Dagur - 29.06.1996, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 29. júní 1996 - DAGUR - 3
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Gömul hús rifín
Á fundi bæjarráðs á fimmtudag
var samþyllt að fela tæknideild
bæjarins að rífa geymsluskúr við
Kollugerði 1, áður fjós og hlaða,
þegar umhverfisdeild hefur rýmt
húsið af geymsluvamingi. Enn-
fremur felur bæjarráð tæknideild
að rífa gamalt fjárhús í Ytra-
Krossanesi, sem stendur stakt á
túninu norðvestur af íbúðarhús-
inu.
Dómur á Lífeyrissjóð
STAK
Lagt var fram bréf frá stjóm Líf-
eyrissjós Starfsmajinafélags Ak-
ureyrarbæjar í tilefni af niður-
stöðu héraðsdóms í máli Alfreðs
Schiöth gegn sjóðnum. Sjóður-
inn tapaði málinu sem kunnugt
er m.a. á samkomulagi frá stofn-
un Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarð-
ar. Sjóðsstjómin beinír þeim „til-
mælum til bæjarstjómar Akur-
eyrar að hún endurskoði nú þeg-
ar þennan samning sem gerður
var við Heiibrigðiseftirlit Eyja-
fjarðar á sínum tíma, svo komist
verði hjá annari slíkri uppá-
komu.“ Að gefnu tilefni felur
bæjarráð bæjarstjóra að beita sér
fyrir lteildarendurskoðun á sam-
komulagi um Heilbrigðiseftirlit
Eyjafjarðar.
Beiðni um bæjarábyrgð
Bæjarráð frestaði afgreiðslu á er-
indi frá Kirkjugörðum Akureyrar
þar sem óskað er eftir bæjar-
ábyrgð á 15 milljóna króna láni
vegna lokafrágangs líkhúss og
kapellu.
Leiklist verði studd
Lagt var frarn bréf frá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga þar sem
komið er á framfæri erindi frá
Bandalagi íslenskra leikara. Þar
eru sveitarstjómarmenn hvattir
lil að vera hliðhollir byggðarlagi
sínu með því að styðja leiklistar-
starfsemi í sveitarfélaginu.
Húsnæðismál
Tónlistarskólans
Fjallað var um erindi frá Tónlist-
arskóla Akureyrar vegna hús-
næðismála. Bæjarráð heimilaði
skólanum afnot af Hafnarstræti
88b næsta skólaár en telur að
öðru leyti ekki tímabært að taka
afstöðu til erindisins að svo
stöddu.
Samræmd stefna í
kjaramálum
Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra
að leita samstarfs við önnur
sveitarfélög um samræmda
stefnu í kjaramálum starfs-
manna, nefnda og stofnana sem
sveitarfélögin eiga sameiginlega
aðild að. Vegna frantlagðrar fjár-
liagsáætlunar Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar getur bæjarráð ekki
samþykkt forsendur launaliðs
áætlunarinnar.
Guðný Anna ehf.
Leikskóli Guðnýar Önnu ehf.
hel'ur sótt um rekstrar- og stofn-
styrk fyrir leikskólann Arsól að
Móasíðu i. Bæjarráð vísaði er-
indinu til untsagnar leikskóla-
nefndar.
Atvinnuleysi skólafólks
Könnun starfsmannadeildar á at-
vinnuhorfum skólafólks 17 ára
og eldri leiddi í ljós að 72 náms-
menn voru án suntarvinnu, 52
karlmenn og 29 konur. Þar af
voru 7 á einhverjum atvinnuleys-
isbótum. Bæjarráð samþykkti að
gefa þeim sent ekki hafa fengið
atvinnu kost á vinnu í 6 vikur.
Stjórn ÚA ætlar að nýta heimild til hlutafjáraukningar:
Gæti skilað 700 milljonum
- „dularfullur hugsunarháttur,“ segir Jón Þóröarson, stjórnarformaður ÚA,
um gagnrýni á fjárfestingar ÚA í öðrum byggðarlögum
Að sögn Jóns Þórðarsonar,
stjórnarformanns ÚA, er inn-
an tíðar stefnt á að bjóða út
aukið hlutafé í fyrirtækinu, en
stjórnin hcfur haft til þess
heimild í urn tvö ár. Ekki er að
sögn Jóns búið að ákveða hvert
gengið verður og ekki heldur
hver upphæðin verður. Hins
vegar hefur heyrst talan 150
milljónir að nafnvirði og þetta
gæti samkvæmt því skilað um
700 milljónum miðað við gengi
bréfanna. í næstu viku er búist
við að línur skýrist frekar.
