Dagur - 24.11.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 24.11.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 24. nóvember 1992 Fréttir Öxarflarðarhreppur: Vatnsveituframkvæmdir SkagaQörður: Umferðar- óhapp við Kotárbrú Bfll á norðurleið keyrði á Kotárbrú í Norðurárdal á laugardagskvöldið. Bfllinn er talinn ónýtur, en engin slys urðu á fólki. Bíllinn var glænýr fólksbíll í eigu Bílaleigu Akureyrar og var verið að flytja hann norður. Óhappið varð um kl. 18.30 á laugardagskvöld. Að sögn lögreglu verða oft óhöpp við brúna, en hún er staðsett rétt neðan við lága blindhæð. Bíllinn er talinn ónýtur. sþ Alþingi: Þjóðminja- safli verði á Hólum Tómas Ingi Olrich (D-Ne) og Páimi Jónsson (D-Nv) hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að fela ríkisstjórninni að undirbúa stofnun safns þjóðminja að Hólum í Hjaltadal er verði helgað kirkjusögu íslands. Þessi tillaga var flutt á síð- asta þingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu. I greinargerð með tillögunni segir að hún miði að því að efla „það merka uppbygging- arstarf sem unnið hefur verið að Hólum í kirkju-, skóla- og menningarmálum. Enn frem- ur miðar tillagan að því að styrkja uppbyggingu ferða- þjónustu á landsbyggðinni, virkja í hennar þágu þann mikla menningaráhuga sem fram kemur í starfsemi minja- safna víða um landið og stuðla jafnframt að markvissari upp- byggingu þessarar starfsemi með því að sérhæfa hana í samræmi við hlutverk og vægi sögustaða.“ Eins og áður segir er gert ráð fyrir í tillögunni að ríkis- stjórninni verði falið að undir- búa stofnun þjóðminjasafns að Hólum er verði helgað íslenskri kirkjusögu. Um þetta segir í greinargerð: „Er það gert með tvennt í huga. Ann- ars vegar hefur ríkisstjórn íslands sameiginlega tekið ákvarðanir sem skipt hafa sköpum um endurreisn Hóla og Hóladómkirkju. í öðru lagi ber að taka tillit til þess að það mál, sem hér er flutt, tengist þremur ráðuneytum, kirkju- málaráðuneyti að því er varð- ar Hóladómkirkju, landbún- aðarráðuneyti að því er varðar staðarhald og bændaskóla og menntamálaráðuneyti að því er þjóðminjar varðar.“ óþh @ VEÐRIÐ Veðurstofa (slands gerir ráð fyrir norðaustan og norðan stormi eða roki og jafnvel ofsaveðri allvíða á landinu með snjókomu eða slyddu um allt norðanvert landið. Er líður á daginn snýr vindur sér til norðvestlægrar áttar. Heldur lægir, en snjókoma verður áfram norðvestanlands. Á fundi hreppsnefndar Öxar- fjarðarhrepps á miðvikudag var samþykkt að taka vatn í nýja vatnsveitu í landi Kata- staða enda talinn hagkvæmasti kosturinn. Uppi voru hug- myndir um sjálfrennsli frá Efri-Hólum, en það hefði kost- að sverari lögn og mun lengri leiðslur. Auk þess var sá kost- ur talinn vera a.m.k. helmingi dýrari. Björn Benediktsson í Sand- fellshaga, oddviti Öxarfjarðar- hrepps, segir að það sem hafi rið- ið baggamunin var að ná þarf um 20 lítrum/sek. en það hefði ekki náðst með lögn frá Efri-Hólum nema með því að hafa dælingu líka og þá var hagræðing þess kostar rokin út í veður og vind vegna mikils kostnaðar. Kópasker hefur fengið vatn í landi Hjarðaráss sem er nýbýli frá Snartarstöðum, en það vatn er óheppilegt að því leyti að í því eru svo miklar steinútfellingar og Afmælisfagnaður Slippstöðvar- innar hf. síðastliðinn sunnudag tókst mjög vel og að sögn Knúts