Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Qupperneq 5
20
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
21
Iþróttir
Iþróttir
l.deildkvenna:
Ingibjörg Hinriksdáttir skrí&n
Islandsmeistarar KR áttú ekki
í neinum vandræðum meö slakt
lið Stjörnunnar i 1. deild kvenna,
Mizuno-deildinni, á laugardag.
KR sigraði örugglega, 4-0, og er
næsta öruggt með annað sætið.
KR bytjaði leikinn með miklum
látum og eftir aðeins 6 mínútna
leik höfðu þær Ásdis Þorgilsdótt-
ir og Ásthildur Helgadóttir skor-
að og Anna Jónsdóttir bætti
þriðja markinu við á 18. mínútu.
Síöari hálfleikur var ekki eins
fjörugur. Stjörnustúikur komu
meira inn í leikinn og náðu
nokkrum ágætum sóknum. KR-
stúlkur léku af öryggi og á 50.
mínútu skoraði Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir fjórða markiö.
Hrafnhildur var mjög baráttu-
glöð í fremstu víglínu KR og var
óeigingjörn í leik sínum. Þá átti
Guðlaug Jónsdóttir stórgóðan
leik, lagði upp þrjú mörk og var
óheppin að skora ekki sjálf. Sig-
ríður Þorláksdóttir var sú eina í
liði Stjömunnar semiék af getu.
Maöur leiksins: Hrafnhildur
Gunniaugsdóttir, KR.
Þórunn varði tvö viti
Sirrý Hrönn Haraldsdóttir skor-
aði fimm mörk gegn Dalvik þegar
Valsstúlkur léku þar á laugardag.
Valur sigraði í leiknum, 1-7, og
þar með féll Dalvík i 2. deild.
Valsstúikur fengu tvær víta-
spyrnur í leiknum en Þórunn Sig-
urðardóttir, þjálfari og mark-
vörður Dalvíkur, gerði sér lítiö
fyrir og varöi báðar spyrnurnar.
Auk Sirrýar skoruðu þær Arn-
ey Magnúsdóttir og Ásgerður II.
Ingibergsdóttir sitt markiö hvor.
Margrét Jónsdóttir skoraði fyrir
Dalvík.
Maöur leiksins: Sirrý Hrönn
Haraldsdóttir, Val.
3. deild:
Skallagrímur skaust á topp 3.
deildarinnar í knattspyrnu á
föstudagskvöldið með stórsigri á
Reyni í Sandgerði, 1-7. Valdimar
K. Sigurðsson 2, Hjörtur Hjartar-
son 2, Haraldur Hinriksson 2 og
Bjöm Axelsson skoruðu fyrir
Borgttesinga, sem nú eiga gullna
möguleika á 2. deildar sæti, en
Jónas Jónasson svaraði fyrir
Reynismenn sem eru illa staddir
og hafa ekki unniö í sfðustu 13
leikjum sínum.
Víðir komst i annað sætið með
0-3 sigri á Haukum í Hafnarflrði.
Njáll Eiðsson, Guðmundur Valur
Sigurösson og Hlynur Jóhanns-
son skoraöu mörkin.
Fjöinir féll niður í 3. sæti með
2-0 tapi gegn BÍ á ísafiröi. Sindri
Grétarsson og Haukur Bene-
diktsson gerðu mörkin. ■
Höttur styrkti stöðu sína með
4- 0 sigri á Tindastóli. Mörkin
gerðu Haraldur Klausen, Hilmar
Gunniaugsson, Eysteinn Hauks-
son og Viðar Jónsson.
Dalvík komst úr falisæti meö
óvæntum stórsigri á Vöisungi,
5- 1. Örvar Eiríksson 2, Jón Þórir
Jónsson, Birgir Össurarson og
Arnar Már Amþórsson skoruðu
fyrir Dalvik en Þröstur Sigurðs-
son fyrir Völsung.
