Dagur - 29.06.1996, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 29. júní 1996
Þær fundu feður sína
„Ég ber annað eftirnafn mexícós\s fóður míns en hann
heitir Carlos Jurado Guzman. Hann er 49 ára, býr í
borginni San Miguel De Allende í Mexícó og er ver\-
frœðingur að mennt. í dag starfar hann sem einn af
nánustu samstarfsmönnum borgarstjórans en vegna
slæms efnahagsástands í landinu hefur hann efái tœ\i-
fceri til að vinna sem verlfrœðingur. “
Ekkert svar
„Ég hef alltaf ætlað mér að fara til
Mexícó og leita föður míns. Sú
hugsun blundaði alltaf í mér að ég
vildi ekki sitja uppi með það á efri
árum að hafa aldrei farið og leitað
hans. Ég átti alltaf minn pabba í
Mexícó sem ég ætlaði að finna.
Þegar ég var 15 ára þá reyndi ég
fyrst að hafa uppi á honum. Ég
hafði fengið í hendumar heimilis-
fang hans eftir mikla leit í gegnum
utanríkisráðuneytið og skrifaði til
hans bréf og sendi af mér mynd.
En ég fékk aldrei svar frá honum.
Þegar ég hitti föður minn síðan í
fyrsta skipti núna um páskana þá
komst ég að því að ég hafði aldrei
skrifað heimilisfangið mitt í bréfið
sem ég sendi honum svo hann gat
ekki skrifað mér til baka.“
Purfti að fara til Mexícó
„Það sem ýtti mér af stað í þetta
Mexícóævintýri mitt var fyrst og
fremst tilhugsunin um það að faðir
minn væri frá Mexícó og ég
hálfmexícósk. Mér fannst ég þurfa
að fara til hans heinralands, kynn-
ast menningunni og læra tungu-
málið til að komast nær honum.
Þess vegna kom aldrei annað til
greina en að fara til Mexícó eftir
stúdentspróf og leita hans í leið-
inni. Það gerði ég í mars á þessu
ári. Ég var búin að ákveða það að
aðaltilgangur ferðarinnar væri
ekki að fara og finna hann, heldur
fyrst og fremst að læra spænsku
og kynnast menningunni. Ég var
því í skóla í tvo mánuði og ferðað-
ist um landið í mánuð á eftir.
Hugsunin á bak við þetta ferða-
skipulag var það að ég var búin að
búa mig undir að hann vildi ekkert
með mig hafa. Því ætlaði ég, þeg-
ar mig langaði til og ég fann að ég
var tilbúin til, að hafa upp á hon-
um. Ég vildi líka geta bjargað mér
á spænsku áður en ég hitti hann og
þekkja aðeins til landsins.“
Með sjö ára gamalt
heimilisfang
„Það var eftir fjórðu vikuna í skól-
anum sem ég dreif mig af stað og
hóf leitina að föður mínum. í far-
teskinu hafði ég þetta 7 ára gamla
heimilisfang sem ég hafði fengið
þegar ég var 15 ára, en því fylgdi
ekkert símanúmer. Upphaflega
hafði ég hugsað mér að hafa þessa
leit mína þannig að ég skrifaði
honum bréf þar sem ég segði hon-
um að ég væri í Mexícó, ég hefði
áhuga á að hitta hann og kynnast
honum og ef hann vildi hitta mig
þá ætti hann að hafa samband.
Þetta skipulag raskaðist þó allt. Ég
vildi hafa þetta á þessa leið því að
ég var svo hrædd um að hann ætti
fjölskyldu sem ég gæti þess vegna
verið að eyðileggja með því að
birtast allt í einu. Mér tókst því
með hjálp fjölskyldunnar sem ég
bjó hjá í Mexícó að finna síma-
númerið fyrir þetta heimilisfang
sem ég hafði og reyndi að hringja
þangað en það svaraði aldrei.
Eg ákvað að láta það ekki
stoppa mig, hélt af stað til bæjar-
ins sem ég vissi að hann var ætt-
aður frá og fann gamla heimilis-
fangið. Húsið leit ekki út fyrir að
það væri búið í því enda vildi eng-
inn svara mér þar. Ég bankaði
uppá mörg hús í grendinni en þeir
sem ég talaði við könnuðust
hvorki við hann né það að búið
væri í húsinu. Að lokum hitti ég
þó eina konu sem gat sagt mér það
að þegar hún flutti í hverfið fyrir
fjórum árum þá hefði mexícóskt
fólk verið að flytja þaðan. Þarna
stóð ég því með tvær hendur tóm-
ar og vissi ekkert hvað ég átti að
gera. Ég gat hvergi fengið aðrar
upplýsingar en þetta símanúmer
sem aldrei svaraði í. Það þýddi
samt ekki að gefast upp.
Um kvöldið þá ákvað ég að
reyna einu sinni enn og bað um
símaskrá á gistiheimilinu sem ég
bjó á. Þessi skrá sem ég fékk var
ekki sú sem maður leitar venju-
lega í en það ótrúlega gerðist að
ég fann nafnið hans þar, heimilis-
fang og síma og það var náttúru-
lega alls ekki það sem ég hafði.
Síðar frétti ég að símanúmerið
sem ég reyndi sem mest að
hringja í var á gamalli skrifstofu
sem liann hafði haft.“
Ég er dóttir þín
„Daginn eftir hringdi ég í nýja
númerið og konan hans svaraði.
