Dagur - 17.03.1994, Blaðsíða 1

Dagur - 17.03.1994, Blaðsíða 1
77. árg. Akureyri, iimmtudagur 17. mars 1994 53. tölublað Æ Venjulegir og Jv demantsskornir S trúlofunarhringar V Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri, upplýsir fundarmcnn um afkomu Kaupféiags Eyfirðinga á síðasta ári á aðalfundi Akureyrardeildar féiagsins sl. þriðjudagskvöld. Myndir: I>I Kaupfélag Eyfirðinga: Heildarvelta síðasta árs 7,7 milljarðar - tap af reglulegri starfsemi um 50 milljónir Heildarvelta Kaupfélags Eyfirð- inga var tæpir 7,7 milljarðar króna á árinu 1993. Er það um 6% lækkun frá árinu áður. Tap af reglulegri starfsemi Kaupfé- Iagsins varð um 50 milljónir króna eftir að tekið hefur verið tillit til skatta, óreglulegra tekna og gjalda. Hagnaður félagsins fyrir fjármagnskostnað var rúinlega 270 milljónir á síðasta ári en var um 360 milljónir á ár- inu 1992. Fjármagnskostnaöur að frádregnum Qármagnstekj- um var um 339 milljónir eða um sex milljónum króna hærri en á árinu 1992. Þessar tölur ná að- eins til starfsemi Kaupfélags Ey- firðinga en uppgjöri fyrir dótt- urfyrirtæki þess er ekki lokið. Þó er ljóst að um verulegt tap er að ræða á rekstri þeirra í heild á liðnu ári. Þessar upplýsingar um rekstur Kaupfélags Eyfirð- inga komu fram í yfirlitsræðu Magnúsar Gauta Gautasonar, kaupfélagsstjóra, á aðalfundi Akureyrardeildar félagsins á þriðjudagskvöld. Liólega hclmingur af starfsemi kaupfélagsins cða 51% af veltu þess er í verslun. Verslunin jókst um liðlega 6% á árinu 1993 og munaói þar mest um aukningu í matvöruverslun um 9,3%. Þá varð einnig veruleg aukning í verslun með byggingavörur, sem sýnir að markaöshlutdeild Byggingavöru- deildar félagsins hefur aukist verulega því samdráttur helúr ver- ió í byggingaiðnaði. Vclta Bygg- ingavörudeildar KEA jókst um allt að 25% á síðasta ári. Þá varð cinnig nokkur aukning í olíuversl- un félagsins eða 5,4%. Rckstur vöruhúss þcss var á hinn bóginn erfióur á árinu. Verulegar breyt- ingar voru gerðar á honum á fyrri hluta þcss og vonir standa til að um léttari rckstur verði aö ræða á þessu ári. Útkoma útibúa Kaupfélags Ey- llrðinga utan Akurcyrar varð nokkuð misjöfn. Sala jókst um 15,5% í útibúinu í Grímsey og einnig varð lítilsháttar söluaukn- ing í Olafsílrði. I öðrurn útibúum utan Akureyrar er um samdrátt aó ræða og verulegan samdrátt í úti- búunum-í Hrísey, á Grcnivík og á Siglufirði. Magnús Gauti Gauta- son sagði rekstur útibúsins á Siglufirði standa verst og væri í athugun að endurskipuleggja starfsemi þess með þær staðreynd- ir í huga. Magnús Gauti sagði ljóst að verulegan hluta af samdrætti í rekstri útibúanna megi rckja til aukinnar verslunar á Akureyri. Rekstur Kjötiðnaöarstöðvarinn- ar breyttist nokkuð til hins verra á árinu. Að sögn Magnúsar Gauta skilaði hann litlu upp í sameigin- legan kostnað og stafi það að mestu leyti af því ástandi sem nú ríki á kjötmarkaðnum, þar sem blóðugur slagur eigi sér nú stað. Starfsemi vcgna landbúnaðar vegur um 23% í rckstri Kaupfé- lags Eyfirðinga og var heildar- vclta landbúnaðarins 1,3 millj- arðar króna. Heildarvelta sjávarút- vegs varó 1,1 milljarður en hann spannar um 15% af rekstri félags- ins. Samdráttur í sjávarútvegi varð aðeins rúmlega 0,3% cn aðra sögu er að segja af starfsemi vcgna landbúnaðar - þar var um allt að 26% samdrátt aó ræða, er stafar fyrst og frcmst af þeim niður- skurði er átt hefur sér stað í land- búnaði. Rekstur Hótcl KEA varð einnig neikvæður á árinu. Veltan dróst saman um 11% á milli ára. Magnús Gauti sagði vanda hótels- ins fyrst og fremst stafa af því að nú væri offramboð á hótelrými í níu mánuði á ári; ferðalög innan- lands hafi dregist saman, bæði á vegum opinberra aðila og fyrir- tækja er leitt hafi til verðstríös á hótelmarkaðnum. Kvaðst hann ekki sjá aðra lausn í hótelmálum Islendinga en að minnka framboð á hótelrými á