Dagur - 12.10.1991, Page 3
Laugardagur 12. október 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Sfldarverksmiðjur ríkisins:
Hafa fengið ríkisábyrgðarlán
sem léttir róðurinn töluvert
- Siglfirðingar æstir í að hefja bakstur á árlegri „loðnuköku“
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa
nú fengið afgreitt ríkisábyrgð-
arlán, en þeim var heimilt að
taka allt að 300 milljónir króna
lán til þess að létta þungbær-
ustu lánunum af fyrirtækinu.
AHt er til reiðu hjá Sfldarverk-
smiðjum ríkisins á Siglufirði
fyrir móttöku loðnu og orðaði
Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar Siglufjarðar, það svo í
samtali við Dag í gær að menn
væru farnir að brjóta eggin í
tertuna, en sú hefð hefur skap-
ast að áhöfn þess skips, sem
færir fyrsta loðnufarminn á
land á Siglufirði á hverri
vertíð, fær veglega rjómatertu
að launum.
Tíðindi um loðnutorfur úti fyr-
ir Vestfjörðum koma að sögn
Kristjáns heim og saman við
fréttir frá fjölda skipstjórnenda í
sumar og haust um loðnu á svæð-
inu frá Kolbeinsey og vestur úr.
„Sigluvíkin kom á dögunum af
Kolbeinseyjargrunninu og hún
var með þéttriðið troll af loðnu.
Ég tók sýni af henni og sendi suð-
ur til fiskifræðinganna. Þessi
loðna var allt að sautján sentí-
metrar að lengd,“ sagði Kristján.
„Ég trúi ekki öðru en að verði
bullandi loðna. Það verður bara
að fara gefa út leyfi til að veiða
hana. íslensk þjóð þarf á því að
halda að fá svona lottóvinning, ef
menn ætla ekki að drepast ofan í
klofið á sér um allt land. Ég held
meira að segja að Kringlan í
Reykjavík hafi þörf fyrir að
loðnuveiðar verði íeyfðar. Ég var
þar í vikunni og hitti nokkra
verslunareigendur að máli og
þeim bar saman um að verslunin
hafi aldrei verið jafn döpur. Mér
finnst það vera huggun harmi
gegn,“ bætti hann við.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins kom saman til fundar í vik-
unni og fór yfir rekstrarstöðu
þeirra. Að sögn Kristjáns Möller,
sem sæti á í stjórninni, er nokkru
bjartara yfir stöðu SR nú, enda
hefur fyrirtækið loks fengið
afgreitt í íkisábyrgðarlán, sem því
var heimilað að taka. Lánið var
nýtt til að borga þær skammtíma-
skuldir, sem þyngstar lágu á
rekstri SR.
Þorsteinn Pálsson, sjávar-
útvegsráðherra, kynnti sl. þriðju-
dag frumvarp í ríkisstjórninni um
að breyta Síldarverksmiðjum
ríkisins í hlutafélag. Við það er
miðað að þessi breyting eigi sér
stað um næstu áramót, en þá
rennur út umboð núverandi
stjórnar Síldarverksmiðjanna.
óþh
Strákagöng opnuð:
„Allt önnur göng“
Glerór-
'yCftfl^ götu 20
Gildir laugardagskvöld og
sunnudagskvöld
Veislueldhús
Greifans
Menu
Laxatvenna m/hunangsdillsósu
Léttsteiktar gœsabringur m/eplasalati og
sykurgljóðum kartöflum
ísdúett m/portvínslegnum perum
1.980,-
★
Frí heimsendingarþjónusta
föstudags- og laugardagskvöld til kl. 04.30.
aWWV^
- lýsing þó ófrágengin
Strákagöng voru opnuö fyrir
umferð sl. fimmtudag eftir
miklar endurbætur. Þær upp-
lýsingar fengust hjá lögregl-
unni á Siglufirði aö umferð
hefði gengið vel og ökumenn
væru mjög ánægðir með
göngin. Enn væri þó eftir að
ganga frá lýsingu í þeim.
„Þetta eru allt önnur göng og
við skulum bara vona að það
komi ekki upp leki eftir á. Það
hefur aldrei fengist malbik þarna
í lagi því það hefur alltaf rignt
ofan í það. Nú hefur orðið mikil
breyting," sagði lögregluþjónn
sem Dagur ræddi við.
Göngin voru fóðruð, frárennsl-
islagnir endurbættar svo og
slitlag. Ökumenn keyra því í
gegnum þurr göng á sléttum vegi
en lýsingin er ekki komin í
endanlegt horf. Búist er við það
séu nokkrar vikur í það. SS
Allir eiga að sitja öruggir í bíl.
Notum bílbelti - alltaf I
UMFERÐAR
Iráð
Midaverð: 250 kr.
/
Attþú númer í sjóðnum?
. i
./ -»