Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1994, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1994
21
Iþróttir
’ að þeir jöfnuðu á undraverðan hátt. Hér ver hann í eitt skiptið af mörgum, frá
DV-mynd Brynjar Gauti
tílokin
/erið búið að tryggja sér sigurinn áður
Skagamenn minnkuðu muninn með
faUegu marki Bibercics fjórum mínút-
um fyrir lok venjulegs leiktíma og
héldu uppi látlausri skothríð að KR-
markinu allt þar til dómarinn flautaði
til leiksloka þegar hálf sjöunda mínúta
var komin fram yfir venjulegan leik-
tíma. Aldrei skall hurð þó eins nærri
hælum við KR-markið og þegar skalli
Theodórs small í þverslánni og gest-
imir björguðu með tilþrifum á línu i
kjölfarið. Inn vildi boltinn ekki og
KR-ingar fógnuðu sigri.
KR-ingar léku þennan leik af mikilli
skynsemi. Liðið lá aftarlega á vellinum
og beitti vel útfærðum skyndisóknum
af snilld, sérstaklega í fyrri hálfleikn-
um. Þeir nýttu sér veikleikann 1 vöm
ÍA, þar sem Ólafur Adolfsson var fjarri
góðu gamni, og sköpuðu sér næg færi
til að klára leikinn fyrir hlé.
Skagamenn voru ótrúlega óömggir í
vörninni framan af en óx stöðugt ás-
megin eftir því sem á leikinn leið.
Sóknarleikurinn var þó lengstum allt-
of hægfara en skerptist til muna við
innákomu Bjarka. Það að Sigursteinn
var bundinn í öftustu línu lamaði
sóknarleikinn á vinstri vængnum, sem
hefur verið helsta tromp liðsins.
FH á veika von
- á titlinum eftir sigur á Eyjamönnum
Guðmundur Hilmarsson skriíar:
FH-ingar stigu stórt skref í átt að
öðru sæti Trópí-deildarinnar í knatt-
spyrnu með því að bera sigurorð af
Eyjamönnum, 2-1, í frekar bragð-
daufum leik í Kaplakrika á laugar-
daginn. Reyndar eiga FH-ingar enn
tölfræðilega möguleika á að hreppa
íslandsmeistaratitilinn með því að
vinna báða leiki sína mjög stórt og
stóla á að Skagamenn tapi báðum
leikjum sínum. Það dæmi er hins
vegar mjög langsótt enda hafa leik-
menn Hafnaríj arðarliösins ekki ver-
ið þekktir fyrir að skora mörg mörk
í leikjum sínum í sumar.
Einhver deyfð virtist ríkja í her-
búðum beggja liða og greinilegur
haustbragur var á leiknum. FH-ingar
voru miklu sterkari fyrstu 25 mínút-
urnar en eftir að þeir skoruðu fyrsta
markið slökuðu þeir á og leikurinn
jafnaðist. FH-ingar skoruðu eina
mark fyrri hálfleiks úr vítaspymu
og það sem eftir lifði hálfleiksins
gerðist fátt markvert. Síðari hálfeik-
urinn byrjaði fjörlega. Þorsteinn
Jónsson brenndi illa af út ágætu færi
á 50. mínútu og Bjamólfur Lárusson
átti skot í hliðamet FH-marksins. Á
62. mínútu skoraði Andri annað
mark FH eftir góðan undirbúning
Harðar og héldu þá flestir að leikur-
inn væri úti. Eyjamenn voru á ööru
máli og 6 mínútum síðar höföu þeir
náð að minnka muninn úr vita-
spyrnu.
Eftir þetta mark datt allur botninn
úr leiknum. FH-ingar fóm sér að
engu óðslega og héldu boltanum aft-
arlega á vellinum og Eyjamönnum
gekk illa að ná hættulegum sóknum.
Undir lokin munaði minnstu að Jón
Erling bætti við þriðja marki FH.
Hann komst einn gegn Friðriki Frið-
rikssyni sem varði skot hans, Jón
náði frákastinu og vippaði yfir Frið-
rik en boltinn datt ofan á þverslána.
FH-hðið á að geta gert mun betur
en það sýndi í þessum leik enda eru
margir snjallir leikmenn í liðinu.
FH-ingar léku eins og oft áður í sum-
ar frekar varfærnislega og hugsuðu
meira um að halda fengnum hlut í
stað þess að sækja eftir að þeir höfðu
komist yfir. Andri Marteinsson var
bestur í jöfnu liði FH og Stefán Arn-
arson var að vanda öryggið uppmál-
að í markinu.
Eyjamenn náðu sér aldrei á strik í
þessum leik og baráttan, sem hefur
verið aðalsmerki liðsins í sumar, var
í lágmarki. Sóknin var bitlaus og
miðjumennimir náðu sér ekki á
strik. Eyjaliðið er ekki laust úr fall-
hættu þó svo að mikið þurfi að gerast
til að hðið fahi.
