Dagur - 12.10.1991, Síða 20
Heimsmeistarar!
- íslendingar komu, sáu og sigruðu á
heimsmeistaramótinu í bridds í Yokohama
Það var líf í tuskunum á Ióð Menntaskólans á Akureyri í gær þegar fjórðubekkingar vígðu nýnema, busana, með
formlegum hætti inn í skólann. Að venju voru busarnir tolleraðir og fengu þeir þannig ókeypis flugferð. Fjórðu-
bekkingarnir voru í senn vígalegir og ógnvekjandi. Mynd: Golli
Fleiri loðnuflekkir fmnast úti fyrir Vestfjörðum:
Hafraimsóknastofnun sendir
annað skip á miðin
- „betra að hafa færri orð en fleiri þar til búið er að mæla,“
segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar
íslendingar lögðu Pólverja aö
velli í löngum og ströngum 160
spila úrslitaleik um heims-
meistaratitilinn í bridds í fyrri-
nótt. Leiknum lauk meö 39
stiga sigri íslands sem skoraði
Slippstöðin:
Nýsmíðin loks
að seljast?
Viðræður hafa staðið að
undanförnu milli Slippstöðvar-
innar á Akureyri og Matthías-
ar Óskarssonar, útgerðar-
manns í Vestmannaeyjum, um
að hann kaupi nýsmíðaskip
Slippstöðvarinnar sem legið
hefur nánast fullbúið við
bryggju í hálft annað ár.
Stöðugir fundir voru milli aðila
í Slippstöðinni í gær en niður-
staða lá ekki fyrir þegar blaðið
fór í prentun.
Skip Matthíasar, Bylgja VE,
skemmdist mikið í bruna í Skipa-
lyftunni í Vestmannaeyjum í
september. Hugmyndin er að
Slippstöðin taki Bylgju upp í
kaupverð.
Sölusamningar um nýsmíða-
skipið hafa verið gerðir áður og
þá við Meleyri á Hvammstanga.
Málið strandaði hins vegar í bæði
skiptin þegar Fiskveiðasjóður
hafnaði umsókn um fyrirgreiðslu.
JÓH
Mikið hefur borið á því að
keyrt hafi verið á kyrrstæðar
bifreiðar á Akureyri og tjón-
valdar stungið af. Tugir bif-
reiðaeigenda lenda í þessu á
ári hverju og sitja eftir með
sárt ennið og fjárhagslegt tjón,
Helgarveðrið:
Hægur vindur
og úrkomulítið
Norðlendingar þurfa hvorki að
kvarta né kveina yfir veðurspá
helgarinnar. Veðurstofan segir
okkur að í dag verði hæg norð-
læg átt, skýjað og lítils háttar
súld eða slydda, hiti um 2 stig.
Sama meinleysisveðrið mun
leika um norðanvert landið á
sunnudag. Hæg austan eða norð-
austan átt, skýjað en að mestu
þurrt. Hiti á bilinu 2-4 stig.
Eftir helgi má búast við meiri
óróleika. Horfur á mánudag
hljóða upp á allhvassa norðan
eða norðaustan átt með slyddu-
éljum og versnandi veðri. SS
415 stig gegn 376 stigum Pól-
verja. Þessi árangur íslenska
landsliðsins er í senn stórkost-
legur og óvæntur en fullkom-
lega verðskuldaður.
Líklegt má telja að meirihluti
íslensku þjóðarinnar hafi fylgst
með gengi íslenska landsliðsins
síðustu daga heimsmeistaramóts-
ins og fjölmargir vöktu í fyrrinótt
og fylgdust með beinni útsend-
ingu í sjónvarpi og útvarpi frá
mótinu. íslenska sveitin tók for-
ystuna þegar í upphafi úrslita-
leiksins og hafði 80 stiga forskot á
Pólverja þegar spilamennskan
hófst í fyrrinótt. í yfirþyrmandi
spennu lokaumferðarinnar náði
pólska sveitin að minnka forskot-
ið til muna og vann sér m.a. inn
60 stig í röð. En með góðum
endaspretti tryggðu íslendingar
sér sigurinn, sæmdarheitið
heimsmeistarar og sigurlaunin
glæsilegu, Bermuda-skálina.
Nýkrýndir heimsmeistarar í
bridds eru Aðalsteinn Jörgensen,
Jón Baldursson, Guðlaugur R.
Jóhannsson, Örn Arnþórsson,
Guðmundur Páll Arnarsson og
Þorlákur Jónsson, að ógleymdum
Birni Eysteinssyni, fyrirliða
íslensku sveitarinnar. Björn lagði
upp baráttuaðferðina hverju
sinni og stjórnaði sínum mönnum
eins og snjallasti herforingi.
íslenska sveitin er væntanleg
heim á morgun, sunnudag, og má
búast við að henni verði vel
fagnað. BB.
nema vitni gefi sig fram. í vik-
unni bættust þrír bifreiðaeig-
endur í þennan hóp.
Þær upplýsingar fengust hjá
rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri að þriðjudaginn 8. október
hefði verið ekið á bifreiðina SO-
622, steingráa Hondu, við Ein-
holt 9. Vinstri framhurð bifreið-
arinnar skemmdist mikið. Þetta
mun hafa gerst kl. 16.30-18.
Fimmtudaginn 10. október var
ekið á tvær kyrrstæðar bifreiðar.
Önnur var á stæði við Verk-
menntaskólann, blár Fiat Uno
A-10136, og skemmdist vinstri
framhurð töluvert. Sama dag var
ekið á bifreiðina YZ-790, sem er
blá Lada Samara, þar sem hún
stóð á bílastæði við Sjúkrahúsið.
