Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Side 6
22 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994 Iþróttir Hinrik Bragason sigraöi í þremur greinum á Eitli. Sigurför á NM - hestaíþróttalandsliðið stóð sig glæsilega í Finnlandi UrslitináNM Fullorðnlr - tölt 1. Sveinn Ragnarss. á Fiygli flsl.) 2. Sigurbjörn Báröars. á Brjáni (Ísl.) 3. Ia Lindholm á Týru (Svifcj.) 4. -5. Gylfi Garöarss. á Héöni (ísl.) 4.-5. Einar Magnúss. áHáfeta (ísl.) 6. Jón Steinbjömss. á Mekki (ísl.) 7. Vignir Jónasson á Kveik (ísl.) Fjórgangur 1. Sveinn Ragnarss. á Flygli (ísl.) 2. Sigurbjörn Báröars. á Brjáni (ísl.) 3. Vignir Jónasson á Rveik (isl.) 4. May Madsen á Goða (Noregi) 5. Ia Lindholm á Týru (Svíþj.) 6. Johann Haggberg á Frigg (Svíþj.) 7. Gylfi Garðarsson á Héöni (Nor.) 8. Jón Steinbjörnss. á Mekki (ísl.) Fimmgangur 1. Einar Magnúss. á Háfeta (ísl.) 2. Jóhann Jóhanness. á Galsa (ísl.) 3. Svelnn Haukss. á Muntn (Svíþj.) 4. Atli Guðmundss. á Hugin (ísl.) 5. Hínrik Bragason á Eitli (isl.) 6. Magnus Lindquist á Söndru (Svíþj.) 8. Herbert Olason á Nunnu (IsL) Hlýðni 1. Satu Paul á Eitli (Finnl.) 2. Emil Olsen á Rune (Danmörku) 3. Susanne Wennerström á Vargi (Svíþ.) 4. Nina Keskitalo á Skjóna (Svíþ.) 5. Sigurbjöm Bárðars. á Brjáni (ísl.) Víðavangshlaup 1. Satu Paul á Eitlí (Finnl.) 2. Sari Tuura á Pjakki (Finnl.) 3. Bemt Severinsen á Loga (Nor.) 4. Taru Turtonen á Spes (Finnl.) Gæðingaskeið 1. Hinrik Bragas. á Eitli (ísl.) 2. Magnus Lindquist á Söndm (Svíþ.) 3. Jóhann Jóhanness. á Galsa (ísl.) 4. Sveinn Haukss. á Munm (Svíþ.) 5. Andreas Nilsson á Sögu (Sviþ.) 6. Einar Magnúss. á Háfeta (ísl.) 7. Herbert Ólason á Nunnu (ísl.) 250 metra skeið 1. HinrikBragason.........22,14 á Eitli (íslandi) 2. Samantha Leidersdorff..23,31 á Sputnik (Danmörku) 3. Einar Ö. Magnússon.....24,35 á Háfeta (íslandi) 4. CarohneRewers..........25,28 á Yngri (Danmörku) 5. Pia Kaaberg............25,82 á Kmmma (Svíþjóð) Laustaumatölt 1. Jóhann Jóhanness. á Galsa (ísl.) 2. Satu Paul á Eitli (FinnL) 3. Pia Kaaberg á Krumma (Svíþ.) 4. Magnus Lindquist á Söndru (Sviþ.) 5. Mette-Line Larsen á Létti (Danm.) . fi. Herbert Ólason á Nunnu (ísl.) Stigahfesti knapi 1. Hinrik Bragason (íslandi) 2. Eínar Magnússon (islandi) 3. Magnus Lindquist (Svíþjóð) 4. Jóhann Jóhannesson (Islandi) 5. Sigurbjörn Báröarson (íslandi) Unglingar - tölt 1. Guömar Péturss. á Ottó (ísl.) 2. Sandra Karlsd. á Blakk (ísl.) 3. -4. Caroline Dreijer á Sokratesi (Svíþ.) 3.