Dagur - 06.05.1992, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 6. maí 1992 - DAGUR - 5
Þessi föngulegi hópur var heiðraður með silfurmerki KSÍ fyrir vel unnin störf. Talið frá vinstri: Guðbjörg Pedersen,
Hólmbert Friðjónsson, Þorbergur Karlsson, Guðjón Guðmundsson, Jón Runólfsson, Aðalsteinn Steinþórsson,
Guðmundur Ólafsson, Stefán Haraldsson, Bjarni Pálmason, Daníel Benjamínsson og Ólafur Friðriksson. Auk
þeirra fengu Aðalsteinn Björnsson, Magnús Jónatansson og Magnús Theódórsson silfurmerkið. Myndir: -bjb
Aftnælishóf hjá KSÍ
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sker afmælistertuna. Aðrir á myndinni
eru, talið frá vinstri: Óskar Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar;
Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands íslands; Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips og Óli B. Jónsson, handhafi heiðurskross KSÍ.
Knattspymusamband Islands er
45 ára á þessu ári og síðastliðinn
fímmtudag var haldið upp á
afmælið í íþróttamiðstöð ISÍ í
Laugardal. Fjölmargir velunnarar
knattspyrnunnar mættu í opið hús
og þáðu dýrindis veitingar.
í afmælishófinu voru afhent gull-
og silfurmerki KSÍ til þeirra sem hafa
starfað ötullega að knattspyrnumál-
um á einn eða annan hátt gegnum
árin. Þá var æðsta heiðursmerki KSÍ,
heiðurskross úr gulli í borða með
íslensku fánalitunum, afhent Óla B.
Jónssyni, sem þekktastur er fyrir
knattspyrnuþjálfun til fjölda ára hjá
KR, Val og ÍBK en Óli þjálfaði
einnig íslenska landsliðið um tíma.
Þeir sem hlutu gullmerki Knatt-
spyrnusambands íslands að þessu
sinni voru: Alfreð Þorsteinsson,
Baldur Maríasson, Ingvi Guðmunds-
son, Jóhannes Atlason, Jörundur
Þorsteinsson, Kristinn Jónsson, Lár-
us Loftsson, Svanfríður Guðjóns-
dóttir, Tryggvi Geirsson, Þorlákur
Þórðarson og Þorvaldur Lúðvíksson.
Sama dag og afmælishófið var
haldið hélt stjórn KSÍ sérstakan
afmælisfund þar sem ákveðin voru
eftirfarandi fjögur mál: 1. Láta skrá
sögu KSÍ og því verki skal vera lokið
í síðasta lagi fyrir 50 ára afmælið. 2.
Efna til samkeppni um nýtt merki
KSÍ. 3. Fylgja eðlilegri þróun
íslenskrar kvennaknattspyrnu eftir
og efla hana enn frekar. 4. Velja
íþróttafréttamann ársins sem fjallað
hefur hvað mest og best um knatt-
spyrnu. -bjb/BB.
Útsalan
heldur ólram
Nýjar gerðir af homsófum,
spegilflísum og speglum.
AUBSMil
HÚSGAGNAVERSLUN
STRANDGÖTU 7 - 9 • AKUREYRI
SÍMAR 21790 & 21690
Framsóknarfólk
Húsavík
Skrifstofa Framsóknarfélags Húsavíkur er opin á
hverjum laugardagsmorgni kl. 11-12.
Ræðum bæjarmál og landsmál yfir kaffibolla.
Þar er tækifæri til að koma skoðunum sínum á fram-
færi og fá svör við spurningum.
Laugardaginn 9. maí verður starfsmaður KFNE
mættur á skrifstofuna.
Fjölmennum.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Garðari, Garðarsbraut 5, 2. hæð, sími 41225.
Tölvtmámskeið
Fyrirhugað er að halda eftirtalin nám-
skeið á næstu vikum:
C> Windows 3.1
C> Word fyrir Windows 2.0
C> Excel 3.0
Innritun og upplýsingar eru á skrifstofu
Tölvufræðslunnar eða í síma 27899.
Tölvunám
Lesendahornið
55
Nú tyllir vorið „tánum tindana á‘
og raddir náttúrunnar flytja sína
hljómkviðu yfir láð og lög, til
yndis þeim er kunna að njóta
þeirrar listrænu sem undir býr.
