Dagur - 05.10.1990, Síða 11
Föstudagur 5. október 1990 - DAGUR - 11
hér & þar
Tíu atriði í fari kvenna sem gera menn sturlaða
- og ráð til að bregðast við þeim
Jæja karlmenn. Nú fáið þið loks
lausn á vanda ykkar í sambandi
við erfiðar eiginkonur og unnust-
ur. Bandarískur sálfræðingur
hefur nefnilega tekið saman 10
atriði í daglegu !ífi sem konur
nota til að gera karlana brjálaða.
Hér kemur listi yfir þessi atriði og
ráð til að bregðast við þeim.
Sannarlega kærkomið lesefni fyr-
ir þreytta og spælda eiginmenn.
1. Konur kaupa of mikið af
fötum, jafnvel þótt þær eigi troð-
fulla fataskápa. Lausn: Taktu
betur eftir fötunum sem hún
klæðist. Næst þegar hún segir:
„Gvöð, ég á engin föt til að fara
í,“ þá skalt þú segja með yfirveg-
un og aðdáun: „Þú átt fullt af fal-
legum fötum sem ég vil endilega
að þú farir í. Mig sundlar þegar
þú ert í ljósbleika kjólnum og
þegar þú ert í röndóttu blússunni
þá færðu hvern mann til að snúa
sér við á götu.“
2. Konur gagnrýna eiginmann
sinn opinberlega. Lausn: Pakk-
aðu henni fyrir hjálpina þegar
hún segir að þú borðir of hratt,
hlæjir of hátt o.s.frv. Segðu hvað
þér finnst mikilvægt að hafa ein-
hvern eins kláran og hana til að
kenna þér rétta hegðun. Hún
mun skilja þessi skilaboð.
3. Konur koma alltaf of seint á
stefnumót og fundi. Lausn:
Bentu henni kurteislega á þá
staðreynd að það lýsi ekki mikilli
tillitsemi að láta aðra bíða eftir
sér. Ef þetta dugir ekki þá skaltu
sjálfur koma of seint.
4. Konur biðja of oft um hjálp
við að gera hluti sem þær geta vel
gert sjálfar, s.s. að opna krukkur,
hengja upp myndir o.þ.h. Lausn:
Biddu hana að hjálpa þér við að
þvo og bóna bílinn, slá lóðina,
viðra hundinn o.fl. Hún mun þá
brátt gera sér grein fyrir að hún
falast of oft eftir þinni hjálp.
5. Konur taka ákvarðanir sem
byggðar eru á tilfinningum frekar
en skynsemi. Lausn: Ekki
hneykslast eða tala háðslega um
kvenlegt innsæi. Bentu henni
varfærnislega á ástæðuna fyrir
því að ákvörðun hennar getur
verið röng og hverjar afleiðing-
arnar geta verið. Skýrðu út fyrir
henni kosti rökhugsunar.
6. Konur ætlast til að menn viti
hvað þær eru að hugsa og hvaða
tilfinningar þær bera. Lausn:
Sýndu meiri áhuga á samræðum
við hana, haltu tjáskiptaleiðinni
opinni og taktu eftir tjáningu
með svipbrigðum og hreyfingum.
Innan skamms ferðu jafnvel að
geta lesið hug hennar.
7. Konur ganga of langt í
megrun. Lausn: Ekki hæðast að
henni fyrir að vera svona upptek-
in af líkamsvextinum. Hrósaðu
henni oftar og segðu að hún sé
aðlaðandi eins og hún er.
8. Konur vilja láta snúast í
kringum sig alla ævi. Lausn: Þú
getur uppfyllt þessa hvöt kon-
unnar til að láta ganga á eftir sér
með því að játa henni oftar ást
þína. Gefðu henni líka smágjafir
við sérstök tækifæri til að hún
finni að hún er enn stúlkan þín.
Ofurlítil tilfinningasemi getur
borgað sig.
9. Konur gráta í tíma og
ótíma. Lausn: Mundu að konur
láta tilfinningar sínar oftar í ijós
en karlmenn. Gleðitár jafnt sem
sorgartár eru eðlileg viðbrögð og
þú þarft ekki alltaf að halda að
gráturinn sé þér að kenna.
10. Konur vilja breyta mönn-
um sínum. Lausn: Já, já, vissu-
lega nöldra konur oft í mönnum
sínum og reyna að breyta þeim
eftir sínu höfði. Reyndu frekar
að beina athygli hennar að upp-
byggilegum tómstundum, s.s.
málun, dansi, tennis eða garð-
yrkju. Meðan hún fæst við
áhugamálin gleymir hún að
nöldra í þér.
NÚ ER HANN TVÖFALDUR