Dagur - 12.10.1991, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 12. október 1991
Heilsupósturinn
Erum
Einar Guðmann
við betur sett með sætuefiii?
Pað fer ekki framhjá neinum
sem á annað borð les að ein-
hverju marki utan á umbúðir
þeirra neysluvara sem hann
kaupir hjá kaupmanninum á
horninu að notkun svokailaðra
sætuefna hefur stóraukist á
undanförnum árum. Byrjað var
að nota sætuefni á stríðsárunum
að einhverju marki þegar skort-
ur varð á sykri. Eftir það var
byrjað að framleiða ýmsar teg-
undir af alls kyns „megrunar-
vörum“ sem reyndar voru til að
byrja með fyrst og fremst ætlað-
ar sykursjúkum. Þróunin varð
síðan sú að almenningur tileink-
aði sér jjessi efni með tíð og
tíma. Astæðan fyrir því að
almenningur hóf að neyta sætu-
efna í auknum mæli er ef til vill
fólgin í þeirri vitneskju sem
smám saman skapaðist um
skaðsemi venjulegs sykurs. Þar
er aðallega átt við offitu, tann-
skemmdir, áhrif hans á blóðsyk-
ur og þá staðreynd að í sykri eru
margar hitaeiningar en lítil sem
engin næringarefni að fá.
En er sú þróun sem við erum
lögð af stað út í æskileg? Erum
við eitthvað betur sett með
þessi sætuefni í staðinn fyrir
sykur? Ekki er hægt að neita
því að nokkuð mikil umræða
hefur verið um neikvæð áhrif
þessara efna. Öll efnin sem eru
á markaði hérlendis hafa farið í
gegnum miklar rannsóknir á
vegum fjölmargra nefnda og
rannsóknarstofnana. Ein aðal
stofnunin sem metur þessi efni
meðal annars er JECFA (Joint
Expert Committtee on Food
Additives) en það er sérfræði-
nefnd á vegum sameinuðu þjóð-
anna. Þessi nefnd ásamt öðrum
hefur það verk með höndum að
ákvarða svokallað markgildi
fyrir aukefni en það er það
magn sem óhætt er talið fyrir
fólk að borða án þess að ástæða
sé til að ætla að það valdi heilsu-
tjóni þó efnisins sé neytt alla
ævi.
Við skulum líta á nokkur af
þeim efnum sem notuð eru
einna mest hér á landi. Eitt
vinsælasta sætuefnið sem hefur
verið notað hér á landi í stað
sykurs er sakkarín. Sakkarín er
leyft til notkunar í matvælum í
fjölmörgum löndum en uppi
hafa verið raddir sem halda því
fram að það sé hugsanlega
krabbameinsvaldandi eða í það
minnsta krabbameinshvetjandi.
Á umbúðum hér á landi eru
engar sérstakar merkingar til að
vara við neyslu á sakkaríni en í
Bandaríkjunum eru vörur
merktar sérstaklega með aðvör-
un þar sem fram kemur að
neysla vörunnar geti skaðað
heilsuna og að rannsóknir á
sakkaríni hafi sýnt að það geti
valdið krabbameini í tilrauna-
dýrum.
Hvað bráð eituráhrif sakka-
ríns varðar hafa rannsóknir leitt
í ljós að þau eru lítili. Aftur á
móti hafa fengist mismunandi
niðurstöður þegar rannsakaðar
voru krónískar vefjaskemmdir
og krabbamein. Á því sviði hef-
ur ekki verið sýnt fram á að
sakkarín hafi verið valdur
krabbameins hjá öpum,
hömstrum og músum. Hjá rott-
um kom ekkert fram þegar mið-
að var við einn ættlið en hins
vegar hefur sakkarín valdið
krabbameini í þvagblöðru hjá
karlkyns rottum í tveggja ætt-
liða rannsóknum. Fyrri ættlið-
urinn hafði þá fengið gífurlegt
magn af sakkaríni en það var
um 1% af því fóðri sem þær
borðuðu alla ævina. JECFA
nefndin álítur að allt að 1% fóð-
urs í langvarandi inntöku hafi
ekki krabbameinsvaldandi
áhrif. Það samsvarar um 500 mg
á dag á hvert kíló líkamsþyngd-
ar. Markið sem miðað er við
fyrir fólk er 2.5 mg á hvert kíló
líkamsþyngdar en vaninn er að
hafa leyfilegt magn verulega
lágt öryggisins vegna. Hins veg-
ar má eflaust deila um hversu
óhætt þetta magn er. Greinar-
höfundi varð litið á lítinn
Hermesetas pillubauk með
hreinu kristalls sakkaríni í sem
inniheldur 12.5 mg í hverri töflu
og ætlaður er til þess að sæta
kaffi, te og annað álíka en sam-
kvæmt því mætti meðal maður
ekki borða nema rétt rúmlega
tvær töflur á dag. Það er þó ekki
meira en það sem sumir nota út
í einn kaffibolla. Hvað ef þessi
tiltekni meðal maður sem mark-
gildið er miðað við, drekkur 10
bolla af kaffi á dag og notar allt-
af sætuefni? Þá er hætt við að
skammturinn sé orðinn í hærri
kantinum.
