Dagur - 12.10.1991, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 12. október 1991
Fréttir
Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Laxár hf.,
um gagnrýni framkvæmdastjóra Ewos hf.:
í meira lagi hæpið að hluthafar
standi ekki við skulbindingar sínar
Lauffall í Lystigarði.
Mynd: Golli
Sjálfsbjörg:
Félagsstarf
vetrarins hafið
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Laxár hf., vísar
á bug þeim ummælum Árna
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra Ewos hf., í Degi og
Morgunblaðinu, að Laxá hf.
Þriggja manna starfshópur
vinnur nú að því á Hvamms-
tanga að koma á laggirnar
æskulýðsmiðstöð fyrir ungl-
inga staðarins. Upphaflega
ætlaði hreppsnefnd að ráða
einn mann til verksins, en síð-
an var ákveðið að sinna þessu í
hópvinnu.
Bjarni Þór Einarsson, sveitar-
stjóri Höfðahrepps, segir að unn-
ið sé að undirbúningi af fullum
krafti og starfshópurinn sé búinn
Akureyri:
Útvegsmenn
funda
Utvegsmannafélag Norðurlands
efnir til aðalfundar á Akureyri á
mánudag. Fundinum var frestað
þegar halda átti hann fyrir
skömmu en nú er gerð önnur til-
raun. Fundurinn verður að Hótel
KEA og hefst kl. 14.
undirbjóði samkeppnisaðila
sína.
Guðmundur segir að ef verð
hjá Laxá séu lægri en hjá Ewos sé
það vegna þess að vel hafi tekist
til með hagræðingu í rekstri
að leggja fyrir hreppsnefnd drög
að starfseminni. Æskulýðsmið-
stöðin verður til húsa í gamla
samkomusal Félagsheimilisins á
Hvammstanga og segir Bjarni að
töluverðar fjárhæðir þurfi til að
koma starfseminni í endanlegt
form, en ekki séu nema 500 þús.
krónur til verksins á fjárhagsáætl-
un þessa árs. Hann segir að sú
fjárhæð verði að minnsta kosti
látin renna til starfseminnar, en
hvorki sé búið að taka afstöðu
með eða á móti aukafjárveitingu
til æskulýðsmiðstöðvarinnar.
Starfshópurinn vinnur að þessu
verkefni í samráði við æskulýðs-
og íþróttanefnd Höfðahrepps og
er stefnan að útbúa í félags-
heimilinu aðstöðu til að vera með
„opið hús“ þar sem unglingar geti
starfað að sínum áhugamálum.
„Markmiðið með þessu er að
vekja áhuga unglinganna á að
finna sér holl og góð áhugamál og
skapa þeim aðstöðu til að vinna
að þeim,“ segir Bjarni og vonast
hann til að starfsemin komist sem
fyrst af stað. SBG
Laxár. Hann segir að vera megi
að Laxá hf. bjóði lægra verð, sem
sé allt annað en undirboð, enda
sé Ewos hf. engin opinber við-
miðun, hvorki hér heima né ann-
ars staðar.
„Vegna þeirra ummæla, sem
framkvæmdastjóri Ewos hf. við-
hefur um hluthafa í Laxá hf., skal
það undirstrikað að Laxá hf. er
hlutafélag og hvort Akureyrar-
bær, Byggðastofnun eða aðrir
eru hluthafar gefur ekki sérstak-
lega tilefni til lægra verðs á vör-
um félagsins. Á það má benda,
að einmitt þessir fyrrnefndu aðil-
ar voru hluthafar í ístess hf. og
að Ewos hf. bauð þá lægra verð
en ístess hf. gerði,“ segir Guð-
rnundur. Hann tekur fram að
Laxá hf. leigi fóðurverksmiðjuna
af þrotabúi ístess hf. og því sé
fullyrðing Árna um að hluthafar í
Laxá hf. leigi verksmiðjuna af
sjálfum sér, röng. Hluthafar í
Laxá hf. stjórni ekki þrotabúinu,
heldur opinber bústjóri.
