Dagur - 29.06.1996, Síða 15
Laugardagur 29. júní 1996 - DAGUR - 15
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu iðnaðarhúsnæði ca. 80-90 m2.
Laust strax.
Uppl. á skrifstofu Sveins Heiðars ehf., milli kl. 13
og 17 í síma 461 2366.
Hlutavelta tíl styrktar bamadeid FSA
Edda Bryndís Sigurbjörnsdóttir og Berglind Jónasdóttir héldu á dögunum tombólu. Þar söfnuðust 2.240 krónur,
sem þær láta renna til styrktar barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Mynd: bo
Flugleiðir:
Stefnt á aukna arðsemi og
breytt sölu- og markaðsstarf
Dalbær
heimili aldraðra
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á Dalbæ heimili aldraðra
Dalvík frá og með 1. september 1996.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 19. júlí nk.
Á Dalbæ eru bæði dvalardeild og hjúkrunardeild.
Húsnæði í boði.
Á Dalvík eru tveir leikskólar og öflugt íþrótta- og æsku-
lýðsstarf.
Hafir þú áhuga á fjölbreyttu og skemmtilegu starfi
hafðu þá samband við forstöðumann eða hjúkrunar-
forstjóra í símum 466 1378 og 466 1379.
Flugleiðir kynntu nú fyrir helg-
ina nýja stefnumörkun og fram-
Dalvík:
Bæjarmála-
punktar
Starf íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa
Á fundi íþrótta- og æskulýðs-
ráðs á dögunum var til um-
fjöllunar starfslýsing íþrótta-
og æskulýðsfulltrúa. Þar er
reynt að afmarka starf hans og
staðsetja viðveru meira á
ákveðnum stöðum en verið
hefur. Var starfslýsingin sfðan
lögð fyrir bæjarráð til af-
greiðslu. Þá voru ræddar ýms-
ar leiðir varðandi spamað í
rekstri íþróttamannvirkja og
möguleika á auknum tekjum
Hjúkrunarforstjóri
hættir
Snædís Númadóttir hefur sagt
iausu starfi sínu sem hjúkrun-
arforstjóri Heilsugæslustöðvar-
innar.
Innritun í
Tónlistarskólann
Á fundi stjómar Tónlistarskóla
Dalvíkur kom frarn að innrit-
anir hafa skilað sér betur nú en
á sama tíma í fyrra, m.a. vegna
breytts fyrirkomulags, en inn-
ritunarseðlar voru sendir til
nemenda áður en skóla lauk.
Alls hafa'60 sótt um nú þegar.
Þá hefur Leikfélag Dalvíkur
afhent Tónlistarskólanuin 60
þúsund krónur í flygilsjóð,
sem safnaðist á söngdagskrá
Leikfélagsins í janúar sl.
Nýbúakennsla
Á fundi bæjarstjómar var sam-
þykkt að vísa erindi félags-
málaráðs um íslenskukennslu
fyrir nýbúa til skólastjóra Dal-
víkurskóla, þannig að á haust-
dögurn þegar kannað verður
með undirtektir og áhuga á
námskeiðahaldi á vegum
námsflokka, þá verði jafnfram
kannaður grundvöllur fyrir
slíku námskeiði og því komið
á ef unnt reynist.
tíðarsýn hjá fyrirtækinu. Á
fundi með starfsmönnum sagði
Sigurður Helgason, forstjóri, að
vel hafi miðað í rekstrinum á
undanförnum árum og stefnan
hefur nú verið sett á að árið
2000 hafi fyrirtækið hagnaðar-
rekstur upp á 5,5% á ári.
Sigurður rakti á starfsmanna-
fundinum að á undanfömum ámm
hafi félagið endurnýjað flugflot-
ann, hótel, bflaleigu og önnur tæki
og búnað, auk allra þjónustuþátta,
og varið til þessara verkefna 20
milljörðum króna. Jafnframt hafi
náðst hagræðing í rekstrinum og
sparnaður sem gert hafi fyrirtæk-
inu kleift að komast í gegnum erf-
iðleika í alþjóðaflugrekstri.
„Flugleiðir skilgreina sig nú
ekki lengur eingöngu sem flugfé-
lag heldur sem ferðaþjónustufyrir-
tæki. Það endurspeglar áherslur
Nýir fimm-
ogtíkallar
Á næstunni verður látin í um-
ferð 5 og 10 króna mynt með
breyttu máiminnihaldi. Frá
gjaldmiðilsskiptum 1981 hafa
þessar myntstærðir verið úr
kopar/nikkel en fimm- og tíkall-
ar með ártaiinu 1996 og síðar
verða úr nikkelhúðuðu stáli.
Utlit og stærð myntarinnar er
að öllu leyti óbreytt frá því sem
verið hefur, en hún er léttari. Tí-
kallinn er 6,9 grömm í stað 8 og
fimmkallinn 5,6 grömm í stað 6,5.
Kostnaður við sláttu myntarinnar
lækkar við þessa breytingu um
35%. Tíkallinn kostar nú kr. 2,35
og fimmkallinn kr. 2,10. Að sjálf-
sögðu verður eldri gerðin áfram í
fullu gildi. HA
Leiðrétting
í frétt í degi á miðvikudaginn var
sagt að Valdimar Guðmannsson
væri stjómarformaður Fisks 2000
á Blönduósi, en það mun rangt
vera. Valdimar er stjómarformað-
ur Skúlahoms ehf. sem byggir hús
Fisks 2000 og formaður Verka-
lýðsfélags A-Húnvetninga. shv
fyrirtækisins á að efla aðra þætti
starfseminnar, svo og hótel, bfla-
leigu og ferðaskrifstofurekstur til
jafns við flugið. Jafnframt. vill fé-
lagið auka hlutfall þeirra sæta sem
seld eru í pakkaferðum á kostnað
þeirra sem seld eru á lægstu gjöld-
um í stórum upplögum til alþjóð-
legra miðlara," segir í frétt frá
Flugleiðum.
Einnig kemur fram að mikil-
vægur þáttur í stefnumörkun fé-
lagsins sé að það setji sér það
markmið að vaxa um 10% á ári
frá og með 1997 og geri ráð fyrir
að veltan verði komin yfir 27
milljarða króna árið 2000. Áætl-
anir Flugleia um vöxt þýði í raun
að félagið bæti þotu við flugflot-
ann annað hvert ár auk fjölda
nýrra starfsmanna.
Vátryggingafélag Islands hf., Akureyri,
óskar eftir tiiboðum í eftirtaldar bifreiðar,
sem skemmst hafa í umferðaróhöppum.
Hyundai Accent LS .........árg. 1996
Toyota Corolla XLi ........árg. 1995
Peugout 205 ...............árg. 1992
Toyota Hilux D/C ..........árg. 1991
Skoda Favorit 136L ........árg. 1991
Toyota Corolla Touring ....árg. 1989
Toyota Tersel .............árg. 1983
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS að
Furuvöllum 11, mánudaginn 1. júlí nk. frá kl. 9.00 til
16.00.
Tilboðum sé skilað á
dag.
sama stað fyrir kl. 16.00 sama
^ér
VÁTRYGGINGAFÉIAG
ÍSLANDS HF
Frá áramótum hafa hlutabréf
Hlutabréfasjóðs Norðurlands
hækkað um 24,2%
Hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands veita skattaafslátt. Þannig getur
einstaklingur sem kaupir hlutabréf fyrir 130.000 krónur, lækkað skattana um
44.000 krónur. Upphæðin er tvöföld fyrir hjón.
Tryggðu þér skattaafslátt með einu símtali.
Sími 462 4700
44 f KA. UPÞING
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri