Dagur - 22.06.1991, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 22. júní 1991
Möðruvellir í Hörgárdal:
félags Norðurlands og Stefáns
Magnússonar, bústjóra, og eru
Möðruvellir með afurðahærri
búum landsins. Þá er áhugi á að
hefja skipulagða skjólbeltarækt
og skógrækt í samstarfi við Skóg-
rækt ríkisins, Landvernd og fleiri
aðila.“
Núverandi
rekstrarfyrirkomulag
Sé litið til núverandi rekstrar-
fyrirkomulags að Möðruvöllum
og upplýsinga segir í skýrslum:
„Þann 4. apríl 1986 gerðu RALA
og Ræktunarfélag Norðurlands
(RN) með sér samning um upp-
byggingu og rekstur tilrauna-
stöðvarinnar á Möðruvöllum í
Hörgárdal. Hann felur m.a. í sér
að RN tekur Möðruvelli á leigu
með landi, húsum, tækjum og
gripum.“
„RN greiðir engin leigugjöld
en skuldbindur sig til að reka og
bera fjárhagslega ábyrgð á
búskap á jörðinni með þær
búgreinar sem ákveðnar eru af
stjórn stöðvarinnar í þeim til-
gangi að þar séu gerðar tilraunir í
landbúnaði." (1. gr.)
„RALA kostar viðhald á húsum
og landi eftir því sem fé er veitt af
fjárlögum hverju sinni og útvegar
fé til fjárfestinga sem taldar eru
nauðsynlegar vegna tilrauna." (2.
gr-)
_ Reikningslega er búreksturinn
á ábyrgð RN og RALA ber allan
kostnað og reikningsskil af til-
raunastarfseminni sem þar fer
fram. Samningurinn er upp-
segjanlegur með 12 mánaða fyrir-
varar(12. gr.)
í stjórn stöðvarinnar sitja nú
Rögnvaldur Ólafsson, formaður,
Flugumýrarhvammi (skipaður af
landbúnaðarráðherra), Haukur
Steindórsson, Príhyrningi
(skipaður af RN) og Þorsteinn
Tómasson, forstjóri, (skipaður af
RALÁ).
Staðhættir
Nú skulum við líta til staðhátta á
Möðruvöllum og helstu bygginga
og enn grípum við niður í þær
skýrslur er fyrir liggja.
„Möðruvellir II eru með full-
virðisrétt upp að 150.000 kg í
mjólk. í fjósi hafa verið að jafn-
aði um 35 mjólkurkýr auk upp-
eldis. Ljóst er að fækka þarf kúm
um allt að fimm vegna offram-
leiðslu. Vonir standa þó til að
með breyttum búvörusamningi
eða sérheimildum stjórnvalda
verði hægt að auka kvótann sem
er nauðsynlegt til að gefa
tilraunamönnum meira svigrúm í
verkefnavali og tryggja hag-
kvæmari rekstrareiningu.
Ræktunarland er ríflega 60
hektarar að stærð og er fjöl-
breytilegt að gerð og eiginleik-
um. Landrými umhverfis fjósið
er hins vegar lítið og heppilegt
beitiland fyrir kýrnar af þeim
sökum takmarkað. Stjórn stöðv-
arinnar hefur því ákveðið að
sækja eftir leigu á um 5 hektur-
um, svokallaða Akurmýri, sem
er í eigu Möðruvalla I. Við það
gefst meira svigrúm til beitar-
stjórnunar og beitartilrauna."
Helstu byggingar
„í tilraunafjósi er rörmjaltakerfi
og básar fyrir 48 mjólkurkýr auk
stía fyrir uppeldi. Framstykkin í
básunum hafa reynst illa og því
er nauðsynlegt að gera betrum-
bætur þar á. Hugmyndin er að
íslendingum öllum ætti að vera ljóst að landbúnað-
ur á Islandi á í vök að verjast. Víða í sveitum lands-
ins er varla hægt að tala um búskap í þess orðs
fyllstu merkingu. Margt kemur til sem óþarfí er að
rekja hér. Bændafólkið á landsbyggðinni er orðið
langþreytt á tillitsleysi stjórnvalda og þykir sem allt
snúist um þá er búa í landnámi Ingólfs Arnarsonar.
Þrátt fyrir að hart sé í ári hjá bændum má ekki
gleyma að margt er gert til að efla landbúnaðinn á
Islandi. Tilraunastöðin á Möðruvöllum í Hörgár-
dal er þess glöggt dæmi.
Á Möðruvöllum
„Á Möðruvöllum í Hörgárdal er
markmiðið að vera með öfluga
tilraunastarfsemi í nautgriparækt
og jarðrækt. Þetta er undirstrik-
að í nýrri stefnumörkun stofnun-
arinnar frá 1989. Þar var ákveðið
að fjölga stöðugildum um tvö,
þar af eitt stöðugildi sérfræðings í
nautgriparækt. Sérfræðingar
stöðvarinnar búa bæði yfir fag-
legri þekkingu og starfsreynslu á
vísindalegum vinnubrögðum sem
Reiknivélar
nýtast vel til úrlausnar á margs
konar viðfangsefnum. Samvinna
við aðra sérfræðinga Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, ráðu-
nauta og bændur er þá ekki síður
mikilvæg til að nást megi mark-
viss árangur.
Á Möðruvöllum verður leitast
við að koma upp vinnuaðstöðu
fyrir utanaðkomandi rannsókna-
menn. í þessu sambandi er áhugi
fyrir því að koma upp gisti-
aðstöðu fyrir rannsóknamenn
sem vilja dvelja í lengri eða
skemmri tíma til að sinna
Eggertsfjós. I byggingunni er hrútasæðingastöð RN, kalrannsóknarstofa og í sumár verður frærannsóknarstofa
RALA á Keldnaholti flutt þangað inn.
Dráttarvélahjólbaröar -
heyvinnuvélahjólbarðar -
vörubílahjólbaröar - fólks-
bílahjólbarðar. Hjá GV fást
hjólbarðar undir allar gerð-
ir ökutækja.
Gúmmívinnslan hf
Réttarhvammi 1, Akureyri,
s. 96-26776.
Grænfóður- og túnræktartilraunir tengjast beint eða óbeint nautgriparæktinni. Tilraunastjórinn í tilraunareit að
Möðruvöllum.
Þóroddur Sveinsson, M.Sc., jarðræktarfræðingur og tilraunastjóri á Möðru-
völlum í Hörgárdal í frærannsóknarstofu RALA.
ákveðnum verkefnum, t.d. fyrir
aðra starfsmenn RALA, ráðu-
nauta, námsmenn og erlenda
fræðimenn,“ segir í greinargerð
um markmið Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins á Möðruvöll-
um.
Ennfremur segir: „Óhjá-
kvæmilega er gestkvæmt á
Möðruvöllum. Eru það hvort
tveggja kirkjan og tilraunastöðin
sem dregur að ferðamenn.
Hópar, jafnt innlendra sem
erlendra bænda, námsmanna og
fræðimanna, koma til að fræðast
um sögu staðarins, íslenskan
landbúnað og landbúnaðarrann-
sóknir. Því er mikilvægt að á
Möðruvöllum sé rekið fyrir-
myndarbú sem er íslenskum
landbúnaði til sóma, jafnt utan
dyra sem innan dyra. Verður að
segjast að það hafi tekist bærilega
undir styrkri stjórn Ræktunar-
Vettvangur tfl að tengja betur en áður
jarðræktar- og nautgriparæktartflraunir