Dagur - 05.10.1990, Síða 16
imm,
Akureyri, föstudagur 5. október 1990
Ungar blómarósir fölna í nöprum norðangarranum, en ekkert virðist bíta á
hundinn. Mynd: KL
Nýir réttir á villibráðarseðll
Smidjunnar í livcni \iku
Vinsamlegast pantið borð tínianlega í síma 21818.
Dalvík:
Varaargarður gaf sig í miklu brimi
Brimvarnargarður, sem verk-
takar á Dalvík hafa að undan-
förnu unnið við að byggja,
laskaðist töluvert í miklu brimi
sem yfir hann gekk í norðan-
veðrinu aðfaranótt fimmtu-
dags.
Á undanförnum vikum hefur
verið unnið að því að stækka
athafnasvæði hafnarinnar á Dal-
vík norðan svokallaðs norður-
garðs. Fylla á upp í töluvert
svæði og til þess að það væri unnt
þurfti að byggja brimvarnargarð í
suðaustur að núverandi norður-
garði. Garðurinn var ekki tilbú-
inn, en orðinn bílfær, þegar
brimið gekk yfir hann og sópaði
töluverðu efni ofan af honum.
Júlíus Snorrason, formaður
hafnarnefndar, sagði í samtali við
Dag að erfitt væri að gera sér
grein fyrir um hversu inikið tjón
væri að ræða. Hann sagðist ætla
að mest af efninu hefði sópast af
garðinum og inn í vikið, sem síð-
ar verður fyllt upp í. Ef svo
reyndist taldi Júlíus að fjárhags-
legt tjón væri ekki mjög mikið,
en hins vegar væri ljóst að verkið
gæti af þessum sökum tafist um
einhverja daga. óþh
Samningar um Hafþór:
Dögun með frest
fram á mánudag
- ráðuneytið með gagntilboð
„Við gerðum þeim gagntilboð
á fundi í morgun, þar sem við
förum fram á ábyrgð á útborg-
un og síöan hafa þeir 100 millj-
ón króna veð í skipinu. Þá eru
eftir 64 milljónir og við viljum
fá bankaábyrgð fyrir þeim,
þannig að í þessu verði engin
úrelding,“ sagði Gylfi Gautur
Pétursson í sjávarútvegsráðu-
neytinu í gær um samningavið-
ræður Dögunar um Hafþór.
Forráðamenn Dögunar hf. á
Sauðárkróki hafa nú frest fram á
V.-Húnavatnssýsla:
Allt að sexfalt verð fyrir ull
í Vestur-Húnavatnssýslu er
búið að stofna verkefnishóp
um ullarhreinsun og pökkun
hennar fyrir markaði. í fyrra
tóku nokkrir bændur sig til að
áeggjan Átaksverkefnisins og
komu með til markaðssetning-
ar um 500 kg af sérlega valinni
ull, mest mislitri af haustrún-
um lömbum. Hún var síðan
markaðssett sem handiðnaðar-
hráefni og einn bóndi fékk
m.a. 47.000 krónur fyrir magn
sem með venjulegri markaðs-
setningu hefði gefið 7-8000
krónur.
Að sögn Karls Sigurgeirsson-
ar, hjá Átaksverkefninu, er ullin
þvegin hjá saumastofunni Drífu á
Hvammstanga úr sérlega mildum
legi þannig að hluti fitu hennar
verður eftir. í ár er síðan reiknað
Sauðárkrókur:
Hert eftirlit lögreglu
Lögreglan á Sauðárkróki fór af
stað með „klippurnar“ sl. mið-
vikudag og þurfti að beita
þeim á 25 ökutæki á Króknum
sem trassað hafði verið að fara
með í skoðun.
Að sögn munu þeir síðan fara
að líta víðar um fjörðinn, en
ótrúlega mikið virðist vera um
trassaskap í sambandi við öku-
tækjaskoðun.
Einnig er að fara af stað hjá
þeim hert eftirlit með öryggis-
beltanotkun og í leiðinni athugun
á ljósabúnaði. SBG
með að pakka ullinni einnig í V.-
Húnavatnssýslu í markaðshægar
umbúðir. Síðan verður hún send
bæði á markaði innanlands og
utan. Möguleiki er á að tog og
þel verði aðskilið í einhverjum
hluta framleiðslunnar.
„Guðjón Hjartarson hjá Ála-
fossi hefur gefið okkur góð ráð í
þessu, en þetta er fyrsta skrefið í
að breyta ímynd ullarinnar úr
ódýru iðnaðarhráefni í verðmæt
hráefni fyrir handiðnað. Náttúru-
legir litir skipta miklu máli og ég
tel að mislit ull í handhægum
pakkningum eigi tvímælalaust
fullt erindi út á hinn stóra
markað,“ sagði Karl.