Stjarnan er í
slæmum málum
- Eiður Smári með tvö í 1-3 sigri Vals
Víðir Sgurðsson skrifar:
Stjörnumenn færðust skrefi nær
2. deildinni á laugardaginn þegar
þeir töpuðu, 1-3, fyrir Valsmönnum
í Garðabæ'og náðu ekki að nýta sér
hagstæð úrsht í leik Þórs og Breiða-
bliks. Valsmenn réðu ferðinni allan
tímann og unnu verðskuldaðan sigur
án þess að þurfa til þess neinn stór-
leik.
Valsmenn náðu strax undirtökun-
um með marki Steinars Adolfssonar
og hefðu hæglega getað bætt við
mörkum í fyrri hálfleik á meðan bit-
htið Stjörnuhöið skapaði sér engin
afgerandi færi. Garðbæingar voru
með sínu mesta lífsmarki framan af
seinni hálfleik og þá komst Leifur
Geir Hafsteinsson einn gegn Lárusi
Sigurössyni, markverði Vals, sem
bjargaði glæsilega með úthlaupi.
En eftir tvö mörk Eiðs Smára á
þremur mínútum, 0-3, voru úrshtin
ráðin. Sævari Péturssyni úr Val var
vísað af velli og Rögnvaldur Rögn-
valdsson náði að koma Stjörnunni á
blað.
„Ég hélt að sigurinn í Eyjum á dög-
unum yrði sú vítamínssprauta sem
við þurftum, en það klikkaði greini-
lega ýmislegt í kringum þennan leik,
og þá er við mig að sakast, alveg eins
og leikmennina. í hálfleik reyndi ég
að nota það að staðan á Akureyri
væri okkur hagstæð og við fengum
tækifæri til að komast inn í leikinn.
Svo komu hroðaleg vamarmistök í
marki númer tvö og þá var draumur-
inn búinn,“ sagði Sigurlás Þorleifs-
son, þjálfari Stjömunnar, við DV.
Stjarnan saknaði sárlega Ragnars
Gíslasonar og Gorans Micic, sem
vora í banni. Sjálfstraust leikmanna
hðsins er greinilega í lágmarki eftir
slakt gengi í sumar og það býr miklu
meira í því, eins og það sýndi framan
af mótinu. Það var hins vegar miklu
meiri heildarsvipur yfir Valshöinu
sem vann sinn fimmta sigur í sex
leikjum og er áfram í slagnum um '
verðlaunasæti.
B.„ll nl|!r
Raunettir
þrjár mínútur
Sævar Pétursson, varamaður
hjá Val, gerði stuttan stans i
leiknum viö Stjörnuna í 1. deild-
inni í knattspyrnu á laugardag-
inn, Hann kom inn á sem vara-
maöur fyrir Guöna Bergsson á
74. mínútu og þremur mínútum
síðar var hami búinn að fá gula
spjaldið tvisvar og var þar með
rekinn af leikvelli!
Guðni Bergsson, fyrirhði Vals,
fékk sitt fjóröa guia spjaid í sum-
ar í leiknum við Stjörnuna og
verður þvi væntanlega í banni
gegn Breiðabliki i 17. umferð, eins
og Sævar. Guöni fór af velli á
laugardaginn vegna eymslaí læri
og baki og fær því tvær yikur til
að jafna sig.
I
Jón Þór Andrésson kom inn á
sem varamaöur bjá Val og lék
sinn fyrsta 1. deildar leik í fimm
ár, en þá þurfti hann aö hætta
að leika knattspyrnu vegna
meiðsla.
Höröur Magnússon, FH-ingur,
skoraði sitt 70. mark í 1. deild í
leiknum við ÍBV. Hann er aðeins
10. leikmaðurinn frá upphafi sem
nær þeim áfanga í deildinni.
JónLíbann?
Jón ErhngRagnarsson, sóknar-
maðurinn knái úr FH, nældi sér
í sitt fjórða gula spjald í leiknum
gegn ÍBV og tekur væntanlega
út leikbann þegar FH tekur á
móti Stjörnunni um næstu helgi.
Summilékekki
Sumarliði Árnason, marka-
hæsti leikmaður ÍBV, var meidd-
ur á hné og gat ekki leikið gegn
FH.
Kristóferveikur
Kristófer Sigurgeirsson, lands-
liðsmaður úr Breiðabliki, missti
af leiknum viö Þór vegna veik-
inda. '
Boltiniisprakk
Átökin voru svo mikil þegar
KR-ingurinn Daöi Dervic „tækl-
aði" Skagamanmnn Zoran
Miijkovic hressilega í leiknum á
Akranesi að boltinn sprakk!
Spjöldin tíu í leik ÍAogKR þýða
væntanlega að nokkrir leikmeim
veröa í banni í 17. umferð. Stur-
laugur Haraldsson og Siguröur
Jónsson hjá ÍA og Daði Dervic og
Heimir Guðjónsson hjá KR voru
á hættusvæöinu.
iauða“
Dtnslagnum gegn Þór
anna má skrifa á afspyrnuslaka völdun
Þórsvamarinnar.