Skallagr....16 10 2 4 42-22 32
Víðir.......16 8 7 1 32-16 31
Fjölllir.....16 9 4 3 29-18 31
Völsungur.... 16 7 7 2 27-20 28
BÍ...........16 8 3 5 34-27 27
Höttur.......16 5 2 9 23-26 17
Ttndastóil...16 3 6 7 17-32 15
Dalvík.......16 4 2 10 29-35 14
Reynir.S.....16 3 5 8 16-34 14
Haukar.......16 3 2 11 14-33 11
-ÆMK/MJ/HK
Sagt eftir úrslitaleikiim:
„Vonandi
bara
byrjunin"
Heimir Porca:
„Mér líður
hreintótrúlega
vel. Þetta var
annar bikar-
meistaratitill
minn, sá fyrri
var með Val,
en þessi var
miklu sætari. Þetta var sanngjam
sigur og betra Uðið vann. Ég fann
mig vel. Það var gaman að spila í
svona góðu veðri og stemningin á
vellinum var frábær.
Þaö hefur verið stórmunur á leikj-
um okkar í deildinni og í bikarnum
og miklu meiri barátta og stemning
hefur verið í bikarleikjunum. Þetta
er frábær hópur hjá KR og vonandi
er þetta bara byrjunin á einhverju
meira,“ sagði Heimir Porca, einn al-
besti leikmaður vallarins, við DV eft-
ir leikinn.
Rúnar Kristinsson:
„Þetta var al-
veg meiri hátt-
ar. Það var
mjöggamanað
skora og taka
þátt í þessum
sigri. Þeir eru
með sterkt hð,
sérstaklega varnarlega, en við feng-
um færi til að skora í fyrri hálfleik.
í leikhléi ræddum við um að halda
áfram að sækja, við sáum að þetta
var hægt og við töluðum um að reyna
að setja á þá mark sem fyrst. Við
markið losnaði aðeins um pressuna
og við fengum meira svæði til aö
spila.
Ég fékk þetta færi, þegar ég skor-
aði, upp í hendumar og ákvað að
vera ekkert að bíða; lét vaða og hitti
boltann mjög vel. Sumrinu er bjarg-
að. Við höldum áfram í deildinni og
reynum að koma okkur ofar,“ sagði
Rúnar Kristinsson sem átti frábæran
leik í liði KR.
Þormóður Egilsson:
„Þetta er alveg ótrúleg tilfinning.
Maður hefur ekki lent í þessu áður
og þetta er mjög gaman. Það má segja
að maður hafi beðið alla ævi eftir því
að KR ynni bikar og það var ekki
leiðinlegt að hampa bikarnum eftir
leikinn. Þeir komu okkur svolitið á
óvart í fyrri hálfleik, þeir sóttu fram-
ar en við áttum von á og þar af leið-
andi gátum við ekki spilað okkar
bolta.
í síðari hálfleik fór þetta að ganga
og eftir að við skoruðum fyrra mark-
ið var ég svo til alveg viss um að sig-
urinn yrði okkar þó svo að maður
leyfði sér ekki að brosa. Þetta var
titill sem við stefndum á og nú ætlum
við bara að ná 2. sætinu í deildinni.
Ef þaö næst verður maður tiltölulega
sáttur við tímabihð," sagði Þormóð-
ur Egilsson, fyrirliði KR.
Lúkas Kostic:
„Við töpuöum
en ég er samt
ekki óánægður
með þennan
úrslitaleik.
Mínir leik-
menn sváfu
ekkert í nótt,
þeir voru stressaðir en þetta var ekki
viðureign Davíðs og Golíats eins og
margir höfðu spáð. Þeir skoruðu úr
sínum færum en viö klúðraöum okk-
ar og ég óska þeim til hamingju.
Svona er fótboltinn og ég er stoltur
af mínum strákum,“ sagði Lúkas
Kostic, þjálfari Grindvíkinga.
