Dagur - 11.11.1993, Blaðsíða 1

Dagur - 11.11.1993, Blaðsíða 1
 76. árg. Akureyri, fímmtudagur 11. nóvember 1993 215. tölublað 4 Venjulegir og jv. demantsskornir B trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Niðurstaða varðandi Stekk ekki fengin Haildór Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að niður- staða varðandi framtíðar- rekstur Stekks, leikskóla Fjórðungssjúkrahússins, liggi ekki fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur scnt bæjaryfirvöldum á Akur- eyri nýtt bréf þar sem lagt er til að Akureyrarbær greiði ákveðna upphæð með hverju barni á leikskólanum, en rekst- urinn verði áfram á hendi Fjórðungssjúkrahússins. Fram- Iög ríkisins fari síðan lækkandi á næstu fimm árum. Halldór segir að bæjaryfir- völd muni taka endanlega af- stöðu til málsins, en eðlilegt sc að fram fari vióræður milli bæjarins og heilbrigðisráðu- neytisins um málið. „Okkur finnst þetta vera af- ar vandmeðfarið mál, en það hlýtur að vcra vilji til þess aó finna á því lausn. Við munum ræða þá hugmynd sem nú er komin upp viö ráöuneytið, en hins vegar er því haldið opnu að aðrar lausnir verði einnig skoðaðar,“ sagði Halldór. óþh Mikill áhugi á ÚA-bréfum Jón Ilallur Pétursson, frain- kvæmdastóri Kaupþings Norðurlands hf., staðfestir að greina megi mikinn áhuga bæði einstakiinga og fjárfesta á kaupum á hlutabréfum í Út- gerðarfélagi Akureyringa hf. Útgerðarfélag Akureyringa hf. auglýsti í síðustu viku hluta- fjárútboð, 50 milljónir króna aó nafnverði, á genginu 3,25. Sölutími til forkaupsréttarhafa er til 19. nóvember nk. og vitað er að margir ætla að nýta sér forkaupsréttinn. Á þessari stundu cr því óljóst hversu mik- iö af bréfum verður í boði fyrir almenning og fjárfesta. Stóra spumingin er afstaða Akureyrarbæjar, sem á 58,35% í félaginu. Bærinn á rétt á að kaupa bréf að nafnvirði um 29 milljónir króna, kaupverð um 94 milljónir króna. Samkvæmt heimildum Dags bendir flest til þess að bærinn nýti ekki for- kaupsrétt sinn, þó aó því leyti að hann ráðstafi forkaupsrétti sínum til þriðja aðila. Það þýó- ir m.ö.o. aó bærinn eignist ekki þessi bréf og þar meó minnki hlutur Akureyrarbæjar í ÚA niður í um 53%. Eins og áóur scgir hafa stór- ir fjárfcstar áhuga á kaupum á hlutabréfum í ÚA. Þannig hef- ur Dagur heimildir fyrir því að Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem er fjórói stærsti hluthafinn í ÚA og á 2,36% í félaginu, hafi áhuga á að kaupa bréf um- fram forkaupsréttinn. Þá er Líf- eyrissjóður Austurlands meðal stórra nýrra fjárfesta, sem hafa lýst áhuga á að kaupa bréf í þessu hiutafjárútboði. óþh Eins og sjá má á myndinni hcfur árcksturinn vcrið mjög harkalcgur. Bifrciðinni scm nær cr á myndinni var ckið eftir Glcrárgötu, cn svo virðist scm bifreið- inni fjær á myndinni hafi verið ckið úr Grænugötu inn á Glcrárgötu í vcg fyrir hina bifrciðina. Mynd: Robyn. Harkalegur árekstur á Akureyri í gær Harkaiegur árekstur varð laust fyrir klukkan fjögur í gær á mótum Glerárgötu og Grænu- götu á Akureyri. Tveir fólksbíl- ar rákust saman og voru báðir ökumenn auk þriggja farþega í öðrum bílnum fluttir á slysa- deild. Áreksturinn virðist hafa verið með þeim hætti að öðrum bílnum, sem maður á níræðisaldri ók, hafi veriö ekið úr Grænugötu í veg fyr- ir fólksbí! sem var ekið eftir Glcr- árgötu. Meiðsl fólksins voru ekki að fullu könnuó þegar Dagur leitaði upplýsinga á slysadeild FSA um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Vakthafandi læknir sagði þó að um væri að ræða beinbrot, hrufl og mar og þá hafði einn heilahrist- ingseinkenni, sem ekki voru að fullu rannsökuð. óþh Forystumenn sjómannasamtakanna á fundi með sjómönnum á Akureyri í gær: Harkalega vegið að réttarstöðu sjómanna Á fundi sem