„Hins vegar skal á það bent, að
nokkrir hluthafar í Laxá hf., sem
einnig voru hluthafar í ístess hf.,
eiga líklega stærstan hluta krafna
í þrotabúið. Ef þær kröfur fást
ekki greiddar munu þessir aðilar
sitja uppi með tapið og því er í
meira lagi hæpið að fullyrða að
þeir standi ekki við skuldbinding-
ar sínar, sérstaklega sé miðað við
hvernig gjaldþrot ístess hf. bar
að. Það er að sjálfsögðu út í hött
að segja að þeir aðilar sem að
Laxá hf. standa séu að koma inn
á fóðurmarkaðinn nú í samkeppni
við Ewos hf. Flestir þessara aðila
voru með í ístess hf., sem var á
þessum markaði á undan Ewos
hf., bæði hér heima og í Færeyj-
um,“ segir Guðmundur Stefáns-
son. óþh
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á Akur-
eyri og nágrenni hefur hafið
félagsstarfið á nýbyrjuðu hausti.
Spiluð er félagsvist annað
hvort fimmtudagskvöld kl. 20.00
í samkomusal Dvalarheimilisins
Hlíð.
Föndurnámsskeið hefst 12.
október í félagssal Sjálfsbjargar
að Bjargi, neðri hæð. Kennt
verður: kortagerð, barmnælur,
eyrnaíokkar, hálsmen og lykla-
hringir úr svokölluðu undra-
plasti.
Haldinn verður almennur fund-
ur í samkomusal Dvalarheimilis-
ins Hlíðar laugardaginn 2. nóv.
kl. 13.30. Fundarefni: heima-
hjúkrun og heimaþjónusta. Gest-
ir og frummælendur verða: Val-
gerður Jónsdóttir, Björn Þór-
leifsson og Jóhann Pétur Sveins-
son. Þessi fundur er öllum opinn
sem áhuga hafa á.
Jólaföndur verður að Bjargi
síðari hluta nóvember og hefð-
bundin jólatrésskemmtun milli
jóla og nýárs. Þessir liðir verða
nánar auglýstir síðar.
Fengist hefur afsláttur á vörum
og þjónustu hjá nokkrum fyrir-
tækjum á Akureyri fyrir Sjálfs-
bjargarfélaga. Fá þeir félagar
sem gert hafa skil á árgjöldum
lista yfir gefendur afsláttar en sá
listi verður gefinn út af Lands-
sambandinu og er í vinnslu.
Hvammstangi:
Unnið að mótun
æskulýðsstarfs
Viðbrögð við heimsmeistaratign íslenska briddslandsliðsins
Hörður Blöndal,
Akureyri:
Fyrirliðiim bjó
til heUsteypt íið
„Þessi stórkostlegi árangur
íslenska landsliðsins er ekki alveg
út í hött, þó manni hafi kannski
þótt það fyrir viku eða hálfum
mánuði síðan,“ sagði Hörður
Blöndal, stjórnarmaður í Bridge-
sambandi íslands í samtali við
Dag.
„Ef maður lítur aðeins til
baka, þá varð íslenska sveitin í
4.-5. sæti á Evrópumótinu 1987
og Norðurlandameistari árið
1988. Það er viss vísbending um
það að við höfum verið að koma
upp með sterkt lið og þó svo að
einhverjar breytingar hafi orðið á
liðinu er þetta sami kjarninn.
Einnig náðist mjög góður árang-
ur á Evrópumótinu í ár, þannig
að efniviðurinn er til staðar.
Það má segja að fyrirliðanum
hafi í fyrsta skipti tekist að temja
spilarana og stjórna þeim en því
hefur oft verið öfugt farið. í Jap-
an var það fyrirliðinn sem stjórn-
aði og hann bjó til heilsteypt lið
og þetta virkaði sem lið en ekki
sem einstaklingar og pör og það
gerði gæfumuninn á þessu móti.
Það sem okkur vantar í fram-
haldi af þessum árangri er að
gefa þessum spilurum og fleirum
tækifæri á að taka þátt í mótum
erlendis, bæði til þess að skólast
og venjast þeirri hörku sem því
fylgir. Að lokum vil ég óska
landsliðinu til hamingju en þeir
eru vel að þessu komnir og sköp-
uðu manni ógleymanlega nótt.“
Guðmundur Hákonarson,
Húsavík:
Mikil lyftistöng
fyrir íþróttina
„Þetta er hreint stórkostlegur
árangur hjá landsliðinu og ég
held að þetta eigi eftir að verða
mikil lyftistöng fyrir briddsíþrótt-
ina í landinu," sagði Guðmundur
Hákonarson í samtali við Dag.
