Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
Utlönd
Stuttar fréttir dv
Þrjár íslenskar stúlkur áttu að vera með í síðustu ferð ferjunnar Eistlands:
Éinstök tilviljun að
við fórum ekki með
- segir Erla Bryndís Kristjánsdóttir, sem átti pantað far með ferjunni
„Það er óhugnanlegt að hugsa til
■þess nú að við áttum að vera með í
þessari ferið frá Tallinn. Einstök til-
viljun réð því að við flýttumför okk-
ar um eina viku,“ segir Erla Bryndís
Kristjánsdóttir, námsmaður í Nor-
egi, sem átti pantað far ásamt 20 öðr-
um félögum sínum í ferð ferjunnar
Eistlands. Það reyndist síðasta ferð
ferjunnar.
„Við urðum að breyta fyrri ferðaá-
ætlun vegna fyrirlesturs hér við
skólann. Annars heföum við verið
með,“ segir Erla. Hún er í námi í
landslagsarkitektúr við Landbúnað-
arháskólann í Ási ásamt Áslaugu
Aðalsteinsdóttur og Sigurbjörgu
Áskelsdóttur. Farið var í námsferð
til Eystrasaltsríkjanna nú í síðari
hluta september. Ferjan Eistland var
tekin frá Stokkhólmi til Tallinn og
til baka.
„Það er skrýtið til þess vita að fólk-
ið sem þjónaði okkur um borð hefur
flest farist,“ segir Erla. „Við höfum
líka verið að tala um hvaða mögu-
leika við heföum átt til að bjargast.
Þeir eru sannarlega ekki mikhr því
við vorum í klefum undir bílaþilfar-
inu og erfitt að komast út. Viðvörun-
arkerfi fór tvisvar í gang nóttina sem
við vorum meö en við vissum aldrei
af hverju. Það er varla hægt að hugsa
þessa hugsun til enda. Ég þakka bara
fyrir að vera á lífi.“
Erla sagði að aðbúnaður um borð ■
í ferjunni hefði verið góður og hún
ekki að sjá í verra ásigkomulagi en
almennt er um feijur. Farþegar voru
flestir í hópum, gamalt fólk í orlofs-
ferðum og einnig starfshópar sem
hafi nýtt sér hagstæðan ferðamáta
til að sjá Eystrasaltsríkin.
Þrjár islenskar stúlkur áttu pantað far með ferjunni Eistlandi nóttina sem skipið fórst. Þ.ær urðu hins vegar að
breyta ferðaáætluninni. Björgunarmenn eru enn að störfum á slysstaðnum á Eystrasalti þrátt fyrir að öll von sé nu
úti um að fleiri finnist á lífi. Vitað er aö 136 mönnum var bjargað. Simamynd Reuter
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhiíð 6,
Reykjavik, 2. hæð, sem hér seg-
ir, á eftirfarandi eignum:
Bergstaðastræti 46, þingl. eig. Kristín
Ásmundsdóttir, gerðarbeiðendur
Landsbanki íslands, Landsbanki ís-
lands, Austurbær, Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, Steinar hf„ Is-
landsbanki hf. og Ólafur Helgi Úlfars-
son, 3. október 1994 kl. 10.00.
Urðarbakki 34, þingl. eig. Páll Bjöms-
son, gerðarbeiðandi ríkissjóður, 3.
október 1994 kl. 10.00.
Vesturfold 17, þingl. eig. Guðrún P.
Bjömsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsj. ríkisins, húsbréfadeild, Lands-
banki íslands, Landsbanki íslands,
Vesturbæ, S. Guðjónsson hf. og Spari-
sjóður Kópavogs, 3. október 1994 kl.
10.00.
SÝSLUMAÐURINNIREYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Barðavogur 38,1. hæð, þingl. eig. Sig-
urdór Haraldsson og Þóra Þorgeirs-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður rfldsins, húsbréfadeild, Búnað-
arbanki íslands, Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis og íslandsbanki
hf., 3. október 1994 kl. 15.00.
Baughús 22, neðri hæð, þingl. eig.
Sigríður Bergmann Gunnarsdóttir,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík, Steypustöðin hf. og Val-
garð Briem, 3. október 1994 kl. 13.30.
Bámgata 29, kjallari, þmgl. eig. Sig-
urður Grímsson, gerðarbeiðendur
Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyrissj.
starfsmannaríkisins, þb. Sveins Egils-
sonar hf. og íslandsbanki hf„ 3. októb-
er 1994 kl. 16.00.________________
Bústaðavegur 153, þingl. eig. Ingvi
Týr Tómasson, gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, 3. október 1994
kl. 14.00.________________________
Faxafen 14, austurhluti kjallara,
12,5% heildareignar, þingl. eig. Iðn-
garðar hf„ gerðarbeiðeridur Gjald-
heimtan í Reykjavík, Lífeyrissjóður
rafiðnaðarmanna og Sameinaði lífeyr-
issjóðurinn, 3. október 1994 kl. 14.30.
Fiskislóð 96B, hluti, þingl. eig. Helga-
nes hf„ gerðarbeiðendur Gjaldheimt-
an í Reykjavík, Sjóklæðagerðin hf„
Slippstöðin-Oddi hf. og Sorpa, 3. okf>
óber 1994 kl. 16.30.______________
Sumarbústaðurinn Ós í landi Eyja 1,
Kjós, auk eignarlands, þingl. eig. Ásta
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur
Landsbanki íslands og Pólar hf„ 3.
október 1994 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINNIREYKJAVÍK
Þjóðarsorg í Svíþjóð vegna ferjuslyssins:
Messur í öllum kirkjum
og f ólk er sem lamað
Eyjólfar Harðarson, DV, Svíþjóö:
Hér í Svíþjóð voru messur í öllum
kirkjum í gærkvöldi og verður svo
einnig í dag. Fólk situr sem lamað
yfir fréttunum af ferjuslysinu enda
hið skelfilegasta í sögu þjóðarinnar.
