Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Qupperneq 32
Hafir þú ábendipgu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994.
Fjárlagavinnan:
Hagvöxtur
skili nær
fjórum
milljörðum
Drög ríkisstjórnarinnar að fjárlög-
um fyrir næsta ár gera ráð fyrir nær
óbreyttum útgjöldum rikissjóðs að
raungildi á næsta ári miðað við gild-
andi fjárlög, eða um 114 milljörðum.
Tekjurnar eru áætlaðar 106,5 millj-
arðar og hefur þá verið tekið tillit til
1,5 milljarða tekjubrottfalls vegna
skattalagabreytinga. Takist ríkis-
stjórninni að halda þessum fjárlaga-
ramma verður rekstrarhalh ríkis-
^sjóðs 7 til 7,5 milljarðar á næsta ári.
Þegar ríkistjórnin lagði fram fjár-
lagafrumvarp fyrir ári var gert ráð
fyrir að tekjurnar yrðu 103,5 millj-
arðar og gjöldin 113,3 milljarðar.
Samkvæmt því var hallinn áætlaður
9,8 milljaröar.
Sé tekið mið af þessu gera fyrir-
liggjandi fjárlagadrög ráð fyrir því
að tekjumar aukist um 2,9 prósent
milli ára og að útgjöldin aukist um
0,6 prósent. Gert er ráð fyrir að
landsframleiðslan aukist um 1,5 pró-
sent milli ára. Tekjuauki ríkisins
-vegna hagvaxtar er áætlaður hátt í 4
milljarðar sé tekið mið af síðasta fjár-
lagafrumvarpi.
Borgarráð:
Leyf ir kindabú-
skap í Jóruseli
Borgarráð Reykjavíkur hefur
heimilað Ólafi Dýrmundssyni ráðu-
naut að halda sex kindur í hesthúsi
sínu við Jórusel í Reykjavík.
„Hann sótti bara um leyfi fyrir
þrjár til fimm kindur. Þetta verður
enginn sauðfjárstofn, bara nokkur
gæludýr. Við erum búin að ganga frá
^hesthúsi og hesthúsleyfi við Jórusel
í Reykjavík og Ólafur óskaöi eftir
leyfi til að hafa kindur þar. Við eigum
ekki hesta ennþá en hann var að
hugsa um að fá kindurnar í vetur
um leið og hann setti hesta þar inn,“
segir Svanfríður S. Óskarsdóttir, eig-
inkona Ólafs.
„Það er ekkert sem bannar sauð-
fjárhald innan borgarmarkanna. Það
þarf að leita heimildar borgaryfir-
valda en það er almennt ekki gert ráð
fyrir þvi. Stefnan hefur verið sú að
útrýma sauðfjárbúskap úr borgar-
landinu en þetta hverfi við Jórusel
var skipulagt með dýrahald í huga.
Okkur fannst tilraunarinnar virði að
sjá hvernig það gengi,“ segir Ingi-
^björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
LOKI
Er þetta nú ekki dálítið
kindarlegt hjá borgarráði?
Ekki marktæk
ur munur á 103
vörutegundum
- vöruverö hefur hækkaö um 10-15% frá verðstríðinu á Akureyri
„Það er ljóst að kaupfélagsmenn
hafa staðið við þau fyrirheit að
hækka ekki vöruverð umfram
Bónus og það er nánast enginn
marktækur munur á vöruverðí í
KEA NETTÓ á Akureyri og í Bón-
usi í Reykjavík," segir Vilhjálmur
Ingi Árnason, framkvæmdastióri
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis, um verökönnun sem fé-
iagið stóð fyrir í verslununum gerð var fyrir 6 mánuðum.
