Dagur - 12.10.1991, Síða 19
Popp
Fjölbreytt íslensk
Það er óhætt að segja að nú á
haustmánuðum og allt fram til
jóla muni kenna ýmissa og fjöl-
breyttra grasa í íslenskri tónlist-
arútgáfu. Með hinu vel heppnaða
átaki, sem kallaðist Hið íslenska
tónlistarsumar, virðist nú hafa
skapast grundvöllur fyrir blóm-
legri útgáfu allt árið, en ekki bara
á síðustu vikum þess eins og
raunin hefur að mestu verið áður.
Er það vel og er það sömuleiðis
vonandi að útgáfan beri sig
þannig eftirleiðis. Hér á eftir fer
yfirlit yfir megnið af því sem er að
koma út þessa dagana eða er
væntanlegt bráðlega frá útgáfu-
fyrirtækjunum tveimur Steinum
og ps músík. Listi yfir útgáfu
Skífunnar birtist í næsta blaði.
Steinar
Útgáfa Steina hefur sennilega
aldrei verið jafn stórtæk og nú.
Eru allir helstu listamenn útgáf-
unnar með plötur nú auk þess
sem útgáfa á safnplötum, endur-
útgáfur og fleira skipar veglegan
sess.
Karl Örvarsson -
Eldfuglinn
Karl þarf líklega ekki að kynna
fyrir Norðlendingum, því hann
var um skeið áberandi með hinu
akureyrska Stuðkompaníi,
ásamt bróður sínum Atla. Er Eld-
fuglinn hans fyrsta sólóplata, en
að henni hefur Karl verið að
leggja grunninn síðastliðin tvö ár.
Samhliða gerð plötunnar stofn-
aði Karl svo hljómsveit sem líka
kallast Eldfuglinn, ásamt þriðja
bróðurnum, Grétari úr Stjórninni.
Todmobile - Ópera
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um Todmobile. Hljómsveitin hef-
ur notið sívaxandi vinsælda og er
án efa ein besta poppsveit
landsins. Þriðja plata Todmobile
sem ber þetta mikla nafn Ópera,
mun vera áframhald til fullmótun-
ar stíls sveitarinnar og er að
sögn þeirra sem heyrt hafa það
besta frá henni til þessa.
Sálin hans Jóns míns -
Sálin hans Jóns míns
Sálin hans Jóns míns með þá
Stefán Hilmarsson og Guðmund
Jónsson í broddi fylkingar virðist
nú vera komin á fullt skrið eftir
ýmsar sviptingar í formi manna-
breytinga m.a. (t.d. er áður-
nefndur Atli Örvarsson genginn í
hljómsveitina). Er þessi nýja
samnefnda plata Sálarinnar sú
þriðja í röðinni hjá hljómsveitinni
og er efnið sem fyrr léttleikandi
dægurlög með rokk/popp/soul
áhrifum.
Ný dönsk - De luxe
De luxe er þriðja plata Ný dönsk
síðan þeirfóstbræður, Jón Ólafs-
son og Stefán Hjörleifsson,
gengu til liðs við hljómsveitina.
Fór hljómsveitin þá leið við gerð
plötunnar að lögin voru æfð út í
ystu æsar og síðan rokið með
þau í hljóðver og tekið upp með
fítonskrafti, eða linnulítið í níu
daga. Eru þetta vinnubrögð ekki
ólík þeim sem viðgengust fyrir
einum og hálfum til tveimur ára-
tugum.
Bubbi Morthens - Ég er
Hér er á ferðinni hljómleikaplata
sem tekin var upp á tónleikum
Bubba á Púlsinum í nóvember í
fyrra. Þar spilaði hann ásamt
Kristjáni Kristjánssyni (gítar),
Þorleifi Guðjónssyni (bassi) og
Reyni Jónassyni (harmonika),
gömul og ný lög og voru allir tón-
leikarnir hljóðritaðir. Er platan
visst tímamótaverk hjá Bubba,
því í ár 1991, eru liðin 15 ár síð-
an hann kom fyrst fram, en það
var á tónlistarkvöldi Jazzvakn-
ingar árið 1976. Auk þess aö
geyma mörg af þekktustu lögum
Bubba eru á plötunni tvö lög sem
ekki hafa komið út áður.
Mezzoforte - Fortissino
Fortissino mun geyma safn
helstu verka Mezzoforte auk
þriggja nýrra laga, Gasablanca,
Later on og Better love. Það síð-
asttalda kom reyndar fyrst út í
sumar á safndiskinum lcebreak-
ers og mun nú sömuleiðis vera
að koma út á smáskífu víða um
Evrópu. Er platan fyrst og fremst
hugsuð fyrir erlenda markaði og
hafa eldri lögin verið endurunnin
í því sambandi. Hún verður þó
að sjálfsögðu einnig fáanleg hér
á landi.
Af öðru efni sem út kemur frá
Steinum má nefna safnplötu með
úrvali af lögum Gunnars Þórðar-
sonar sem nefnist Þitt fyrsta
bros. Eru þar á meðal lög sem
hann gerði með Trúbrot, Þú og
ég og Ríó tríóinu.
Þá kemur út annað safnið með
lögum Vilhjálms heitins Vil-
„Ópera“ er á leiðinni frá Andreu Gylfadóttur og félögum í Todmobile.