-4. Maja Sterner á Ögra (Svíþ.) 5. Siri Seim á Ljúf (Noregi) 6. Daviö Mátthíass. á Kórali (ísl.) 8. Sigriöur Pjetiusd. á Sörla (ísL) Fjórgangur 1. Caroline Drejer á Sokratesi (Sviþ.) 2. Guömar Péturss. á Ottó (Isl.) 3. Siri Seim á Ljúf (Noregi) 4. Sandra Karlsd. á Blakk (ísl.) 5. Davíð Matthiass. á KÓrali (isl.) 6. Hiide Kolnes á JarU (Noregi) 9. Sigríður Rjetursd. á Sörla (ísl.) Hlýðni 1. Caroöne Dreijer á Sokratesi (Svíþ.) 2. Mirkka Ahonala á Frosta (FinnL) 3. Johanna Henrisson á Baktusí (Finnl.) Stigaluesti knapi 1. Caroline Dreijer (Svíþjóð) 2. Guömar Þ. Pétursson (íslandj) 3. Sandra Karlsdóttir, (íslandi) 4. Davíð Matthíasson (íslandi) 5. Hilde Kolnes (Noregi) Eirikur Jónsson, DV, Fmnlandi: Þátttaka íslenska landsliðsins á Norðurlandamótinu 1 hestaíþróttum var mikil sigurfór. Þegar upp er stað- ið liggja 8 gull, 6 silfur og 5 brons auk annarra vegtyllna. íslendingar fengu flest gullverð- laun, en auk þeirra fékk sænska stúlkan Carolien Dreijer þrjú gull og flnnska stúlkan Satu Paul tvö gull. Upphaflega voru valdir þrettán knapar í flokki fuflorðinna, en þeir Reynir Aðalsteinsson, Styrmir Snorrason og Styrmir Ámason helt- ust úr lestinni. Stóðhesturinn Þór frá Brún, sem Jóhann Þorseinsson ætlaði að ríða, kom slasaður og var úr leik. Jóhann fékk varahest, Kolbrúnu frá Hofi, sem ekki var reiðubúin í slíka keppni. Unnu vel úr lánshestunum Unglingamir fhnm stóðu sig meö sóma. Þeir fengu allir lánaða hesta og unnu mjög vel úr sínu verkefni, sem mörg voru erflð. Árangur þeirra endurspeglar alla þá vinnu sem lögð hefur verið í unglingastarf á íslandi. Þó að þessi fimm hafi verið valin að þessu sinni, þá voru mörg heima á íslandi sem hefðu án efa staðið sig með prýði. Hinrik með þrjú gull Hinrik Bragason tók gull í þremur þeirra fjögurra greina sem hann keppti í. Eitill var mjög öruggur í skeiðinu og bætti sig smávegis í hveijum fyrstu þriggja sprettanna, en hljóp upp í þeim fjórða. Hinrik gekk langbest allra kepp- enda í gæöingaskeiðinu og einnig var hann með töluvert forskot sem sam- eiginlegur meistari. Þá var hann í úrslitum í fimmgangi. Einar með fjórða titilinn Sænski knapinn Magnus Lindquist var efstur eftir forkeppni í fimm- gangi, en honum gekk erfiðlega í úrslitum og lenti í sjötta sæti. Einar Öder Magnússon notaði tækifærið og skaust í efsta sæti. Hann hefur þá orðið Norðurlanda- meistari í fjögur skipti í röð. Fyrst á stóðhestinum Darra frá Kampholti, þá stóðhestinum Hlyn frá Sötofte og í tvö síðustu skiptin Háfeta frá Há- túni. Magnaðir mágar Nýliðinn í landsliðinu, Sveinn Ragn- arsson, kom mest á óvart íslending- anna. Hann sigraði í hvoru tveggja tölti og íjórgangi. Hann býr með Guðrúnu E. Bragadóttur, systur Hin- riks Bragasonar, svo þeir mágarnir fengu fimm gull. Hlýðniverðlaun á heimavelli Finnska stúlkan Satu Paul stóð sig vel í olympísku greinunum og sigraði í hvoru tveggja hlýðni og víðavangs- hlaupi og fékk auk þess siifur í laus- taumatölti. Fullt hús í tölti Árangur íslendinga í tölti var glæsi- legur og sigruðu þeir á