Dagur - 06.05.1992, Side 3
Miðvikudagur 6. maí 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Endursöluíbúðir aldraðra á Akureyri:
„Fráleitt að spá verðhruni
- segir Hermann R. Jónsson hjá Fasteignasölunni hf.
64
Spár um yfirvofandi verðhrun
á fasteignamarkaðinum á Akur-
eyri vegna byggingar á 70 íbúð-
um fyrir aldraða hafa valdið
nokkrum titringi í bænum.
Ibúðareigendur hafa óttast um
sinn hag og töluvert álag hefur
verið á símalínum hjá fast-
eignasölum. Sumir vilja selja
sem fyrst til að lenda ekki í
„verðhruninu“ en ekki eru all-
ir sammála þeim spádómum
sem viðmælendur Dags í gær
héldu á lofti.
Hermann R. Jónsson hjá Fast-
eignasölunni hf. er ekki sammála
því sem fram kemur í frétt Dags í
gær þar sem viðmælendur blaðs-
Sauðárkrókur:
Stúdentsefiii „diniitera“
Með vorinu fæðist prófskrekkur
hjá skólafólki, en jafnframt eftir-
vænting hjá þeim sem t.d. eru að
brautskrást úr fjölbrauta- og
menntaskólum. í flestum fram-
haldsskólum er til siðs að
ir
stúdentsefni létti sér upp fyrir
prófin og „dimiteri“ og það var
einmitt það sem þessi'fríði hópur
úr Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki var að
gera þegar Dagur rakst á hann.
„Mexíkanamir“ á Sauðárkróki eru
þó töluvert fleiri, en þann 23.
þessa mánaðar munu 37 nemend-
ur væntanlega brautskrást frá
skólanum og þar af 24 með
stúdentspróf. SBG
ins telja að það muni hafa mikil
áhrif á fasteignamarkaðinn þegar
aldraðir selja núverandi íbúðir
sínar og flytja í íbúðir fyrir aldr-
aða sem byggja á við Bugðusíðu.
Hermann telur að engin rök fyrir
verðhruni hafi komið fram.
„Ég fékk þær upplýsingar hjá
Húsnæðisskrifstofu Akureyrar-
bæjar að 37 manns væru búnir að
staðfesta kaup á íbúðum í þess-
um húsum. Þar af eru 33 með
endursöluíbúðir á ntarkaðinum
núna og átta af þeim eru þegar
seldar. Þá eru núna 25 íbúðir í
endursölu og á Akureyri eru
fimm fasteignasölur þannig að
þessi viðbót skiptir engu máli ef
hún dreifist á fasteignasölurnar.
Þessar endursöluíbúðir sem aldr-
aðir eru að losa verða á markað-
inum í eitt til eitt og hálft ár og
eiga ekki að hafa nein teljandi
áhrif. Mér finnst fráleitt að spá
verðhruni vegna þessa,“ sagði
Hermann.
Hann bætti því við að Akur-
eyrarbær keypti 10 af þessum 70
íbúðum til útleigu fyrir aldraða
sem væru undir eigna- og tekju-
mörkum og því yrðu í mesta lagi
60 íbúðir í endursölu. Þessi við-
Bændaskólinn Hólum í Hjaltadal:
Búfræðingar útskrifaðir við skólaslit
Bændaskólanum Hólum í
Hjaltadal var slitið sl. fímmtu-
dag. Tuttugu og þrír nemendur
stunduðu nám í efri deild skól-
ans í vetur og útskrifuðust
þeir allir sem búfræðingar.
Bestum árangri á búfræðiprófí
náði Jóhanna Stella Jóhanns-
dóttir með 9 í einkunn, en
næstur kom Guðni Ágústsson
með 8,6.
Við skólaslitin sagði Svein-
björn Eyjólfsson, skólastjóri,
m.a. þetta: „Verknám hefurfarið
vaxandi í Hólaskóla undanfarið.
Nú þurfa allir nemar að vinna
töluvert með náminu, hvort sem
er í fiskeldisstöð, við rannsóknir,
í fjárhúsi eða í hesthúsi. Það er
ekki nóg að kenna af bókinni,
verkin verða að fylgja. Hólaskóli
hyggur á aukið samstarf við
erlenda skóla um verknám og
fyrsti vísir að því verður hér í
sumar er við fáum þrjá finnska
verknema. Vonandi getum við
síðan strax á næsta ári sent nema
í verknám erlendis.“
í ræðu skólastjóra Bændaskól-
ans kom einnig fram að hrossa-
rækt, reiðmennska og tamningar
er það sem mestrar athygli nýtur
í starfi skólans um þessar
mundir. Til marks um það stund-
uðu 53 nemendur nám við skól-
ans sl. vetur. Þar af 49 á almennri
búfræðibraut og af þeim völdu 42
hrossarækt.
Akureyrarbær:
Lagði 489 milljómr til
atvirmumála á tveimur árum
- miðað við höfðatölu samsvarar það því að Reykjavíkur-
borg hefði lagt allt andvirði nýja ráðhússins í atvinnumál
Á fundi bæjarráös Akureyrar í
síðustu viku uröu umræður um
fjárveitingar bæjarins til
atvinnumála. Þar kom fram að
frá árinu 1987 hefur bærinn
lagt um 580 milljónir króna til
atvinnufyrirtækja í bænum,
þar af 489 milljónir á árunum
1990-91. Miðað við höfðatölu
samsvara framlög bæjarins á
síðustu tveimur árum til þess
að Reykjavíkurborg legði 3,4
milljarða til atvinnumála en
það er meira en andvirði nýja
ráðhússins.
