Dagur - 05.10.1990, Síða 15
íþróttir
Föstudagur 5. október 1990 - DAGUR - 15
—
f
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
„Það er virkilegur hugur í liðinu“
- segir Sturla Örlygsson þjálfari Þórs en lið hans mætir UMFG
í Höllinni á sunnudagskvöld
Keppni í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik hefst á sunnu-
daginn með fjórum leikjum. I
Iþróttahöllinni á Akureyri
mætast Þór og Grindavík, á
Hlíðarenda eigast við Valur og
Tindastóll, KR og Haukar
mætast í Laugardalshöll og ÍR
og Njarðvík í íþróttahúsi Selja-
skóla. Allir Ieikirnir hefjast kl.
20.00.
Þórsarar mæta nú til leiks und-
ir stjórn Sturlu Örlygssonar en
hann lék áður með Tindastól og
Úrvalsdeildin í körfubolta:
„Eigum góða mögu-
leika í úrslit“
- segir Valur Ingimundar hjá Tindastól
„Ég er hæfilega bjartsýnn, en
tel okkur þó eiga góða mögu-
leika á að komast í úrslit. Ég
held að körfuboltinn eigi eftir
að verða mjög skemmtilegur í
vetur og þó að talað sé um að
dómgæslan verði stíf held ég
að það sé bara viðvörun,“ seg-
ir Valur Ingimundarson,
leikmaður Tindastóls.
Tindastólsliðið er á pappírnum
með sterkari liðum í úrvalsdeild-
inni í ár eftir að Pétur Guð-
mundsson gekk til liðs við það.
Tveir aðrir nýir leikmenn eru
komnir á Krókinn frá því í fyrra,
Tékkinn Ivan Jonas og Einar
Einarsson úr Keflavík. En hvað
finnst Val um riðilinn sem Tinda-
stóll er í?
„Við erum í sterkari riðlinum,
-en liðið hefur alla burði til að
komast í úrslit fyrir því. Pétur
verður mikill styrkur fyrir okkur
svo lengi sem hann er í formi.
Spurningin er hvernig þetta
smellur saman, Pétur kemur
aðeins tveimur dögum fyrir mót
og það gæti tekið hann tíma að
komast inn í liðið. Pau lið 'sem ég
held að verði að berjast um topp-
inn verða Tindastóll, Keflavík,
Njarðvík, KR og jafnvel Grinda-
vík,“
Fyrsti leikur Tindastóls í mót-
inu er á sunnudaginn gegn Val á
útivelli. Hvað heldur Valur um
þann leik?
„Leikurinn á sunnudaginn
verður auðvitað mjög erfiður fyr-
ir okkur og Pétur aðeins búinn að
koma á eina æfingu. Við mætum
samt til leiks ákveðnir í að gera
okkar besta og sigra,“ sagði Val-
ur Ingimundarson í samtali við
Dag í gær. SBG
Handbolti 2. deild:
„Ég held að við komum ágæt-
lega undirbúnir til leiks að
þessu sinni,“ sagði Ásmundur
Arnarsson leikmaður 2. deild-
arliðs Völsungs í handknattleik
en liðið hefur keppni á Islands-
mótinu um helgina með tveim-
ur leikjum fyrir sunnan.
Á laugardag sækja þeir Kefl-
víkinga heim en daginn eftir leika
þeir gegn HK í Kópavogi. „Það
má segja að í ferðinni til Alaborg-
ar fyrir skömmu hafi liðið fyrst
komið almennilega saman. Það
Karatefélag Akureyrar:
Æfingar að heflast
Vetrarstarf Karatefélags
Akureyrar er að hefjast og
fyrstu æfíngarnar á þessu
hausti verða n.k. mánudag.
Æfíngar félagsins fara nú fram
í nýrri æfíngaaðstöðu að Gler-
árgötu 28 2. hæð.
Boðið verður upp á byrjenda-
námskeið fyrir tvo aldursflokka,
annars vegar 12-14 ára og hins
vegar 15 ára og eldri, auk æfinga
fyrir framhaldsnemendur. Æfing-
arnar verða sem hér segir:
Mánudagur:
Kl. 18.15 eldri fl. byrjenda.
Kl. 19.30 framhaldsnemendur.
Þriðjudagur:
Kl. 19.30 yngri fl. byrjenda.
Miðvikudagur:
Kl. 18.15 eldri fl. byrjenda.
kl. 19.30 framhaldsnemendur.
Fimmtudagur:
Kl. 18.15 yngri fl. byrjenda.
Föstudagur:
Kl. 18.30 framhaldsnemendur.
Laugardagur:
Kl. 15.30 eldri fl. byrjenda.
Kl. 17.00 framhaldsnemendur.
Hugsanlegt er að æfingum
yngri byrjenda verði fjölgað um
eina en það skýrist innan tíðar.
Þjálfari Karatefélags Akureyrar
er Magnús Sigþórsson. -KK
Njarðvík.
„Við komum nokkuð vel undir-
búnir til leiks og keppnistímabil-
ið leggst vel í mig,“ sagði Sturla í
samtali við Dag. „Við komum til
með að taka hvern leik fyrir sig
en ég held að það hljóti öll liðin í
dcildinni að stefna að því að
komast í úrslitakeppnina."
