Dagur - 11.07.1992, Page 6

Dagur - 11.07.1992, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 11. júlí 1992 Hestar „Mót fjaUahlíðum háum hleypi ég“ Flestir hestamenn eru á einu máli um að hápunktur hesta- mennskunnar séu ferðalög á hestum. Hestaferðalög eru eins mismunandi og þau eru mörg. Allt frá eins dags ferðum upp í nokkurra vikna ferðir, um byggðir eða óbyggðir. Ýmist er einn hestamaður á ferð með hesta sína eða margir saman, allt upp í fjölmennar hópferðir hestamannafélaga. Það er með hestaferðalög eins og önnur ferðalög að, hollt er heilum vagni heim að aka, eða í þessu tilfelli, heiíum hesti að ríða. Til að svo megi verða er mikilvægt að undirbúa ferðina af kostgæfni og að bæði hestar og menn séu í góðri þjálfun. Ef svo er geta allir notið ferðarinnar til fulls, samvistanna við hrossin, útiverunnar, friðsældar íslenskra fjalla og daga og kryddað hana fjörlegum kvöldum og kraftmiklum skeið- sprettum. Það er öllum hollt kveðja kóng og prest og halda og tígulegra fjallasala. Það er að ótalmörgu að hyggja þegar leggja á upp í ferðalag á hestum. Hvert skal haldið? Hve langar eru dagleiðirnar? Hvernig eru áningarstaðirnir? Hvar er hægt að fá náttstað fyrir hross og menn? Á að hafa bíl með í för? Hve margir ætla með og hvað verða hestarnir margir? Hvaða hesta þarf að járna? í hvernig ástandi eru reiðtýgin, hnakktask- an og nestið mitt!!! Hestaferðalag, fyrir alla fjölskylduna eða ævintýri fyrir þaulvana reiðmenn? Þegar í upphafi er rétt að það liggi ljóst fyrir hvort um er að ræða ævintýraferð þaulvanra reiðmanna yfir fljót, urð og grjót eða fjölskylduferð fyrir alla krakka, konur og karla þar sem áhersla er lögð á skemmtilegar, hæfilega auðveldar reiðleiðir og fagra áningarstaði. | Ef um fjölskylduferðir er að ræða þar sem allir sem vettlingi geta valdið njóta þess að ríða með og takast á við viljug hrossin er nauðsynlegt að hver áfangi sé viðráðanlegur, nægur tími til áningar og brekkan hvorki of brött né áin of djúp. Ef hins veg- ar þaulvanir hestamenn og ferða- garpar eru á ferð er það fyrst og fremst geta hrossanna sem ræður því í hvað mikið er ráðist. Fyrstu dagleiðirnar skyldu ávallt vera með styttra móti. Ef einhverra hluta vegna þarf að ríða sérstak- lega langar eða erfiðar dagleiðir er nauðsynlegt að hvíla bæði hross og menn og halda kyrru fyrir næsta dag á eftir. Að hanga á baki Það er ljóst að sú regla gildir í hestamennsku ekki síður en á öðrum vettvangi að æfingin skap- ar meistarann og getur komið í streitusamfélagi nútímans að vit blómlegra íslenskra sveita veg fyrir slys. Slys gera ekki boð á undan sér en vel þjálfaðir hestamenn eiga síður á hættu að detta af baki, ef eitthvað ber útaf, en þeir sem óvanari eru. í því sambandi mætti nefna að þegar verið er að undirbúa hesta- ferðalag, liðka hestana og járna upp er mikilvægt að allir sem í ferðalagið ætli noti tækifærið og leggi á. Knapar sem eru hnakk- vanir sleppa við harðsperrur, rasssæri og aumar axlir og þá verður ferðalagið mun ánægju- legra. Það er sjálfsagt að óvanari knaparnir prófi þá hesta sem þeir hyggjast ríða á í ferðinni, athugi hvernig þeim gengur að stjórna þeim og sitja þá bæði á stökki og milliferð. Það er full seint í rass- inn gripið, þegar reksturinn kem- ur á harða stökki niður grýttan mel á eftir forreiðarmönnunum, að átta sig á því að óvanur knapi í þeirra hópi veldur hesti sínum aðeins á milliferðartölti. Því miður hafa allt of margir hestamenn orðið fyrir