Dagur - 05.10.1990, Qupperneq 9
Föstudagur 5. október 1990 - DAGUR - 9
Húsavík:
Sjukrahúsið til sýnis á morgun
Anna og Anna, nöfnur á þriðju hæðinni.
/
Utfararskreytingar
Kirkjuskrejlingar
Kransar og krossar
þeirra felst. Einnig bendi ég á
dagstofuna, en fyrir tveimur
árum fórnuðum við einni sjúkra-
stofu til að fá dagstofu sem brýn
þörf var fyrir. í raun er ekki hægt
að auka rými á sjúkradeildunum
nema með fækkun sjúkrarúma og
það verður ekki gert nema að vel
athuguðu máli.
Á annarri hæð koma inn öll
bráðaveikindi og þar eru miklu
örari skipti á sjúklingum. Þar er
almenn deild fyrir lyflækningar,
handlækningar, slys, skurðlækn-
ingar, sængurkonur, börn og
öldrunarlækningar. Þetta ermjög
fjölbreytt starfsemi og við getum
átt von á hverju sem er hvenær
sem er. Fæðingardeild er á hæð-
inni og líklega verða þar eitt eða
tvö börn á laugardag. Það er eins
og börnin komi í gusum og stund-
um er engin sængurkona á deild-
inni og stundum margar. Á þess-
ari hæð er mjög rólegt suma daga
en aðra daga er allt á hvolfi, þetta
er svo breytilegt. Þarna er hægt
að sjá ýmis tæki, bæði eldri gerðir
og nýtískuleg. Þróunin er mjög
ör þannig mörg þessara tækja
úreldast á mjög fáum árum.
Á fyrstu hæð er heilsugæslan
og á skurðstofunni verða sýnd
tæki og áhöld og notkun þeirra
útskýrð, en þessa hæð þekkir fólk
almennt kannski frekast, nema
þá skurðstofuna. En fólk getur
fengið að skoða röntgenmyndir
eða kíkja í smásjá á rannsókn og
fengið útskýringar á notkun
tækja á hæðinni.
Matsalurinn í kjallaranum
verður opinn og þar verða ein-
hverjar veitingar á borðum. Eld-
húsið verður til sýnis og ung-
barnaeftirlitið, þar er svo þröngt
að þá aðstöðu getur aðeins einn í
einu skoðað.
Svo vil ég minna fólk á sjúkra-
bílana og aðstöðu þeirra, þvotta-
húsið og sjúkraþjálfunina í
Hvammi, og ef einhver vill líta á
Sjúkrahúsið í Húsavík sf. býð-
ur öUum að koma og skoða
sjúkrahúsið og kynnast starf-
semi þess á morgun, laugardag
frá kl. 14-18. Tilefnið er að 20
ár eru liðin síðan sjúkrahúsið
flutti í núverandi húsnæði.
Einnig verða sýndir sjúkrabílar
Rauða kross deildarinnar, bfl-
skýli og aðstaða fyrir sjúkra-
flutningana, en 25 ár eru liðin
síðan deildin hóf sjúkraflutn-
inga.
Aldís Friðriksdóttir er hjúkr-
unarforstjóri við sjúkrahúsið og
hún tók því vel að spjalla svolítið
um starfsemi sjúkrahússins og
hvað fróðlegast væri fyrir gestina
að kynna sér á laugardaginn.
Skrifstofa Aldísar er í gamla
sjúkrahúsinu, fyrstu byggingu
stofnunarinnar sem tekin var í
notkun í nóvember 1936 og var
með 15 sjúkrarúmum. Frá 1912-
1924 var starfrækt sjúkraskýli í
Vallholti og síðan í Læknishúsinu
þar til gamla sjúkrahúsið var tek-
ið í notkun. Auk skrifstofu
Aldísar eru þar núna skrifstofur
launafulltrúa og framkvæmda-
stjóra og aðstaða fyrir félagsráð-
gjafa og sérfræðingaþjónustu.
Nýja sjúkrahúsið, afmælisbarnið,
er þrjár hæðir, auk kjallara. Ver-
ið er að byggja heilsugæslustöð
við sjúkrahúsið. Sunnan við það
stendur Hvammur, dvalarheimili
aldraðra og þar er samnýtt
þvottahús, aðstaða til sjúkra-
þjálfunar og bókasafn. Eldhús
sjúkrahússins er í kjallaranum og
þar eru einnig útbúnar máltíðir
fyrir heimilisfólk og starfsfólk í
Hvammi.
- Varð ekki mikil breyting
1970 þegar starfsemin var flutt í
nýja sjúkrahúsið?
„Já, þegar þetta stóra hús, að
okkur fannst, var tekið í notkun.
Upprunalega átti ekki að byggja
efstu hæðina á húsið og þar átti
aðeins að vera ein sjúkradeild á
annarri hæð, en á byggingarstig-
inu var ákveðið að bæta þriðju
hæðinni við. Þjónusturými í hús-
inu er því miðað við eina hæð og
það er löngu orðið of þröngt um
alla starfsemi. Við höfum eignast
heilmikið af hjálpartækjum á
seinni árum, tækjum sem þykja
sjálfsögð í dag, en það er í raun
hvergi pláss fyrir þau, þannig að
plássleysi háir okkur.“
- Rýmkast ekki um þegar
heilsugæslustöðin verður tekin í
notkun?
„Það bætist ekkert aðstaðan á
deildunum en það verður rýmra
um skurðstofu og skiptistofu.
