Dagur - 21.10.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Miövikudagur 21. október 1992
Fréttir
TaJið í íþróttahöllimii
segir Ragnar Steinbergsson, formaður yfirkjörstjórnar
Ragnar Steinbergsson, for- ustu viku hefur Póstur og sími
maður yfirkjörstjórnar í lokið við að leggja ljósleiðara að
Norðurlandskjördæmi eystra, íþróttahöllinni og því hafa nú
staðfestir að rætt hafí verið um
að flytja talningu atkvæða í
kosningum frá Oddeyrarskól-
anum og upp í íþróttahöllina.
Eins og fram kom í Degi í síð-
opnast möguleikar á að senda
þaðan ýmsa viðburði beint í
sjónvarp. í síðustu alþingiskosn-
ingum voru sjónvarpsstöðvarnar
með kosningatölur í beinni
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 1,0%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitala bygging-
arkostnaðar hækkað um 0,2%
og samsvar það um 0,6%
Sími11500
í dag bjóðum
við til sölu:
■ Dalsgerði: Mjög fallega 3
herb. íbúð 86 fm á efri hæð í
Dalsgerði. Skipti á 4 herb. rað-
húsi á einni hæð á Brekkunni
hugsanleg.
■ Sólvellir: 3 herb. neðri hæð
ásamt bílskúr samt. rúml. 100
fm. Laus fljótlega.
■ Dalsgerði: Mjög fallegt rað-
hús á tveimur hæðum 5-6 herb.
um 152 fm. Gott áhvílandi húsn.-
lán.
■ Keilusíða: 2 herb. íbúð á 1.
hæð um 64 fm. Áhvílandi lang-
tlmalán um 2.8 millj. Laus strax.
■ Einholt: 5 herb. raðhús á
tveimur hæðum m. bilskúr samt.
um 147 fm. Laust eftir samkomu-
lagi.
■ Hrísalundur: 3 herb. enda-
ibúð á 4. hæð um 76 fm. Áhvíl-
andi húsnján um 2.2 millj. Laus
eftir samkomulagi.
FASTBGKA&IM_
$khsiuS£
NORDURLANDS (I
Opið virka daga kl. 13-17 og á
morgnana eftir samkomulagi.
Sölustjóri:
Pétur Jósefsson
Lögmaður: Jt*
Benedikt Ólafsson hdl.
hækkun á ári.
Vísitalan reyndist vera 189,1
stig um miðjan október og hækkar
um 0,1% frá september. Pessi
vísitala gildir fyrir nóvember nk.
útsendingu frá Oddeyrarskólan-
um, en hún var tæknilega erfið og
flókin. Talning atkvæða í íþrótta-
höllinni og bein útsending þaðan
yrði hins vegar mun einfaldara
mál fyrir sjónvarpsstöðvarnar
ásamt því að þar yrði vart jafn
þröngt um talningarfólk og í
Oddeyrarskólanum.
Ragnar segir að talning
atkvæða í íþróttahöllinni þýði
ekki endilega að kjörfundur
verði fluttur frá Oddeyrarskólan-
um og upp í Höll. Kjörstjórn
Akureyrar ákveði á hverjum
tíma hvar kjörfundur skuli fara
fram. óþh
Fj ármálar áðuneytið:
Hert eftirlit með vöru-
iimflutningi ferðamanna
Fjármálaráðuneytið sendi í
gær tollstjórum fyrirmæli um
hert eftirlit með vöruinnflutn-
ingi ferðamanna við komu til
landsins. Ennfremur hefur
ráðuneytið óskað eftir við
utanríkisráðuneytið að lög-
reglustjóranum á Keflavíkur-
flugvelli, sem jafnframt er toll-
stjóri, verði gefln hliðstæð
fyrirmæli, en mikill meirihluti
ferðamanna til landsins koma
um þann flugvöll.
Fjármálaráðuneytið vekur
athygli á að samkvæmt reglugerð |
um tollfrjálsan innflutning er
ferðamanni heimilt að koma með
vörur inn til landsins fyrir allt að
32.000 krónur, miðað við smá-
söluverð á innkaupsstað, án
greiðslu tolla eða annarra gjalda.