Vinstri afturhurðin dældaðist
nokkuð mikið.
Tjónvaldar hurfu af vettvangi í
þessum tilvikum og óskar rann-
sóknarlögreglan eftir að hugsan-
leg vitni gefi sig fram.
„Þetta er mál sem er í gangi
allan ársins hring jafnt og þétt og
nær undantekningalaust er stung-
ið af, nema vitni hafi verið til
staðar," sagði Gunnar Jóhanns-
son, rannsóknarlögreglumaður.
SS
„Það er ekki nýtt að loðna
finnist í Grænlandssundi á
þessum árstíma og veiðin hefur
oft byrjað þar á haustin. Bát-
arnir hafa fengið lóðningar en
þangað til rannsóknaskipin
hafa mælt hve mikið þetta er
og hvort þetta er veiðanlegt er
betra að hafa færri orð en
fleiri. En auðvitað er maður
feginn að lóðar á einhverju,“
segir Jakob Jakobsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar,
vegna fréttanna sem borist
hafa frá leitarskipum á loðnu-
miðunum út af Vestfjörðum en
þar hefur orðið vart talsverðr-
ar loðnu á nokkrum stöðum.
Eins og fram hefur komið
fannst loðnuflekkur vestur undir
Grænlandi og þar hefur rann-
Allgóð sfldveiði var á Horna-
fjarðardýpi í fyrrinótt og náðu
nokkrir bátar sem þar voru
stórum köstum. Von var á
Hrafninum til Grindavíkur í
gær með 400 tonn og Arney
KE-50 landaði 60-70 tonnum á
Reyðarfirði. Þá hafði Dagur
spurnir af því að Geirfugl hefði
verið með 100 tonn.
Að sögn Óskars Þórhallssonar,
skipstjóra á Arneyju, var síldin
sem bátarnir fengu í fyrrinótt
mjög blönduð. „Að mínu mati er
þetta léleg síld. Hún er mest á
bilinu 30-33 sentímetrar. Það er
lítið af stóru síldinni, yfir 33
sentímetrar," sagði Óskar.
sóknaskipið Árni Friðriksson
gert mælingar sem sýna að þar er
um að ræða í bland yngri og eldri
loðnu. Við miðlínuna milii
íslands og Grænlands fannst ann-
ar loðnuflekkur sem rannsóknar-
skipið var að mæla í gær. Þriðji
loðnuflekkurinn er djúpt norður
af Horni.
Jakob segir það bagalegt að
leitarskipin hafi ekki veiðarfæri
um borð og geti því ekki tekið
sjálf sýni úr því sem þau finna.
Kostnaðarmeira hafi verið að
senda skipin út með veiðarfærum
og fullri áhöfn en ætlunin hafi
verið að senda rannsóknaskip á
eftir leitarskipunum til að skoða
það sem fyndist. Eitt skip hafi illa
undan núna og því var tekin
ákvörðun nú fyrir helgina að
senda rannsóknaskipið Bjarna
Hann sagðist ekki eiga von á
að úr rættist að neinu marki fyrr
en undir lok þessa mánaðar.
„Það hefur aldrei verið neinn
kraftur í þessu fyrr en í lok októ-
ber og nóvember. Best er síldin í
desember og janúar,“ sagði
Óskar.
Um 10-12 bátar voru komnir á
miðin í Hornafjarðardýpinu í
gærmorgun og von var á fleirum.
Þar á meðal er Arnþór EA, en
þegar Dagur hafði tal af Ingvari
Guðmundssyni, skipstjóra, í
gærmorgun var hann á hröðu
stími í átt að Hornafjarðardýpinu
og hafði lítið verið var við síld á
leið sinni í suður með Austfjörð-
um. óþh
Sæmundsson einnig á miðin og
heldur hann úr höfn á mánudag.
Þetta segir Jakob nauðsynlegt til
að staðfesta um hve mikla loðnu
er að ræða og hvort hún er í veið-
anlegu ástandi. JÓH
Atvinnuátaksnefnd
SigluQarðar:
Áherlsla lögð
á málmiðnað
og ferðamál
Ahersla veröur lögð á að finna
málmiðnaðarfyrirtækjum á
Siglufirði verkefni og gera átak
í ferðamálum í bænum. Þetta
var meginniðurstaða fyrsta
fundar átaksnefndar í atvinnu-
málum á Siglufirði sl. fimmtu-
dag, en nú er verið að hleypa
af stokkunum síðari hluta
átaksverkefnis I atvinnumálum
í bænum.
Ólafur Marteinsson, formaður
átaksnefndarinnar, segir að á
þessum fyrsta fundi hafi almennt
verið farið yfir stöðu atvinnumál-
anna í bænum og menn hafi verið
á því að áherslu bæri að leggja á
markaðssetningu málmiðnaðar-
fyrirtækjanna og ferðamálin. í
málmiðnaðinum væru menn jafnt
að horfa til markaðar innanlands
sem erlendis.
Ekki er ákveðið hvort ráðinn
verður fastur starfsmaður fyrir
atvinnuátaksverkefnið. Ólafur
sagði koma til greina að ráða
fleiri en einn í afmörkuð smærri
verkefni innan heildarverkefns-
ins. Um þetta ætti þó eftir að
taka ákvörðun.
Til atvinnuátaksverkefnisins,
sem miðað er við að standi í eitt
ár, verður varið um fjórum millj-
ónum króna. óþh
Ökufantar á Akureyri:
Ekið á kyrrstæða
bfla og stungið af
- þrjú tilfelli í vikunni
Allgóð síldveiði á Hornaflarðardýpinu í fyrrinótt:
Léleg sfld að mínu mati
- segir Óskar Pórhallsson, skipstjóri á Arneyju KE