Það rými sem losnar við tilkomu
nýju heilsugæslustöðvarinnar eru
Sjúklingar og starfsfólk í setustofu á þriðju hæð.
Sigríður Einarsdóttir og Kolbrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarnemar frá
Háskólanum á Akureyri. Aldís Friðriksdóttir, hjúkrunarforstjóri, Erna
Oladóttir deildarstjóri á annarri hæð og Anna Þórðardóttir deildarstjóri á
þriðju hæð.
fjórar læknastofur, móttaka,
aðstaða læknaritara og skjala-
safnið, allt er þetta á fyrstu hæð.
Þar verður áfram röntgendeild og
rannsókn, auk skurðstofu og
skiptistofu. Starfsemin sem hér
fer fram í gamla sjúkrahúsinu
flyst síðan yfir í heilsugæslustöð-
ina, nema skrifstofa hjúkrunar-
forstjóra sem verður þar áfram.
Á laugardaginn verður búið að
setja upp ýmsan fróðleik í
aðgengilegu formi og myndir sem
gestum gefst kostur á að skoða.
Starfsfólk verður tilbúið til að
svara spurningum, sýna lækn-
inga- og hjúkrunartæki og notk-
un sumra þeirra. Þeir sem vilja
geta fengið mældan blóðþrýsing
og myndband um hjúkrun og
hjúkrunargögn verður sýnt.“
- Ef við byrjum efst, á þriðju
hæðinni, hvaða starfsemi fer þar
fram og hvað er forvitnilegast
fyrir gesti að kynna sér?
„í sjúkrahúsinu öllu eru stofur
fyrir 62 sjúklinga, en þá er mjög
þröngt því við viljum helst geta
boðið upp á eitt einbýli á annarri
hæð. Stöðugildi í sjúkrahúsinu
eru 96. Á efstu hæðinni er öldr-
unardeild og þar fer fram hjúkr-
un langlegusjúklinga. Þar eru
rúm fyrir 32. Sumir sjúklinganna
eru hjá okkur langtímum saman
og þetta er eins og þeirra heimili.
Svo eru aðrir einstaklingar sem
koma og eru hjá okkur í tvær,
þrjár eða fjórar vikur, þeir eru í
þjálfun og hressa sig upp en fara
síðan heim aftur. Þetta köllum
við hressingar- eða hvíldarinn-
lagnir.
Á þessari hæð vil ég benda
fólki á að kynna sér hjálpartækin;
lyftara, baðlyftur, hvernig hægt
er að hækka og lækka baðið. Það
reynir mjög mikið á bakið að
starfa við umönnun fólksins en
ýmis hjálpartæki eru fáanleg.
Fróðlegt er fyrir gesti að kynna
sér hvað gert er fyrir þessa sjúkl-
inga og í hverju dagleg umönnun
skrifstofuaðstöðuna hér þá er
það auðvitað velkomið.
í sjúkrahúsinu er mikið starf
unnið, allan sólarhringinn, allt
árið um kring og við viljum vekja
athygli fólks á því hvað hér er
verið að gera.“
- Þú nefnir oft tæki í sjúkra-
húsinu, er það vel búið tækjum
og hafa félagasamtök verið dug-
leg að styrkja það til tækja-
kaupa?
„Félagasamtök hafa verið okk-
ur mjög velviljuð og gefið okkur
eitt og annað. Við eigum mörg
góð tæki, þó að alltaf vanti
eitthvað því þessir hlutir vilja
fljótt úreldast."
Við þökkum Aldísi fyrir
spjallið, alveg ákveðin í að nota
hið góða boð og heimsækja
sjúkrahúsið á morgun. IM
pappir og mengar þvi
l|orur mun mcira. ems og
sia ma
• Klor helur hnkaleg
ahnt a lilnkii og a
onaemiskerli likamans
• Við endurvmnslu »r
nolað brol al þeirri orku
sem er nolað við Iram-
leiislu a nyjum pappir
» Hvaí um imyndaðan
hreinleika við Island og
islenskar strendur Hvað
verður el þessi imynd
skekklist Til dzmis
varðandi lisk og hsksolu
-terðaiðnað-vatn
oþ.h.
0G HOLDUM
LANDINU HREINU
Heildsölubirgðir
HLJÓMUR HF.
símar 26667, 25611.
KA-handbolti
Æfingar yngri flokka hefjast sunnudaginn 7. okt. samkvæmt með-
fylgjandi tímatöfiu.
1990/’91 MÁNUD. ÞRIÐJUD. MIÐVIKUD. FIMMTUD. FÖSTUD. LAUGARD. SUNNUD.
M.fl. ka H 18.30-20.00 S 18.00-19.00 H 20.00-21.30 S 18.00-19.00 H 19.00-20.00
2. fl. ka H 21.30-23.00 H 11.00-12.00
3. fl. ka S 19.00-20.00 S 19.00-20.00 H 12.30-13.20
4. fl. ka S 17.00-18.00 S 17.00-18.00 H 11.40-12.30
5. fl. ka H 17.00-18.00 H 10.50-11.40
6. fl. ka B 2/3 H 17.00-18.30 A 2/3 H 18.00-19.00 A H 10.00-10.50
4. fl. kv. 2/3 H 19.00-20.00 H 13.20-14.10
3. fl. kv. S 20.00-21.00 H 14.10-15.00
H: HÖLLIN
S: SKEMMAN