Andrúmsloftið er nánast ólýsanlegt
svo sem von er þegar á sjötta hundr-
að landsmenn farast á svipstundu.
Erfiðast er ástandið hjá ættingjum
þeirra sem voru um borð. Óvissan
: er mikil og fréttir af hveijir hafa
bjargast og hveijir farist eru óljósar.
Stöðugt er verið að breyta tölum um
þá sem lifðu af. Nú síðast í morgun
var upplýst að 139 hefðu bjargast.
Enn eru að koma til hafnar skip
sem voru á slysstaðnum í gær og
nótt og björguðu fólki, sem ekki er
vitað fyrr en nú að hafi komist af.
Margir bíða því enn milh vonar og
í ótta um að ástvinir þeirra birtist
heilir á húfi.
Nú er eínnig upplýst að 964 menn
hafi verið í ferjunni. í fyrstu var tal-
iö að þeir heföu verið 867, þar af 188
í áhöfn. Samt verður sennilega aldrei
upplýst hve margir voru í lokaferð
feijunnar. Grunur leikur á að mafían
í Eystrasaltslöndunum hafi notað
i skipið til að smygla fólki yfir til Sví-
þjóðar. Þeir „farþegar" voru að sjálf-
sögðu hvergi skráöir.
Þaö eykur enn á óhuginn í fólki að
í mörgum tilvikum voru hópar fólks
á ferð með ferjunni. Þannig voru þar
76 menn úr lögreglunni í Stokk-
Fólk hefur beðið hnípið um alla Sví-
þjóð eftir fréttum af slysinu.
Simamynd Reuter
hólmi. Aðeins er vitað til að einn
þeirra hafi bjargast. Sá hefur lýst
reynslu sinni í sjónvarpi og sagði þar
m.a. að hann heföi tvisvar kastast
út úr björgunarbáti sínum áður en
honum var bjargaö.
Enn eru skip að leita á slysstaðnum
þótt engin von sé um að finna nokk-
urn á lífi. Núna í morgun hafa verið
beinar útsendingar frá slysstaðnum
með myndun af björgunarbátum
með fjölda líka um borð. Þetta eru
óhugnanlegar myndir.
Þá eru og margir kallaðir til að
geta sér til um orsakir slyssins. Flest-
ir hallast að því að sjór hafi farið inn
um innkeyrsludyr á bílaþilfarinu.
Þannig hefur einn skipverja upplýst
að hnédjúpt vatn hafi verið á þilfar-
inu skömmu áður en skipið sökk.
Hressir með Bosníu
Evrópuríki og Rússland fagna
ákvörðun Bosníustjórnar að
þrýsta ekki á afnám vopnasölu-
banns.
Ámótisiökun
Tudjman Króatíuforseti er á
mótin slökun viðskiptaþvingana
á Serbíu nema stuðningi við
Serba í Króatíu verði hætt.
Fækka kjarnavopnum
Jeltsín Rúss-
landsforseti og
Clinton Banda-
ríkjaforseti eru
sammála um aö
fækka í kjarn-
orkuvopnabúr-
um sínum en
létu skoðana-
ágreining sinn ekki spilla fvrir. f
Hafnaaðstoð
Indversk stjórnvöld hafa hafn-
að aðstoð Bandaríkjanna við að
liafa hemil á plágunni.
Fleiri í sóttkví
Sífellt fieiri fóraarlömb plág-
unnai' á Indlandi hafa verið sett
í sóttkví.
Flugi afiýst
Persallóaríkin sex hafa lagt nið-
ur allar flugsamgöngur við Ind-
land vegna pláguimar.
Ekkert gekk í þinginu
Þingmenn á Haítí náðu ekki
samkomulagi í umræðum um
sakaruppgjöf fyrir herstjórana.
Fátækiríanda
Vaclav Havel
Tékklandsfor-
seti segir að
þrátt fyrir stöð-.
ugan efnahag
og h'tið at-
vinnuleysi þjá*
ist landið enn
af pólitískri
fátækt í anda sem taki tima aö
losna víð.
Enginn er friðurinn
Bandaríkin og Japan náðu ekki
samkomulagi um frið í viðskipta-
stríði sínu og vofa refsiaðgerðir
yfir Japönum.
. Dick Spring, utanríkisráðherra
írlands, sagði hjá SÞ að vopnahlé
IRA væri mikilvægt skref.
Vantarstuðning
Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, segir friðarviðræður við Sýr-
iand í hættu nema þingið styðji
stefnu hans um Gólanhæðir.
Engufrestað
Dómarinn í máli ruðningskapp-
ans O.J. Simpsons ætlar ekki að
fresta vali á kviðdómendum eins
og saksóknarar höföu farið fram
á þar sem slíkt mundi verða til
óþæginda.
Myrtur í Mexikó
Francisco Ru-
iz Massieu, að-
alritari stjórn-
arflokksins í
Mexikó, var
skotinn til bana
utan við hótel í
Mexíkóborg i;
gærkvöldi og er
tahð að eiturlyfjabarónar hafi
staðið fyrir moröinu,
Kafbátarmeðdóp
Eiturkóngar í Kólumbíu nota
pínukafbáta til að koma kókaíni
úr landi.
CIAskammar
Eilefu CIA-menn veröa skamm-
aðir fyrir klúður í máh njósnar-
ansAmeS. Reuter