Dagur - 06.05.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 6. maí 1992
Fréttir
Á myndinni gefur að líta nemendur úr Þelamerkurskóla í Hörgárdal í sundlauginni að Laugalandi, en nemendur 7.
til 10. bekkjar þreyttu langsund mikið í einn sólahring í síðustu viku. Tvö og tvö syntu í einu í 15 mínútur hvert.
Sundið var þreytt til styrktar ferðasjóði nemenda. Áheit söfnuðust að upphæð 160 þúsund krónur og vegalengdin
er unglingarnir syntu var 99 kílómetrar og 850 metrar. Mynd: Goiií
Tannverndarráð ályktar um silfurfyllingar:
Engin ástæða til að
hætta notkun amalgams
Nokkrar umræður hafa orðið
fjölmiðlum að undanförnu um
tannfyllingarefnið amalgam og
meinta skaðsemi af silfurfyll-
ingum í tönnum. Hér í Degi
birtist grein um þetta mál fyrir
nokkru. Nú hefur Tannvernd-
arráð gefið út yfirlýsingu um
málið.
í frétt frá heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu segir að sams-
konar umræða hafi farið fram í
Svíþjóð „og var áróður gegn
amalgam farinn að valda ástæðu-
lausum ótta hjá almenningi og
jafnvel sektarkennd hjá ófrískum
konum,“ eins og segir í fréttinni.
Þar er greint frá ráðstefnu sem
haldin var í Svíþjóð 9. og 10.
apríl á vegum sænska rannsókna-
ráðsins sem fjallar um læknis-
fræðileg málefni þar sem
Efling
Framhaldsstofnfundur Hagfélagsins hf.:
fiillviimslu landbúnaðarafurða
Framhaldsstofnfundur Hagfé-
lagsins hf. í Vestur-Húnavatns-
sýslu verður haldinn á Hótel
Vertshús á Hvammstanga á
morgun. Þar verður gengið
formlega frá stofnun félagsins,
en eins og fram hefur komið
ákvað Byggðastofnun nýlega
að leggja fram hálfa milljón til
hlutafjárkaupa í félaginu.
Stærstu eignaraðilar Hagfé-
lagsins eru Byggðastofnun og
sveitarfélög í Vestur-Húnavatns-
sýslu, en auk þess eiga atvinnu-
fyrirtæki og einstaklingar í hérað-
inu hlut í félaginu.
Upphaflega var stefnt að því
að heildarhlutafé Hagfélagsins
Þjónustu- og hjúkrunarrými fyrir aldraða:
Fast sótt að breyta þjómisturými
í hjúknmarrýini á undaníórnum árum
Á tveimur síðustu áratugum
hefur heildarfjöldi þjónustu-
og hjúkrunarrýma fyrir aldr-
aða aukist um 1796 rými og
voru samtals 3,235 rými í notk-
un um síðustu áramót. I upp-
hafi ársins 1971 voru 875 þjón-
usturými og 564 hjúkrunar-
rými í notkun í landinu en
fjölgaði í 990 þjónusturými og
992 hjúkrunarrými á áratugn-
um fram til 1981. Fjölgunin á
Siglingamálastofnun:
Námskeið á
Akureyrimn
mengunarvarnir
íhöfnum
Föstudaginn 8. maí verður efnt
til námskeiðs á Akureyri er lýt-
ur að mengunarvörnum í
höfnum.
Að sögn Guðmundar Sigur-
björnssonar, hafnarstjóra á
Akureyri, er ráðgert að starfs-
menn hafna frá Hvammstanga
allt austur að Vopnafirði sæki
námskeiðið. Á föstudagsmorgun-
inn hefst fræðslan að Galtalæk
með fyrirlestrum er fluttir eru af
starfsmönnum Siglingamálastofn-
unar. Eftir hádegið verður farið
niður að höfn um borð í varðskip
sem kemur til Akureyrar vegna
námskeiðsins. Varðskipsmenn
munu sýna notkun á flotgirðing-
um og ýmsum hreinsibúnaði sem
verið er að kaupa til mengunar-
varna í höfnum á Norðurlandi.
ój
síðasta áratug er samtals 1253
rými - þjónusturýmum fjölg-
aði um 297 en hjúkrunarrým-
um fjölgaði alls um 956 rými.
Þessar upplýsingar koma fram
í nýútkominni skýrslu heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra um málefni og hagi aldr-
aðra.
íbúar á íslandi voru 255.855
fyrsta desember 1990. Þar af voru
18.735 70 ára og eldri. Þá var
fjöldi hjúkrunarrýma á hverja
100 íbúa samtals 10,4 og fjöldi
þjónusturýma 6,9. Samtals voru
því 17,3 rými á hverja 100 íbúa í
landinu. Athygli vekur að fæst
hjúkrunar- og þjónusturými eru í
Reykjavík eða aðeins 12,7% á
hverja 100 íbúa en flest á Suður-
landi alls 32,5. Á Vesturlandi eru
24,3 rými fyrir aldraða og 17.9 á'
Vestfjörðum. Svipaður fjöldi
þjónusturýma er á Norðurlandi -
22,0 á Norðurlandi vestra og 21,1
á Norðurlandi eystra. Á Austur-
landi eru 18,4 rými á hverja 100
íbúa og 16,0 á Reykjanesi.