Eins og fram hefur komið eru
uppi áform hjá ÚA um að gera
hugsanlega umtalsverðar breyt-
ingar á landvinnslunni til að gera
hana samkeppnishæfari og af
þeirri ástæðu er m.a. verið að
undirbúna umrætt hlutafjárútboð,
að sögn Jóns Þórðarsonar, stjóm-
arformanns. Þá er í bígerð að
kaupa stóran hlut í Tanga á
Vopnafirði, sem þó er ekki frá-
gengið. „Þau mál eru í biðstöðu.
Eins og fram hefur komið höfum
við rætt við Vopnfirðinga og eig-
um von á að við komum til með
að eiga gott samstarf við þá,'‘
sagði Jón. Með hlut í Tanga
myndi ÚA eiga aðild að fyrirtæki
sem er í veiðum og vinnslu á
uppsjávarfiskum, sem það á
reyndar nú þegar með aðild að
loðnufrystingu á Seyðisfirði.
Ymsir hafa sett spumingar-
merki við og gagnrýnt fjárí'est-
ingar ÚA í öðrum byggðarlögum
og öðmm löndum, en fyrirtækið
á t.d. stóran hlut í Skagstrendingi
á Skagaströnd og meirihluta í
MHF í Þýskalandi, Laugafiski í
Reykjadal og er með rekstur á
Grenivík. „Eg veit ekki hvað
mönnum finnst skynsamlegt að
gera ef þeir ætla eingöngu að
vera hér. Ekki förum við í loðnu
og sfld, svo mikið er vfst. Við er-
um líka að leita út fyrir bæinn
eftir hráefni og það finnst öllurn
allt í lagi. Mér finnst þetta dular-
fullur hugsunarháttur, svo ekki
sé meira sagt,“ sagði Jón.
- Eru ekki rökin þau að nota
eigi peningana í heimabyggð?
„Eg geri ráð fyrir að afrakst-
urinn skili sér, það hafa alla vega
aldrei fleiri verið í vinnu hjá fyr-
irtækinu en núna,“ sagði Jón.
Hverjir nýta
forkaupsréttinn?
Ljóst er að Akureyrarbær mun
ekki nýta sér forkaupsrétt að sín-
um hluta í hlutafjárútboðinu, sem
er urn 80 milljónir að nafnvirði
ef heildar talan verður 150 millj-
ónir. Eftir hlutafjárútboðið mun
Akureyrarbær því ekki lengur
eiga meirihluta í fyrirtækinu.
Auk þess er einnig talið víst að
bærinn muni innan ekki langs
tíma selja hluta af þeim bréfum
sem hann á nú.
Annar stærsti hluthafinn í ÚA
er KEA en að sögn Magnúsar
Gauta Gautasonar, kaupfélags-
stjóra, hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort forkaupsrétt-
arheimild verður nýtt. Einnig
hefur heyrst að KEA hafi áhuga
á að selja sinn hlut, til þess m.a.
að fjármagna fjárfestingar þær í
sjávarútvegi sem KEA hefur ráð-
ist í að undanförnu á nokkrum
stöðum á landinu. Magnús Gauti
sagði ekkert slíkt liggja fyrir á
þessari stundu. „Við munum
skoða þetta allt þegar þar að
kemur,“ sagði hann. HA
Arkitektasamkeppni um framkvæmdir á Sólborgarsvæöinu:
Tillaga Glámu og Kíms valin
- tillagan fellur vel að þróunaráformum Háskólans
Starfshópur skipaður af
menntamálaráðherra vegna
framkvæmda við Háskólann á
Akureyri hefur valið tillögu
arkitektastofanna Glámu og
Kíms bestu tillöguna um hönn-
un og skipulag Háskólans á Sól-
borgarsvæðinu.
Engin tillaga af þeim ellefu er
bárust í arkitektasamkeppni um
hönnun og skipulag háskólasvæð-
isins var valin í fyrsta sætið þar
sem talið var að engin þeirra hefði
uppfyllt fullkomlega þær forsend-
ur er dómnefnd ákvað og birtist í
samkeppnislýsingu. Tvær tillögur
voru metnar jafn góðar til útfærslu
en að lokum varð tillaga Glámu
og Kíms fyrir valinu þar sem talið
var að hún byggi yfir virðuleika
og festu ásamt því að hún biði upp
á æskilega áfangaskiptingu sem
félli mjög vel að þróunaráformum
Háskólans.