tveimur í gærdag. „Þessi hækkun er ekki óeðlileg
Af 120 vörutegundum fengust 103 þar sem vöruverðið var þá vægast
í báðum verslununum og var verð sagt óeðlilegt. Það er alveg Ijóst að
á þeim nánast það sama í heildina. keppinautarnir fylgjast mjög
Vöruverðið hefur hækkað um grannt með verði hvor hjá öðrum
10-15% síðan í því mikla verðstríði og fyrir okkur neytendur vona ég
sem háð var er Bónus var með aö svo verði áfrarn," sagði Vil-
verslun á Akureyri en til saman- hjálmur Ingi við DV í morgun.
burðar var stuðst við könnun sem
Veðrið á morgun:
Hlýjast
á Suðvestur-
landi
Á morgun verður austan- og
norðaustanátt, sums staðar
stinningskaldi norðvestanlands
en annars kaldi. Súldarvottur
norðaustanlands en skúrir á
Austur- og Suðausturlandi. Vest-
anlands verður víða léttskýjað.
Hiti 8-14 stig, hlýjast suðvestan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 28
Dómhúsið:
Steingrímur Jónasson, skrifstofustjori vaiar, heldur hér á sprengiefni og hvellettum eins og þeim sem stolið var
úr sprengiefnageymslu fyrirtækis hans. Foreldrar í Grafarvogi eru beðnir að vera á varðbergi og hafa samband
við lögreglu ef þeir sjá börn sín með hluti eins og þá sem Steingrímur heldur hér á. DV-mynd Brynjar Gauti
Klæðning úr
þýskum kop-
ar og grágrýti
- fyrir 20-30 míllj ónir
Nýja Hæstaréttarhúsið bak við
Safnahúsið verður klætt með grá-
grýti og forveðruðum þýskum kopar
fyrir um 20-30 milljónir króna. Grá-
grýtið verður á fyrstu hæð hússins
og anddyri en koparinn verður á efri
hæðunum, að sögn Steindórs Guð-
mundssonar hjá Framkvæmdasýslu
ríkisins, en húsið er einangrað og
klætt að utan til að fá varanlegt yfir-
borðsefni.
Útboð í uppsteypu og klæðningu
Hæstaréttarhússins voru opnuð ný-
lega og var tilboði Ármannsfells upp
á 129 milljónir króna tekið en það
var 86,1 prósent af kostnaðaráætlun.
Sveinbjörn Sigurðsson var lægst-
bjóðandi með tilboð að fjárhæð 121
milljón króna og 83 prósent af kostn-
aðaráætlun en hann treysti sér ekki
til að standa við tilboðið. Alls bárust
níu tilboð í verkið.
Sjávarútvegsráðherra:
Krefst svara
um fríhaf nir
„Það hefur verið óskað eftir því við
forystumann útvegsmanna fyrir
austan að hann upplýsi hvaða hafnir
þarna eiga hlut að máh og hvaða
skip. Þessi frestur rennur út á mið-
vikudag. Það er útilokað annað en
hann svari þessu,“ segir Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra vegna
þeirra ummæla Eiríks Ólafssonar,
formanns Útvegsmannafélags Aust-
fjaröa, að fríhafnir séu til þar sem
flskur fer fram hjá vigt.
- sjá einnig bls. 3
Styttanaf
Nonnatil
Þýskalands
Styttan af Jóni Sveinssyni, Nonna,
sem fannst á heylofti í Korpúlfsstöð-
um í lok ársins 1992 verður nú í vik-
unni flutt til Kölnar í Þýskalandi en
þar á að taka af afsteypu úr bronsi.
Nína Sæmundsson myndhöggvari
er höfundur styttunnar en enginn
veit hversu lengi hún hafði legið í
óreiðu á Korpúlfsstöðum þegar hún
fannst þar í kassa sem aðeins var
merktur: „HAUS UPP“.
Menningarsjóður afhenti Zonta-
klúbbi Akureyrar styttuna að gjöf,
Afsteypunni verður væntanlega
fundinn staður nærri Nonnahúsi.
I.ANDSSA.MBAND
ÍSI . RAK\ KRKTAKA
Ltm
alltaf á
Miðvikudögum
4
4
I
4-