Hann lék síðasta hálftímann en
voru það ekki mistök hjá honum að
spila ekki allan leikinn? „Nei, ég er
ekki tilbúinn að spila heilan svona
leik. Ég æfi mjög lítiö og kem inn á
þegar þarf, í þær stöður sem nauð-
synlegt er hverju sinni.“
Milan Jankovic:
„Þetta var jafn leikur, boltinn gekk
mjög vel en þeir vora heppnir og
skoruðu tvö mörk. Við vorum svolít-
ið stressaðir, það var pressa á okkur
en við spiluðum betur í seinni hálf-
leiknum og áttum möguleika þar til
þeir skoruðu seinna markið. Okkar
takmark var að standa okkur vel,
bæði í íslandsmótinu og bikamum.
Nú er bikarinn búinn og það yrði
gaman að komast með liðið upp í 1.
deild,“ sagði Milan Jankovic, fyrir-
liði Grindvíkinga.
Grétar Einarsson:
„Fyrri hálfleikurinn var í nokkra
jafnvægi en þeir vora sterkari í
seinni hálfleik. Þegar við lentum
undir var þetta orðið erfitt fyrir okk-
ur. Ég er sáttur við leikinn þó maður
sé aldrei sáttur við að tapa. Nú er
bara að klára 2. deildina og koma sér
upp,“ sagði Grétar Einarsson, sókn-
armaður Grindvíkinga.
Enn von hjá ÍR - eftir 2-2 jafntefli gegn Selfyssingum ari framan nf np hnrrSnst allir Qpm
Svanur Valgeírsson skrifer: einn maður, greinilega með stöð- una í deildinni í huga. Fyrsta mark- ið kom eftir þunga sókn, innkast, skalla í þverslá og síðan skaiia í mark. Selifyssingar tóku á sig rögg, komust meira inn í leikinn og jöfn- uðu síðan skömmu eftir að þeir höfðu bjargað á linu eftir skalla utan úr teig. Seinni hálfleikurinn einkenndist af baráttu á báða bóga og mátti vart á milli sjá hvort liðið væri sterkara. Enda fór það svo að bæði hð bættu við marki og sættust á skiptan hlut.
1-0 Bragi Björnsson (17.) 1-1 Guðjón Þorvarðarson (42.) 1- 2 Sigurður Guðmundsson (58.) 2- 2 Bragi Bjömsson (85.) Þegar þrjár umferðir era eftir í 2. deildinni í knattspymu halda ÍR-ingar enn í vonina um að halda sæti sínu í deildinni. Liðið fékk Selfoss 1 heimsókn á fóstudags- kvöld og skildu liðin jöfn, 2-2, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1-1. Heimamenn vora mun sókndjarf-
Víðir Sigurðsson skrifar
Þar kom að því. Eftir allan þennan
tíma og alla spennuna sem byggst hefur
upp ár frá ári í Vesturbænum síðasta
aldaríjórðunginn rann stóra stundin
upp. Islandsmeistarar 1968 og bikar-
meistarar 1967 en síðan hafa KR-ingar
mátt bíða og bíða þar til Eyjólfur Ólafs-
son ílautaði til leiksloka á Laugardals-
vellinum laust fyrir klukkan 4 í gær.
KR vann 2. deildar lið Grindavíkur
verðskuldað, 2-0, í úrslitaleik Mjólkur-
bikarsins og fáum bikarsigram hefur
verið eins innilega fagnað og þessum -
af þúsundum KR-inga sem loksins
fengu að sjá sína menn taka við öðrum
af tveimur æðstu sigurlaunum ís-
lenskrar knattspymu.
KR réð að mestu ferðinni í fyrri hálf-
leik en Grindvíkingar áttu þó ágæta
sóknarkafla inni á milli. Dauðafærin
vora KR-inga og þau bestu komu á síð-
ustu 6 mínútum hálfleiksins. Hilmar
Bjömsson komst einn inn fyrir vörn
Grindavíkur en Haukur Bragason varði
glæsilega, síðan aftur hættulegt skot frá
Heimi Porca og Rúnar Kristinsson
þrumaði hárfint yfir Grindavíkur-
markið frá vítateig. Þórarinn Ólafsson
komst næst því að skora fyrir Grinda-
vík á 22. mínútu en skaut fram hjá úr
ágætu færi eftr homspyrnu.