„Ég hef fylgst nokkuð vel með
strákunum og vakti síðustu klst. í
nótt á meðan lokaslagurinn stóð
yfir. Framkoma okkar manna
hefur án efa vakið mikla athygli í
Japan. Þeir hafa ábyggilega verið
með bros á vör og verið landi og
þjóð til sóma.
Ég held að menn hafi ekki átt
von á þessum glæsta árangri.
Menn voru að gæla við að þeir
kæmust í undanúrslit, með því að
t.d. að ná fjórða sæti í sínum riðli
en að þeir kæmu heim sem
heimsmeistarar er eitthvað sem
menn ekki reiknuðu með. Þetta
er sennilega besti árangur sem
náðst hefur í flokkaíþrótt á ís-
landi og þar er hlutur fyrirliðans
ómetanlegur.“
Jón Sigurbjörnsson,
Siglufirði:
Frábær árangur
hjá strákunum
„Maður er búinn að vaka síðustu
þrjár nætur og sér ekkert eftir
því. Þetta er alveg frábær árang-
ur hjá strákunum,“ sagði Jón Sig-
urbjörnsson í samtali við Dag.
„Það hafði svo sem hvarflað að
mönnum að hægt væri að ná góð-
um árangri með góðu og samstilltu
liði, án þess þó að maður hafi
þorað að vonast eftir slíkum
árangri áður en lagt var af stað.
En eftir fyrstu leikina var alveg
ljóst að það gat allt skeð.
Það hafa margir rætt bridds við
mig en síðustu daga hafa allir tal-
að við mig um bridds, jafnt þeir
sem spila og aðrir. Hér á Siglu-
firði hafa menn fylgst spenntir
með framvindu mála líkt og ann-
ars staðar. - Og það er alveg ljóst
að áhuginn fyrir spilinu á eftir að
aukast mjög mikið og því verða
forsvarsmenn félaganna að
standa klárir á því að taka á móti
nýju fólki. Þetta er einmitt íþrótt
sem menn geta stundað svo lengi
sem þeir hafa eitthvert vit í koll-
inum.“
Kristján Blöndal,
Sauðárkróki:
Sigur allrar
þjóðarinnar
„Þetta er frábær árangur hjá
strákunum og mun betri en ég
átti von á. Ég hafði gælt við að
þeir kæmust í átta liða úrslit en
að þeir færu alla leið hafði ekki
hvarflað að mér,“ sagði Kristján
Blöndal í samtali við Dag.
„Þessi árangur er sigur allrar
þjóðarinnar og kemur örugglega
til með að auka áhuga á bridds-
íþróttinni hér á landi. Það sýndi
sig á tveimur mótum hér á Sauð-
árkróki eftir að heimsmeistara-
mótið hófst. Á fyrra mótið mættu
8 pör en á það seinna 16 og það
má örugglega rekja að einhverju
leyti til þeirrar umfjöllunar sem
íþróttin hefur fengið að undan-
förnu.
Forsvarsmenn félaganna koma
örugglega til með að nýta sér þá
bylgju sem nú gengur yfir og von-
andi eiga félögin eftir að stækka
mikið á næstunni. Þegar Fisher
og Spassky tefldu hér á sínum
tíma, komu margir snjallir skák-
menn fram á sjónarsviðið og von-
andi verður j^að eins í bridds-
inum.“
Unnar Atli Guðmundsson,
Hvammstanga:
Erfitt að finna
lýsingarorð
„Það er erfitt að finna lýsingar-
orð yfir þennan stórkostlega
árangur. Aðdragandinn hefur
verið skemmtilegur og allir þeir
sem hafa stáðið að þessu eiga
hrós skilið,“ sagð Unnar Atli
Guðmundsson í samtali við Dag.
„Hér á Hvammstanga hafa
menn fylgst með landsliðinu af
miklum áhuga. Við höfum mik-
inn áhuga á því að nýta okkur
þann meðbyr sem er með íþrótt-
inni nú og ætlum m.a. að bjóða
upp á briddskennslu. Það hefur
verið allt of lítil endurnýjun í
félaginu en við munum taka vel á
móti því fólki sem hefur áhuga á
því að starfa með okkur.“
Unnar Atli sagði einnig að
félögin á Norðurlandi vestra ætl-
uðu að sameinast um að veita
landsliðinu fjárstuðning. -KK