Dagvistarrými fyrir aldraða
voru 303 á öllu landinu í ársbyrj-
un 1991 en um síðustu áramót
voru 18 ný dagvistarrými tekin í
notkun til viðbótar. Af þessum
303 dagvistarrýmum eru 174 í
Reykjavík og 49 á Norðurlandi
eystra en færri í öðrum landshlut-
um. Leigu-, sjálfseignar- og bú-
seturéttaríbúðum fyrir aldraða
hefur fjölgað verulega á síðustu
árum og teljast líkt og dagvistin
til opinnar öldrunarþjónustu
samkvæmt lögum um málefni
aldraðra. Alls eru nú 1.550 íbúðir
fyrir aldraða í notkun á landinu
og skiptast þær nokkuð í hlutföll-
um eftir fólksfjölda. í skýrslu
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra er gert ráð fyrir að um það
bil 2.200 aldraðir íbúar geti búið í
þessum íbúðum á hverjum tíma.
ÞI
næmi 2,1 milljón króna, en þar
sem Byggðastofnun treysti sér
ekki til að leggja fram 700 þús.
kr., eins og farið var fram á, þá
segist Karl Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, telja að
hlutaféð verði um 1850-1900 þús.
kr.
„Eftir að algjörlega hefur verið
gengið frá stofnun félagsins ættu
hjólin að fara að snúast hjá
okkur, því við höfum haldið
dálítið að okkur höndunum í
þessari óvissu. Ein hugmyndin
sem við ætlum að vinna úr, er að
reyna að auka arðsemi í héraðinu
með eflingu á fullvinnslu land-
búnaðarafurða, en einnig er
margt annað á döfinni,“ segir
Karl Sigurgeirsson.
SBG
umræðuefnið var amalgam. Þar
skiptust yfir 100 fulltrúar ýmissa
hópa á skoðunum og að umræð-
um loknum samdi hópur sér-
fræðinga úr þeim starfsgreinum
sem málinu tengjast greinargerð
þar sem niðurstaðan var eftirfar-
andi:
„Silfuramalgam sem inniheld-
ur m.a. kvikasilfur er ódýrasta og
mest notaða tannfyllingarefnið
sem völ er á. Smá magn af kvika-
silfri getur losnað úr amalgami,
en ekki hefur verið sýnt fram á að
það hafi áhrif á starfsemi líkam-
ans.
Ofnæmi er þekkt er er mjög
sjaldgæft og lagast sé skipt um
efni.
Miðað við þær vísindalegu
niðurstöður sem liggja fyrir, er
engin ástæða til að hætta notkun
amalgams né fjarlægja þær
amalgamsfyllingar sem fyrir eru.
Nauðsynlegt er að þeir sjúkl-
ingar sem telja sig hafa sjúk-
dómseinkenni sem stafi af
amalgami án þess að hægt hafi
verið að sjúkdómsgreina það,
eigi kost á nákvæmri læknisfræði-
legri og sálfræðilegri skoðun.“
Með fréttinni fylgja fróðleiks-
molar um amalgam og segir þar
að enn sé ófundið það efni sem
geti keppt við amalgam hvað
varðar gæði og verð. Plastefni
sem notuð eru séu ekki nógu
endingargóð til að setja í jaxla,
endingartíminn er helmingi
styttri en samt eru þessi efni 50%
dýrari en amalgam. Gullfyllingar
eru allt að helmingi endingarbetri
en amalgam, en þær eru líka
tífalt dýrari.
Allt útlit er hins vegar fyrir að
við þurfum að bíða í 10-20 ár þar
til á markað koma jafnvönduð
efni og amalgam en sem falla bet-
ur að litasamsetningu tannanna.
-ÞH
Húsavík:
AðdáendaJdúbbur Leeds Utd. stofnaður
„Ég er búinn að bíða eftir
þessu í 18 ár og það var stór
stund hjá mér þegar enski
meistaratitillinn var í höfn. Ég
hef fylgt liðinu gegnum þykkt
og þunnt og fór aldrei í felur
þó liðið væri komið lengst nið-
ur í aðra deild. Þetta var stór-
kostleg tilfinning þegar meist-
aratitillinn vannst,“ sagði Haf-
liði Jósteinsson, sem kjörinn
var formaður aðdáendaklúbbs
Leeds Utd.
Klúbburinn var formlega
stofnaður á Veitingastaðnum
Bakkanum á Húsavík sl. laugar-
dag eftir að nokkuð margir
aðdáendur liðsins höfðu fylgst
með því taka við meistaratign-
inni.
Vikuna þar á undan, eða frá
því að Ijóst var að liðið yrði
meistari í deildinni, þá fór Haf-
liði allra sinna ferða um bæinn á
hjóli og á því var stöng með skilti
þar sem stóð: „Leeds Englands-
meistarar." Vakti þessi ferðamáti
Hafliða talsverða athygli í
bænum.
Hinn nýstofnaði aðdáenda-
klúbbur hyggst undirbúa ferð til
Englands í haust, um það leyti
sem keppninstímabilið byrjar.
IM