Dagur - 12.10.1991, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 12. október 1991
Kvikmyndasíða
„Hollywood er í
- segir Ed Harris
Flest munum viö sjálfsagt eftir
Ed Harris úr The Abyss þar sem
leikstjórinn James Cameron hóf
einhverskonar tækniforleik fyrir
Terminator 2. Harris hefur farið
nokkuð eigin leiðir í heimi kvik-
myndanna og ekki sett fyrir sig
að leika aukahlutverk. Hann hef-
ur lýst því yfir að leiklistin sé líf
hans og yndi, hvort sem hann sé í
stærra eða minna hlutverki skipti
ekki öllu máli svo lengi sem hann
fái að reyna hæfileika sína sem
leikari.
í rúman áratug hefur Harris
látið til sín taka í kvikmynda-
heiminum en aldrei náð að hasla
sér völl meðal stórstjarna, ef til
vill vegna lífsskoðunar sinnar og
fyrirlitningar á stjörnudýrkun
Hollywood. Eftir að hann kont
fyrst fram á hvíta tjaldinu í Coma
(1978), þar sem Michael Douglas
var aðalmaðurinn, hefur Harris
leitað eftir sem fjölbreytilegust-
um hlutverkum. Hann hefur vak-
ið athygli í myndum eins og
Under Fire, þar sem hann brá sér
í gervi málaliða, sem geimfari í
The Right Stuff, daðrarinn í
Places in the Heart og sem held-
ur óskemmtilegur eiginmaður
Patsy Cline í Sweet Dreams.
Af nýrri myndum Harris ber
Abyss hæst en einnig má nefna
bæði Jacknife og State of Grace
þar sem Sean Penn og Gary
Oldman létu ljós sitt skína.
Nýjasta kvikmynd Harris er Paris
Trout, þar sem hann leikur lög-
fræðing er lítur eiginkonu
(Barbara Hersey) skjólstæðings
síns girndarauga. Skjólstæðing-
urinn (Dennis Hopper) hefur
myrt tíu ára þeldökka stúlku í
trausti þess að ekkert verði
aðhafst í málinu. Sjónarsviðið er
Georgía þar sem löngum hefur
verið grunnt á því góða með
svörtum og hvítum. Fordómarnir
eru gífurlegir og Hopper er sann-
færður um að þeir muni bjarga
honum.
Enda þótt Paris Trout eigi að
gerast árið 1949 segist Harris
sannfærður um að boðskapur
hennar eigi fullt erindi til tölvu-
mannsins. „Fordómar eru enn á
meðal okkar,“ segir hann, „og
það getur ekki skemmt nokkurn
mann að líta til fortíðar." Harris
tekur Hollywood sem dæmi um
ruglað samfélag, þar vaði for-
dómar uppi, kvenfyrirlitning og
kynþáttahatur. Kvikmyndaver-
unum sé stjórnað af peninga-
plokkurum en ekki listamönnum.
„Kvikmyndagerð er í sífellt rík-
TILKYNNING
frá Félagi aldraðra
á Akureyri
Þeir félagar, sem þegar hafa ákveðið að
kaupa íbúð í væntanlegum fjölbýlishúsum
við Bugðusíðu, eru vinsamlega áminntir um
að inna af hendi greiðslu á staðfestingar-
gjaldi sínu hið allra fyrsta og eigi síðar en 31.
október.
Gjaldið skal greiða í Landsbanka íslands við
Strandgötu hjá þjónustusfulltrúa, Ólafi
Axelssyni.
r ÚTBOÐ
wvm Snjómokstur á Norðurlandi eystra.
VEGAGERÐIN Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í snjómokstur á Norðurlandi eystra veturna 1991-1993.
1. Norður-Þingeyjarsýsla. 2. Suður-Þingeyjarsýsla. 3. Eyjafjarðarsýsla. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Borgartúni 5, Reykja- vík, (aðalgjaldkera) frá og með 14. október n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 21. október 1991.
v Vegamálastjóri. ^
Rýmingarsala
Seljum á laugardag 12. október kl. 10-15 og
alla næstu viku nýja varahluti í eldri árgerðir
Mazda og Ford bifreiða.
Ótrúlegt úrval og verð!
BSA,
varahlutalager,
Laufásgötu 9, Akureyri. Sími 26300.
ari mæli að verða spurning um
peninga, hvað sé arðvænlegt og
hvað ekki.“
Harris reynir að leiða þessa
óskemmtilegu þróun sem mest
hjá sér, hann lítur á sig sem lista-
mann og stefnir að sífellt meiri
fullkomnun í grein sinni. Pening-
ar skipta þar ekki máli, það eru
hlutverkin sem tala. Innan tíðar
mun Harris taka upp störf með
Jennifer Lynch, dóttur David
Lynch, við gerð Boxing Hclena;
Jennifer leikstýrir og er jafnframt
höfundur handrits. Raunar ættu
tökur myndarinnar að vera hafn-
ar en vegna brotthlaups leikkon-
unnar Kim Basinger varð að
fresta þeim á meðan leitað var
nýrrar leikkonu í hennar stað.
Ed Harris.
Einnig mun Harris bráðlega birt-
ast bíóförum í China Moon þar
sem hann leikur einkaspæjara á
móti Madeleine Stowe. Þá er nú
hart barist um hlutverk í
Glengarry Glen Ross en þar þyk-
ir vera feitt á stykkinu fyrir hæfi-
leikaríka leikara. í sambandi við
aðaihlutverk eru nefndir ekki
ómerkilegri menn en Al Pacino,
Jack Lemmon og Alec Baldvin.
