Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1994, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994
vl
2í
Egg hátíð á Tunglinu
tónligt:
‘‘>T’*‘
- útgáfutónleikar annað kvöld
Danstónlist er íslensku ungviði
hugleikin. Jafnframt því að vera
vandaðri en áður hefur danstónlist,
líkt og rokk og popp, teygt anga sína
til ýmissa átta og er útkoman eftir
því. Angamir hafa fengið mismun-
andi nöfn, oftast nefndir eftir þeirri
tilfmningu sem upp blossar hjá því
fólki sem fyrst heyrir tónlistina.
„Trance" og „ambient" danstónlist
hefur verið að ryðja sér til rúms upp
á síðkastið og nú er svo komið að
íslenskar sveitir sem kenna sig við
þessar stefnur hafa sameinast undir
Smekkleysumerkinu og gefið út 13
laga safndisk sem gengur undir
nafninu Egg ‘94.
Umlykjandi leiðsla
Samkvæmt ensk-íslenskri orðabók
Sigm-ðar Ö. Bogasonar þýðir enska
orðið „trance“: leiðsla, mókleiðsla,
dá, dvaíi eða dásvefn og enska orðið
„ambienfumlykja. Þessar þýðingar
gefa lesandanum aðeins meiri innsýn
í þær tilfmningar sem ofangreindri
tónlist er ætlað að vekja upp. Á Egg
‘94 eru mestmegnis óþekktar hljóm-
sveitir enda hefur verið lítið um
útgáfu í þessum geira á islandi. Nöfn
eins og Ajax, T-World, Spaceman
Spliff og Hydema hafa þó verið á
sveimi í einhvem tíma, en einhvem
veginn aldrei sóst eftir útgáfu. Flestar
þessara hljómsveita þurfa ekki
marga liðsmenn og eru að meðaltali
tveir í hljómsveit, stundum einn,
stundum þrír og svo náttúrlega eitt
eða fleiri hljómborð auk „sound
module“ o.fl.
Heildarmynd
Það var Þórhallur Skúlason,
maðurinn á bak við Underground
Family og Ajax, sem var fenginn af
Smekkleysumönnum til að safna
saman hljómsveitum á þessa „ambi-
ent trance“ plötu svo úr yrði heildar-
mynd. Þórhallur hefur um einhvem
tíma starfað í bransanum og var
meðal annai’s í hljómsveitinni
Bubbleflies þegar hún var að byrja.
Þórhallur á þrjú lög með ofangreind-
um hljómsveitum á plötunni: „Blue
Intro" með Ajax, „Snow Princess"
(sem Svala Björgvinsdóttir, söng-
kona Scope, syngur) og „Sleeping
under a Strange Sky“ með Under-
ground Family. Auk þessara laga
er á plötunni að finna lögin „Oh“
(T-World), „Tone Vibe“ (Bix),
„101101100“ (Plastic), „A Different
Place“ (Oscillator), „Ultra
Magnificent" (Spaceman Spliff),
„Hidrospere" (Biogen), „Tungl 12“
(Kusur), „Freaky Spoon“ (Hydema),
„Sonic Waves“ (D.E.W.) og
„011101001“ (Plastic). Heildarmynd
varð úr og stoltir geta Smekkleysu-
menn nú boðið íslendingum upp á
alíslenska „umlykjandi leiðslu" plötu
þrátt fyrir fjölda erlendra titla.
Tónleikarnir
hefjast...
Til að fylgja slíkri plötu eftir er að
sjálfsögðu boðið upp á útgáfutónleika
í hinni rómuðu danshöll, Tunglinu.
Hljómsveitimar sem þar koma fram
era T-World, Underground Familiy,
nafn
vikunnar
Kusur, Spacemann Spliff, Plastic, föstudaginn 22. júlí í Tunglinu og teljast til neinna sérstakra hópa er
Biogen og Bix auk Þossa DJ sem standa frá 22 til 3. Allir hafa bara gaman afgóðri danstónlist.
sjaldan fellur langt frá eikinni. „leiðsluvargar“ eru hvattir til að Um það snýst málið víst.
Tónleikarnir verða haldnir mæta á svæðið auk þeirra sem ekki GBG
m
Nokkrir af þeim listamönnum sem eru á diskinum. DV-mynd ÞÖK
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur
sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að
launum. Leikurinn fer þannig fram aö í hverri
viku eru birtar þijár léttar spumingar um tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara öllum spurn-
ingum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá
fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni era verðlaunin
diskurinn Kombóið með Ellen Kristjánsdóttur.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað heitir nýja Rolling Stones platan?
2. Hvað heitir söngvarinn í hljómsveitinni
Rolling Stones?
3. Hvað heitir gítarleikari hljómsveitarinnar
Rolling Stones?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 28. júlí og rétt
svör verða birt í tónlistarblaðinu 4. ágúst.
Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 7.
júlí:
1. Egg ‘94.
2. Pálmi Gunnarsson.
3. Rapp/Hip-hop.
Að þessu sinni eru verðlaunin diskurinn Kombóið með Ellen
Kristjánsdóttur.