Dagur - 06.05.1992, Blaðsíða 12
wssm
heimsendingarþjónusta
alla daga
Sunnudaga til fimmtudaga kl. 12.00-S2.50
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.50
Hádegistilboð alla daga
VEITINGAHUSIÐ
Akureyri, miðvikudagur 6. maí 1992
Atkvæðagreiðslu um miðlunartillöguna lýkur í kvöld:
Ottast að fáir greiði atkvæði
- segir Sævar Frímannsson, formaður Einingar
Glerárgötu 80 • ® 86690
Sævar Frímannsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar,
segiriað því miður sé ekki hægt
að hrópa húrra fyrir aðsókn að
kynningarfundum Einingar um
miðlunartillögu ríkissáttasemj-
ara og ef eitthvað sé að marka
hana megi gera ráð fyrir
dræmri þátttöku Einingarfé-
laga í atkvæðagreiðslu um
miðlunartillöguna. Kosning
hófst í gær og lýkur í kvöld.
„Mér heyrðist fólk ekki vera
ánægt með miðlunartillöguna, en
ég held að það geri sér almennt
grein fyrir að lengra varð ekki
komist að sinni,“ sagði Sævar.
Miðlunartillagan var kynnt á
fundum á Grenivík, Hrísey, Dal-
vík og Ólafsfirði í síðustu viku og
sl. mánudagskvöld á Akureyri. A
fundinn á Grenivík komu 14
manns, 15 í Hrísey, 40 á Dalvík,
37 í Ólafsfirði og 48 á Akureyri.
„Þetta er mjög léleg fundarsókn
og mér heyrist á formönnum ann-
Áburðardreifing að hefjast:
Bændur nota mun minni áburð
Dreifing áburðar er ekki
almennt hafin en einhverjir
bændur munu þó vera farnir
að bera á einstakar spildur sem
þeir hyggjast nota til beitar.
Útlit er fyrir mun minni áburð-
arnotkun í vor en á undanförn-
um árum vegna mikilla birgða
af heyi frá síðastliðnu sumri.
Flestir bændur munu hafa lagt
inn pantanir á svipuðu magni
áburðar og venjulega. Nú er hins
vegar ljóst að margir þeirra
hyggjast bera mun minna magn
áburðar á tún sín en á undanförn-
um árum. í einstöku tíðarfari á
síðastliðnu sumri aflaðist mun
meira magn af heyi á flestum
bæjum en í venjulegu árferði og
allt að því helmingi meira á sum-
um bæjum. Margir bændur eiga
því enn mikið af góðu heyi í
hlöðum sínum og margir eiga
heybirgðir innpakkaðar í plast,
sem þeir hyggjast nota næsta
vetur. Ólafur Vagnsson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar, staðfesti þetta og
kvaðst hafa heyrt bændur ræða
þessi mál. Ólafur sagði að þótt
bændur ætluðu að spara áburðar-
kaup í vor væri ekki sama á hvern
hátt þeir framkvæmdu þann
sparnað. Varasamt væri að draga
jafnt úr áburðarnotkun á öll tún.
Nauðsynlegt væri að velja ein-
stakar spildur sem ekki yrði borið
á að þessu sinni en fullur áburð-
arskammtur notaður á aðrar.
Sérstaklega ætti þetta við um þá
bændur sem stunda kúabúskap.
Ef áburðarnotkunin verði dregin
saman þýði það rýrara efnainni-
hald heysins og leiði hugsanlega
af sér aukna fóðurbætisgjöf.
Ólafur sagði að nú þegar mikl-
ar heybirgðir væru til staðar væri
kjörið tækifæri fyrir bændur að
sinna endurræktun túna. Taka til
dæmis fyrir gamlar túnspildur
sem mikil órækt væri komin í og
vinna þær á nýjan leik. ÞI
arra félaga hér á svæðinu að
fundarsókn hafi verið svipuð á
kynningarfundunum hjá þeim,“
sagði Sævar.