Andvirði einstaks hlutar má þó
ekki nema hærri fjárhæð en
16.000 krónum og andvirði mat-
væla, þar með talið sælgæti, mái
vera allt að 4000 krónur og þau
skulu ekki vera meira en 3 kíló
að þyngd. Börn yngri en 12 ára
njóta að hálfu þeirra réttinda er
að framan greinir. Undanskilið
þessum fjárhæðum er heimild
ferðamanna til að hafa meðferðis
takmarkað magn áfengis og
tóbaks, án greiðslu aðflutnings-
gjalda.
Af öllum öðrum varningi sem
heimilt er að ferðamenn flytji
með sér til landsins ber eftir
atvikum að greiða tolla, vöru-
gjöld, virðisaukaskatt og önnur
lögboðin gjöld. Ferðamenn, sem
hafa méð sér vörur umfram það
sem heimilt er að flytja inn
gjaldfrjálst, skulu við komu til
landsins ótilkvaddir skýra toll-
gæslumanni frá því og framvísa
við hann tollskyldum varningi.
Brot á reglum þessum varðar
sektum eða varðhaldi og vörur
má gera upptækar. ój
Félag verslunar- og skrifstofufólks
Akureyri og nágrenni:
Skorar á afla að virða
hvíldardag afgreiðslufólks
- og versla ekki á sunnudögum
Almennur fundur hjá Félagi
verslunar- og skrifstofufólks
Akureyri og nágrenni sem
haldinn var sl. mánudag, skor-
ar á alla að sýna samstöðu og
virða hvfldardag afgreiðslu-
fólks og versla ekki á sunnu-
Þórshafnarhreppur
Greiðsluáskorun
Þórshafnarhreppur skorar hér með á gjaldendur,
sem ekki hafa staðið skil á fasteignaskatti, lóðaleigu,
holræsagjaldi, vatnsskatti, sorphirðugjaldi, útsvari,
aðstöðugjaldi, kirkjugarðsgjaldi, hundaskatti og lest-
ar-, bryggju- og vörugjöldum, auk verðbóta af útsvari
og aðstöðugjaldi, ásamt áföllnum dráttarvöxtum,
sem gjaldfallin voru 1. okt. 1992 eða fyrr, að greiða
þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá birt-
ingu áskorunar þessarar.
Aðfarar verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma
liðnum.
Þórshöfn, 21. okt. 1992.
Sveitarstjórinn Þórshöfn.
dögum.
Engin rök er hægt að færa fyrir
því að verslun verði meiri þótt
opið sé á sunnudögum, heldur
mun verslun dreifast og kostnað-
ur aukast, sem líklegt er að komi
fram í hækkuðu vöruverði, þar
sem verslunareigendur hafa ekki
hingað til talið sig geta staðið
undir auknum launakostnaði.
Afli togara á Norðurlandi dróst saman á árinu.
Togaraaflimi í byijun
október 23.887 tonn
- á sama tíma í fyrra 26.405 tonn
Samkvæmt aflafréttum Fiski-
félags Islands var togaraafli
landsmanna fyrstu níu mánuði
þessa árs 23.887 tonn, sem er
mun minna en árið áður á
sama tíma. Þá var aflinn
26.405 tonn. Togarar frá
Norðurlandi höfðu aflað 6.034
tonn á móti 7.219 tonnum í
fyrra.
Sé litið til einstakra fiskteg-
unda þá hefur þorskaflinn aukist
lítillega. Nú í byrjun október
voru 7.897 tonn komin á land á
móti 7.396 tonnum í fýrra. Ýsuafl-
inn hefur minnkað verulega eða
úr 720 tonnum í 482. Ufsaaflinn
hefur minnkað mjög mikið þ.e.
úr 7.000 tonnum í 4.740 tonn.
Karfinn er á svipuðu róli hefur þó
minnkað úr 9.800 tonnum í 9,260
tonn. Steinbítsaflinn er svipaður,
en aukning hefur orðið í grálúðu.