Karlssonar, stjórnarformanns, komu milli 400 og 500 gestir í afmælið. Margt var í boði í Slippstöð- „Mér fannst leitarráðstefnan ganga mjög vel, fólkið var afskaplega áhugasamt og vann vel saman. Við erum með í höndunum mjög spennandi verkefni eftir ráðstefnuna og verðmætan hugmyndabanka. Við höfum úr nægum verkefn- um að spila fram til alda- móta,“ sagði Elín Antonsdótt- ir, verkefnisstjóri átaksverk- efnisins Vaka en leitarráð- stefna var haldin á Hrafnagili um helgina og tóku þátt í henni um 50 manns úr sveitarfélög- unum fjórum, Eyjafjarðar- sveit, Svalbarðsstrandar- hreppi, Grýtubakkahreppi og - vatn tekið í er t.d. óhæft til niðursuðu vegna kristallamyndunar og eins skemmir það alla hitakúta. Ástæðu þessa slæma ástands vatnsins telur Björn vera mikla nálægð við sjó eða að svæðið hafi verið hitasvæði fyrr á tímum. Framkvæmdir hefjast í maímán- uði 1993 og er áætlað að ljúka þeim að hausti. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 16 milljónir króna, og hefur verið sótt um lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til framkvæmdanna og þar er heim- ild fyrir hendi til að styrkja þessa framkvæmd, en úrskurðar er ekki að vænta fyrr en reikningar vegna fyrirhugaðra vatnsveitu- framkvæmda liggja fyrir. Björn Benediktsson segir að framlag Jöfnunarsjóðs kunni að ráðast af því hversu mörg sveitarfélög sæki um framlag vegna svipaðara framkvæmda og Öxarfjarðar- hreppur hyggst nú ráðast í. Heilbrigðisyfirvöld telja vatnið frá Hjarðarási hæft til drykkjar en hafa gert athugasemdir við inni þennan sunnudagseftirmið- dag. Búið var að setja upp ýmis leiktæki fyrir börnin, farið var í skoðunarferðir og skemmtisigl- ingar. Allir fengu að bragða á einhverju góðgæti og derhúfur Hálshrcppi. í lok ráðstefnunnar höfðu sjö verkefni tekið á sig skýrari mynd og er framundan vinna við þau áfram næstu mánuðina. Á leitar- ráðstefnunni var unnið í hópum og munu þeir hópar sem stóðu að verkefnunum sjö við lok ráð- stefnunnar halda áfram sinni vinnu og vel má vera að fleiri komi inn í þessa vinnu. Þá segir Elín einnig alla möguleika á að ný verkefni og nýir hópar verði til á næstu mánuðum og því sé engin ástæða fyrir það fólk sem ekki tók þátt í leitarráðstefnunni að liggja á sínum atvinnuhugmynd- um. landi Katastaða verndarsvæði vatnsbólsins, en ekki liggur fyrir hvort það er af völdum búpenings eða nálægðar ræktaðs lands ofan við vatnsból- ið. Fundist hafa saurgerlar úr sýni á Kópaskeri, en aðeins einu sinni, en geta má þess að saur- gerlar fundust einnig í Lundar- skóla í Öxarfirði fyrir allnokkru, en síðan ekki söguna meir þrátt fyrir frekari sýnatökur. Neyslu- vatn í Lundarskóla kemur hins vegar úr uppspettu ofar í sveit- inni og er leitt í sjálfrennsli til nokkurra annarra bæja auk sum- arhúsa í nágrenni Hafrafells- tungu. A hreppsnefndarfundinum var samþykkt að styðja við atvinnu- rekstur í hreppnum með kaupum á hlutafé í rækjuverksmiðjunni Geflu á Kópaskeri og laxeldisfyr- irtækinu Silfurstjörnunni að upp- hæð ein milljón króna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig. „Við höfum óskaplega mikinn áhuga á því að viðhalda því góða atvinnuástandi sem hér ríkir, því merktar Slippstöðinni runnu út. „Það var mikil ánægja hjá börnunum og fjölskyldunum með það sem í boði var og við erum líka mjög ánægðir með hvernig