slíkri reynslu. Fjöldi hestamanna og að öllum líkindum hlutfallslega mun fleiri hestakonur en menn hafa hætt algjörlega að stunda útreið- ar og hestaferðalög vegna óhappa eða slysa. Að sjálfsögðu eru hestakonur þar ekki í meiri- hluta vegna þess að þær eru konur, eða hvað? Ef til vill er það einmitt svarið á vissan hátt! Mörgum hestakonunum rennur blóðið til skyldunnar og á meðan hestamennirnir þjálfa hrossin og járna fyrir ferðina eru þær að gæta bús og barna, taka til nesti, sokka og plögg. Þegar lagt er upp í hina langþráðu ferð stíga þær í hnakkinn fullar tilhlökkunar, en Eva var ekki lengi í paradís! Það færist fjör í leikinn. Reksturinn dansar niður brekkurnar. For- ystuhestarnir taka hverja heim- reiðina af annarri. Hestakonurn- ar átta sig á því að þær hafa ekki næga þjálfun til að geta stjórnað „Óöruggir reiömenn geta smám saman öölast öryggi, þegar riðiö er utan vega. Rétt eins og spenntir hestar, slaka þeir fljótlega á. Hestar verða leiðir á aö fara hring eftir hring á velli, en viö útreiðar á víöavangi glæöist áhugi þeirra og hlaupagleöi. Þetta er mikilvægt fyrir tamningar. Knapi og hestur aðlagast stööugt nýjum kringumstæðum. Þaö eykur jafnvægi beggja... Þjálfun í fjölbreyttu umhverfi er auk þess tilvalin leiö til aö auka þol hestsins.11 Hesturinn og reiðmennskan: Andrea - Katharina Rostock - Walter Feldmann. - ferðalög á hestum Reiðhjálmur, endurskinsmerki og öryggisístöð, sjö ára hestamaður, Arnar Þór, á leið frá Akureyri í Skagafjörð. Ferðagarpar liðinna ára. reiðskjótanum og fylgt honum eftir. Rétt eins og að taka þátt í rallýkeppni en hafa aðeins ekið bíl á malbiki undir hámarkshraða innanbæjar! Heil og hestfær hetja að kveldi Hins vegar er fátt eins góð og 1 skemmtileg aðferð til að ná því að verða vel hestfær eins og að fara í hestaferðalög að ekki sé nú talað um göngur eða smala- mennskur. Það að vera góður íslenskur hestamaður er ekki síð- ur að geta snúið hesti lipurlega í kringum hlaupandi hestahópinn, fé á fjalli, hleypt fyrir hross og ær, yfir læki, urð og grjót en að ríða í hringi á völtuðum sýningar- völlum. Hver sá sem leggur sál sína í að smala fé af fjalli á hesti eða halda utan um villtan hrossarekstur hlýtur að verða hæfari knapi að dagsverki loknu. Því er vissulega betur af stað farið en heima setið en mætum þjálfuð til leiks og gætum þess að allur búnaður sé eins og best verður á kosið. Þegar hleypt er yfir stokka og Steina er vissara að gjörðin sé ófúin, taumurinn traustur, og höfuðleðrið og ístaðsólarnar bregðist ekki. Því er rétt að yfirfara þessa hluti áður en lagt er upp. Sem betur fer hafa hestamenn náð miklum árangri í notkun öryggishjálma meðal barna og unglinga í hesta- mennsku en íhugum af alvöru hvort það sé virkilega bara höfuðskelin á börnunum okkar sem ekki þolir að mæta fóstur- jörðinni á leifturhraða? Hestlaus á heiðum uppi Sjaldan stólum við eins á heilsu og getu hestanna okkar eins og á ferðalögunum nema ef vera skyldi í úrslitakeppnum hring- vallanna. í bók sinni Hestaheilsu segir Helgi Sigurðsson dýralæknir meðal annars að á ferðalögum fjarri byggð liggi vandi hesta- manna oft í því að greina hversu alvarlegt ástand slasaðs eða veiks hests sé. Hvort um minniháttar erfiðleika er að ræða sem unnt er að ráða fram úr eða hvort nauð- synlegt sé að leita til dýralæknis eins fljótt og auðið er. Algengustu mein hesta á ferða- lögum eru, að sögn Helga, helti, ýmiss konar sár, harðsperrur og vöðvabólga. Hestarnir