Dagur - 10.12.1992, Blaðsíða 5
c nn *-
r» i>
A ft
V, ,~r.U.
Fimmtudagur 10. desember 1992 - DAGUR - 5
Húsnæðisnefnd Akureyrar:
Reglur uin leigu á félagslegum Mðum
Húsnæðisnefnd Akureyrar
hefur, í samráði við Samband
húsnæðisnefnda, sett reglur
um leigu á félagslegum íbúð-
um. Birtast reglurnar hér á
eftir, að ósk Húsnæðisskrif-
stofunnar á Akureyri.
Með vísun til 86. gr. laga nr.
86/1988, ásamt síðari breytingum
um Húsnæðisstofnun ríkisins og
reglugerðar nr. 46/1991 setur
húsnæðisnefnd Akureyrar eftir-
farandi reglur um leigu á félags-
legum íbúðum:
1. íbúðareigandi, sem óskar eftir
heimild til að leigja út íbúð
sína, skal sækja um það skrif-
lega til húsnæðisnefndar. í
umsókninni skal greina ástæð-
ur fyrir beiðninni, nafn vænt-
anlegs leigutaka, fyrirhugaðan
leigutíma og önnur atriði er
máli skipta.
2. Beiðni verður einkum tekin til
greina þegar eftirfarandi
ástæður eru fyrir hendi:
a) Nauðsyn tímabundinnar
dvalar íbúðareiganda og
fjölskyldu hans á öðrum
stað svo sem vegna at-
vinnu, náms eða heilsu-
brests.
b) Bú eiganda er undir skipt-
um vegna andláts, hjóna-
skilnaðar eða sambúðar-
slita.
3. íbúðareigandi, sem er í van-
skilum með áhvílandi lán úr
Byggingarsjóði verkamanna
eða Byggingarsjóði ríkisins,
þegar leigusamningi er ætlað
að taka gildi, fær ekki leyfi til
að leigja út íbúð sína. Einnig
skal heimilt að líta til stöðu
áhvílandi lána annarra en sem
að ofan greinir.
4. Leigutíminn má eigi vera
lengri en 18 mánuðir, en þó
getur húsnæðisnefnd, að feng-
inni nýrri umsókn, framlengt
hann um allt að 18 mánuði.
Leigutími getur aldrei orðið
lengri en 36 mánuðir.
5. Leigufjárhæðin, fyrir hvern
mánuð, má nema allt að 0,4%
af framreiknuðu, fyrntu end-
ursöluverði íbúðarinnar mið-
að við upphaf leigutímans.
Auk þess er heimilt að binda
leigufjárhæðina vísitölu bygg-
ingarkostnaðar eftir því sem
stjórnvöld leyfa á hverjum
tíma.
Auk leigunnar greiðir leigu-
taki rafmagn, hita og framlög
í hússjóð til reksturs sameign-
ar.
Leigusali skal greiða fast-
eignagjöld.
6. Leigusamningurinn skal gerð-
ur á eyðublað félagsmálaráðu-
neytisins og vera í samræmi
við lög um húsaleigusamn-
inga. Hann skal gerður í þrí-
Lesendahornið
Frábær þjónusta
á Fiðlaranum
Jóna Berta Jónsdóttir á Akureyri
sat þing Alþýðusambands íslands
í síðustu viku og vildi koma á
framfæri þakklæti til veitinga-
hússins Fiðlarans í Alþýðuhúsinu
við Skipagötu:
„Ég fór þrisvar að borða niður
í Fiðlara meðan á ASÍ-þinginu
stóð og fékk frábæra og fljóta
þjónustu. Ég heyrði það líka á
öðrum þingfulltrúum að almenn
ánægja ríkti með allan viðurgern-
ing. Ég vildi gjarnan koma þessu
á framfæri mitt í öllum úrtölun-
um.“
Okkar „Eden“ er í
Eyjaflarðarsveit
Mæðgurnar Linda og Sif
hringdu. „Vegna greinar í DV
fimmtudaginn 3.12. um að nú
væru Akureyringar að eignast sitt
„Eden“ með tilkomu nýbygging-
ar Blómahússins í Innbænum
viljum við benda á að við höfum
fyrir löngu síðan eignast okkar
„Eden“, sem er Blómaskálinn
Vín í Eyjafjarðarsveit. Við vilj-
um nota þetta tækifæri til að
þakka eiganda og starfsfólki Vín-
ar fyrir frábæra þjónustu og
fallegt umhverfi."