Minnst af þessum framlögum
bæjarins er þó í formi hefðbund-
inna styrkja þó að þeir hafi aukist
líka. Mestu munar hins vegar um
hlutafjárkaup bæjarins í atvinnu-
fyrirtækjum. Á árunum 1987-89
keypti bærinn hlutafé á hverju ári
fyrir 3,7-5,7 milljónir króna en
árið 1990 fyrir 308 milljónir og
fyrir 50,6 milljónir í fyrra.
Einnig hefur orðið talsverð
aukning á því að bærinn afskrifi
bæjargjöld hjá fyrirtækjum sem
eiga í kröggum. Og í fyrra kom
nýr liður til sögunnar en hann
nefnist áfallnar ábyrgðir, þe.
bærinn hefur þurft að standa skil
á lánum sem gjaldfallið hafa á
bæjarsjóð vegna þess að fyrirtæk-
in sem lánin tóku hafa ekki getað
staðið undir þeim.
Á verðlagi í apríl 1992 jafn-
giltu framlög bæjarins til atvinnu-
mála 37,6 milljónum króna árið
1987, 23,2 milljónum árið 1988,
30 milljónum árið 1989, 365,4
milljónum árið 1990 og 123,5
milljónum króna í fyrra.
Fjárveitingar Akureyrarbæjar til atvinnumála 1987-1991
1987 1988 1989 1990 1991
Styrkir og framlög 2.733.432 4.239.928 4.627.722 5.504.699 7.890.585
Hlutafjárkaup 5.334.000 3.762.000 5.666.000 308.063.375 50.558.155
Lánveltingar 10.097.000 5.868.091 3.500.000 3.483.484 0
Áfallnar ábyrg&ir 0 0 0 0 52.450.018
Afskrifuö bæjargjöld 2.108.762 1.339.735 9.609.964 9.624.268 8.155.248
Samtals 20.273.194 15.209.754 23.403.686 326.675.826 119.054.006
Samtals á ver&lagl apríl '92 37.608.244 23.243.177 29.956.718 365.383.657 123.532.043
Samtals 1987-1991 579.723.839
Aðsókn á fiskeldisbraut hefur
hinsvegar minnkað og aðeins þrír
nemar útskrifuðust sem fiskeld-
isfræðingar á fimmtudaginn var. í
máli Sveinbjörns kom samt fram
að starfsemi skólans á því sviði
væri síður en svo að leggjast af og
þó ekki væri útlit fyrir kennslu á
brautinni næsta skólaár, væri
m.a. litið til skólans sem forystu-
aðila í rannsóknum á bleikjueldi.
Árangur á búfræðiprófi við
Hólaskóla þetta árið var þannig
að einn fékk fyrstu ágætiseink-
unn, þrettán fengu fyrstu eink-
unn, átta aðra einkunn og enginn
nemandi þriðju einkunn. SBG
bót sem dreifðist á fasteignasöl-
urnar á tiltölulega löngum tíma
ætti því ekki að hafa nein áhrif á
fasteignaverð. SS
Sauðárkrókur:
Stoftiun félags
eldri borgara
- stefnt að byggingu
þjónustuíbúða
Almennur borgarafundur um
stofnun félags eldri borgara á
Sauðárkróki og byggingu þjón-
ustuíbúða fyrir aldraða, var
haldinn á Sauðárkróki sl.
mánudag. Á fundinum var
kosið í nefnd til að vinna að
undirbúningi við stofnun félags
eldri borgara og er ætlunin að
stofnfundur verði í september
á þessu ári.
Á fundinum gerði nefnd, sem
kannað hefur byggingu þjónustu-
íbúða fyrir aldraða, grein fyrir
niðurstöðum sínum. Ásgeir
Jóhannesson, frá Sunnuhlíðar-
samtökunum í Kópavogi og
Gunnar Björnsson, sem unnið
hefur mikið að byggingarmálum
eldri borgara í Reykjavík, fluttu
báðir erindi um þjónustuíbúðir
og sína reynslu af þeim. í lok
fundar var síðan borin upp tillaga
að stofnun Félags eldri borgara á
Sauðárkróki og kosið í undirbún-
ingsnefnd fyrir það.
Skemmst er frá að segja að til-
lagan var samþykkt samhljóða og
í nefndina voru kosin: Ingvar
Gýgjar Jónsson, Sigurlaug Gunn-
arsdóttir og Sigmundur Pálsson.
Þau munu í sumar vinna að
undirbúningi að stofnun félags-
ins, en það er talið vera fyrsta
skrefíð í átt að byggingu þjónustu-
íbúða fyrir aldraða.
Stefnt er að stofnun félagsins í
september, en á fundinum, sem
var mjög fjölmennur, skráðu 50
manns sig á lista sem félagar þeg-
ar þar að kæmi. SBG
Aðalfundur
Handknattleiksdeildar
veröur haldinn í Hamri, mánudaginn 11. maí kl.
20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Frá menntamálaráðuneytinu
Þróunarsjóður
leikskóla
Auglýsing um styrkveitingu vegna þróunar-
verkefna í leikskólum.
Tilgangur styrksins er að stuðla að þróunarverk-
efnum í leikskólum. Með þróunarverkefnum er
átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í uppeldis-
starfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir og/eða
leikskólastjórar. Sækja má um styrk til nýrra
verkefna og verkefna sem þegar eru hafin.
Umsókn leikskólastjóra skal fylgja umsögn við-
komandi rekstraraðila. Styrkumsóknir skulu
berast menntamálaráðuneytinu fyrir 30. maí
1992 á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást
afhend í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 4, Reykjavík.
Reykjavík 4. maí 1992.