Mörg KR-hjörtu misstu úr slag á 52.
mínútu þegar Gunnar Már Gunnarsson
sendi fyrir mark KR frá vinstri kanti
og boltinn sigldi alla leið í stöngina fjær
og þaðan út á völlinn. En aðeins tveim-
ur mínútum síðar skoraði Rúnar, 1-0,
og þá var KR endanlega komiö með
imdirtökin. Einar Þór Daníelsson inn-
siglaði sigurinn, 2-0, en Grindvíkingar
fengu sín bestu færi á lokakaflanum.
Grétar Einarsson, Lúkas Kostic og Þór-
arinn Ólafsson áttu þá allir hættuleg
skot sem smugu rétt utan við stengur
KR-marksins.
Helgi Jónssan, DV, Ólafefirdi:
1- 0 Páll Guömundsson (15.)
2- 0 Pétur B. Jónsson (30.)
2- 1 ívar Bjarklind (33.)
3- 1 Gunnar Már Másson (41.)
3-2 ívar Bjarklind (68.)
3-3 Stefán Þórðarson (78.)
Þaö má segja að ólánið eiti Leift-
ursliðið á röndum. Liöið spilaði KA
langtimum saman en leiknum lauk
með 3-3 jafnteíli eftir að staðan í
leikhléi haiði verið 3-1. Páll Guð-
mundsson skoraði fyrsta markið
með skoti utan teígs og Pétur Bjorn
skoraði annað markið úr víti. ívar
Bjarklind minnkaði muninn úr
umdeildri aukaspyrnu en Gunnar
Már skoraði þriðja markið af harð-
fylgni eftir hornspyrnu.
KA sótti svolítið framan af siðari
hálfleik og skoraði í tvígang, fyrst
ívar Bjarklind eftir stungusend-
ingu og síðan Steian Þórðarson eft-
ir mikil mistök í vörn Leifturs. Eft-
ir þaö áttu Leiftursmenn leikinn
og fengu góð færi sem ekki nýtt-
ust. KA-menn fengu líka færí og
vildu fá dæmt víti en þeir vildu
meina að varnarmaður Leifturs
hefði varið boltann með hendi. Upp
úr þessu var Erlingi Kristjánssyní,
þjálfara KA, sýnt rauða spjaldið.
Ferna hjá Kristni
- þegar Fylkismenn möluðu HK, 7-0
Ægir Már Karasan skiifer
1- 0 Kristinn Tómasson (8.)
2- 0 Aðalsteinn Víglundsson (12.)
3- 0 Kristinn Tómasson (25.)
4- 0 Kristinn Tómasson (32.)
5- 0 Kristinn Tómasson (39.)
6- 0 Sjálfsmark (48.)
7- 0 Zoran Micovic (80.)
„Fyrri háifleikur gekk allur upp hjá
okkur og ég hef varla séð annað eins.
HK var búið aö standa í hinum topplið-
unum og markmiðiö hjá okkur var að
koma marki á þá í byijun og brjóta þá
niður,“ sagði Kristinn Tómasson sem
skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik þegar
Fylkir vann HK, 7-0, í 2. deildinni í Ár-
bænum á föstudagskvöldið.
HK var sterkara fyrstu 5 mínúturnar
en svo var það búið. Fylkismenn réðu
ferðinni eftir það, þeir era á mikiUi sigl-
ingu og eiga að geta tryggt sér 1. deildar
sæti með þennan mannskap og spil. Bar-
áttuleysi HK kom hins vegar verulega á
óvart þar sem liðið hefur staðið sig mjög
vel að undanfömu. Leikmenn áttu erfitt
með auðveldustu sendingar og þetta er
slakasti leikur þess í sumar.
