Dagur - 06.05.1992, Page 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 6. maí 1992
84. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
Thc Taikir-I.ook
J
ennaDuoin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Sendiferðabifreið lenti
utan vegar í Giljareitum
í gærmorgun gerði mikla hríð
og hálku á Öxnadalsheiði.
Bflaleigubfll af gerð Mitsubishi
L300 lenti utan vegar í Gilja-
reitum.
Geir Guðmundsson, hjá Vega-
gerð ríkisins á Akureyri, var á
ferð um Öxnadalsheiði í gær-
morgun. Hann segir að veðrið
hafi verið slæmt um tíma, en því
slotaði laust fyrir hádegi.
„Ég var á undan sendiferða-
bifreiðinni. Vegna hálku og
blindu fór ég hægt yfir, greinilega
ekki nægilega hratt af aksturs-
máta þess er á eftir kom. Við vor-
Akureyri:
Ákveðið að ræða
við SS Byggi
Framkvæmdanefnd um íbúð-
ir aldraðra á Akureyri sam-
þykkti samhljóða á fundi sín-
um í gærmorgun að ganga til
viðræðna við byggingafyrir-
tækið SS Byggi hf. á Akur-
eyri um byggingu tveggja 35
íbúða fjölbýlishúsa fyrir
aldraða á Akureyri.
SS Byggir hf. var með næst
lægsta tilboðið í byggingu hús-
anna þegar tilboð voru opnuð
15. apríi sl., um 58 milljónum
króna hærra en tilboð Hag-
virkis-Kletts í Hafnarfirði, sem
var 398 milljónir króna. Við
athugun á tilboðunum kom
fram skekkja og tilboð SS
Byggis reyndist vera 19 millj-
ónum króna hærra en tilboð
Hagvirkis-Kletts. Á síðustu
vikum hefur verið rætt við
Hagvirkis-Kletts menn, en
niðurstaðan varð sem sagt sú á
fundinum í gærmorgun að
ganga til viðræðna við for-
svarsmenn SS Byggis á grund-
velli tilboðs þeirra. Búist er
við að þær viðræður hefjist í
dag. óþh
Bæjarstjórn Akureyrar:
Reikningar 1991
samþykktirígær
Reikningar Akureyrarbæjar
fyrir árið 1991 voru sam-
þykktir á fundi bæjarstjórn-
ar Akureyrar í gær.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
seti bæjarstjórnar, sagði að
þrátt fyrir áföll á síðasta ári
hafi fjárhagur bæjarins verið
mjög viðunandi um síðustu
áramót og í sama streng tók
Halldór Jónsson, bæjarstjóri.
Jakob Björnsson (B) sagðist
vera áhyggjufullur vegna bágr-
ar stöðu Framkvæmdasjóðs
bæjarins og þar þyrfti að taka til
hendinni strax á þessu ári. Sig-
urður J. Sigurðsson sagði rétt
að sjóðurinn stæði illa og lausa-
fjárstaða hans væri erfið og
mikilvægt væri að huga að þessu
máli á næstu mánuðum. óþh
um staddir vestan nýja vegarins í
Giljareitum á gamla veginum. Er
ég sá sendiferðabifreiðina koma
jók ég ferðina til að forða
árekstri. Sá er á eftir kom heml-
aði og bíllinn tók að snúast. Bíll-
inn lenti utan vegar á hliðina, en
sem betur fer ofan vegar. f bíln-
um voru átta manns flest útlend-
ingar. Fólkið sakaði ekki, en bíll-
inn er nokkuð skemmdur. Við
komum bílnum á hjólin með
handafli og drógum hann síðan
upp á veginn. Ég vil taka fram að
sendiferðabíllinn var vel dekkj-
aður, en bílstjórar ættu að fara
hægar yfir þegar ekki viðrar
betur,“ sagði Geir Guðmunds-
son. ój
Starfsmaður umhverfisdeildar Akureyrarbæjar að störfum. í mörg horn er að líta í byrjun sumars
Mynd: Golli
Sveitarstjórnir fimm sveitarfélaga við utanverðan Eyjaíjörð:
Fela Byggðastofnun að kanna
ýmsa þættí varðandi sameiningu
Útibú Byggðastofnunar á
Akurcyri mun aö beiðni sveit-
arstjórna fimm sveitarfélaga
við utanverðan Eyjafjörð gera
úttekt á ýmsum hliðum hugs-
anlegrar sameiningar þeirra í
eitt sveitarfélag.
í síðustu viku var haldinn í
Ólafsfirði sameiginlegur fundur
bæjarstjórna Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar og hreppsnefnda Svarfað-
ardals-, Árskógs- og Hríseyjar-
hrepps og á þeim fundi var sam-
þykkt að fara þess á leit við
Byggðastofnun að kanna ýmis-
legt í sambandi við hugsanlega
sameiningu þessara fimm sveitar-
félaga í eitt sveitarféiag. Álits-
gerð Byggðastofnunar verður
síðan lögð fyrir annan sameigin-
legan fund sveitarstjórnanna, en
að sögn Valtýs Sigurbjarnarson-
ar, forstöðumanns útibús Byggða-
stofnunar á Akureyri, er ekki
ljóst hvenær hún kemur til með
að liggja fyrir.
