Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
25
varð jafn hrifin," heldur Esther
áfram. „Til að gera langa sögu stutta
ákvað ég að prófa að setja verkið upp
og Söngsmiðjan auglýsti eftir ungu
fólki til að taka þátt í verkinu og eftir
prufusöng og dans voru þeir valdir
sem veröa með. Þetta er allt ungt og
upprennandi fólk sem hefur imnið
við dans og leiklist síðustu ár og á
áreiðanlega eftir að láta að sér kveða
á næstu árum.“
í staðinn fyrir
líkamsrækt
tónli0tj
Sif Guðmundsdóttir, förðun, Jóhanna Viibergsdóttir, aðstoðarmaður við hárgreiðslu, Helga Rún Pálsdóttir, leikmynd og búningar, Esther Helga Guðmundsdóttir, söngur
og tónlist, og Elva Gísladóttir leikstjóri em í aftari róð og fyrír framan þær em Ómar Diðriksson, hárgreiðsla, Jóhannes Kristjánsson tæknimaður, Jóhannes Bachmann
dansahöfundur og Magnús Kjartansson hljómsveitarstjórí. DV-mynd ÞÖK
Guðjón Bergmann fer með aðal-
karlhlutverkið í söngleiknum og að
hans sögn hafa æfingamar tekið á.
„Þær hafa fyllilega komiö í stað- '
inn fyrir líkamsrækt," segir hann.
„Það verður svo mikið um að vera í
sýningunni að maður má hafa sig
allan við. Sumarið hefur verið
geysilega lærdómsríkt og ég sem hélt
Grease á fjalirnar í Reykjavík
- sýningarhópur Söngsmiðjunnar setur verkið upp á Hótel íslandi
Senn liður að írumsýningu söng- leiksins sígOda, sem segir frá ástum
leiksins Grease hér á landi, gleði- tveggja unglinga í efsta bekk banda-
rísks grunnskóla seint á sjötta ára-
tugnum. Hópur ungs fólks í sýning-
arhópi Söngsmiðjunnar hefur æft
leikinn af kappi í sumar og ætlar að
frumsýna verkið á Hótel íslandi
tíunda september. Ætlunin er síðan
sú að sýna verkið á hótelinu á fóstu-
dögum og laugardögum í september,
samtals sex sinnum.
Esther Helga Guðmundsdóttir æfir
söngvarana sem fram koma i Grease
og gerir það af miklum skörungsskap
að þeirra sögn.
Frumsýndur árið
1971
Kvikmynd sem gerð var eftir
söngleiknum var frumsýnd árið 1978
og sló í gegn um allan heim. John
Travolta og Olivia Newton-John voru
í aðalhlutverkunum og þau sungu
lögin You’re the One That I Want og
Summer Nights sem voru með vin-
sælustu lögum þess árs. Esther Helga
segir að söngleikurinn Grease eigi
sér þó nokkuð lengri sögu en myndin
því að hann var fyrst frumsýndur
árið 1971.
„Viö byggjum okkar sýningu upp
á söngleiknum, ekki myndinni,"
segir hún. „Hún var vissulega góð en
að minu áliti er söngleikurinn bæði
kraftmeiri og skemmtilegri en mynd-
in. Þetta er í fyrsta sinn sem Grease
er sett upp hér á landi í fullri lengd.
Framhaldsskólamir hafa unnið með
hluta úr verkinu, tekið tónlistina og
dansana og þess háttar, en við ætlum
að bjóða upp á alvöru sýningu. Samt
verðum við að stytta verkið nokkuð
og í okkar meðforum verður það um
tvær klukkustundir að lengd.“
Það var Elva Gísladóttir, leikstjóri
verksins, sem tók að sér að stytta
verkið og að sögn aöstandenda þess
á það sennilega eftir að taka breyt-
ingum allt til frumsýningardagsins.
Hreifst í London
En hvers vegna að setja Grease á
svið í fullri lengd núna? A það erindi
til unga fólksins um þessar mundir
þegar hippatískan virðist helst eiga
upp á pallborðið? Aöalleikkonan,
Jóna Sigríður Grétarsdóttir, er á því
að svo sé.
„Ég sá verkið í London og féll ger-
samlega fyrir því,“ segir hún. „Það
var gríðarleg stemning á sýningunni
og hún var alveg einstaklega vel gerð.
Það er að mínum dómi engin tilviljun
að Grease er búið að vera einn
vinsælasti söngleikurinn í London
um margra ára skeið. Þegar ég kom
heim sagði ég Esther frá sýning-
unni.“
„Ég fór svo og sá verkið einnig og
að ég kynni eitt og annað fyrir mér
í söng hef verið tekinn rækilega í
gegn!“
Þau þrjú eru sammála um að
spennandi verði að setja Grease upp
á Hótel í slandi. Það krefj ist að mörgu
leyti annarrar tækni en þegar leikið
er á sviði í nánast eina átt. Á sviði
Hótel íslands þarf að leika í þrjár
áttir. „Þetta gefur okkur líka færi á
að fá áhorfendur til að taka betur
þátt í sýningunni en ef við værum í
leikhúsi," segir Esther Helga Guð-
mundsdóttir. „Við höfum vitaskuld
orðið að laga sýninguna nokkuð að
húsinu en ég er sannfærð um að það
á eftir að reynast okkur vel.“ *
Grease söngleikurinn verður
leikinn á íslensku. Guðjón Sigvalda-
son þýddi verkið fyrir nokkrum
árum og er notast við þýðingu hans
með þeim breytingum sem Elva
Gísladóttir hefur gert á verkinu.
Lögin í verkinu verða hins vegar
sungin á ensku. „Við veltum því
fyrir okkur að nota íslensku textana
en þeir ensku eru einfaldlega of
þekktir til að við getum lagt þeim og
notað íslenska í staðinn,” segir
Guðjón Bergmann. „íslensku text-
amir ná heldur ekki andrúmsloftinu
jafn vel og hinir upprunalegu svo að
ég held að það sé engin spurning að
láta þá halda sér.“
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikur inn fer þannig fram að í hverr i
viku eru birtar þrjár léttar spum-
ingar um tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara
öllum spurningum rétt, hljóta svo
geisladisk að launum frá fyrirtækinu
Japis.
Að þessu sinni eru verðlaunin
diskurinn Last Splash með Breed-
ers.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað kostar Underworld disk-
urinn á Hundadögum?
2. Hvað kostar Breeders diskurinn
á Hundadögum?
Dýrin sem sjást í auglýsingu Hunda-
daga hjá Japis eru að sjálfsögðu
hundar.
3. Hvað kostar Trans Global
Underworld diskurinn á Hunda-
dögum?
Rétt svör sendist DV, merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
1. september og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 8. september.
Hér em svörin úr getrauninni sem
birtist 11. ágúst:
1. Hundadagar.
2. Öll svör rétt.
3. Hundar.