Ég var búin að ákveða að ef ein-
hver annar en hann svaraði þá ætl-
aði ég að segja að ég væri vinur
eins vinar hans frá Islandi, sem
hefði verið með honum í skóla í
Mexícó, og ég væri að færa hon-
um kveðju. Hann var ekki heima
en ég átti að hringja aftur til að
hafa upp á honum. Ég gerði það
og eiginkona hans svaraði aftur og
sagði mér að bíða, ég hélt að hún
væri að ná í símanúmer til að láta
mig fá. En þá kemur hann í sím-
ann.
Ég var alls ekki undir það búin
að tala við hann og vissi ekkert
hvað ég átti að segja. Ég byrjaði
því á að kynna mig og segja hon-
um að móðir mín hafi verið í
Mexícó en sagði svo allt í einu:
„Ég er dóttir þín“. Þá kom löng
þögn og ég var viss um það að ég
væri búin að klúðra þessu öllu. En
þá spyr hann mig hvar ég sé og
segist koma til að hitta mig. Ég
trúði þessu ekki og fannst ótrúlegt
að ég fengi loksins að sjá föður
minn. Hann fann mig strax og
faðmaði mig að sér en ég var
ofsalega feimin enda búin að bíða
eftir þessu frá því ég man eftir
mér. Hann var samt ennþá stress-
aðri en ég og sagði að hann væri
svo ánægður að ég skyldi hafa
haft samband."
Vissi að ég var í bænum
„Það ótrúlega var að hann vissi að
ég var í bænum. Ég hafði daginn
áður farið í verslun og borgað
með greiðslukorti. Maðurinn í
versluninni las nafnið mitt á kort-
inu, varð voðalega undrandi og
horfði á mig. Það þýddi því ekki
annað en að spyrja hvort hann
kannaðist við nafnið og hann
jánkaði því. Sagðist þekkja tvo
menn með þessu eftimafni og
annar þeirra manna sem hann
nefndi var faðir minn. Ég spurði
hvort hann vissi hvar hann byggi
en passaði mig á því að segja hon-
um alls ekki að ég væri dóttir
þessa kunningja hans. Maðurinn
vildi endilega hjálpa mér og bað
mig að koma daginn eftir því hann
ætlaði að hafa uppi á heimilis-
fanginu. En ég þurfti ekki að leita
til hans aftur því að ég fann núm-
erið um kvöldið.
Þegar ég hitti föður minn síðan
daginn eftir þá sagði hann mér að
vinur hans hefði hringt í hann og
sagt honum að það hefði komið
stelpa í búðina til hans frá íslandi
með sama eftirnafn og hann. Þá
vissi faðir minn að þetta gat ekki
verið nein önnur en ég og hélt að
hann væri búinn að missa af mér.
Þegar ég hitti hann daginn eftir
dró hann upp úr vasanum bréfið
og myndina sem ég hafði sent
honum fyrir 7 árum. Það var eins
og ég hefði sent það í gær því
hann hafði geymt það svo vel. Það
var þá sem mér brá fyrst þegar
hann sagði mér að ég hefði ekki
sent heimilisfangið mitt.“
Einkabarn hans
„Faðir minn var rosalega ánægður
að ég skyldi vera komin, að ég
skyldi vilja koma og hitta hann og
hann var ákafur að vita allt um
mig. Við töluðum lengi saman og
það var þá sem hann sagði mér að
ég væri einkabam hans. Að vita
það að ég átti engin systkini í
Mexícó var eitthvað sem ég hafði
ekki búist við og undarlegt að
hugsa til þess að ég væri eina
bamið hans. Ég gat ekki stoppað
hjá honum í þetta skiptið þar sem
ég þurfti að fara til baka í skólann
en við ákváðum að hittast aftur.
Þegar kom að því þá hitti ég
einnig konuna hans og hún tók
mér ofsalega vel. Var mjög góð
við mig og skemmtileg og sagði
mér frá fjölskyldu föður míns. Við
fórum öll saman út og hittum
margt fólk sem hann þekkti og þá
kynnti hann mig sem Heiðu dóttur
sína. Mér þótti vænt um það.
Þessa sömu helgi þá hitti ég
einnig tvo af sex bræðrum hans og
þeirra fjölskyldur. Síðar hitti ég
systur hans og son hennar og alla
fjölskyldu eiginkonu föður míns.
Að hitta þetta skyldfólk mitt var
rosalega gaman og allir tóku þess-
ari nýju frænku frá íslandi ótrú-
lega vel. Frá því faðir minn fékk
bréfið frá mér fyrir 7 árum síðan
þá hafði hann einungis sagt eigin-
konu sinni og besta vini sfnum frá
mér. Þessar viðtökur voru því al-
ger andstaða við það sem ég hafði
búið mig undir.“
Ákveðinn léttir
„Ég fann fyrir nánari tengslum við
föður minn en við annað skyldfólk
mitt og sérstaklega undir lokin
þegar ég var farin að kynnast hon-
um betur. Eftir þessa vel heppn-
uðu ferð þá er ég ákveðin í að fara
aftur til Mexícó og dvelja þá hjá
föður mínum og konunni hans,
bæði til að kynnast þeim betur
ásamt því að ná betri tökum á
spænskunni. Þegar ég hugsa til
hans núna þá finn ég sterkt fyrir
því að eiga virkilega föður í
Mexícó sem var áður bara það að
ég ætti föður í Mexícó. Það fylgir
því ákveðinn léttir að vera búin að
finna hann og sérstaklega af því
að hann tók mér svo yndislega
vel.“
%