Flcstar rannsóknir sýna þó að
sakkarín veldur ekki erfðaleg-
um breytingum á frumum og
binst ekki DNA arfberunum á
sama hátt og flest krabbameins-
valdandi efni gera. Aftur á móti
er sýnt fram á að efnið hefur
krabbameinshvetjandi áhrif í
tilraunadýrum sem þýðir að það
hafi áhrif á virkni efna sem geta
valdið krabbameini.
En snúum okkur nú að sýkla-
mati (cyklamate). Sætuefnatöfl-
ur með sýklamati voru mark-
aðssettar í Bandaríkjunum árið
1949 og síðan hefur notkun þess
aukist verulega. En árin 1969 og
1970 voru gerðar rannsóknir á
tengslum þess við krabbamein
og í kjölfar rannsóknanna var
það bannað þar sem sýnt var
fram á að meðal annars gæti
efnið valdið krabbameini í til-
raunadýrum. Aftur á móti hefur
því banni víðast hvar verið
aflétt þar sem síðari rannsóknir
bentu til þess að það ylli ekki
krabbameini! Samt sem áður
var það ekki leyft að nýju í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Samkvæmt þeim heimildum
sem greinarhöfundur hefur ætl-
uðu Bandaríkjamenn og Bretar
að taka afstöðu til þess hvort
leyfa ætti sýklamat að nýju árið
1987 en ekki hefur enn neitt
rekið upp á fjörur mínar sem
bendir til þess að það hafi verið
gert.
ítrekaðar rannsóknir hafa
bent til þess að hugsanlegt sé að
sýklamat sé krabbameinshvati
eins og sakkarín en hins vegar
var það ekki talið geta bundist
arfberum og valdið þannig
krabbameini. Þarna er greini-
lega margt órannsakað en síð-
ustu niðurstöður rannsókna
benda í það minnsta ekki til
þess að það sé krabbameins-
valdandi.
Aspartam er sennilega á
toppi vinsældalista sætuefna hér
á landi í dag en það er betur
þekkt undir nafninu Nutra
Sweet. Óhætt er að segja að fá
efni hafa verið eins vel rannsök-
uð áður en þau hafa verið
markaðsett fyrir alvöru og
Aspartam. Árið 1974 fékkst
leyfi til að nota það sem borð-
sætuefni og sem sætuefni í
nokkrar tilteknar fæðutegundir
en síðan komu upp á yfirborðið
mótmæli sökum þess hversu lít-
ið það hafði verið rannsakað.
Það var því ekki fyrr en 1981
sem það var leyft að nýju eftir
langar og miklar rannsóknir.
Aspartam eða Nutra Sweet
er byggt að hluta til úr tveimur
amínósýrum og kenningar hafa
skotið upp kollinum um það að
mikil aukning á þessum sýrum í
blóðinu geti komið fram í heila-
skemmdum eða röskun á tauga-
boðum sem aftur gæti leitt til
breytinga á hegðun og
skapgerð. Einnig hefur verið
bent á að það gæti hugsanlega
lækkað svokallaðan krampa-
þröskuld hjá flogaveiku fólki en
flogaveiki stafar einmitt af rösk-
un á taugaboðum í heilanum.
Það er ekki gott að sjá hvar
þetta endar. Þessi sætuefni hafa
ákveðna kosti umfram hinn
venjulega sykur en það undar-
lega er að þrátt fyrir hina gífur-
legu aukningu á neyslu sætu-
efna þá hefur heildarneysla
íslendinga á venjulegum sykri
ekki minnkað. Hugsanlega er
það vegna þess að við höfum
verið að elta skottið á okkur
sjálfum með því að láta sætu-
bragð koma í staðinn fyrir sætu-
bragð og viðhaldið þannig þörf-
inni fyrir að borða alltaf eitt-
hvað sætt í stað þess að taka upp
heilnæmari matarvenjur.