Kvörtun vegna snjómoksturs
Vegfarandi hringdi.
„Ég vil koma á framfæri kvörtun
vegna snjómoksturs á Akureyri.
Ég var að keyra um Höfðahlíð og
þar var svo illa mokað að engu
munaði að bíllinn minn rækist
utan í annan bíl. Mér finnst
ástandið óvenju slæmt í bænum,
einkum hefur verið slælega mok-
að í Þorpinu svo og á Krossanes-
braut. Ég vona að bæjarstarfs-
menn taki þessa ábendingu til
greina og moki þannig að ekki
hljótist af slysahætta."
riti, eitt handa leigusala, ann-
að handa leigutaka og hið
þriðja handa húsnæðisnefnd-
inni. Samningurinn öðlast
ekki gildi fyrr en húsnæðis-
nefnd hefur áritað hann.
Húsnæðisnefnd getur fellt úr
gildi áritaðan leigusamning, ef
aðilar hafa veitt rangar upp-
lýsingar eða gerst brotlegir
með öðrum hætti.
7. Sé brotið gegn ofangreindum
reglum og þeim lagaákvæðum
og reglugerðarákvæðum er
þær byggja á er heimilt að
hækka vexti á áhvílandi lánum
úr Byggingarsjóði verka-
manna til samræmis við lán til
almennra kaupleiguíbúða. Pá
er einnig heimilt að rifta leigu-
samningi og krefjast útburðar
leigutaka sbr. 3. mgr. 86. gr.
laga nr. 86/1988.
8. íbúðareigandi greiðir hús-
næðisnefnd fyrir veitingu
leiguleyfis kr. 2.500,- á verð-
lagi október 1992 og skal
gjaldið framreiknast einu
sinni á ári.
Nýjung
i murverki
á Akureyri
Húsbyggjendur, verktakar
og hönnuðir!
Komið og skoðið nýja aðferð
við múrun húsa með gipsi
og hleðslu milliveggja með gipsplötum
að Dvergagili 32 á Akureyri.
Sjón er sögu ríkari
Múrprýði sf.
Hannes Óskarsson, múrarameistari,
símar 25126 og 985-35979.
Allír
Matreiðslumeistarinn Hermann Huijbens tekur vel á móti ykkur
Allt í jólasteíkína í kjötborðínu hjá okki
Svínahamborgarhryggur • Bayonncskinka • Orb. kambur
Hríngskorinn bógur • Hangilæri • Hangiframpartar
Londonlamb • Rjúpur • Kalkúnar • Nýtt svínakjöt
Jólaöl 2,51343 kr.
Pepsi 21139 kr.
Kók 21149 kr.
Ljóma smjörlíki 99 kr.
Ritzkex 58 kr.
Ódýru kertin frá Iðjulundi
Vikutilboð:
Sænsk pylsa 498 kr. kg
Qrillaðir kjúklingar alla virka daga
Djúpsteíktar franskar
Kynning á jólasteikinni
frá Kjarnafæði fimmtudag,
föstudag og laugardag
NÝTT KREDITKORTATÍMABIL
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opiö virka daga kl. 9-22
Laugardaga og
sunnudaga kl. 10-22
Pantanir teknar
í öllum
matvöru-
verslunum KEA
og í Brauðgerð
KEA
BRAUÐGERÐ