Dagur - 06.05.1992, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 6. maí 1992
Spurning vikunnar
Geirmundur Valtýsson:
Ég vona náttúrlega að þeim
gangi sem best þarna úti og ég
spái að lagið lendi í einu af
þremur efstu sætunum.
Hörður G. Ólafsson:
Ég hef nú ekki heyrt mörg hinna
laganna í keppninni, en spái að
íslenska lagið lendi í 8.-10.
sæti.
Hverju spáir þú um gengi íslenska
lagsins í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva sem fram fer
um næstu helgi?
(Spurt á Sauðárkróki)
Sigurdríf Jónatansdóttir:
Ég veit ekki hvað skal segja,
ætli það verði þó ekki í ein-
hverju af tíu efstu sætunum.
Ólafur Arnbjörnsson:
Ég held að ég hafi varla heyrt
annað lag en það íslenska svo
því hlýtur bara að ganga vel og
ég spái því 8. sæti.
Margrét Bóasdóttir (Papagena) og Óskar Pétursson (Papageno) syngja einn þekktasta dúett óperubókmenntanna.
Myndir: Golli
Óperuvinna söngdeildar Tónlistarskólans á Akureyri:
Lokaþættir úr tveimur vinsælum
óperum fluttir í Samkomuhúsinu
- Anna Bolena eftir Donizetti og Töfraflautan eftir Mozart
í kvöld og annað kvöld hafa
óperuunnendur norðan heiða
ástæðu til að fagna. Nemendur
og kennarar söngdeildar Tón-
listarskólans á Akureyri setja
þá upp lokaþætti úr tveimur
vinsælum óperum í Samkomu-
húsinu á Akureyri og koma
fjölmargir söngvarar fram,
bæði kennarar og misjafnlega
langt komnir nemendur.
Þættirnir verða aðeins ttuttir
þessi tvö kvöld.
Óperusýningin er afrakstur af
óperuvinnu söngdeildar Tónlist-
arskólans í vetur. Að sögn Hólm-
fríðar Benediktsdóttur, söng-
kennara, er stórum áfanga náð
með því að fara með óperusýn-
ingu á svið. Hún sagði að vitan-
lega væri hér ekki sambærileg
uppfærsla og hjá atvinnumönn-
um og líta bæri á sýninguna sem
skólasýningu. Hins vegar setti
söngdeildin mark sitt hátt og
stefndi að því að innan fárra ára
yrðu sýndar óperur árlega á
Akureyri.
Um óperuvinnu (Opera
Workshop) segir Hólmfríður
m.a. í söngskrá sem gefin er út í
tengslum við tónleikana:
„Tónlistarnám er margslungið.
En eitt er það sérstaklega sem
skilur að nám hljóðfæraleikara
og söngvara. Það er textinn.
Orðin, ljóðin, óperutextinn felur
í sér merkingu, jafnvel söguþráð,
sem komast þarf til skila ekki síð-
ur en tónlistin sjálf.
Þegar söngnemandi hefur lok-
ið fyrstu stigum náms síns er tek-
ið að krefjast þess að hann öðlist
meiri tilfinningu fyrir texta og nái
að túlka hana í flutningi sínum.
Mjög margir kennslufræðingar
telja að óperuvinna sé einhver
besta leiðin til að nálgast þetta
markmið. Óperutónlist gefur
söngvaranum mikið frelsi til túlk-
unar án þess að slegið sé af
ströngum kröfum tónlistarinn-
ar.“
Fjölmargir söngvarar
koma fram
Söngdeildin mun flytja lokaþætti
(Finale) úr óperunum Anna Bol-
ena eftir Gaetano Donizetti og
Töfraflautunni eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Stjórnandi
tónlistar er Gordon J. Jack,
píanóleikari Richard Simm, leik-
stjóri og kynnir Sigurður Hall-
marsson og aðstoðarleikstjóri
Hrefna Harðardóttir.
í Anna Bolena syngja Hólm-
fríður Benediktsdóttir (Anna
Bolena), María Vigfúsdóttir
(Smeton), Örn Viðar Birgisson
(Percy), Haraldur Hauksson
(Rochefort) og Jón Árnason
(Hervy) og auk þeirra kemur
fram kór hirðmeyja og varð-
manna.
í Töfraflautunni syngja auk
kórs einsöngvararnir Margrét
Bóasdóttir (Pamina), Óskar Pét-
ursson (Tamino), Michael J.
Clarke (Papageno), Sólveig
Hjálmarsdóttir (Papagena),
Hildur Tryggvadóttir, Dagný
Pétursdóttir, Þuríður Vilhjálms-
dóttir, Sigurður Baldursson, Jón
Helgi Þórarinsson, Kristín
Alfreðsdóttir, Margrét Sigurðar-
dóttir, Guðný Erla Guðmunds-
dóttir, Magnús Friðriksson,
Benedikt Sigurðarson og Elma
Atladóttir.
Við upphaf tónleikanna og í
hléi leikur kvartett skipaður eftir-
töldum nemendum Tónlistar-
skólans á Akureyri: Gunnar Bene-
diktsson, óbó, Þrúður Gunnars-
dóttir, fiðla, Eydís Sigríður Úlf-
arsdóttir, lágfiðla, og Nicole Vala
Cariglia, selló.
'' ''
Fjöldi söngvara kemur fram, bæði nemendur og kennarar söngdeildar Tónlistarskólans á Akureyri