Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 25 V Húsog garðar Best er að bera árlega á timbrið eigi það að haldast fallegt. Viðhald á timbri og hellum - árviss yfirferð langbest utanhússklæðning Eru eftirfarandi vandamál aö angra þig? ALKALÍ-SKEMMDIR SÍENDURTEKIN MÁLNINGARVINNA FROSTSKEMMDIR LÉLEG EINANGRUN LEKIR VEGGIR EILÍFAR SPRUNGUVIÐGERÐIR Ef svo er, skaltu kynna þér kosti sto-utanhússklæðningarinnar: STO-KLÆÐNINGIN ...er samskeytalaus akríl-klæöning ...er veöurþolin ...leyfir öndun frá vegg ...gefur ótal möguleika í þykkt, áferö og mynstri ...er litekta og fæst í yfir 300 litum ...er teygjanleg og viönám gegn sprungumyndun er mjög gott STO-KLÆÐNINGUNA ...er unnt aö setja beint á vegg, plasteinangrun eöa steinull ...er hægt aö setja á nær hvaöa byggingu sem er, án tillits til aldurs eöa lögunar Sto-kiæðningin þekur 70 þúsund fermetra víðs vegar um land STO-KLÆÐNINGIN ENDIST STO-KLÆÐNING - ÞÝSK GÆÐAVARA Á ÍSLANDI í 8 ÁR VEGG RÝÐIf BÍLDSHÖFÐA 18 SlMI 91 - 67 33 20 112 REYKJAVÍK FAX 91 - 67 43 20 Það er með timbur og grjót í garð- inum eins og annað. Eigi það aö hald- ast fallegt þarf að sinna þvi. Ekki þarf endilega mikla vinnu en árleg yfirferð er langbest. Alla göngufleti úr timbri ætti að minnsta kosti að fúaverja árlega en duga ætti að fara yfir girðingar og annað sem minna álag er á á tveggja ár fresti. Margir álíta að gagnvarið timbur sé með einhvem eilííðarendingar- stimpil en það timbur þarfnast einn- ig viðhalds þó fyrstu tvö árin sleppi viðhaldsfrítt. Þeir sem hafa málað timbrið hjá sér þurfa sömuleiðis að halda því við og er vinnan meiri hjá þeim en ef timbrið er fúavarið. Hreyfing á timbrinu veldur því að málningin losnar af þar sem hún hreyfist ekki með. Arviss vinna er því hjá þeim sem eru með málað timbur eigi það alltaf að vera sem nýtt. Þeir sem vilja losna við máln- ingu af timburflötum eiga mikla vinnu fyrir höndum. Háþrýstiþvott- ur naér þó oft miklu í burtu en það sem ekki fer með því er handavinna. Gætið að gróöri í nágrenni flatar þar sem pússa á því mikil eiturefni eru oft í málningarefnum sem geta farið illa með gróður. Auðvelt er að koma í veg fyrir það með því að fá sér plast og leggja yfir gróðurinn meöan vinna stendur yfir. Flestallir kannast við gras milli hellna. Margir garðeigend- ur bölva því í nokkurn tíma og fá- rast yfir því hvemig eigi að losna við það í stað þess að nota sama tíma í að hreinsa það í burtu eins og allt annað illgresi. í flestum görðum er hellusvæðið það lítið að það er ekki nema klukku- tímavinna að hreinsa illgresi úr hellu- eða grjótlögninni. Þegar hreinsaö er upp úr hellulögn kemur oft á tíðum jarðvegur með þannig að autt bil verður á milli hellna. Lítið mál er að fá sér einn poka af fín- pússningarsandi og fúga um leið og reytt er. Á stærri svæðum er gott að nota eitur sem heitir casoron. Það er kyrni sem er dreift yfir þann flöt sem eitra á. Ef það er notað skal fara eftir leið- beiningum eins og alltaf þegar eitur- efni eru notuð. Hlaðin útigrill - kjörin lausn, t.d. í sumarbústaðinn Tveir u-steinar lagðir saman eru ágætis útigrill. A undanfómum árum hefur grillmat- reiðsla íslendinga færst mjög i vöxt og er nú svo komið að ilmandi grill- lykt er álíka viss vorboði og lóan. Notkun gasgrilla færist stöðugt í vöxt enda em þau fljótari að hitna en kolagrillin. Þó eru enn margir sem nota gömlu góðu kolagrillin og einnig eru kolagrill enn algeng í sumarbú- stöðum. Á fjölbýlishúsalóðum geta stór útigrill oft á tíðum komið sér vel. Hlaðin grill Fyrir þá sem grilla mikið em lilað- in grill kjörin lausn. Hafa má þau ein og sér eða í samhengi við verönd, skjólvegg, tröppur, hleðsluvegg og svo framvegis. Best er að hafa grillið sem næst verönd því þar situr fólk oftast á grilldögum. Mikilvægt er að grilliö sé varið fyrir vindi, gæta þarf þess að snúa þvi „rétt“, þ.e. .undan ríkjandi sumarvindátt. Einnig er hægt að verja það með skjólvegg eða gróðri. Hjá B.M. Vallá fengust þær upplýs- ingar að eina „patent“-lausnin sem fyrirtækið væri með væm tveir u- steinar lagðir saman og jámskúffa sem fellur ofan í þá. Hægt er að hlaða sér útigrill úr nánast hvaða steini sem er en eitt er þó sem þarf að gæta að og það er að hellurnar þola illa hitann frá kolun- um og því þarf annaðhvort að láta smíða skúffu úr jámi sem fellur ofan í grillið eða nota vikurstein eða arin- stein undir kolin. Hann þolir hitann mun betur en venjulegar hellur en gallinn við vikursteininn er hins veg- ar hvað hann veðrast illa en ég veit ekki hvernig er með arinsteininn en þó tel ég líklegt aö hann dugi betur. Við gerð grillsins ætti að huga vel að öllum atriðum og teikna það. Hugsa þarf um atriði eins og hvort hæðin á grindinni eigi að vera stillanleg, hvort gera eigi ráð fyrir einhveijum geymsluskika, t.d. fyrir tangir og fleiri smáatriði. Gætið að eldhættu Sumarbústaðaeigendur ættu að nota meira náttúmstein heldur en tilbúnar hellur þar sem útigrill í nátt- úrunni ætti að falla inn í landslagið en ekki vera eins og einhver steypu- kumbaldi í miðjum móum. Annað er það sem fólk ætti að gæta vel að og það er eldhættan sem skapast alltaf þegar grillað er. Klæða ætti nánasta umhverfi grillsins með hellum, nátt- úru- eða steyptum, og einnig ætti fólk að fara varlega með notkun timburs ínágrenniviðgrill. -áj og langar í falleg sumarhúsgögn hvort sem er fyrir heimilið, garðhúsið eöa sumarhúsið þá ættir þú aö líta til okkar og sjá hið mikla úrval sumarhúsgagna hvort sem er úr basti eða furu. Verið velkomin flúsgagnahöllin BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.