öllum þremur vígstöðvunum. Jóhann G. Jóhannesson kom frá Þýskalandi með Galsa frá Skarði og sigraði í laustaumatölti. Guðmar Þ. Pétursson sigraði í tölti í unglinga- flokki og Sveinn Ragnarsson setti punktinn yfir i-ið með sigri í flokki fullorðinna. Lítill áhugi á víðavangshlaupi í víðavangshiaupi tóku þátt þrír Finnar og einn Norðmaður í flokki fullorðinna og tveir Finnar í ungl- ingaflokki, en báðir voru þeir dæmd- ir úr leik. StúfarfráNM Herbert Ólason (Kóki) og tveir félagar hans í Þýskalandi, Jón Steinbjörnsson og Jóhann G. Jó- hannesson, komu með átta hesta til Finnlands. Ferðalagið var dýrt en þeir eru vanir slíkum ferðalög- um í Þýskalandi. Kóki kom með töluvert af varningi til að selja í Finnlandi og hefur ákveðið að gefa helming ágóðans til lands- liðsins. Sú upphæð gæti orðið á milii tvö hundruð og þrjú hundr- uð þúsund króna. Af formannsraunum Jón Albert Sigurbjörnsson, for- maður HÍS, hefur lent í ýmsum uppákomum á ferðum sínum um Finnland. Hann var að aka um Helsinki með nokkurn hóp manna og ætlaði út úr borginni en lenti þá í vandræðum vegna maraþonhlaups sem þar var háð. Jón varö þá að aka út í úthverfi borgarinnar. Gall þá við í einum farþeganna: „Það kemur járn- brautarlest á móti. okkur, þú ekur á teinunum." Beygði Jón með það sama. Síðar um daginn á mótssvæð- inu ekur hann um í sakleysi sínu þegar á móti koma tveir stórir fmnskir hestar með brokkkerrur á mikilli ferð og enn þurfti Jón að beygja. Kom í ljós áð hann ók um aðalkeppnisbrautina og var verið að æfa brokkarana. Aftarlega á merinni Mörgum íslenskum áhorfendum og keppendum brá töluvert þegar dómarar drógu upp gult spjald og beindu þvi að Sigríði Pjetm-s- dóttur knapa í unglingaflokki. Enginn botnaði í sakarefninu en skýringin var sú að hnakkurinn var of aftarlega á hestinum og þykir það töluverð synd á megin- landi Evrópu. Yngri tvisvar út af Danska stúlkan Caroline Rewers, sem er Danmerkurmeistari í fimmgangi, keppti á stóðhesti sem hún á og nefnir Yngri. Henni gekk mjög vel í fimmgangi allt að leiðarlokum er hún klappaði honum á makkann að Yngri skellti sér skyndilega út úr braut- inni. Hið sama gerðist í tölt- keppninni. Þó að í Finnska íslandshestafé- laginu séu einungis um þijú hundruð manns og þar fæðist eingöngu milli tuttugu og þijátíu folöld á ári var framkvæmd móts- ins með ágætum. Fáir aðilar báru meginþunga mótsins en allt gekk hnökralaust fyrir sig og eiga mótshaldarar mikið hrós skilið, jafnt fyrir hugrekkið að taka þetta mót að sér og einnig dugn- aðinn. Fimm íslenskir knapar fengu 8 gullverðlaun á NM I Finnlandi. F.v.: Einar Magnússon, Guðmar Pétursson, Jóhann Jóhannesson, Hinrik Bragason og Sveinn Ragnarsson. OV-myndir E.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.