misstíga sig, togna, meiðast á grjóti, hóf- botninn merst eða járningin hef- ur ekki verið nægilega vönduð. Ætíð ætti að járna minnst viku fyrir brottför og járna hesta með viðkvæma hófa á botna. Þegar hestar þreytast aukast verulega líkurnar á að þeir snúi sig eða misstígi. Því getur góð þjálfun komið í veg fyrir helti. Nýlegar bólgur á fótum hesta er gott að kæla í læk eða vatni í 30- 45 mínútur. Harðsperrur og vöðvabólgur eru ekki óalgengar á ferðalögum vegna ofreynslu, ofþreytu eða ofkælingar, hættast er ungum óhörnuðum hrossum og hrossum sem eru í lítilli þjálfun. Nauðsyn- legt er að hvíla þessa hesta en gæta þess jafnframt að þeir hími ekki heldur hreyfa þá lítillega, breiða yfir þá og í alvarlegum til- vikum að leita til dýralæknis. Ofþreyta eða ofkæling eru einnig algengustu orsakir hrossasóttar á ferðalögum, sveittum og þreytt- um hestum er sérstaklega hætt. Það verður því seint brýnt nægi- lega fyrir hestamönnum að aðgát skal höfð og ávallt haft vakandi auga með líðan hvers og eins hests. Það er of seint að kalla til dýralækni þegar það er of seint! Sjúkrakassinn Að sögn Elvu Ágústsdóttur dýra- læknis ætti hitamælir ávallt að vera með í farangrinum á hesta- ferðalögum. Ef hestur fær hrossa- sótt getur hitamælirinn hjálpað hesteigandanum að greina á milli hvort nægilegt sé að gefa hestin- um hrossasóttarlyf eða hvort hann þurfi einnig fúkkalyf. Ef hestur dregst aftur úr hrossa- rekstrinum getur hitamælir einn- ig hjálpað eigandanum að átta sig á hve alvarlegt ástand hestsins er. Hestar eiga að vera með 38 stiga hita og ekki kommu meira. Að sögn Elvu, verður að skilja hesta sem örmagnast eftir og ef þeir ná sér ekki á strik og fara að éta verður að kalla til dýralækni fyrr en seinna. Ef hesturinn hímir, nærist ekki og dýralæknir er ekki kallaður til fyrr en eftir tvo til fjóra daga getur verið vonlaust að bjarga hestinum. Hann hefur þá örmagnast svo af þreytu að það dregur hann til dauða ef hann fær ekki viðeig- andi meðferð og lyfjagjöf tíman- lega. Það sama gildir um hesta sem ofkælast og fá öndunarfæra- sjúkdóma jafnvel lungnabólgu. Á lengri ferðalögum er rétt að hafa meðferðis nauðsynlegustu lyf og sjúkragögn. í bók Helga Sigurðssonar, Hestaheilsu, er hestamönnum ráðlagt að hafa eftirtalda hluti í farangrinum: Ábreiður, bómull, sáravatn, sárabindi, bómullarbindi, sjúkra- hússpritt, skæri, sýkladrepandi og þurrkandi duft (Nebacetin- duft), sýkladrepandi og þurrk- andi úða (Aureomycidin-spray), sýkladrepandi og græðandi smyrsl (Tropicinsmyrsl), pencill- íntúpur og síðast en ekki síst glábersalt. „Þá riðu hetjur um héruð“ Öll tilheyrum við á einn eða ann- an hátt einhverjum hópi. Einn þeirra er hópur okkar hesta- manna. Allir skapa þessir hópar sér ákveðna ímynd í hugum almenn- ings, fjölmiðla og ráðamanna og oft virðist ekki þurfa nema einn svartan sauð til að lita fjöldann. Því er ákaflega mikilvægt að allir hestamenn minnist þess ætíð að það er á okkar ábyrgð hvernig ímynd hestamanna er. Ekki hestamannsins í næsta húsi eða stjórnar hestamannafélagsins heldur okkar allra þín og mín. Þegar við ferðumst um landið eru nokkrar grundvallar reglur sem við verðum að hafa í heiðri. Reglur eins og að fá leyfi landeig- enda til að fara um land þeirra og til að nýta áningarstaði, að gerast ekki sek um landníðslu, ofbeit eða gróðurskemmdir og minnast þess í hvívetna að umgengni lýsir innri manni.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.