- Nú mætið þið Grindvíking-
um í fyrsta leik, hefurðu séð
eitthvað til þeirra?
„Já ég sá þá vinna Njarðvík-
inga á sunnudaginn og það er
greinilegt miðað við þann leik að
þeir mæta sterkir til leiks. En
hvað sem því líður, þá tel ég liðs-
heildina okkar sterkari.“
- Eru menn orðnir mjög
spenntir fyrir því að byrja?
„Já það er virkilegur hugur í
liðinu og við hlökkum mikið til
að vinna fyrsta leik og sýna
áhorfendum hvers megnugir við
erum. - Og ég skora á körfu-
knattleiksunnendur að mæta í
Höllina og hvetja okkur til
dáða.“
Þórsarar fá Grindvíkinga heim í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á sunnu-
dag.
íslandsmótið í blaki:
Völsungur sendir kvennalið til
þátttöku eftir nokkurt hlé
- Þróttur N mætir kvennaliði KA og Völsungs
„Höfum sett stefimna
á úrslitakeppnina“
- segir Ásmundur v\rnarsson
leikmaður Völsunga
eru margir strákanna í fótboltan-
um líka og það er oft erfitt að
samræma þessa hluti.“
- Völsungur leikur nú í 2.
deild eftir frækilega frammistöðu
í fyrra. Vitið þið eitthvað um lið-
in í 2. deildinni?
„Nei við vitum ekkert um þau
og það má segja að við rennum
alveg blint í sjóinn. En við ætlum
að standa okkur og markmiðið er
að komast í efri hlutann og spila í
sex liða úrslitakeppninni í vetur,“
sagði Ásmundur. -KK
Blakvertíðin hefst fyrir alvöru
um helgina en þá fara fram
fyrstu leikirnir í Islandsmót-
inu, bæði í karla- og kvenna-
flokki. KA-menn leika tvo
leiki gegn Þrótti N um helgina,
á föstudagskvöld kl. 20.50 í
Glerárskóla og á laugardag kl.
16 í Höllinni. Kvennalið KA
leikur gegn Þrótti N í Glerár-
skóla á föstudag kl. 22.10 en
daginn eftir leika Þróttara-
stelpur gegn Völsungi á Húsa-
vík. Sá leikur fer fram í íþrótta-
höllinni á Húsavík og hefst kl.
20, nokkuð óvenjulegur leik-
og karlaliði KA um helgina
tími það á laugardegi.
Völsungur mætir nú með
kvennalið til keppni í íslands-
mótinu á ný eftir nokkurra ára
hlé en síðast lék liðið í íslands-
mótinu ’83-’84. Sveinn Hreinsson
er þjálfari liðsins en hann er fyrr-
um landsliðsmaður úr Þrótti R og
er að kenna á Húsavík í vetur.
Konan hans, Björg Björnsdóttir,1
hyggst leika með liðinu en hún
þykir snjall blakmaður. Nokkrar
stúlkur sem léku með liðinu árið
1984, er ennþá með og þá eru
einnig í liðinu ungar og upprenn-
andi blakstúlkur.
KA-menn leika tvo leiki gegn Þrótti N í 1. deildinni í blaki um helgina.
„Við mætum galvaskar til leiks
og höfum að sjálfsögðu sett stefn-
una á toppinn," sagði Ásdís Jóns-
dóttir leikinaður Völsungs í sam-
tali við Dag. „Við höfum æft vel
síðan um miðjan ágúst en ekkert
spilað nema á haustmóti BLÍ um
síöustu helgi. Þá lékum við ein-
mitt gegn Þrótti N og unnum
þann leik 2:1,“ sagði Ásdís Jóns-
dóttir.
Karlalið KA mætir með nokk-
uð breytt lið til leiks að þessu
sinni og þá hafa einnig orðið
breytingar á kvennaliðinu. Þá er
keppnin í 1. karla og kvenna með
öðru sniði en síðustu ár. I 1. deild
karla leika sex lið fjórfalda
umferð um titilinn en í 1. deild
kvenna leika sjö lið fjórfalda
umferð um titilinn.
„Ég á von á því að við verðum
með svipað lið og í fyrra og von-
andi sterkara ef Fei verður lög-
legur,” sagði Sigurður Arnar
Ólafsson leikmaður KA í samtali
við Dag.
„Stelpurnar hafa misst góðan
spilara og ég á von á því að vetur-
inn verði nokkuð erfiður hjá
þeim. Þær eru frekar ungar en
eiga þó alveg að geta staðið sig,“
sagði Sigurður Arnar. -KK
Handbolti 1. deild:
Valur-KA á
Hlíðarenda
KA sækir Val heim á morgun
laugardag í 1. deild íslands-
mótsins í handknattleik.
Leikurinn fer fram á Hlíðar-
enda og hefst kl. 16.30.
KA-menn leika einnig útileik í
næstu umferð sem fer fram um
aðra helgi en þá sækja þeir
Stjörnumenn heim í Garðabæ.
Næsti heimaleikur liðins fer hins
vegar fram í Höllinni föstudaginn
19. okt. og hefst kl. 20.30.