næstunni. Magnús Gauti Gautason, kaup- félagsstjóri, kvaó það vcruleg vonbrigði að ckki væri unnt að sýna betri rckstrarafkomu aó þessu sinni cn erfiðleika í rckstri Kaupfélags Eyllrðinga mætti fyrst og fremst rekja til mikils fjár- magnskostnaðar. Vcxtir voru mjög háir - allt fram í nóvember að þeir lækkuöu vcrulcga. Haldist núverandi vaxtastig eða lækki vextir enn frekar komi þaó rckstri kauplclagsins verulega til góða á næstunni. Magnús Gauti sagði að vaxtalækkunin væri þó cngin end- anleg lausn. Heldur verði aó minnka skuldir. A síðustu tveimur árum hafi skuldir lækkaó nokkuð og áfram verði aö stefna á þeirri braut. ÞI Bylur á Norðurlandi: Lögreglan aðstoðaði skólabörn áDalvík - nokkrir árekstrar á Akureyri Snjókoma og ófærð settu svip á mannlífið á Norðurlandi í gær og samgöngur röskuðust í lofti sem á jörðu niðri. A Sigluflrði var stórhríð, kennsla felld niður í skólanum og fáir á ferli vegna ófærðar innanbæjar. Lögreglan á Dalvík þurl'ti að aðstoða skólabörn vió að komast til síns heima vegna þess hve kóf- ió var.mikið. Síðdegis minnkaði umferð mjög því götur voru farnar að teppast. Að öðru leyti gekk allt vel fyrir sig að sögn lögreglu. A Akureyri var þælmgsfærð í sumum hverfum og lögreglunni var kunnugt um eina þrjá árekstra sem rekja mátti til ófærðar og lé- legs skyggnis og ekki síður þverr- andi grips snjódekkja. Dekkin hafa safnað á sig tjöru og grípa illa þegar blautur snjórinn þjapp- ast. Vegagerðarmenn unnu við mokstui og var fært milli Akur- eyrar og Reykjavíkur þrátt fyrir snjókomuna en vegir í Eyjafirói tepptust a.m.k. um tíma. SS Ólafsíjarðarmúli: Snjóflóð og ófærð Á þriðjudaginn féll snjóflóð við Sauðanes í Ólafsfjarðarnuila, en eftir að göngin komu er þetta eini staðurinn þar sem spýjur falla og reyndar er það nokkuð algengt. Að sögn lögreglunnar í Ólafsfirði var spýjan um 10-15 metrar á breidd og Í'A m á hæð. Vörubíll frá Vegagerðinni meó tönn að vopni hal'ði sig ekki í gegnum snjóflóðið og varö aö kalla til hjólaskóflu. Vegurinn var því opnaður á þriðjudag en lokað- ist aftur í norðan kófinu í gær. Nokkur snjóflóðahætta var talin fyrir hendi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Ólafsfirði var leið- indaveður í gær og rcynt var að halda helstu lciðum innanbæjar opnum en ckkert átt við veginn til Dalvíkur vegna stöóugrar ofan- komu og skafrennings. SS Skíðamót fslands á Siglufirði um páskana: Undirbúningur hefur gengið vel Skíðalandsmótið verður í ár haldið á Siglufirði. Undirbún- ingur fyrir mótið hófst í febrú- armánuði og hefur gengið mjög vel að sögn Rögnvaldar Þórð- arsonar, mótsstjóra, en skrán- ingar í mótið hafa ekki borist enn þannig að ekki er vitað um endanlegan fjölda þátttakenda. Skíðalandsmótið er að þessu sinni haldið um páskana, sem nú eru í byrjun aprílmánaðar, en mótshaldara er að mestu í sjálfsvald sett hvenær mótið er haldið. A stærri stöðum, eins og á Ak- ureyri eða í Bláfjöllum, hefur mótið veriö haldið viku fyrir páska til þess að draga ckki úr aö- sókn aó skíðasvæóunum um há- tíðisdagana en stórt mótshald tor- veldar eölilega aðgang að skíða- lyftum. Skíðamót Islands er ekki bara keppni heldur hefur ætíð myndast mikil og góð stemmning kringum mótið þegar það hefur verið hald- ió á Siglufiröi. Ætlunin er að skapa svipaða stemmningu og verið hefur og verður boðið upp á margvíslega afþreyingu fyrir þá sem koma til bæjarins, m.a. dans- leiki, skemmtanir af ýmsu tagi, málverkasýningu og menningar- tónleika. Rögnvaldur Þórðarson segir aó auðvitað séu góðar skíða- brekkur Siglfirðinga í Siglufjarð- arskarði helsta alþreyingin, að- dráttarallið og skemmtunin sem feróafólk hefur notfært sér í stöð- ugt vaxandi mæli. Þannig vcrði skíðaáhugamenn sem og annað feróafólk ekki svikið af því að fylgjast með Skíðamóti Islands á Siglufirði um páskana. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.