Dagur - 12.10.1991, Side 9
Laugardagur 12. október 1991 - DAGUR - 9
Jóhann Olafur Halldórsson
Gríðarlega hröð þróun í hugbúnaði og einkatölvum á síðustu árum:
Nýtt í dag - gamalt á morgun
Miklar sviptingar hafa verið á tölvu-
markaðnum síðustu misserin sem út
á við hefur sýnt sig í auglýsinga-
kapphlaupi tölvuumboðanna. Verð-
stríðið er mikið og hefur verulegt
verðfall orðið á þessum búnaði á
mjög skömmum tíma. Þróunin á
tölvubúnaðinum er líka hröð og lýs-
ir sér kannski best í því að það sem
tölvunotendur kölluðu vinnsluhraða
fyrir einu ári er hæg vinnsla í dag.
Meginlínurnar eru þær að vélarnar
stækka stöðugt, samfara stærri og
fullkomnari forritum. Þessu fylgir
jafnframt að minni tölvurnar, sem
þóttu stórar og öflugar fyrir fáum
árum, eru verðlítil tæki í dag. Tölv-
an er að verða sjálfsagt heimilistæki
þó notkun vélanna sé mismunandi
frá einu heimili til annars. Framtíð-
in á þessu sviði tækninnar er óút-
reiknanleg þó ljóst megi vera að nýr
og enn fullkomnari búnaður flæðir
áfram inn á markaðinn og ryður því
eldra út. Tölva sem keypt er í dag
verður því strax byrjuð að úreldast
á morgun.
En svo einfalt er málið ekki að tölva sé
bara tölva, sama hverrar tegundar hún er.
Fram til þessa hafa mörg kerfi verið í gangi á
markaðnum þó tvö þeirra hafi borið hæst,
þ.e. IBM-samhæfðar vélar og Machintosh-
vélamar frá Apple. Önnur merki má nefna til
sögunnar, s.s. bresku vélamar BBC. Þessi
kerfi eru ekki samhæfð en með ýmsum
aukabúnaði og nokkrum tilfæringum er unnt
að flytja efni milli véla.
Nú liggur í loftinu
samstarf milli
Apple
IBM sem
sum-
- hreint verðhrun á tölvubúnaði á Islandi síðustu mánuðina
Óli Tryggvason hjá
Ó.T. Tölvuþjónust-
unni á Akureyri
segist ekki sjá fyr-
ir að sama bylt-
ing verði á
næstuni eins og
verið hefur að
undanförnu.
„Það er von-
laust að segja
fyrir um hvað
hugbúnaðar-
framleiðend-
ur eru með í
bígerð.
Möguleik-
arnir eru
Fyrirtæki nýta sér verð-
lækkun á tölvum og hefjast
handa við tölvuvæðinguna
en í öðrum tilfellum hafa á-
kvarðanir stjómvalda þrýst á
tölvuvæðingu. Dæmi um
þetta eru skattkerfisbreyting-
ar síðustu ára sem gert hafa
meiri kröfur um bókhald.
Virðisaukaskattur hafði
vart verið tekinn upp þeg-
ar komin voru virðis-
aukaskattsforrit á
markaðinn. Bændur
hafa tekið tölvur í
mjög auknum mæli í
sína þjónustu til að
uppfylla kröfur um
bókhald. Þessum
breytingum fylgja kröf-
ur um þekkingu fólks á
tölvum og tölvunotkun
enda er farið að bera á
því hjá tölvusölum að
m irgt miðaldra fólk fjár-
festir í tölvum í þeim til-
gangi að læra á þær og
margir
spurmng-
n er um
mynda-
flugið
en eg
ekki
tru a
ir telja aðeins undanfara
sameiningar. Slíkt myndi þýða að innan
skamms tíma yrði til eitt samhæft kerfi sem
auðveldað gæti tölvunotendum lífið veru-
lega og vinnan yrði eins hvort heldur verk-
efnin eru unnin í Machintosh eða IBM.
En hvað sem vangaveltum um samstarfs-
samninga líður er staðreynd að verðfall á
tölvum hefur orðið mikið á skömmum tíma.
Machintosh-vélamar hafa að vísu lækkað
minna í verði en IBM-samhæfðu vélamar en
verðlækkun er engu að síður staðreynd. Þeir
tölvusalar sem blaðið ræddi við telja að
verðslagnum á tölvumarkaðnum sé hvergi
nærri lokið enda ráðist verðlagningin ekki
einungis af samkeppninni heldur líka fjölda-
framleiðslunni á tölvubúnaðinum.
Verðlækkun og hröð
þróun hugbúnðar
Myndræn framsetning, einfaldleiki en
jafnframt fjölþættari möguleikar í notkun
forrita virðist það sem koma skal, um það
em viðmælendur blaðsins sammála. Skrefin
hafa verið stigin hratt á síðustu tveimur árum
og spumingin er sú hvort á næstu ámm verða
jafn miklar breytingar.
„Auk verðlækkunarinnar á síðustu miss-
emm stendur uppúr að hugbúnaður þróast
ört, stækkar og verður öflugri og aðgengi-
legri fyrir notandann. Þetta hefur um leið
krafist stærri og afkastameiri véla. Þau
ganga að vísu enn eldri forritin, eins og
Word og Word Perfect, en eftir að glugga-
vinnslan Windows kom til í fyrra þá varð
gjörbreyting á markaðnum þannig að salan
færðist yfir í stærri vélamar,“ segir Jón
Magnússon í Tölvutækjum-Bókvali á Akur-
eyri.
hugbúnaðarfram-
leiðendur séu þurrausnir hugmyndum,"
segir Óli.