Það er undrunarefni að Þórsliðið virð-
ist koma hálf„stemninglaust“ í leik sem
þennan og ekki er til að bæta það að í
hðinu era leikmenn sem era nánast „far-
þegar“. Fer þar langfremstur Júgóslav-
inn Vitorovic sem ekkert getur og Þórs-
arar hefðu betur sent heim fyrir löngu.
Forsvarsmenn Þórs hafa þó ekki lagt
árar í bát. „Nú þurfum við að vinna þá
tvo leiki sem era eftir, við gefumst ekki
upp og heilladísirnar hljóta að fara að
ganga í hð með okkur. Við áttum að
vinna þennan leik en fórum illa meö
færin og erum t.d. búnir að klúðra víta-
spymum í tveimur leikjum í röö,“ sagði
Kristján Kristjánsson, formaður knatt-
spymudeildar Þórs, vonsvikinn í leiks-
lok.
Fram-Keflavík
(1-0) 1-2
1-0 Ríkharður Daöason (26.). Fékk laglega sendingu inn fyrir vöm ÍBK frá
Kristni Hafliðasyni og eftirleikurinn var auöveldur fyrir Ríkharð.
1-1 Óh Þór Magnússon (71.). Mjög vel útfærð sókn Keflvíkinga splundraði
vöm Framara sem ÓU Þór kláraði með marki af stuttu færi.
1-2 Óli Þór Magnússon (73.). Birkir hélt ekki skoti frá Ragnari Steinars-
syni en ÓU Þór var á réttum stað og kom boltanum yfir markUnuna.
Lið Fram: Birkir Kristinsson - Valur Gíslason (Ásbjöm Jónsson 80.),
Ágúst Ólafsson, Pétur Marteinsson, Helgi Björgvinsson - Hólmsteinn Jónas-
son, Steinar Guðgeirsson, Gauti Laxdal, Kristinn Hafliðason - Helgi Sigurös-
son (Guðmundur Steinsson 80.), Ríkharður Daðason.
Lið ÍBK: Ólafur Gottskálksson - Karl Finnbogason, Jóhann B. Magnússon
(Guðjón Jóhannsson 46.), Kristinn Guðbrandsson, Gestur Gylfason - Róbert
Sigurðsson (Georg Birgisson 77.), Gunnar Oddsson, Ragnar Steinarsson,
Kjartan Einarsson, Marco Tanasic - Óli Þór Magnússon.
Fram: 8 markskot, 7 hom. ÍBK: 10 markskot, 7 hom.
Gul spjöld: Óli Þór (ÍBK).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, góður.
Áhorfendur: 417.
Skilyrði: Gott veður og góður völlur.
Birkir Kristinsson (Fram).
’ v, Kristinn (Fram), Gauti (Fram), ÓU Þór (ÍBK), Kristinn (ÍBK), Gestur
(ÍBK), Ragnar (IBK).
Maður ieiksins: Birkir Kristinsson (Fram). Bjargaði enn eina fcrðina í
sumar félagi sinu frá enn stærru tapi. v
Sanngjarnt hjá IBK
- fóru á kostum í seinni háifleik gegn Fram
Jón Kristján Sigurðsson skri&r
Keflvíkingar eygja ennþá von um
aö hreppa sæti í Evrópukeppninni á
næsta ári eftir sigur gegn Fram, 1-2,
á Laugardalsvellinum á fóstudags-
kvöldið var. Sigurvilji Keflvikinga
var mun meiri en Framara en í síð-
ari hálfleik tók Sðumesjahðið öh
völdin á vellinum og vann sann-
gjaman sigur.
Framarar voru öllu ákveðnari
framan af fyrri hálfleik og áttu þá
alla möguleika að skora fleiri mörk
en Keflvíkingar björguðu í tvígang á
marklínu. Keflvíkingar komu síðan
æ meira inn í leikinn og í eitt skipti
varði Birkir í marki Fram á glæsileg-
am hátt skot frá Óla Þór Magnússyni.
Leikur Framara fór gjörsamlega
úr böndunum í síðari hálfleik og stóð
ekki steinn yfir steini í leik hðsins.
Misheppnaðar sendingar æ ofan í
æ, baráttuleysi algjört og þegar
þannig háttar þarf ekki að spyrja að
leikslokum. Keflvíkingar gengu á
lagið og léku eins og þeim sýndist.
Keflvíkingar léku á stundum stór-
góða knattspyrnu og hefðu getað
skorað fleiri mörk. Framarar geta
þakkað Birki Kristinssyni að sleppa
frá leiknum með ekki stærri ósigur.
Birkir varði á köflum á meistaraleg-
an hátt.
Kristinn Guðbrandsson lék einn
sinn besta leik með Keflavík í sumar
og eins komust þeir vel frá leiknum
Óh Þór Magnússon og Gestur Gylfa-
son.
F.ins og oft áður í sumar bar Birkir
Framhðið uppi. Ef hans hefði ekki
notið við í sumar væri staöa Framara
eflaust mun verri. Gauti Laxdal og
Kristinn Hafliðason komust þokka-
lega frá leiknum. Mikil deyfð hvflir
yfir Framhðinu, hvað sem veldur,
og nokkrir leikmanna hðsins ná sér
ekki á strik leik eftir leik.