Atkvæðagreiðsla um miðlunar-
tillöguna hófst í gær og lýkur
henni í kvöld. Hjá Einingu er
kosið á skrifstofum félagsins á
hverjum stað nema á Grenivík, en
þar er kosið í gamla barnaskólan-
um. Á Akureyri stendur kjör-
fundur í dag frá kl. 10 til 22, en á
hinum stöðunum frá kl. 13 til 20.
Atkvæði Einingarfélaga af öllu
Eyjafjarðarsvæðinu verða talin á
skrifstofu Einingar á Akureyri og
gerir Sævar ráð fyrir að talning
hefjist fljótlega upp úr hádegi á
fimmtudag. Niðurstaðan verður
síðan send bréflega til ríkissátta-
semjara.
Sævar sagðist óttast að miðað
við fjölda fundargesta á kynning-
arfundunum myndu fáir Eining-
arfélagar taka afstöðu til miðlun-
artillögunnar í atkvæðagreiðslu.
Hann sagðist vilja hvetja þá til að
greiða atkvæði og benti á að ef
þátttaka yrði minni en 20%, þá
skoðaðist tillagan samþykkt,
jafnvel þótt allir þeir sem tækju
þátt í atkvæðagreiðslunni
greiddu henni mótatkvæði. óþh
„Farðu varlega“, gæti sú gamla verið að segja við „dóttur“ sína - sauðburð-
ur í Eyjafirði er að hefjast. Mynd: Goiii
Gengíð frá kaupum Þormóðs ramma á
meirihluta hlutaflár í Skildi hf.
- óbreyttur rekstur á Skildi
Blaðið greindi frá því í gær að
viðræður stæðu yfír um kaup
Þormóðs ramma hf. á Siglu-
fírði á meirihluta hlutafjár í
Skildi hf. á Sauðárkróki. Nú
hefur verið gengið frá kaup-
samningi milli Þormóðs ramma
og sex hlutafjáreigenda í Skildi
sem samtals eiga um 52%
hlutafjár.
Þeir aðilar sem eru að selja
hlutabréf sín í Skildi hf. eru:
Eimskip hf., Jöklar hf., Trygg-
ingamiðstöðin hf., BYKO hf.,
ístak hf. og Hagkaup hf. Samtals
nemur hlutur þessara sex fyrir-
tækja um 52% af hlutafé
Skjaldar, en í staðinn fá þau
hlutabréf í Þormóði ramma hf.
fyrir að nafnverði um 20 milljónir
króna.
Sauðárkróksbær á um 18%
hlutafjár í Skildi hf. og voru
málefni fyrirtækisins tekin fyrir á
fundi bæjarráðs sl. mánudags-
kvöld. Þar lögðu Knútur Aadne-
gard (D) og Björn Sigurbjörns-
son (A), bæjarfulltrúar, fram
bókun þess efnis, að þeir væntu
þess að þessar breytingar á meiri-
Akureyri-Dalvík:
Sjávarútvegsráðherra Óman í heimsókn
- skoðar fyrirtæki og stofnanir í dag og á morgun
og ræðir við forsvarsmenn þeirra
Sjávarútvegsráðherra Óman
kemur í heimsókn til Akur-
eyrar í dag og mun hann
ásamt fylgdarliði skoða fyrir-
tæki og stofnanir á Akureyri
og Dalvík í dag og á rnorgun
og ræða við forsvarsmenn
þeirra. Ráðherrann er stadd-
ur hér á landi í opinberri
heimsókn í boði Þorsteins
Pálssonar, sjávarútvegs-
ráðherra.
Alls koma 9 gestir frá Óman
til bæjarins og tekur Halldór
Jónsson bæjarstjóri á Akureyri
á móti þeim á Akureyrarflug-
velli kl. 08.40. Um kl. 09.30
hefst skoðunarferð um Akur-
eyri, undir leiðsögn Árna Stein-
ars Jóhannssonar, umhverfis-
stjóra Akureyrarbæjar.
