Dagur - 05.10.1990, Qupperneq 13
Föstudagur 5. október 1990 - DAGUR - 13
Þessar ungu dömur efndu til hlutaveltu á dögunum þar sem þær söfnuöu
1100 kr. og færðu Dvalarheimilinu Hlíð að gjöf. Peningarnir eiga að renna
til byggingar á heitum potti við heimilið. Þessar stúlkur heita Kristín Krist-
jánsdóttir (t.v.) og Katrín Harðardóttir. Mynd: Golli
GRAM frystiskápar
Fyrsta flokks
100 Itr.
Vetrarstarf KFUM og K
á Akureyri að hefjast
Um þessar mundir er að hefjast
vetrarstarf KFUM og KFUK á
Akureyri. Er það fjölbreytt að
vanda, og ættu ungir og aldnir af
báðum kynjum að finna eitthvað
við sitt hæfi. Aðal starfsvettvang-
urinn er hús félaganna að
Sunnhlíð 12, en þar hófst starf
yngri deildar drengja fimmtudag-
inn 4. október kl. 17.30. Yngri
deild stúlkna verður með sína
fundi í Sunnuhlíð á mánudögum
á sama tíma í vetur.
Sameiginleg unglingadeild fyr-
ir pilta og stúlkur verður með
fundi á þriðjudögum kl. 20.00. í
Lundarskóla verða fundir hjá
yngri deild drengja á laugardög-
um kl. 11.00 f.h. og hefst fyrsti
fundurinn laugardaginn 6. októ-
ber. Yngri deild stúlkna verður
með sína fundi kl. 17.30 á þriðju-
dögum á þessum stað.
Þá eru ótaldir fundir í eldri
unglingadeild, sem eru í Sunnu-
hlíð á föstudögum kl. 20.30.
Einnig verða aðaldeildarfundir í
Sunnuhlíð öðru hvoru í vetur.
KFUM og K eru í samstarfi við
kristniboðsfélögin á Akureyri,
aðilar að sunnudagssamkomum í
Sunnuhlíð. Þær samkomur eru
að sjálfsögðu fyrir alla þá sem
áhuga hafa á kristilegu starfi,
hvort sem um er að ræða meðlimi
í framangreindum félögum eða
ekki.
Fjölbreytt námskeið
á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs Akureyrar
Með komu haustsins leggja ungl-
ingarnir niður sumarvinnu og búa
sig undir að setjast á skólabekk á
nýjan leik. Þrátt fyrir annríkið
sem fylgir skólastarfinu teljum við
þörf fyrir holl og þroskandi tóm-
stundastörf.
Eins og undanfarin ár býður
íþrótta- og tómstundaráð Akur-
eyrar upp á fjölbreytt úrval
námskeiða og annarra tóm-
stundastarfa.
Áherslan er lögð á notalegt
andrúmsloft, þar sem unglingarn-
ir fá notið handleiðslu góðra
kennara, fag- og listafólks.
Gott tómstundastarf getur
kveikt hugmynd að framhalds-
námi eða framtíðarstarfi og virk-
ar því sem starfskynning.
Samvinna við fjölskylduna er
dýrmæt í öllu okkar starfi. Við
bjóðum foreldra velkomna til að
kynnast því sem unglingarnir eru
að fást við.
Einnig verður boðið upp á þá
nýjung að hafa opið hús síðdegis
fyrir mæður ungra barna. Þar
geta þær komið með börnin sín,
rabbað saman og notið leiðsagn-
ar í fatasaumi. Aðstaðan er
ákjósanleg, umhverfið er öruggt
fyrir börnin, saumavélar eru á
staðnum og góður kennari.
Um þessa helgi verður borinn í
öll hús á Akureyri bæklingur með
upplýsingum um námskeiðin og
tilhögun þeirra. Innritun hefst á
mánudag. Nánari uppiýsingar og
innritun er á skrifstofu íþrótta-
og tómstundaráðs Akureyrar,
Strandgötu 19 b, í síma 22722.
/-----------------------
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn í bíl
Látiö barniö annaðhvort liggja
í bílstól fyrir ungbörn eða
barnavagni sem festur er
með beltum.
y
UMFERÐAR
RÁÐ
kr. 41.990 (kr. 39.890 stgr.)
146 II
kr. 49.660 (kr. 47.170 stgr.)
175 itr.
kr. 49.980 (kr. 47.480 stgr.)
240 itr.
kr. 58.470 (kr. 55.550 stgr.)
330 Itr.
kr. 76.730 (kr. 72.890 stgr.)
Góðir skilmálnr
Traust þjónusta
3ja ára ábyrgð
f/t Rafland hf.
^^RAFTÆKJAVERSLUN
Sunnuhlíö 12, sími 25010
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 8. október 1990 kl.
20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Sigurður J. Sigurðsson og Gísli
Bragi Hjartarson til viðtals á
skrifstofu bæjarstjóra að
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Ásabyggð 8, Akureyri, þingl. eig-
andi Haraldur Árnason, miðvikud.
10. okt., '90. kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Islandsbanki, innheimtumaður
ríkissjóðs, Gunnar Sólnes hrl„
Guðjón Ármann Jónsson hdl.,
Bæjarsjóður Akureyrar, Bygginga-
sjóður ríkisins og Ásgeir Thor-
oddsen hdl.
Karlsbraut 30 b, Dalvík, þingl. eig-
andi Arnvið Hansen, miðvikud. 10.
okt., '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Atvinna
Okkur vantar nú þegar starfsfólk í eftirtalin
störf á dagvakt:
Við rakgrind í vefdeild, við ýfingu í fatadeild,
við aðstoð á saumalínu í fatadeild.
Um er að ræða heilsdagsstörf.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í
síma 21900 (220).
/
Álafoss hf. Akureyri
Lagerstarf
Óskum eftir að ráða starfsmann á lager.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á tölvu-
skráningu.
Skriflegar umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
15. október n.k.
Sími 21900 (220).
Álafoss hf. Akureyri
ATVINNA
Krossanes hf., óskar eftir að ráða starfsmenn í eftir-
talin störf:
1. Verkamenn til verksmiðjustarfa.
2. Vaktformenn.
3. Járniðnaðarmenn.
Ráðið verður samkvæmt kjarasamningum viðkom-
andi stéttarfélags.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni.
KROSSANES
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og útför,
SÉRA BJARTMARS KRISTJÁNSSONAR.
Sérstakar þakkir til sóknabarna í Laugalandsprestakalli, fyrir
veitta aðstoð.
Hrefna Magnúsdóttir,
Snæbjörg R. Bjartmarsdóttir, Ólafur Ragnarsson,
Kristján H. Bjartmarsson, Halldóra Guðmundsdóttir,
Jónína Þ. Bjartmarsdóttir,
Benjamín G. Bjartmarsson, Ólöf Steingrímsdóttir,
Fanney H. Bjartmarsdóttir, Bert Sjögren,
Hrefna S. Bjartmarsdóttir, Aðalsteinn Jónsson
og barnabörn.
Þökkum af alhug, samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR STEFANÍU STEINGRÍMSDÓTTUR,
Ásgarðsvegi 16, Húsavfk.
Árni Jónsson,
Kristín Árnadóttir, Birgir Lúðvfksson,
Steingrímur Árnason, Ragna Pálsdóttir,
Sigrún Kristbjörg Árnaóttir, Sveinn Indriðason,
Jón Ármann Árnason, Árdís Sigvaldadóttir,
Bjarni Árnason, Þórdís Helgadóttir,
Agnes Árnadóttir, Elmar Ólafsson,
Sigurður Árnason
og barnabörn.