Til að fá bestu ullina í þetta
verkefni þarf að sögn Karls að
rýja líflömbin um leið og þau eru
tekin á hús, en þá verður að
passa að minnka rúntið í kringum
þau eftir rúning svo að kuldinn
segi ekki til sín. Karl benti á að til
þess mætti t.d. nota plast yfir
krærnar. SBG
Kosningadagur í Eyjafirði á morgun:
Rólegt yfir utankjörfimdaratkvæðagreiðslu
Rólegt hefur verið yfir utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðslu
vegna sameiningarkosning-
anna í hreppunum þremur
framan Akureyrar sem fram
fara á morgun. Hægt er að
kjósa á þremur stöðum í Eyja-
firði og einum stað í Reykja-
vík.
í Saurbæjarhreppi hafði einn
kjósandi neytt atkvæðisréttar
sfns utan kjörstaðar í gær og
sömu sögu var að segja af skrif-
stofu Sambands sveitarfélaga í
Reykjavík þar sem einnig er hægt
að kjósa. Hjá hreppstjóra
Hrafnagilshrepps höfðu fjórir
greitt atkvæði í gær en ekki náð-
ist í hreppstjóra Öngulsstaða-
hrepps til að fregna af kosningu
þar.
Líklegt er að byrjað verði að
telja atkvæði í þessum kosning-
um um kl. 21 annað kvöld en þó
ræðst það af kjörsókninni þegar á
líður daginn. Að öllum líkindum
verða atkvæði talin í félags-
heimilinu Laugaborg í Hrafna-
gilshreppi og ættu niðurstöður úr
kosningunni að liggja nokkuð
fljótt fyrir.
JÓH
mánudag til að útvega sér banka-
ábyrgð og ganga að öðrum kjör-
um ráðuneytisins. Ef þeim tekst
það að mestu leyti sagði Gylfi
Uautur að Hafþór yrði þeirra.
Takist það aftur á móti ekki verð-
ur leitað til þess næsta í röðinni,
sem er samkvæmt tilboðum í
byrjun, Ingimundur hf. og Gjög-
ur hf. með 200 milljónir króna,
50 milljónir í útborgun.
Ómar Þór Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Dögunar sagði í
gær að ekki væri hægt að segja
það í þessari stöðu hvort þeim
tækist að verða við kröfum ráðu-
neytisins. Þeir væru að hugsa
málið og útkoman kæmi í ljós á
mánudaginn. SBG
Svarfaðardalur:
Tæp níu hundruð líf-
lömb á 26 bæi í haust
Rétt tæp níu hundruð líflömb
koma í Svarfaðardal á þessu
hausti, en eins og kunnugt er
var þar allt fé skorið niður
vegna riðu og hefur verið fjár-
laust á sumum bæjum í dalnum
í þrjú ár.
Að sögn Jóns Þórarinssonar,
fjallskilastjóra, komu 457 lömb
vestan af Ströndum um síðustu
helgi með strandferðaskipinu
Öskju og von er á 440 lömbum
austan úr Pistilfirði um eða eftir
helgina. Þessi tæplega níu hundr-
uð lömb deilast niður á 26 býli í
Svarfaðardal.
Jón sagði að flutningur lamb-
anna sjóleiðina vestan af Strönd-
um hafi gengið mjög vel. Askjan
lagði af stað um kl. 2 aðfaranótt
laugardags og lagðist að bryggju
á Dalvík kl. 10 árdegis. Féð var
mjög vel á sig komið. Af þessum
457 lömbum voru einungis tvö
hyrnd lömb, hin voru öll kollótt.
Jón sagðist telja að velflestir
bændur í Svarfaðardal, sem
hefðu verið með sauðfé fyrir
niðurskurð, myndu taka fé aftur í
einhverjum mæli.
Að ári eiga allir þeir bændur í
Svarfaðardal, sem skáru niður
fjárstofn sinn vegna riðuveiki,
rétt á að taka fé að nýju, sam-
kvæmt samningi við landbúnað-
arráðuneytið og Sauðfjárveiki-
varnir.
Nánar er fjallað um flutning
líflamba af ósýktum svæðum inn
á áður sýkt riðuveikisvæði í
Dags-ljósi á bls. 6. óþh
Lögreglan á Akureyri:
Þrír réttindalausir
ökiunenn teknir í gær
Þrír menn sem allir höfðu
misst ökuleyfíð voru teknir við
akstur á Akureyri í gær, full-
komlega réttindalausir. Að
sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni hefur það færst mjög í
vöxt að menn aki bifreiðum án
þess að hafa réttindi til þess og
er hér um alvarlega þróun að
ræða.
„Þetta gengur ekki lengur,“
sagði varðstjórinn. „Það verður
að herða á þessu því ef þessir
menn lenda í tjóni þá getur kom-
ið babb í bátinn hjá tryggingar-
félögunum.
Mennirnir voru stöðvaðir kl.
10.30, 11.30 og 14.30 í gær við
akstur á götum Akureyrar. Þetta
eru allt fullorðnir menn, ekki
neinir unglingar í ævintýraferð-
um, og tókst lögreglunni að hafa
hendur í hári þeirra eftir að hafa
fengið ábendingar og grunsemdir
höfðu vaknað um athæfi þeirra.
Að öðru leyti dró ekki mikið til
tíðinda hjá lögreglunni á Akur-
eyri í gær en í fyrradag voru tveir
árekstrar tilkynntir til lögregl-
unnar.
SS