forsvarsmenn Far- manna- og fiskiniannasam- bandsins, Sjómannasambands íslands og Vélstjórafélags ís- lands boðuðu til með sjómönn- um í Sjómannafélagi Eyjafjarð- ar og Sjómannafélagi Olafs- fjarðar í Alþýðuhúsinu á Akur- eyri í gær, kom m.a. fram að kvótaverslun yrði að vera á ábyrgð útgerðarmanna og ekki Samkvæmt öruggum heimildum Dags standa yfir viðræður við Inga Björnsson, framkvæmda- stjóra Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, um að hann taki að sér framkvæmdastjórn útgerð- arfyrirtækisins Mecklenburger Hochseefischerei í Þýskalandi, en eins og kunnugt er er Útgerð- arfélag Akureyringa hf. þar meirihlutaeigandi. Takist samningar viö Inga Björnsson er við það miðaó aó hann flytji til Þýskalands og stýri félaginu að langmestu leyti þar. kæmi til greina að hún kæmi inn á borð sjómanna. Það er því skoðun þessara samtaka að út- vegsbændur hafi í raun svikið sjómenn þegar farið var að láta þá taka þátt í kvótakaupum. Á nýloknu Fiskiþingi var sam- þykkt svofelld greinargerð: „Ljóst er að mikil óánægja er meðal sjó- manna með kaup og sölu á afla- heimildum og þá sérstaklega Bjartmar Pétursson hefur verið ráóinn framleiðslustjóri Mecklen- burger Hochseefischerei og hefur hann þegar hafið störf ytra. Bjart- mar, sem á ættir aó rekja til Bakkafjarðar, þckkir vel til Meck- lenburger, því hann tók þátt í út- tekt á fyrirtækinu þegar ÚA keypti 60% hlut í því. Þá hefur hann starfaó fyrir Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og er því vel inni í markaðsmálunum. Rekstur Mekclenburger Hoch- seefischerei hefur veriö erfióur á síðustu mánuóum og er nokkuó ljóst aó félagið verður rekið með hvernig sjómenn eru látnir taka þátt í slíkum kaupum. Þá er einnig talið óeðlilegt að einstaka útgerðir geti hagnast verulega á sölu afla- heimilda því í núverandi fram- kvæmd ríki nánast frumskógarlög- málið eitt í þessum efnum.“ Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Islands, segir það í andstöóu við kjarasamninga að draga frá ákveðna upphæð af afla- tapi á þessu ári. Áætlanir um veió- ar hafa ekki alveg gengið eftir og framleióslan þykir ekki hafa tekið nægilegt mið af breytingum á af- urðamörkuðum. Til þess að snúa vörn í sókn ákvað stjórn Mecklenburger að styrkja daglega yfirstjórn fyrirtæk- isins. Eins og áður segir hel'ur Bjart- mar Pétursson nú þegar verið ráð- inn að fyrirtækinu og vilji er til þess af hálfu stjórnar Mecklenbur- ger að Ingi Björnsson taki að sér framkvæmdastjórnina. óþh verðmæti þegar selt er á fiskmark: aói vcgna kaupa á veiðirétti. í kjarasamningum sjómanna segir m.a.: „Þegar afli fiskiskips er seld- ur óunninn hér á landi er skipta- verömæti aflans til hlutaskipta 75% af því heildarverðmæti sem útgerðin fær fyrir hann á fisk- markaði". Og Helgi segir að líkja megi þessari kvótasölu við það að bíleigandi færi með bifreið sína á bílasölu og fengi aðeins 65% af andvirði hennar greidd út. Við það myndu engar vinnandi stéttir sætta sig. Guðjón A. Kristjánsson, for- maður FFSI, sagói að reynt yrði að hafa áhrif á þingmenn og sjón- armið sjómanna kynnt. Ef það tækist ekki yrði verkfallsvopninu beitt, því ekki sé hægt að una við óbreytt ástand. Oskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins, sagði að nú væri vegió allharkalega að rétt- arstöðu sjómanna og því alls ekki ólíklegt að böðað yrói til verkfalls í lok þessa mánaðar. Sett hafi ver- ið fram kröfur vegna komandi kjarasamninga um kvótakaup, endurskoðun á olíuverósmyndun, samninga um einstakar veiðigrein- ar og komið verði í veg fyrir ein- hliða túlkun útgerðarmanna á kjarasamningi. GG Útgerðarfyrirtækið Mecklenburger Hochseefischerei: Ingi Björasson framkvæmdastjóri?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.