„Við þurftum að breyta liðinu þar sem
okkur vantaði tvo menn. Það var mjög
erfitt að fá svona ódýr mörk á okkur en
Kristinn skaut fjórum skotum á markið
sem öll fóru inn,“ sagði Atli Eðvaldsson,
leikmaður og þjálfari HK.
Frammistaða liðanna:
RúnarogPorca
fóruákostum
hjá KR-ingum
KR-ingar fagna langþráðum bikarsigri. Frá vinstri, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Atli Knútsson, Þormóður Egilsson fyrirliði, Tryggvi Guðmundsson og Guðjón Þórðar-
son þjálfari. DV-mynd EJ
Loksins
- 2-0 gegn Grindavík og bikarinn kominn í Vesturbæinn eftir 27 ára bið
Guðmundur Hilmajsson, skrifar:
KR-ingar léku lengst af leiknum af
mikilli festu. Þeir höfðu frumkvæðið
allan leikinn, sköpuðu sér fleiri
marktækifæri og spúuðu í heild mun
betur en Grindvíkingar. Tveir leik-
menn KR-hðsins skáru sig úr fyrir
góða frammistöðu en það voru þeir
RúnarKristinssonogHeimirPorca. ,
Rúnar var eitraður í framlínunni,
skapaði sér færi upp á eigin spýtur
og gerði markið á laglegan hátt. Rún-
ar gerði hvað eftir annað usla í vörn
Grindvíkinga með leikni sinni og
snerpu og var sterkur í öllum návígj-
um sem hann lenti í, örugglega besti
leikur Rúnars í sumar. Porca átti
hreint frábæran leik og bæði mörkin
komu eftir sendingar frá honum.
Hann var geysilega útsjónarsamur
og hver sending frá honum var þaul-
hugsuð. Með frammistöðu eins og í
þessum leik og fleiri leikjum KR í
sumar er Porca farinn að banka
hressilega á dyr landsliðsins.
Hilmar Björnsson var mjög spræk-
ur á kantinum og sýndi nú loks hvers
tann er megnugur. Heimir Guðjóns-
son lék af festu, var akkerið á miðju
iiðsins og vann mjög vel fyrir liðið.
Frekar lítið reyndi á vörnina og
Kristján í markinu en í fyrri hálfleik
örlaði þó á nokkru óöryggi í vöm-
inni. Liðsheild KR-inga var i heild
mjög heilsteypt og betra hðið vann
sanngjarnan og öruggan sigur.
Hetjuleg barátta Grindvíkinga
Grindvíkingar þurfa ekki að skamm-
ast sín fyrir frammistöðuna í þessum
leik. Þeir hittu að vísu ofjarla sína
en engu að síður veittu þeir KR-
ingum harða keppni. Mikil tauga-
spenna einkenndi leik Grindvíkinga
framan af fyrri hálfleik en eftir að
mesti skrekkurinn var hðinn hjá
fóru þeir að bíta frá sér. Grindvíking-
ar náðu ekki að ógna marki KR veru-
lega fyrr en undir lok leiksins en
fram að því höfðu þeir leikið aftar-
lega á velhnum og farið frekar hægt
upp í sóknirnar.
Varnarleikurinn var ágætur og þar
átti Serbinn Jankovic mjög góðan
leik þrátt fyrir að síðara mark KR
verði að skrifa á reikning hans.
Gunnar M. Gunnarsson komst ágæt-
lega frá leiknum en átti þó í vand-
ræðum með Hilmar á kantinum.
Miðjumennirnir komust lítt áleiðis
gegn hinum sterku miðjumönnum
KR. Ingi Sigurðsson var þó sívinn-
andi og reyndi að drífa félaga sína
með sér og Sigurður Sigursteinsson
gerði ágæta hluti en Ólafur Ingólfs-
son, einn sterkasti leikmaður hðsins
í sumar, náði sér ekki á strik. Grétar
Einarsson og Þórarinn Ólafsson
höfðu ekki úr miklu að moða en í þau
skipti sem þeir fengu boltann voru
þeir hættulegir. Haukur Bragason
sýndi snillartilþrif í fyrri hálfleik en
ekki er hægt að saka hann um mörk-
in tvö. Lúkas Kostic kom inn á í síð-
ari hálfleik og með tilkomu hans kom
meiri festa í leik liösins og spurning
er hvort hann hefði átt að stilla sér
upp í byrjunarliðið.