Mickey Rourke, Beau Bridges og
Ron Silver, sem hafa allir sóst
eftir aukahlutverki í myndinni,
virðast nú vera að tapa barátt-
unni fyrir Ed Harris, Alan Arkin,
Jonathan Pryce og Kevin Spacey.
Málalok er þó erfitt að sjá fyrir
og Harris er engan veginn örugg-
ur um að hreppa hnossið.
Terry Gíllíam aftur á stjá
Leikstjórinn Terry Gilliam er
ævintýrakóngur Hollywood. í
Time Bandits, Brazil og The
Adventures of Baron Munchaus-
en hefur hann látið gamminn
geisa og fest ævintýrið á filmu,
hneppt hugaróra í fjötra. Gilliam
hefur þurft að hafa mikið fyrir
hlutunum, enginn hafði trú á
Bazil og enn færri vildu setja pen-
inga í Munchausen. Þar kom að
hann gafst upp á baráttunni fyrir
eigin hugverkum og tilkynnti að
hann væri reiðubúinn að kvik-
mynda verk annarra höfunda. Þá
skyndilega varð gæfan hliðholl
hinum þreytta leikstjóra þegar
handrit Richards LaGravenese
að The Fisher King barst honum
í hendur. Lesturinn varð Gilliam
sem hrein opinberun. „Hug-
myndin, persónurnar - égskyldi
þetta allt þegar í stað.“ Sérstak-
lega hreifst leikstjórinn af tilfinn-
ingahita persónanna. „í öðrum
kvikmyndum mínum,“ útskýrir
Gilliam, „er miklu meira um
stórkostleg sjónarspil, sérstök á
allan hátt. Persónurnar eru ekki
annað en púslur í stærri mynd. í
The Fisher King er þessu öfugt
farið. Persónurnar eru í for-
grunni, allt annað undirstrikar
aðeins tilvist þeirra. Mig langaði
til að athuga hvort ég réði við
þessi mannlegu samskipti þannig
að ég næði athygli áhorfandans
án þess að beita til þess stórkost-
legum sviðstökum líkt og ég hef
ástundað í fyrri myndum
mínum.“
Robin Williams og Jeff Bridges í The
En um hvað fjallar The Fisher
King? Jú, hún segir frá Jack
Lucas (Jeff Bridges), vinsælasta
plötusnúð New Yorkborgar sem
með gáleysislegu tali veldur mikl-
um harmleik. Þremur árum síðar
hefur Lucas hrapað af toppi vin-
sældalistans og er sestur á
botninn. Þá hittir hann Parry
(Robin Williams), fyrrum
háskólakennara í miðaldasögu.
Parry er ekki eins og fólk er flest
og lifir í dularfullum miðalda-
heimi til að verjast sárum
minningum. Kunningsskapur
tekst með þessum tveimur, þeir
hafa náttúru til að hjálpa, jafnvel
lækna, hvorn annan en til þess
þarf nokkuö.
Fisher King.
Sérstæður leikstjórastíll
Gilliams var mjög áberandi með-
an á tökum Fisher King stóð.
Hann hvatti helstu leikarana
fjóra, Bridges, Williams,
Mercedes Ruehl og Amanda
Plummer til að leggja fram sínar
hugmyndir um kvikmyndagerð-
ina. Á öllum stigum kvikmyndar-
innar var handritshöfundurinn,
LaGravenese með í ráðum. „Ég
vildi ekki gera Terry Gilliam
bíó,“ segir Gilliam. „Richard er
mun jarðbundnari en ég. Hann
gætti þess að draga myndina aftur
niður á jörðina, gera hana raun-
verulega, þegar ég freistaðist til
að fara út í hugaróra og spinna
þráðinn í kringum ævintýrið."
Kvikmyndir í burðarliðnum
Father of the Bride
Steve Martin reynir að fara í slóð
Spencer Tracy og endurgera
þessa kvikmynd leikstjórans
Vincente Minelli frá 1950 um
föður sem er að gifta frá sér
dóttur. Diane Keaton, Kimberly
Williams og Martin Short fara
með aukahlutverk. Leikstjóri er
Charles Shyer.
Touchstone, síðla árs 1991.
Hoffa
Jack Nicholson leikur Jimmy
Hoffa og Danny DeVito er einn-
ig með og leikstýrir jafnframt. I
lifanda lífi var Floffa umtalaður
en í dularfullum dauða sínum
breyttist hann í þjóðsögu. David
Mamet hefur skrifað handritið og
er forvitnnilegt að vita hvað hann
gerir úr Hoffa.
20th Century Fox, síðla árs 1992.
A League of Their Own
Madonna og Geena Davis ryðj-
ast inn á svið karla í þessari
íþróttamynd um hornaboltalið
kvenna er gerir það gott (eða
ekki gott) á 5. áratugnum. Tom
Hanks er þjálfari stúlknanna en
Penny Marshall leikstýrir.
Columbia, sumar 1992.
Mad Dog and Glory
Feimin borgarlögga (Robert De
Niro) bjargar lífi skuggalegs
veðmangara (Bill Murray) sem í
þakklætisskyni gefur löggunni
fagran kvenntann (Uma
Thurman) til afnota í viku tíma.
Leikstjóri er John McNaugthon
sem hefur vakið mikla athygli
vestan hafs fyrir myndina Henry:
Portrait of a Serial Killer.
Universal, síðla árs 1992.
Prelude to a Kiss
Norman Rene leikstýrir þessari
kvikmynd er byggir á vinsælu
leikriti eftir Craig Lucas. Brúð-
kaupsgestur kyssir brúðina og um
leið renna sálir þeirra saman.
Alec Baldwin, Meg Ryan, Kathy
Bates, Ned Beatty og Patty Duke
fara í fylkingarbrjósti leikaraliðs-
ins.
Century Fox, vor 1992.