321 tonn voru komin á land 1.
október 1991 en ári síðar er afl-
inn 593 tonn. Svipað hefur borist
á land af skarkola, en rækjuveiði
togara hefur dregist saman. í
fyrra voru tonnin 272 en eru nú
aðeins 47. ój
Flskmiblun No rðurlands á Daivík - Rslc rerð á markaf i vikuna 12 I |
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meðalverð Magn Verðmæti
verð verð (kr/kg) (kg)
Grálúöa 84.30 66 73,25 6.205 454.516
Hlýri 45 25 43,05 215 9.255
Karfi 26 20 25,86 228 5.895
Keila 25 23 24,18 39 943
Lúöa 250 250 250,00 16 4.000
Skarkoli 60 60 60,00 561 33.660
Steinbítur 48 30 37,32 265 9.891
Ufsi 35 25 32,07 41 1.315
Undirmál þ. 62 62 62,00 293 18.166
Ýsa 100 50 88,86 184 16.350
Þorskur 92 82 85,62 8.190 701.234
Samtals 329,24 16.237 1.255.225
Dagur blrtlr vlkul verftlnu sem fékk myndun islenskra blaftslns klelft aft eg« tóltu yflr »t 1 vtkunnl i sjávarafurfta fylgjast meft llíi kmlðlun Norftur gert 1 Ijösl þes, ftum skrefum o| erftsáfteklhér ands á Dalvf aft hfutverk {því sjálfsagt i Norfturlandl < og grelnlr þar frá nskmarkafta 1 verft- að gera lesendum
Skagafjörður:
Fundað með lögreglu
- ákeyrslur á hross í Akrahreppi
fundarefni
I um Girðingu vantar á vegarkafla
þannig að hestarnir geta komist
úr hólmanum og á veginn. Á
fundinum kom fram að Helgi á
Úlfsstöðum eigi nú um 20 hross í
hólmanum. Niðurstaða fundarins
varð sú að Helgi bauðst til að
fjarlægja hrossin og að bændur
skrifuðu bréf til Vegagerðar til að
fara fram á að afgirt yrði vestan
vegar frá Víðivöllum að Kjálka-
brú með rafmagnsgirðingu. Einnig
var rætt um möguleika á banni
við lausagöngu búfjár í
hreppnum, en þrír hreppar í
Skagafirði, Skarðshreppur, Hofs-
hreppur og Lýtingsstaðahreppur
hafa bannað lausagöngu. sþ
Ársftindur
Haftiasambands
sveitarfélaga
Ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga, hinn 23. í röð-
inni, verður haldinn að Hótel
Loftleiðum, ráðstefnusalnum
Höfða, í dag og á morgun.
Fundurinn hefst með setning-
arræðu Sturlu Böðvarssonar,
alþingismanns og formanns
Hafnasambandsins, kl. 10.00.
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra ávarpar fundinn sem og
borgarstjórinn í Reykjavík,
Markús Örn Antonsson.
Meðal dagskrárliða verður
þjónustugjaldskrá hafna og
kynning á frumvarpi að nýjum
hafnalögum. Kynntar verða hug-
myndir um breytt umdæmi og
verkefni hafna með nýrri verka-
skiptingu og sameiningu sveitar-
félaga sem og skýrsla Hafnamála-
stofnunar um framkvæmdir og
uppgjör 1992. ój
Eins og fram kom hér í blaðinu
hefur þrívegis verið keyrt á
hross í Blönduhlíðinni nú
nýverið. Er þetta töluvert
áhyggjuefni, enda fer nú í
hönd sá árstími þegar slíkir
atburðir eru hvað algengastir.
Af þessu tilefni boðaði lögregl-
an til fundar með nokkrum
aðilum sl. fímmtudag.
Á fundinn voru boðaðir Árni
Bjarnason hreppstjóri og Broddi
Björnsson oddviti Akrahrepps,
Einar Gíslason umdæmistækni-
fræðingur Vegagerðar ríkisins og
Ingimar Jóhannsson umboðs-
maður Sjóvá-Almennra. Einnig
sátu fulltrúi sýslumanns og bænd-
urnir Helgi Friðriksson á Úlfs-
stöðum og Jóhann Gíslason í Sól-
heimagerði fundinn. Sérstaklega
var rætt um þau hross sem ganga
á beit í Steinstaðahólma í
Héraðsvötnum, en fjöldi þeirra
getur verið á bilinu 50-70 að sögn
bænda. í umræddum slysum
komu sum hrossanna úr hólman-