Bikarævintýris Grindvíkinga verð-
ur lengi minnst og hetjuleg barátta
skilaði þeim í úrslitaleikinn. Við tek-
ur barátta um að komast upp í 1.
deildina og Grindvíkingar hafa sann-
að að þangað eiga þeir fullt erindi.
KR-Grindavík
(0-0) 2-0
1- 0 Rúnar Kristinsson (54.). Heimir Porca sendi boltann inn fyrir Milan
Jankovic, Rúnar fékk hann einn gegn Hauki markverði og skoraði af öryggi.
2- 0 Einar Þór Daníelsson (73.). Heimir Porca var aftur á ferð, náði boltan-
um af Jankovic á miðjum vallarhelmingi Grindavíkur og sendi inn á víta-
teigshomið vinstra megin þar sem Einar kom og sendi boltann í homið fiær.
Lið KR: Kristján Finnbogason - Þormóður Egilsson, Óskar Hrafn Þorvalds-
son, Sigurður B. Jónsson, Daði Dervic - Hilmar Bjömsson, James Bett (Ein-
ar Þór Daníelsson 55.), Heimir Guðjónsson, Tryggvi Guðmundsson - Rúnar
Kristinsson, Heimir Porca (Tómas Ingi Tómasson 83.).
Lið Grindavíkur: Haukur Bragason - Hjálmar Hallgrímsson (Lúkas Kostic
64.), Þorsteinn Guðjónsson, Milan Jankovic, Gunnar Már Gunnarsson (Páll
V. Bjömsson 80.) - Ingi Sigurðsson, Guðjón Ásmundsson, Sigurður Sigur-
steinsson, Ólafur Ingólfsson - Grétar Einarsson, Þórarinn Ólafsson.
KR: 25 markskot, 9 hom, 16 aukaspymur. Grindavík: 14 markskot, 1 hom,
10 aukaspymur.
Gult spjald: James Bett (KR), viljandi hendi.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, hafði góð tök á leiknum allan tímann.
Áhorfendur: 5.339 seldir miðar, alls um 6.000 manns.
Skilyrði: Frábær, sól og blíða, völlurinn meö besta móti.
Menn leiksins: Rúnar Kristinsson og Heimir Porca (KR). Áberandi bestu
menn vallarins, sífellt ógnandi og með góðar sendingar. Porca iagði upp
bæði mörkin, það fyrra fyrir Rúnar, og er sannarlega í landsliðsklassa.
- í úrslitakeppni 4. deildarinnar
Allt bendir til þess að KS frá Purisevic 2 og Kristján Baldursson
Siglufirði og Leiknir úr Reykjavik skoraðu fyrir Sindra en Heiðar
mætist í úrslitaleikjum um sæti i Ömarsson 2, Róbert Arnþórsson 2,
3. deild eftir góða útisigra í fyrri Magnús Bogason og Gústaf Arnar-
leikjum 8-liða úrslita 4. deildarinn- son fyrir Leikm.
ar á laugardaginn. Tvísýnna er um Ægir vann Víking frá Ólafsvík í
hina viðureignina þvi tveimur fjörugum leik í Þorlákshöfn, 4-3,
leikjum þar lauk meö naumum enjafntvai-áöllumtölum. Kjartan
heimasigrum. Heigason, Halldór Páll Kjartans-
KS sótti Njarðvíkinga heim og son, Sævar Birgisson og Þórarinn
vann, 2-4. Hallgrímur Sigurðsson Jóhannsson skoruðu fyrir Ægi en
og ívar Guðmundsson skoruðu fyr- Guðlaugur Rafiisson 2 og Friðrik
ir heimamenn en Ragnar Hauks- Friðriksson fyrir Víking.
son2,HaíþórKolbeinssonogStein- Magni vann Hugin fró Seyðis-
grímur Örn Eiðsson fyrir KS. firði, 1A), á Grenivík og skoraðí
Leiknir vann öruggan sigur á Bjami Áskelsson sigurmarkið.