Takiö eftir!
Glæsilegt úrval áklæða og gluggatjaldaefna
á ótrúlegu verði, frá kr. 280,- pr. m.
Svampdýnur í öllum stærðum.
Eggjabakkadýnurnar vinsælu!
Svampur og Bólstrun
Austursíðu 2, sími 96-25137.
ARU
Subaru Legacy er með 16 ventla
vél, rafmagni í rúðum, sentral-
læsingum.
Komið og kynnið ykkur frábæra
bíla á góðu verði.
K
Bílasýning verður í sýningarsal okkar að
Bifreiðaverkstæði Sigurður
Valdimarssonar, Óseyri 5,
augardaginn 12. október og sunnudaginn
13. október frá kl. 14-17 báða dagana.
NISSAIM
Nissan Sunny Sedan 1600,
16 ventlavél, rafmagn í rúðum,
sentral-læsingar, upphituð sæti,
svo eitthvað sé nefnt á verði frá
kr. 869-1135 þúsund.
Komið og kynnið ykkur kjör og ræðið
við framkvæmdastjóra söludeildar.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
Ingvar Helgason hf. sævarhöfða 2.
___________________ ~~___________________/
hjá óviimnim
Sofið
Borgarbíó sýnir: Sofið hjá óvininum
(Sleeping with the Enemy).
Leikstjóri: Joscpli Kubin.
Aðalhlutverk: Julia Kobcrts
og Patrick Bergin.
20th Century Fox 1991.
Hinar dæmigerðu kvennamyndir
sem ég vil kalla minna mig alltaf
á kvæðið eftir Kristján Ólason frá
Húsavík: „Góða, mjúka, gróna
jörð/græn og fögur sýnum,/ hví er
alltaf einhver hörð/arða í skónum
mínum?“ Sofið hjá óvininum er í
þessum sama dúr, sjálfskaparvíti
eiginkonunnar er þó gert skiljan-
legra en oft áður því að snar-
geggjaður eiginmaðurinn
(Patrick Bergin) hótarkonu sinni
(Juliu Roberts) öllu illu yfirgefi
hún hann. Fljónabandinu er við-
haldið með líkamsmeiðingum,
ógn og einangrun. Sofið hjá óvin-
inum er kvikmynd um baráttu
konunnar við að losa sig undan
ægivaldi karlsins. Hann virðist
hafa öll ráð hennar í hendi sér en
hún er slæg og leitar færis. Þegar
það gefst grípur hún það, stingur
af og reynir að hasla sér nýjan
völl í tilverunni. Eiginmaðurinn
vill þó ekki láta þar við sitja og
hefur eftirgrennslan. Hann vill
öllu til kosta að hafa upp á konu
sinni aftur.
Sofið hjá óvininum er þyngsla-
leg kvikmynd. Upphafið er
drungalegt og sagan spinnur sig
hægt áfram. Kannski er þetta til-
raun hjá leikstjóranum, Joseph
Rubin, til að læða óhugnaði inn
hjá áhorfandanum og fyrirlitn-
ingu á eiginmanninum. Óhugn-
aðurinn magnast þó ekkert að
ráði fyrr en undir lok myndar
þegar Rubin grípur til gamal-
kunnugra Hitchcock-bragða sem
hann beitir af kunnáttu. Miklu
fyrr hefur Rubin þó orðið á slíkur
fingurbrjótur í leikstjórn sinni að
ég man varla eftir öðrum sam-
bærilegum í Hollywoodkvik-
mynd er státar af stórstjörnum.
Til að losna undan handarjaðri
eiginmannsins grípur eiginkonan
tækifærið þegar þau lenda í
vondu veðri á seglskútu og lætur
sig hverfa í hafið. Allir halda
hana drukknaða og jarðarför fer
fram. Rubin heldur sig við þennan
þráð; skútuferð, drukknun, jarð-
arför. En þá þarf hann til baka í
sögunni til að sýna hvernig eig-
inkonan ekki einasta bjargaðist úr
sjávarháskanum heldur einnig
hvernig hún undirbjó ráðabrugg-
ið, sigraðist á vatnshræðslu sinni
og lærði að synda. Og til að
undirstrika stílbrotið lætur hann
Juliu Roberts bregða sér í gerfi
sögumanns örlitla stund. Þetta er
sannarlega aumleg lausn á vand-
anum. Ljósi punktur Sofið hjá
óvininum er leikur Juliu Roberts.
Henni hefur farið mikið fram
síðan ég sá hana síðast á hvíta
tjaldinu.