Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Blaðsíða 2
18
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
íþróttir
Ragnheiður Ólafsdóttir:
Okkurtókst
aðaðstoða
strákana
„Ég er mjög ánægð með þetta.
Gærdagurinn var góður og gaf
vonir um að við gætum sigrað og
þetta gekk allt saman upp í dag,“
sagði Ragnheiður Ólafsdóttir,
þjálfari frjálsíþróttaiiðs FH-inga,
viö DV eftir sigur Hafnfirðing*
anna í bikarkeppni FRÍ á Laugar-
daisveUinum á laugardaginn.
„Karlaliðiö hefur ávallt haldið
liðinu uppi og er bikarmeistari í
sjöunda sinn en hingað til hefur
kvennaliðið okkar verið i neðri
kantinum. Það ánægjulegasta við
sigurinn er að okkur skyldi tak-
ast að aðstoða strákana,“ sagði
Ragnheiður sem sjáif sigraði í
tveimur greinum.
Um eigin fVamlag sagði hún:
„Ég hef ekki keppt í sex ár og hef
átt tvö börn í millitíðinni þannig
að þetta voru mikil viðbrigði en
jafnframt ánægjulegt að geta hai-
að þessi stig inn. Bima Björns-
dóttir sundkona hefur alltaf stað-
ið síg vel fyrir okkur í bikarnum
en hún meiddist í vor þannig að
ég fór aö æfa. Bima varð síöan
önnur í 800 metrunum þrátt fyrir
að hafa æft í 9kamman tima og
stóð sig frábærlega eins og Helga
Haiidórsdóttir sem kom til liðs
við okkur.
Þetta hefur veriö mjög gott
tímabil og við erum að fagna tvö-
íoldum sigri því aö viö vorum líka
aö taka á móti íslandsmeistara-
bikarnum. Ég vona að þessi ár-
angur verði tii þess að við fáum
bætta aðstöðu í Hafnarfirði. Fót-
boltafélögin hafa frábæra aö-
stöðu en við höfum setið á hakan-
um í öll þessi ár. Allir þessir topp-
menn okkar, flestir landsliðs-
menn, þurfa aö sækja allar sínar
æfingar hingað inn í Reykjavik
og krakkarnir og unglingamir
þurfa að gera það líka. Þetta eru
aðstæður sem ekkert 1. deildar
félag í fótbolta myndi láta bjóða
sér. Við erum með mjög gott
keppnisfóik en það fer aö koma
tími á suma og undirstaðan aö
uppbyggingu unglingastarfsins
er að hafa góða aðstööu heima
fyrír. Ég vona aö þessi árangur
verði aðalstjórn FH og nýrri bæj-
arstjórn hvati til þess að bæta
úr,“ sagði Ragnheiður.
FH-ingar fagna innilega sigrinum á laugardaginn. Ragnheiður Ólafsdóttir, þjálfari og sigurvegari í tveimur greinum, er fremst fyrir miðju. DV-mynd GS
FH-ingar eru bestir
- bikarmeistarar í frjálsum íþróttum 1 annað sinn á þremur árum
4. UMSB................(71+65) 136
5. HSH.................(41+34) 75
FH varð á laugardaginn bikar-
meistari í fijálsum íþróttum í annaö
sinn á þremur ámm en þá lauk bik-
arkeppni FRÍ á Laugardalsvelli. FH-
ingar börðust við meistarana frá
1993, HSK-menn, sem höfðu betur til
að byija með en FH-ingarnir sigu
fram úr á fostudagskvöldið og náðu
þá sjö stiga forystu sem þeir voru
ekki í vandræðum með að veija á
laugardeginum. Ellefu stig skildu lið-
in að þegar upp var staðið.
Það vom Skagfiröingar (UMSS) og
ÍR-ingar sem féllu í 2. deiid en loka-
staðan í 1. deild varð þessi (karlar +
konur, samanlagt):
1. FH.................(86 + 68) 154
2. HSK................(66 + 77) 143
3. UMSK...............(67 + 56) 123
4. Ármann.............(48 + 73) 121
5. UMSS.............(70 + 28) 98
6. ÍR...............(59 + 34) 93
Eyfirðingar og Þing-
eyingar í 1. deildina
Keppni í 2. deild fór fram samhliða.
Eyfirðingar (UMSE) og Þingeyingar
(HSÞ) tryggðu sér sæti í 1. deild eftir
haröa keppni viö Húnvetninga.
Lokastaðan í 2. deild:
1. UMSE.............(81 + 79) 160
2. HSÞ..............(90 + 66) 156
3. USAH.........(83 + 72) 155
6. HHF (sendi ekki Uð)
Jón Arnar Magnússon úr UMSS
var afreksmaður mótsins. Hann setti
glæsilegt íslandsmet í langstökki
með því að stökkva 8 metra slétta og
sigraði alls í 5 greinum. Vésteinn
Hafsteinsson, HSK, og Gunnlaugur
Skúlason, UMSS, sigruðu í tveimur
greinum hvor.
Guðrún Amardóttir úr Ármanni
sigraði í þremur greinum í kvenna-
flokki og þær Ragnheiður Ólafsdótt-
ir, FH, og Geirlaug B. Geirlaugsdótt-
ir, Ármanni, í tveimur hvor. Árang-
ur Ragnheiðar er glæsilegur, hún
hafði ekki keppt í sex ár en sigraði
Fríðu Rún Þórðardóttur, UMSK,
bæði í 1.500 og 3.000 metra hlaupum.
FH varð bikarmeistari í karlaflokki
en HSK í kvennaflokki.
Glæsimet
Jóns Arnars
Jón Arnar Magnússon úr UMSS
setti glæsilegt íslandsmet í lang-
stökki í bikarkeppni FRÍ á föstudags-
kvöldið þegar hann stökk 8 metra
slétta, fyrstur íslendinga. Hann átti
best áður 7,64 metra en íslandsmet
Kristjáns Harðarsonar var 7,79 metr-
ar. Mjög fáir tugþrautarmenn í heim-
inum hafa náö að stökkva 8 metra
og Jón Arnar hefur til þessa ekki
lagt sérstaka áherslu á langstökkið.
Hann heföi verið einum sentímetra
frá bronsi á Evrópumeistaramótinu
á dögunum með þessum árangri.
„Ég vissi að ég ætti þetta inni því
ég hafði gert hárfínt ógilt í nokkrum
stökkum upp á átta metra. Stökkið
sjálft var ekkert sérstakt, tæknilega
séð, en krafturinn var nógur og gerði
útslagið. Ég ætti því að geta bætt mig
meira,“ sagði Jón Arnar við DV.
Nú er spumingin hvort hann fer
að einbeita sér aö langstökkinu eför
þennan árangur. „Ég ætla að hugsa
málið vel en það er óneitanlega
freistandi að taka eitt ár í langstökk-
ið og sjá hvort ég get ekki gert eitt-
hvað meira þar,“ sagði Jón Amar.
Atta metrunum náð
Jón Arnar Magnússon bendir á átta metra markið í langstökksgryfjunni á
Laugardalsvelli. Afrek hans er sennilega það fjórða besta á Norðurlöndum
í ár. DV-mynd GS
FORSALA A fTTTTFFl HFFST
1. SEPTEMBER
•'*' RATVÍS
*<»»»!.'■'• _______ — -
ICHAND
1995 J
BNKASðLUAÐiu S: 96-12999, 96-12800, 91-641522