Sindra frá Hornafirði, 3-6. Ejub -ÆMK/MJ/SH/HK
KRnáðiVal
KR-ingar, sem uröu bikarmeist-
arar sjö sinnum frá 1960 til 1967,
náðu Val með sigrinum í gær.
Bæði félög hafa 8 sinnum hampaö
hikamum. Fram kemur næst
með 7 bikarsigra og ÍA meö 6.
Fimmunniðáður
Kristján Finnbogason, mark-
vörður KR, varð bikarmeistari
annað áriö í röð, sem og Guðjón
Þórðarson þjálfari, þá með ÍA.
Guðjón varð fimm sinnum bikar-
meistari sem leikmaður ÍA. Daði
Dervic og Heimir Porca unnu
bikarinn með Val 1992 og Sigurð-
ur B. Jónsson með ÍA 1986.
Annað mark Rúnars
Rúnar Kristinsson skoraði sitt
annað mark í bikarúrslitaleik í
gær en hann gerði mark KR gegn
Val árið 1990.
AfmælisgðöfDóra
Halldór Pálsson, fyrrum mark-
vörður KR, fagnaði meira en
flestir KR-ingar um helgina.
Hann leiddi eldri flokk KR til ís-
landsmeistaratitils á laugardag-
inn, sem fyrirliði, og í gær varð
KR bikarmeistarí á 37 ára afmæi-
inu hans.
’Sðkynsióðin
Árgangurinn 1969 myndaði ein-
hvern sigursælasta yngri flokk
KR frá upphafi, sem hampaði ís-
landsmeistaratitlum frá 5. upp í
2. flokk. Fjórir úr honum voru í
sigurliði KR í gær, Rúnar Krist-
insson, Hilmar Björnsson, Heím-
ir Guöjónsson og Þormóður Eg-
ilsson, og einn í liði Grindavíkur,
Þorsteinn Guðjónsson.
Atlívarstöðvaður
Atli Eðvaldsson, leikmaður
meö KR undanfarin íjögur ár og
aðstoðarþjálfari seinni tvö, komst
seint að til að fagna sínum gömlu
félögum. Öryggisvörður hindraði
hann í að fara niður í búnings-
klefann lengi vel en Atli slapp
ioks niöur þegar hann fékk lánað
„öryggiskort" frá blaðamanni
DV!
ÓvæntfyrirHjálmar
Bikarúrshtaleikurinn var
óvæntur bónus fyrir Grindvík-
inga, og einna mest fyrir Hjálmar
Hallgrimsson. Hann var hættur
en fór að æfa meö liðinu í vor,
af lítilli alvöru, en var síðan til
taks þegar bakvörðurinn Björn
Skúlason fótbrotnaði fyrir
skömmu.
, DEILD KARLA
IFÓTBOLTA
Grindavík. ....15 10 2 3 30-10 32
Fylkir ....15 9 2 4 41-19 29
Leiftur .... 15 8 5 2 37-19 29
Þróttur, R. .... 15 7 4 4 23-16 25
Víkingur... ....14 7 3 3 24-19 24
Selfoss ....15 4 5 6 17-34 17
KA ....15 4 3 8 22-28 15
HK ....15 3 4 8 12-28 13
Þróttur, N. ....14 2 4 8 15-29 10
ÍR ....15 2 4 9 15-34 10
/Kizina
ISLANDSMÓTIÐ
1. DEILD KVENNA
MIZUNO-DEILDIN
þriðjud. 30. ágúst
kl. 18.30
Ásvellir, Hafnarf.
Haukar-ÍA
Kópavogsvöllur
UBK-Höttur