantar flölbreyttari atvinnu
66
„Þessi vota tíð sem verið
hefur, hefur seinkað ýmsum
framkvæmdum hér. Hvorki
hefur verið hægt að Ijúka við
að mála kirkjuna né slökkvi-
stöðina. Mannlífíð gengur
samt sinn vanagang og fyrir
mestu er að atvinna haldist
eins og undanfarið,“ segir Jón
Guðmundsson, sveitarstjóri
Hofshrepps.
í sumar hefur kirkjan á Hofs-
ósi verið löguð að utan, en eftir
er að ljúka við að mála hana. 30
ár eru liðin frá byggingu hennar
og í fyrra voru endurbætur gerð-
ar að innan. Afmælisins verður
minnst samfara héraðsfundi sem
30 ára afmæli kirkjunnar
verkinu, en vætutíðin hefur sett
haldinn verðúr á Hofsósi síðar í
haust.
Ungmennafélagið Neisti ætlaði
að gera grasvöll á Hofsósi í
haust, en illa hefur gengið með
þær framkvæmdir. Byrjað var á
strik í reikninginn.
Atvinnuástandið er að sögn
Jóns sæmilegt og ekki eru nema
fimm á atvinnuleysisskrá. Illa
hefur samt fiskast hjá smábátun-
um á Hofsósi og eru skiptar
skoðanir um hvað því veldur.
Sumir segja að búið sé að eyði-
leggja miðin í firðinum með
stórvirkum veiðiaðgerðum, en
aðrir telja of snemmt að byrja
línuveiði.
Jón segir að ef atvinnan
haldist, þá óttist þeir ekki eftir-
köst frá fyrri árum í bæjarmálum,
en helst þyrfti vinnan þó að verða
fjölbreyttari svo að gott væri.
SBG
huga má dreifa framkvæmdum
yfir nokkurt tímabil. Viðgerða-
áætlun sú sem byggingadeild
lagði fram miðast að mínu mati
við viðgerðir á hlutum sem mættu
sumir bíða, en annað vantar inn í
sem er meira aðkallandi," segir
Sigfríður.
Sigurður J. Sigurðsson minnti
á að bæjarráð hefði tillöguna um
uppbyggingu Iðavallar til athug-
unar, en beðið væri eftir upplýs-
ingum um dagvistunarþörf í bæn-
um og raunhæfa möguleika á að
gera Iðavöll nothæfan fyrir þrjár
til fjórar milljónir króna. Sigurð-
ur sagði að ef Iðavöllur yrði rif-
inn og annað hús byggt í staðinn,
þá stæðu menn í sömu sporum að
ári; dagheimilaplássum hefði
ekki fjölgað. „Ég vænti þess að
þetta mál verði afgreitt á næsta
bæjarstjórnarfundi," sagði hann.
_______________________EHB
Nýir þættir
í helgarblaði:
Unglingasíða
og baksýn
Helgarblað Dags er nú smátt
og smátt að taka breytingum,
enda erum við að klæða það í
vetrarbúning. Fastir þættir
kveðja og nýir koma í staðinn,
sumir fá hvíld og aðrir eru
endurvaktir.
Á morgun hefur ný ungl-
ingasíða göngu sína undir stjórn
nýrra umsjónarmanna Þessi
þáttur verður hálfsmánaSarlega í
helgarblaðinu í vetur.
Þá er sjálfsagt að kynna þátt
sem við köllum baksýn, en þar
líta blaðamenn til baka yfir fréttir
vikunnar og velja eina frétt til að
skoða nánar. Þar verða mannleg-
ar hliðar efstar á baugi.
Þáttur urn menningarmál hefur
verið endurvakinn og loks má
nefna að Valdimar Gunnarsson
skýtur upp kollinum með Amer-
íkubréf, en ekki er ljóst hvort
þessi bréf verði til frambúðar í
helgarblaðinu. Fleiri breytingar
verða kynntar síðar. SS