Já, römm er sú taug sem dregur
blessaða farfuglana okkar á sínar
heimaslóðir þegar vetur karl ios-
ar klær sínar úr moldu, jafnvel að
sömu hreiðrunum ár eftir ár, þótt
misjafnar séu viðtökurnar á
stundum.
Skotglöðum flökkulýð vex
fiskur um hrygg, dag frá degi, og
vopnum beitt óhæfiiega í mörg-
um tilfellum svo mjög, að hörm-
ung er til að sjá ef gengið er um
vígvellina þegar ósköpunum
linnir. Særðir vesalingar berjast
um til og frá, auk þeirra sem
liggja í valnum hræðilegir útlits,
jafnvel á varptíma, eins og dæm-
in sanna.
Virðist því að fáir kunni með
byssu að fara nú orðið, en þetta
heitir víst „sport“ og sjálfsagt
einn hluti menningarinnar eftir
nýjustu sólarmerkjum að dæma.
Þar eru margar hliðar á og
fáum leyfilegt að rekja hennar
krókaleiðir til fulls né leggja hana
á metaskál fyrir opnum tjöldum.
Framangreind atriði tilheyra
gróandanum sem á að gefa öllu
líf sitt og liti. En hvað um haust-
ið? Er þar kannski önnur hönd
Sportveiði
66
lögð á plóginn? Ekki aldeiiis. Þá
tekur fyrst steininn úr. Til
sönnunar þeirri fullyrðingu má
geta þess að 1. október sl. gekk
ég um landareignina og tíndi
saman beinagrindur af gæsum til
að koma þeim undir græna torfu.
Útkoman var svo geigvænleg að
ég vil ekki gera neinum það til
skammar að setja hana á blað
fyrir utan það sem haltraði um í
blóði sínu.
Vissulega ganga margir betur
um en hér hefur verið lýst og
þeim ber að þakka miskunnsem-
ina af heilum hug en Guð gefi
hinum vitglóru til að bæta ráð
sitt. Að hálfvitast með stál og blý
um friðhelg lönd í skjóli myrkurs
til þess eins að særa og valda
þjáningum má teljast dæmalaus
framkoma.
Loks mætti svo nefna hreindýr-
in. Er siðmenningin þar í heiðri
höfð þegar bergmálið hefst á
fjöliunum? Ég held ekki, en þar
eru víst líka „sportmenn“ á ferð í
fullum rétti.
Hamingjan góða að leiða rök
að slíkri villimennsku á dögum
hreinlætis og lagabókstafa þar
um. Auðvitað þarf að reka hjarð-
irnar í þar til gerðar kvíar og
draga til slátrunar eins og heiðar-
legt fólk gerir á norðlægum slóð-
um við sömu aðstæður og hér
eru. Valtýr Guðmundsson,
Sandi Aðaldal.
„Nám sem nýtist44
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34, III. hæð, 600 Akureyri.
Háskóli íslands
Endurmenntunarstofnun
Félag viðskipta-
og hagfræðinga
Háskólinn
á Akureyri
STEFNUMÓTUN FYRIRTÆKJA
— námskeið á Akureyri
Þátttakendur: Námskeiðiö er ætlað stjórnendum og framkvæmdastjórum
fyrirtækja.
Efni: Fjallað verður um markmið og gagnsemi af skipulegri vinnu við mótun
skýrrar framtíðarstefnu fyrirtækja. Farið verður í aðferðir og vinnuferli við
stefnumótun. Tekið verðurfyrir hvernig fyrirtæki geta skoðað rekstrarumhverfi
sitt og innri rekstur á kerfisbundinn hátt, m.a. með það að markmiði að virkja
sem best styrkleika til að nýta tækifæri framtíðar. Einnig verður fjallað um
markmiðasetningu, hvernig hrinda skuli stefnu í framkvæmd, tengingu við
árangur, hvernig tryggja megi sem best að árangursmarkmiðum sé náð.
Leiðbeinendur: Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi hjá Stuðli hf. og lektor við
viðskiptadeild Háskóla íslands og Jóhann Magnússon, rekstrarráðgjafi hjá
Stuðli hf.
Tími og verð: 13. maí, kl. 9.30-17.30. Þátttökugjald er kr. 11.500,-
Staður: Háskólinn á Akureyri, Glerárgötu 36.
Skráning fer fram í móttöku Tæknigarðs, fram á föstudag 8. maí,
í síma 694940, en nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Endurmenntunarstofnunar, í símum 694923, 694924 og 694925.