Aðspurður sagði Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, að lítið lægi fyrir um
byggingarframkvæmdir. Því fjár-
magni sem skólinn hefði til um-
ráða í ár yrði varið í lagfæringar á
eldri húsum á Sólborg og það yrði
að koma í ljós hvemig yrði með
framhaldið á næsta ári. Skólinn
leggði hins vegar mikla áherslu á
það að gerð yrði langtímaáætlun
um byggingarframkvæmdir og
fjármögnun þeirra. Því væri ekki
útséð hvenær framkvæmdir við
nýbyggingar gætu hafist.
Nánar verður fjallað um bygg-
ingarframkvæmdir við Háskólann
í Degi í næstu viku. hbg
Þyria flutti slasaðan hesta-
mann til Akureyrar
Klukkan 17.40 á fimmtudag var
lögreglunni á Dalvík tilkynnt
um slys innst í Skallárdal, en
hann gengur vestur úr Svarfað-
ardal innanverðum ofan við bæ-
inn Atlastaði. Hafði 76 ára mað-
ur frá Dalvík slasast eftir að
hestur hatði kastað honum af
baki í stórgrýtisurð. Hann var í
hópi hestamanna sem voru að
koma úr Skagafirði.
Björgunarsveit var þegar ræst
út og eftir samráð við lækni og
björgunarsveitarmenn var ákveðið
að kalla út þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, en samkvæmt lýsingu var
© HELGARVEÐRIÐ
Veðurstofan spáir góðu veðri
á Norðurlandi í dag, suðaust-
lægri átt og allt að 18 stiga
hita. Einnig ætti að vera þurrt
og nokkuð bjart. Sem sagt,
gott kosningaveður. Á morg-
un, sunnudag, snýst vindur
meira til austlægrar áttar og
gæti þá rignt víða um land.
Afram verður hlýjast fyrir
norðan. Á mánudag verður
hæg norðaustlæg átt en
þurrt. Þá kólnar fyrir norðan.
um að ræða nokkuð alvarleg bak-
og höfuðmeiðsl auk lærbrots og
ekki fært á staðinn nema gangandi
eða ríðandi. Var þyrlan kölluð út
kl. 17.50, lögregla og björgunar-
sveit fóru frameftir og lækni var
komið á staðinn á hesti. Kl. 20.04
var hinn slasaði kominn um borð í
TF-Sif, sem flutti hann á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, þar
sem hann gekkst undir aðgerð.
Var slæmt brot á vinstri lærlegg
og sauma þurfti 15 spor í höfuð
Róbert Julian Duranona, KA-
maðurinn snjalli, mun um helg-
ina leika sínu fyrstu landsleiki
fyrir Islands hönd. íslendingar
mæta þá Svisslendingum tvíveg-
is ytra. Duranona er eini nýlið-
inn í landsliðhópnum en félagi
hans í KA, Björgvin Björgvins-
son, var einnig valinn.
Landsliðshópur Þorbjamar
Jenssonar er annars þannig skip-
aður: Guðmundur Hrafnkelsson
og Bjami Frostason standa í mark-
inu. Aðrir leikmenn eru Gústaf
Bjarnason, Geir Sveinsson, Júlíus
mannsins auk minni meiðsla. Þess
má geta að hann átti einmitt 76 ára
afmæli á fimmtudaginn.
Að sögn lögreglu var aðdáun-
arvert hversu björgunaraðgerðir
gengu hratt og vel fyrir sig og
hrósaði hún mjög björgunarsveit-
armönnum og einnig bændum
sem lögðu m.a. til hesta auk ým-
issar annarrar aðstoðar, auk þess
sem áhöfnin á TF-Sif sýndi enn
einu sinni hæfni sína. HA
Jónasson, Sigurður Bjarnason,
Dagur Sigurðsson, Róbert Sig-
hvatsson, Jason Ólafsson, Ólafur
Stefánsson, Valgarð Thoroddsen
og Valdimar Grímsson.
Fyrri leikurinn er í Aarau í
kvöld og sá síðari í Wettingen síð-
degis á morgun. Leikimir eru lið-
ur í lokaundirbúningi heimamanna
fyrir ÓL í Atlanta. Á mánudaginn
ekur íslenska liðið til Þýskalands
og leikur æfingaleik gegn þýska
liðinu TUS Schutterwald, en með
því leikur Róbert Sighvatsson á
næsta tímabili. HA
Landsleikir í handknattleik gegn Sviss:
Fýrstu leikir Duranona
Rimlagardínur
(plasf-ál-tré)
Rúllugordínur
(Sólarfilma-myrkva-venjulegor)
Strimlagordínur
Komdu og líttu ó úrvolið
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 462 3565
Hamar
félagsheimili Þórs:
Vegna leiks Þórs og
Skallagríms verður opið
fyrir getraunir í dag
frá kl. 10.00-11.30.
Heitt á könnunni
Hamar
sími 461 2080