til tókst,“ sagði Knútur. SS Verkefnin sex sem lengst eru komin spanna vítt svið. Um er að ræða verkefni í kornrækt þar sem gerð verður tilraun með korn- rækt víða á svæðinu næstkom- andi sumar, annað verkefni snýst um stofnun þróunarseturs fyrir handverksfólk en þar yrði nám- skeiðahald, kennsla og vinnsla handverks auk útleigu á aðstöðu til handverksfólks. Þriðja verk- efnið snýst um sérvinnslu sjáv- arafurða, fjórða verkefnið um gæða- og markaðsmál, fimmta verkefnið um fyrirtækjanet í ferðaþjónustu og nýjungar á því sviði og sjötta verkefnið er verk- þáttaþjónusta í landbúnaði, þ.e. að vori á atvinnuleysisskrá finnst enginn. Það á að vera meginviðfangsefni sveitarstjórna meðan þetta óáran í þjóðfélaginu gengur yfir. Hér er einnig mikið rætt um það hvað hægt sé að gera til að styðja við bakið á bændum, því það er búið að leika þá harðar en flesta aðra þjóðfélagsþegna á undanförnum árum og meðal þeirra er mikið dulið atvinnuleysi. 40% af þeim framleiðslurétti sem bændur hér höfðu 1979 er horfinn. Bændur hér standa ver en víða annarrs staðar því bú voru fremur smá þegar búmarkið var sett og síðan hafa allar leiðir legið niður á við. Rætt hefur verið um það að koma bændum til aðstoðar með því 'að gefa þeim kost á einhverj- um aukastörfum, og í dag hafa nokkrir atvinnu við laxaslátrun hjá Silfurstjörnunni, en alls eru um 45 á launaskrá í viku hverri og þar af um 10 í hlutastarfi og það munar um minna í 500 manna héraði. Launagreiðslur eru um 30 milljónir króna á ári,“ segir Björn Benediktssoon oddviti. GG Akureyrarbær: Fjárhagsáætlim lögð fram í dag Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í dag verður Iagt fram til fyrri umræðu frumvarp að fjár- hagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár. Gert er ráð fyrir að tekjur bæjarins á næsta ári verði tæpar 1411 milljónir króna, þar af er miðað við að tekjur af aðstöðu- gjaldi verði 251 miiljónir króna. í efnahagsráðstöfunum ríkisstjórn- ar Davíðs Oddssonar, sem kynntar voru í gær, er hins vegar gert ráð fyrir að aðstöðugjaldið verði fellt niður, en ríkið bætir sveitarfélögunum upp tekjutapið á næsta ári að 80% miðað við álagt aðstöðugjald á árinu 1992, en það er nálægt því hlutfalli sem sveitarfélögin ná að jafnaði að innheimta af aðstöðugjaldi. Þannig innheimti Akureyrarbær 77,25% af álögðu aðstöðugjaldi á síðasta ári. Stærstu útgjaldaliðir bæjarins á næsta ári eru áætlaðir félagsmál (263 milljónir), fræðslumál (207 milljónir) og götur og holræsi (82 milljónir). óþh fyrirtæki sem sinnti útleigu á vél- um til bænda, tæki að sér ýmsa vélavinnu fyrir bændur og sinnti einnig afleysingaþjónustu í land- búnaði. Sjöunda verkefnið snýst svo um sköpun gæðaímyndar búvöruframleiðenda innan svæðisins. Þeir sem tækju þátt í þessu yrðu þá að uppfylla ýmis skilyrði, t.d. hvað varðar umhverfisvernd en fengju í stað- inn nokkurs konar gæðastimpil sem framleiðendur hágæðaland- búnaðarafurða. Loks sagðist Elín vilja koma á framfæri þökkum til starfsfólks Hrafnagilsskóla fyrir góða aðstoð við ráðstefnuhaldið. JÓH mmmm Afmælistertan var vegleg og umfram allt bragðgóð! Mynd: Robyn Afinælí Slippstöðvarinnar Leitarráðstefnan á Hrafnagili um helgina: Erum með mörg spennandi verkefiii - segir Elín Antonsdóttir, verkefnisstjóri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.