Framundan segir hann ekki sjáanlegar mikl-
ar nýjungar, hvað varði hugbúnað og vélar,
þannig að reikna megi með að markaðurinn
melti nú það sem fram hefur komið að undan-
fömu.
Fleiri hestöfl fyrir
peninginn!
Um það em viðmælendumir sammála að
verð á tölvubúnaði eigi ekki eftir að hækka
frá því sem nú er. „Þróunin er sú að fólk er
að kaupa æ fleiri hestöfl fyrir sama eða jafn-
vel minni pening. Þessi tæki eiga ekki eftir
að hækka í verði en þau lækka ekki meira,“
sagði Þorsteinn Thorlacíus hjá Bókabúðinni
Eddu á Akureyri. Þorsteinn segir að með
verðhruninu hafi opnast nýir markaðir, fleiri
sjái sér nú fært að ráðast í tölvukaup en áður.
I því sambandi nefnir hann unglingana sem
allir eru sammála um að hafi náð góðu valdi
á tölvunum sem best sjáist í að t.d. fram-
haldsskólanemendur skili nú vel uppsettum
og myndskreyttum ritgerðum í skólum og
noti sér þannig tæknimöguleika tölvunnar.
„Hlutimir hafa gerst svo hratt að undan-
förnu að ástandið er hálf vandræðalegt. Það
lætur nærri að þetta líkist því þegar verð-
bólgan var sem mest,“ segir Jón Magnússon.
„Gagnvart sölumönnunum er þetta þannig
að vél sem seld er í dag er byrjuð að lækka í
verði á morgun. Ef maður veit með fyrirvara
að eitthvað liggur í loftinu þá hægir maður á
sínum kúnnum. Þetta hefur komið fyrir."
Almenn þekking
á tölvum vaxandi
Jón segir að þekking almennings á tölv-
um sé mun meiri nú en fyrir nokkrum árum.
Fyrir fimm árum hafi þótt gott að selja fáein-
ar tölvur á mánuði og þá hafi sölumenn get-
að gefið sér mikinn tíma með viðskiptavin-
inum til að fara yfir möguleika vélanna en í
dag komi viðskiptavinurinn vel upplýstur
inn í búðina og viti, í mörgum tilfellum, upp
á hár hvað hann vill og hvað ekki. „Almenn
þekking er stórvaxandi og t.d. vita ungling-
amir ótrúlega mikið um þessi mál. Forrit eru
líka þannig í dag að þau teyma fólk áfram og
þess vegna getur fólk sest niður og byrjað
sjálft þó það geti svo síðar aflað sér þekking-
ar á námskeiðum ef vill.“
Helgi Kristinsson hjá Tölvufræðslunni á
Akureyri er sammála því að þekking al-
mennings á tölvum hafi vaxið þó þeir finnist
sem lítið kunni fyrir sér í þessum fræðum þó
þeireigi tækin. „A síðustu tveimur árum hef-
ur verið selt gríðarlega mikið af tölvum en
við verðum varir við að margar vélar eru dýr
leiktæki í heimahúsum. Við heyrum oft fólk
segja: „Við eigum tölvu sem enginn kann á-
krakkarnir leika sér á þetta.“ En að sama
skapi vitum við að margt fólk kann á tölvur."
Ákvarðanir stjórnvalda
ýta undir tölvusöluna
Tölvunotkun eykst stöðugt á vinnumark-
aðnum, hvort heldur er til lands eða sjávar.
forðast
á þann hátt
að verða undir á
vinnumarkaðnum. Stað-
reyndin er sú að þeir standa
betur á vinnumarkaðnum sem hafa
reynslu af tölvum.
Störf verða til í
heimahúsum
Miðað við söluna á tölvum síðustu ár
mætti ætla að slíkt tæki sé komið inn á flest
heimili. En í hvaða tilgangi eru þessi tæki
keypt? Svör við því eru mörg og sannast
sagna eru þau tilfelli til þar sem vélamar eru
lítið sem ekkert notaðar, eins og áður sagði.
„Margir kaupa tölvur handa krökkunum
þannig að þau geti skrifað á þær ritgerðir og
unnið verkefni fyrir skólann. Sú notkun sem
er á tölvum í heimahúsum er helst hjá ung-
lingunum. Ég held að það séu undantekning-
ar þar sem fer fram einhver vinnsla á þessar
vélar,“ segir Helgi Kristinsson hjá Tölvu-
fræðslunni.
Hann segir þýðendur gott dæmi um fólk
sem skapar sér atvinnu með heimilistölv-
unni. Fleiri slík dæmi hljóti að koma fram á
næstu árum.
„Það hlýtur að aukast að fólk skapi sér
vinnu á tölvur. Möguleikamir eru margir því
hægt er að slá inn ýmis gögn heima hjá sér
ekkert síður en á vinnustað úti í bæ.“
Um framtíðina segir Helgi að tölvu-
vinnsla hljóti að færast lengra inn á þær
brautir sem nú þegar hafa verið lagðar, þ.e.
myndræna formið. Ósamhæfni milli tölvu-
kerfa, sem gert hefur tölvunotendum lífið
leitt, segir hann að hljóti að verða ýtt til hlið-
ar. „Þessi ósamhæfni hefur kostað gríðarlega
peninga og henni hlýtur að linna. Einhvem
tímann bera menn gæfu til að haga sér eins
og gert var t.d. í geislaspilurunum. Hvenær
það verður veit maður ekki en ég held að
samstarf Apple og IBM sé upphaf samvinnu
sem endar í einhvers lags samvinnu, einu
samhæfðu og myndrænu kerfi. Ég vona að
menn sameinist á einum, skynsamlegum
stað.“