Beiðni sveitarstjórnarmanna
þessara fimm sveitarfélaga þarf
vart að koma á óvart. Umræða
um aukið samstarf eða samein-
ingu sveitarfélaga við Eyjafjörð
hefur á undanförnum misserum
verið ofarlega á baugi og aukinn
kraftur færðist í hana með útgáfu
skýrslu nefndar félagsmálaráðu-
neytisins um skiptingu landsins í
sveitarfélög, sem kom út í
september á síðasta ári.
Fó svo að sveitarstjórnirnar
hafi falið Byggðastofnun að
kanna ýmsa þætti viðvíkjandi
sameiningu sveitarfélaganna í
eitt sveitarfélag er langur vegur
frá því að af þessari sameiningu
kunni einhvern tímann að verða.
Sveitarstjórnarmenn á Eyjafjarð-
arsvæðinu eru sammála um að
innan fárra ára verði sveitarfélög-
in stækkuð, en spurning sé hvort
verði ofan á að sameina fimm
sveitarfélög við utanverðan
Eyjafjörð eða öll sveitarfélög við
Eyjafjörð í eitt sveitarfélag. í
áðurnefndri skýrslu félagsmála-
ráðuneytisins er nefndur þriðji
kosturinn, tvö sveitarfélög við
Eyjafjörð. I þeirri hugmynd felst
að sameina fimm sveitarfélög við
utanverðan Eyjafjörð í eitt sveit-
arfélag og sveitarfélög frá Arn-
arneshreppi að Ljósavatnsskarði
í annað sveitarfélag.
Eftir því sem næst verður kom-
ist eru töluvert skiptar skoðanir
meðal sveitarstjórnarmanna í
áðurnefndum fimm sveitarfélög-
um við utanverðan Eyjafjörð um
sameiningu þeirra í eitt sveitar-
félag. Dalvíkingar og Svarfdæl-
ingar virðast jákvæðir að skoða
þetta í fullri alvöru, en ákveðinna
efasemda gætir hjá nokkrum full-
trúum í bæjarstjórn Ólafsfjarðar.
Pá eru efasemdaraddir í Hrísey
og Árskógshreppi, ekki síst
vegna þess að íbúar beggja
hreppanna sækja ýmsa þjónustu
frekar til Akureyrar en Dalvíkur.
Valtýr Sigurbjarnarson segir að
mikil „gerjun“ sé meðal sveitar-
stjórnarmanna um allt land í
sameiningarmálum um þessar
mundir og auk þess sem Byggða-
stofnun hafi verið falið að kanna
jarðveginn við utanverðan
Eyjafjörð, þá liggi fyrir að skoða
ýmsa þætti varðani hugsanlega
sameiningu sveitarfélaga í Aust-
ur-Húnavatnssýslu. óþh
Skólar á Akureyri:
Aukið framboð á kennurum á
sama tíma og stöðum fækkar
- margir kennarar á höfuðborgarsvæðinu vilja koma norður
Óvenju mikil ásókn er í
kennarastöður við skóla á
Akureyri fyrir næsta haust á
sama tíma og útlit er fyrir að
óvenju fáar stöður losni. Það
er því frekar búist við offram-
boði á kennurum en skorti, að
minnsta kosti hvað varðar
almennar kennarastöður. Að
sögn Ingólfs Ármannssonar,
Vinnumiðlunarskrifstofan á Akureyri:
Atvmnulausmn fækkar
um 40 milli mánaða
Atvinnulausum á Akureyri
hefur fækkað á síðustu vikum.
I byrjun aprflmánaðar voru
atvinnulausir 320, en nú í byrj-
un maí eru þeir 279.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á
Akureyri eru 171 karl og 108
konur atvinnulaus á Akureyri í
byrjun sumars. í fyrra á sama
tíma voru atvinnulausir 170, en
árið áður 285. Starfsmenn Vinnu-
miðlunarskrifstofunnar reikna
með, að á næstu vikum fái enn
fleiri vinnu þ.e. þegar hefðbund-
in sumarstörf hefjast. Flestir þeir
er fengu vinnu í síðasta mánuði
eru verkamenn og verkakonur úr
Einingu. ój
skólafulltrúa, verða umsóknir
teknar fyrir á fundi í dag og þá
ætti staðan að skýrast.
„Það verður eingöngu ráðið
réttindafólk í þessari fyrstu lotu.
Mun fleiri kennarar með réttindi
hafa sótt um stöður á Akureyri
en undanfarin ár og greinilegt er
að margir kennarar á höfuðborg-
arsvæðinu hafa hug á að koma
norður," sagði Ingólfur.
Hann taldi víst að nú þegar
væri fullbókað í allar almennar
kennarastöður við grunnskólana
á Akureyri en hins vegar vantaði
kennara í ýmsar sérgeinar svo og
sérkennslu. Hann sagði að útlitið
í heild væri mun betra en á síð-
ustu árum.
„Auðvitað kemur líka inn í
þetta að það verður viss skerðing
á kennslumagni þannig að nokkr-
ar stöður falla út og framboð á
kennarastöðum verður því minna
en verið hefur,“ sagði Ingólfur.
SS