Laugardagur 12. október 1991 - DAGUR - 19
Magnús Geir Guömundsson
tónlistarútgáfa framundan
Safn með mörgum af bestu lögum Gunnars Þórðarsonar er væntanlegt frá
Steinum.
hjálmssonar, en í fyrrasumar
kom hið fyrra út sem nefndist Við
eigum samleið. Hið nýja heitir
hins vegar í tíma og rúmi og
geymir 20 lög eins og Við eigum
samleið.
Stóru börnin leika sér er svo
nafn á plötu þar sem fjöldi
þekktra barnalaga frá ýmsum
tímum eru flutt af nokkrum af
þekktustu söngvurum landsins.
Þar á meðal Agli Ólafssyni, Stef-
áni Hilmarssyni, Andreu Gylfa-
dóttur og Sigríði Beinteinsdóttur
svo einhverjir séu nefndir.
Að lokum má svo nefna frá
Steinum að þriðja útgáfan af Aft-
ur til fortíðar er væntanleg, sem
einnig verður svo fáanleg með
hinum tveimur útgáfunum í geisla-
diskakassa.
ps músík
Frá ps músík, fyrirtæki Péturs
Kristjánssonar, er útgáfa samtals
sjö titla á dagskrá.
Valdimar Örn Flygenring
& Hendes verden -
Kettlingar
Valdimar hefur til þessa verið
þekktur sem einn af betri leikur-
um þjóðarinnar af yngri kynslóð-
inni, en nú hyggst hann skapa
sér nafn í tónlistinni líka. Á þess-
ari plötu semur Valdimar öll lögin
og textana sjálfur og syngur, spil-
ar á kassagítar og munnhörpu á
henni. Með honum í Hendes ver-
den eru þeir Halldór Lárusson á
trommum, Þórður Högnason á
kontrabassa og Einar Pálsson á
hljómborði. (Þetta eru þeir sem
spila á plötunni.)
Eyjólfur Kristjánsson -
Satt og logið
Er þetta önnur sólóplata Eyjólfs,
sem án efa er einn vinsælasti
söngvari og lagasmiður landsins
eins og sigrar hans í Landslaginu
og Eurovision bera glöggt vitni.
Fyrri platan nefndist Dagar og
kom út árið 1987. Semur Eyjólfur
öll lög plötunnar nema eitt, sem
er gamalt Óðmannalag.
Geirmundur Valtýsson -
Á fullri ferð
Geirmundur slær hér lítið af frek-
ar en fyrri daginn í skagfirsku
sveiflunni, en þó munu fallegar
ballöður ekki síður vera áberandi
á þessari nýju plötu en sveiflan.
Ýmsir - Minningar
Hér er um að ræða safnplötu
með sígildum hugljúfum lögum
sem ekki hvað síst fólk á miðjum
aldri og eldra þekkir og á
minningar um. Meðal laga og
flytjenda eru Diddú (Sigrún
Hjálmtýsdóttir), sem syngur
Hvert örstutt spor úr Silfurtungli
Halldórs Laxness, Páll Óskar
bróðir Diddúar syngur Til eru fræ
og Ari Jónsson syngur lagið
Móðurminning.
KKBand-KKBand
KK stendur fyrir Kristján Krist-
jánsson og er það blúsinn sem
ræður ríkjum hjá honum. Einnig
munu vera á þessari plötu tvö
bluegrass lög sem Kristján tók
upp með slíkri hljómsveit í
Svíþjóð, en þar í landi hefur
Kristján verið búsettur um skeið.
Landslagið 1991
Mun þessi plata geyma þau tíu
lög sem keppa til úrslita í Lands-
lagskeppninni 1991 á Hótel ís-
landi þann 25. október næstkom-
andi. Er hún gefin út í samvinnu
ps og Stöðvarinnar (Axels Ein-
arssonar).
Edda Heiðrún Bachmann
- Barnajól
Eins og nafnið gefur til kynna er
þetta jólaplata með hinni ágætu
leik- og söngkonu Eddu Heið-
rúnu Bachmann. Mun platan
vera ólík sambærilegum plötum
aö því leyti að á henni verða lög
sem ekki hafa heyrst áður.
Sagarblöð fyrir járn og tré
Ææ 5TRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
Auglýsing
frá félagsmáiaráðuneytinu
Kynningarfundir um áfangaskýrsiu nefndar um
breytingar á skiptingu landsins í sveitarfélög
verða haldnir sem hér segir:
15. október 1991 kl. 14.00 Hvanneyri, Bændaskólinn.
15. október 1991 kl. 20.30 Búðardalur, Dalabúð.
16. október 1991 kl. 14.00 Patreksfjörður, félagsheimilið.
16. október 1991 kl. 20.30 ísafjörður, stjórnsýsluhúsið.
18. október 1991 kl. 14.00 Snæfellsnes, félagsheimilið Breiðablik.
21. október 1991 kl. 14.00 Hvammstangi, Vertshúsið.
21. október 1991 kl. 20.30 Sauðárkrókur, Safnahúsið.
22. október 1991 kl. 14.00 Akureyri, Hótel KEA.
22. október 1991 kl. 20.30 Húsavík, Hótel Húsavík.
23. október 1991 kl. 14.00 Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf.
23. október 1991 kl. 21.00 Höfn, Hótel Höfn.
24. október 1991 kl. 14.00 Selfoss, Hótel Selfoss.
29. október 1991 kl. 20.30 Keflavík, Flughótelið.
Félagsmálaráðuneytið, 10. október 1991.
MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Víðivöllum 8, Akureyri,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 5. október sl„
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju, miðvikudaginn 16. október
kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagiö.
Ingvi Rafn Jóhannsson.