Sjávarútvegsráðherra Óman
mun ásamt fylgdarliði, skoða
Mjólkursamlag KEA, Slipp-
stöðina, Útgerðarfélag Akur-
eyringa hf. og Verkmenntaskól-
ann, þar sem m.a. verður sýn-
ing á framleiðsluvörum til sjáv-
arútvegs. Dagskránni í dag lýk-
ur með kvöldverði í boði bæjar-
stjórnar Akureyrar.
Á morgun fimmtudag verður
móttaka fyrir ráðherra og gesti
á Dalvík kl. 09.00 og mun Helgi
Þorsteinsson, bæjarritari, taka á
móti þeim fyrir hönd bæjar-
stjórnar. Auk þess verða fyrir-
tækin Sæpiast og Söltunarfélag
Dalvíkur skoðuð.
Heimsókn ráðherra og fylgd-
arliðs til Eyjafjarðar lýkur kl.
14.00 á rnorgun en þá halda
gestirnir aftur til Reykjavíkur.
-KK
hlutaeign í Skildi hf. yrðu til efl-
ingar atvinnulífs á Sauðárkróki.
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, lýsti hinsvegar yfir undrun
sinni og hryggð, yfir að gengið
hefði verið til samninga við
útgerðaraðila utan bæjar um
þessi kaup án samráðs við bæjar-
yfirvöld, þrátt fyrir yfirlýsingar
frá sl. hausti um að ekki yrði
gengið gegn vilja bæjarstjórn-
ar í málinu.
Á bæjarráðsfundinum var
einnig tekið fyrir bréf frá Fiskiðj-
unni-Skagfirðingi, varðandi þessi
sölumál og þar óskaði fyrirtækið
eftir því að Sauðárkróksbær
beitti sér fyrir viðræðum við
heimaaðila um kaup á þessum
hlutabréfum. Bæjarráð afgreiddi
bréfið á þann máta, að bærinn
ætti þess ekki kost að koma á
slíkum viðræðum þar sem þegar
hefði verið gengið frá sölunni.
Ekki náðist í Vilhjálm Egils-
son, stjórnarformann Skjaldar
hf., í gær vegna þessarar sölu, en
aðalfundur Skjaldar hf. verður
haldinn nk. sunnudag. Rekstur
fyrirtækisins hefur gengið fremur
illa að undanförnu og uppihald
verið í frystihúsi þess á Sauðár-
króki og að sögn Árna Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Skjaldar hf., var rekstrarhalli síð-
asta árs tæpar fimm milljónir
króna.
Að sögn forráðamanna Þor-
móðs ramma er ekki stefnt að
neinum stórvægilegum breyting-
um á rekstri Skjaldar hf. Þeir
segja ætlunina vera að reka
áfram frystihús á Sauðárkróki og
Drangey muni áfram eiga sína
heimahöfn þar. Hinsvegar verði
að sjálfsögðu leitast við að gera
reksturinn sem hagkvæmastan.
SBG
Akureyri:
Skólastígur 5
keyptur fyrir
sambýli aldraðra
sam-
Bæjarstjórn Akureyrar
þykkti á fundi sínum í gær að
kaupa húseignina Skólastíg 5,
sem er á horni Skólastígs og
Laugargötu, fyrir sambýli aldr-
aðra. Bærinn kaupir húsið af
Unni Björnsdóttur og Rögn-
valdi Þórhallssyni og er kaup-
verðið 12 milljónir króna.
Að sögn Björns Þórleifssonar,
deildarstjóra öldrunardeildar
Akureyrarbæjar, er gert ráð fyrir
að það kosti 8 milljónir króna að
gera nauðsynlegar breytingar á
húsinu, sem felast í að lækka gólf
í kjallara, skipta um og stækka
kjallaraglugga, setja lyftu í húsið
og útbúa herbergi í kjallara.
Húsið verður afhent 1. septem-
ber og fljótlega eftir það hefjast
framkvæmdir.
Gert er ráð fyrir að í húsinu
verði 10 einstaklingar. óþh