Dagur - 29.06.1996, Blaðsíða 5
Laugardagur 29. júní 1996 - DAGUR - 5
Víð Eyrarlandsveg á
Akureyri býr gull-
og silfursmiðurinn
Harpa Kristjáns-
dóttir ásamt fjöl-
skyldu sinni. Heim-
ilið er ekki einungis
samverustaður fjöl-
skyldunnar heldur
einnig vinnustaður
Hörpu og áður en
langt um líður
hyggst hún opna
þar gallerí.
■
^ „Ég held fast í það að
hafa form á hlutunum
mínum sem ég hef ekki séð
áður, litur og áferð skiptir
mig miklu máli og ég hef
gaman af því að blanda
efnum,“ segir Harpa. Um
hálsinn ber hún eigin verk,
hálsfesti unna úr dekkja-
sóla, stálvír og silfri.
Myndir: BG
hefur hjálpað mér mjög mikið eftir
að ég fór að vinna við smíðina.“
Heimili, vinnustofa og
gallerí undir sama þaki
Harpa ætlaði sér alltaf að koma
upp verkstæði á Islandi og því kom
ekkert annað til greina, eftir að til
Akureyrar var komið, en að fara út
í þann undirbúning. „Þetta er allt
að komast í gang núna. Ég var að
kenna smíði í Glerárskóla í vetur
svo ég hef verið smárn saman að
byggja þetta upp. í haust vonast ég
hins vegar til þess að geta verið bú-
in að gera vinnustofuna og hús-
næðið það fínt héma heima að ég
verði reglulega ánægð með að fá
viðskiptavini í heimsókn. Þá ætla
ég mér að opna gallerí þar sem ég
get sýnt hlutina mína.“
Rík inni í mér
Harpa er fædd og uppalin í
Reykjavík en bjó í Hjárup í Sví-
þjóð ásamt fjölskyldu sinni þar til
fyrir ári síðan er þau fluttust til Ak-
ureyrar. „Mér finnst Akureyri al-
veg eins og ég átti von á. Það er
svo gott hvað hér eru stuttar vega-
lengdir og ég er fegin því að þurfa
ekki að nota bílinn eins mikið og
ég gerði. Þar sem ég hef mikinn
áhuga á allri útiveru hentar Akur-
eyri mér einnig mjög vel.“
Áhugi á handverki
Harpa er menntaður handavinnu-
kennari og vann við það í 2 ár en
þá opnaði hún saumastofu þar sem
hún saumaði úr leðri og mokka-
skinni. Eftir að fjölskyldan fluttist
til Svíþjóðar ákvað Harpa að hefja
nám að nýju og varð gull- og silf-
ursmíði fyrir valinu. „Ég hef alltaf
haft áhuga á handverki og langað
til að læra það frá a til ö. Þó veit ég
núna að ég læri það aldrei til ö.
Upphaflega hugsaði ég mér bæði
gullsmíði og feldskurð en ég komst
ekki til þess að læra feldskurð á
því svæði þar sem við bjuggum í
Svíþjóð. Það gerði þó ekki mikið
til því ég vildi bara fá að læra eitt-
hvað handverk og tók því gull-
smíðina og bætti silfursmíðinni við
seinna.“
Að námi loknu setti Harpa upp
vinnustofu í Svíþjóð þar sem hún
starfaði í eitt ár. „Við vorum
ákveðin í að flytja aftur heim til ís-
land svo ég gat í raun ekki farið í
að markaðssetja mig. Ég hafði því
það form á að selja hlutina mína
heima, seldi aðeins í verslanir og
reyndi að vera dugleg að taka þátt í
samkeppnum og sýningum,“ segir
Harpa. „Það er erfitt að vera nýr í
faginu og koma sér áfram. Ég var
hins vegar það heppin að fá að taka
þátt í stórri sýningu í Stokkhólmi,
sem var mikil auglýsing fyrir mig,
og þaðan muna margir eftir mér.“
Skólinn í Danmörku,
fjölskyldan og meistarinn
í Svíþjóð
Gull- og silfursmíðanámið tók
fjögur ár og meistari Hörpu var
Svíinn Birger Pellas silfursmiður.
„Ég stundaði nám við Den Tekn-
iske skole í Kaupmannahöfn og
ferðaðist því á milli Danmerkur og
Svíþjóðar. Námið skiptist þannig
niður að ég var fjórum sinnum tíu
vikur í skólanum og níu mánuði
hjá meistara þess á milli þannig að
ég vann allan tímann á verkstæði.
Eftir að ég lauk sveinsprófinu í
gullsmíði tók ég tæpt ár til viðbótar
í skólanum og lauk þá sveinsprófi í
silfursmíði. Þau ár sem ég var í
námi fór ég einnig einu sinni á ári
einn mánuð í senn í hönnunarskóla
í Genf í Sviss. Þeir mánuðir skiptu
miklu máli fyrir mig því þar lærði
ég að nálgast þá hluti sem ég er að
vinna að á allt annan hátt og það
Harpa við smíðar á
vinnustofu sinni við
Eyrarlandsveg.
►
Kirkjumunir heilla
Fyrsta einkasýning Hörpu verður í
Reykjavík í nóvember, í galleríi
Sævars Karls, og eftir hana hefur
hún hug á að koma með sýninguna
til Akureyrar. Um áramótin ætlar
hún sér því að vera komin á fulla
ferð við að auglýsa sig.
En þrátt fyrir litla auglýsingu á
sér og verkum sínum hingað til
hafa viðtökur verið góðar. „Ég
held fast í það að hafa form á hlut-
unum mínum sem ég hef ekki oft
séð áður, litur og áferð skiptir mig
miklu máli og ég hef gaman af því
að blanda efnum saman án þess þó
að nota þá aðferð að blanda saman
kopar, silfri og messing eins og
töluvert er gert á íslandi. Einnig
hef ég gaman af því að nota ýmsar
harðviðartegundir. Ég reyni alltaf
að hafa hlutina mína sérstaka og
þ.a.l. fæ ég alltaf viðbrögð á þá.“
En Harpa er ekki eingöngu í því
að smíða skartgripi. „Kirkjumunir
heilla mig mjög mikið. Það er
gaman að smíða þá vegna þess að
þeir eru munir sem koma til með
að verða notaðir. Kirkjumunir eru
ekki bara einhverjir gripir sem sett-
ir eru upp í hillu. Ég vil gera hluti
sem eru nytsamlegir."
„Ég finn það svo vel eftir að
hafa starfað við handverk í mörg ár
að ég er búin að finna það sem ég
hef unun af því að vinna við. Ég
verð seint rík af þessu en ég verð
rík inni í mér.“ hbg