Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 12
30
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
Hús og garðar
Guðni Þórðarson, framkvæmdastjóri Borgarplasts hf., við nýju rotþróna.
Ný gerð rotþróar
fyrir sumarhús
-framleidd af Borgarplasti hf. á Seltjamamesi
Eitt þeirra fyrirtækja sem framleiða
rotþrær og vatnstanka fyrir sumar-
hús er Borgarplast hf. Það hefur
framleitt um 2000 rotþrær sl. 10 ár,
en framleiðslan er ekki eingöngu
bundin við sumarhús, því stærsta
rotþró sem fyrirtækið hefur framleitt
er 30 þúsund lítra og nú um síðustu
helgi var afhending á 20.000 lítra rot-
þró og 15 þúsund lítra vatnstanki upp
á Hvalfjarðarströnd.
Umhverfísvæn
framleiðsla
Borgarplast hf. er einnig með verk-
smiðju í Borgamesi þar sem starf-
semin byrjaði árið 1971, en fram-
leiðsla fyrirtækisins tekur til ein-
angrunarplasts til húsaeinangrunar
og umhúðaframleiðslu fyrir sjávar-
fang. Þá framleiðir það einnig fiski-
ker, vörubretti og ýmsar vörur fyrir
margs konar iðnað, sveitarfélög jafnt
sem einstaklinga. Borgarplast hf.
notar eingöngu CFC-frí efni við ein-
angrun og uppfylhr þar með Mon-
treal samþykktina um umhverfis-
vernd frá 1989. Það er fyrsta alís-
lenska iðnfyrirtækið sem fær vottun
um það að reksturinn sé í samræmi
við ISO 9001 staðalinn, sem tryggir
bestu fáanlegu vöru í hveijum vöru-
flokki allt frá hönnun til viðhalds-
þjónustu.
SÓLARMEGIN
ÞAÐ ER HLÝTT OG NOTALEGT INNAN VIÐ TVÖFALT PLEXIGLERIÐ.
ÞÚ SLAKAR Á OG FÆRÐ BRÚNT OG HRAUSTLEGT ÚTLIT.
NÝJA „ÁLLTOP" PLEXIGLERIÐ ER ALVEG LAUST VIÐ MÓÐU OG
ER MUN GEGNSÆRRA EN ELDRI GERÐIR.
í LÍFINU
okron
SÍÐUMÚLA 31 - SÍMI 33706
Helstu atriði
varðandi rotþrær
Hús og garðar heimsóttu Borgar-
plast út á Seltjamames nú á dögun-
um til að skoða nýju rotþróna sem
tekur 1500 lítra og kostar kr. 45.000
m/vsk. Þessi nýja rotþró er hring-
laga, með hólfin samsteypt í einum
geymi, létt og meðfærileg og er ekki
nema um 1 metri í þvermál. Hún
hentar því mjög vel þar sem erfitt
er að komast niður í jarðveg. Rot-
þrær þurfa að vera þriggja hólfa, þvi
þær eru taldar hreinsa best. Sé rot-
þró of lítil fyllist hún áður en nær
að rotna í henni og hún stíflast. Holl-
ustuvernd ríkisins viðurkennir ekki
minni rotþær en 1500 lítra og þær
þurfa allar að vera þriggja hólfa.
Vönduð niðursetning
skiptir mestu máli
Guðni Þórðarson var tekinn tali og
beðinn um góð ráð til að fyrirbyggja
vandamál sem oft koma upp varð-
andi rotþrær, en Guðni hefur verið
stjórnandi fyrirtækisins síðustu 7
árin og er einn af stofnendum þess.
Hann sagði að vönduð niðursetning
á þrónni og lögnum sem tengjast í
hana skipti höfuðmáh. Fjarlægja
skal allan lífrænan jarðveg úr rot-
þróarstæðinu og grafa niður á fast
jarðlag. Ef dýpra er niður á fast þá
skal fylla undir þróna með ólífræn-
um efnum, svo sem grús eða rauða-
möl, og þjappa vel. Undir þrónni og
upp með hliðum skal ávallt vera fínt
efni, t.d. sandur, og áfram skal nota
frostfrítt þegar fyllt er upp að yfír-
borði og skal þróin ekki standa
grynnra en að 80 cm séu niður á
hana. Aldrei skal moka mold að
þrónni en mold má vera á efstu 15-20
cm þannig að hægt sé að hafa gras-
flöt yfir henni. Sami frágangur á við
um lagnir til og frá rótþrónni.
Frárennsli,
loftun og hreinsun
Það ber að hreinsa rotþró á 2-3 ára
fresti og er heppilegast að nota haug-
sugu við rotþróartæmingu sumar-
húsa. Það þarf ávallt að skilja eftir
10-15 cm lag af seyru í fyrsta hólfinu
svo rotnun haldi strax áfram. Ef þró-
in er aldrei tæmd verður hún ónýt á
10-12 árum. Þar sem 85% efnis sem
inn í þróna kemur breytast í gas er
nauðsynlegt að lofta út frá fremsta
hólfinu eða lögninni að henni. Þar
sem algjörlega er bannað að leiða
frárennsli rotþróa í opna skurði eða
þar sem það kemst í ár og vötn er
einfaldasta aðferðin að leggja lögnina
í púkk eða þá að nota drenrör eða
sía það með sandsíum. í öhu falli
skulu menn afla sér nægilegra upp-
lýsinga áður en byrjað er á fram-
kvæmd, sérstaklega ef um er að ræða
staði nálægt ám, vötnum og vatns-
bólum eða þar sem grunnvatnsstaða
er há.