Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Síða 9
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
9
Útlönd
Hörð gagnrýni á eigendur Eistlands vegna öryggis um borð:
Skipið var gert
út af maf íunni
- athugasemdir gerðar við lokur á hurðum daginn fyrir slysið
Þótt feijan Eistland væri í eigu eist-
nesku ríkisstjómarinnar hafði mafía
landsins náð tökum á rekstri hennar
og sá um útgerðina. í sumar birtust
fréttir í blöðum á Norðurlöndum um
að ekki væri alls öryggis gætt í ferð-
um með ferjunni enda hugsaði maf-
ían fyrst um gróðann og síðan um
öryggi farþeganna.
Nú er ljóst að þessi gagnrýni átti
rétt á sér því daginn fyrir feigðarför-
ina voru m.a. gerðar athugasemdir
við þéttingar á hurðum fyrir bílaþil-
farinu og að ekki voru tiltækar trygg-
ar festingar fyrir bíla um borð. Orsök
slyssins, sem kostaði um 840 manns
lífið, er nú m.a. rakin til þessara
þátta.
Rannsóknarmenn eru þó sammáia
um að enn vanti nokkuð upp á að
orsök slyssins hafi verið að fuilu
skýrð. Frágangurinn á hurðunum
var ekki nógu góður en samt fuilyrða
Svíar að hann hafi alls ekki verið
óviðunandi og engin ástæða til að
stöðva skipið þess vegna.
Ætlunin er að kafa niður að flakinu
við fyrsta tækifæri og leita enn frek-
ar að skýringum. Þar á meðal á að
sækja svokaliaðan „svartan kassa“
sem ef til vill hefur að geyma upplýs-
ingar um orsök slyssins.
Þá er ekki tahð útilokað að byrð-
ingur ferjunnar hafi gefið sig af ein-
hveijum ókunnum ástæðum.
Sænskir rannsóknarmenn segja aö
svo virðist sem mikill sjór hafi kom-
ist í skipið á skömmum tíma. Þeir
vildu ekífi leiða getum að hvað hafi
gerst. Enn mun því líða nokkur tími
áður en öll kurl koma til grafar.
í Danmörku hefur feijuútgerð rík-
isins séð ástæðu til að fara yfir örygg-
ismál um borð í sínum skipum. Þar
var niðurstaðan sú að dönsku feij-
urnar„gætu ekki sokkið með sama
hætti og sú eistneska".
Þykir sú yfirlýsing kaldhæðnisleg
þvi útgerðarmaður eistnesku feij-
unnar sagði það sama eftir að hún
var sokkin.
Margir farþegar af Eistlandi voru illa haldnir þegar þeim var bjargaö á
land. Sjávarhiti var um 10 gráður en það er nóg til að fólk króknar á skömm-
um tíma. Hér er verið að styðja farþega út úr björgunarþyrlu. Simamynd Reuter
Flugvöllurinn 1 Sandefjord:
Vopnaðir ræningj-
ar með fjóra gísla
- kreflast 700 miHjóna króna í lausnargjald
Tveir vópnaðir menn héldu fjórum
manneskjum í gislingu á Torp-flug-
velli við Sandefjord í Noregi i morg-
un og kröfðust tæpra sjö hundruð
milljóna íslenskra króna í lausnar-
gjald, auk þess sem þeir vildu fá flug-
vél til að komast til Bandaríkjanna.
Mennirnir tóku fjórða gíslinn, lög-
regluþjón, um klukkan hálfsex í
morgun en fyrir höfðu þeir í haldi
lögreglukonu og fullorðin hjón.
„Málið er komið í hnút,“ sagði Ivar
Schröen lögreglustjóri í nótt. „Við
höldum samningaviðræðunum
áfram og gerum alit til þess að bjarga
lífi gíslanna."
Mannræningjamir rændu Östre
Halsen pósthúsið í Tjölhng nærri
Larvik snemma í gærmorgun og
höfðu á brott með sér nærri fimmtán
mihjónir íslenskar. Það er mesta
póstrán í sögu Noregs til þessa. Ræn-
ingjarnir komu mjög ruddalega fram
við starfsfólk pósthússins, ógnuðu
því með byssu og hnífi og bundu það
loks áður en þeir stungu af með ráns-
fenginn.
Ræningjarnir tóku lögreglukonuna
og hjónin í gíslingu seint í gærkvöldi
og héldu til í húsi skammt frá Larvik
í nótt. Húsið yfirgáfu þeir um fjögur-
leytið í nótt og héldu út á flugvölhnn
við Sandefjord.
Heimildir herma að hleypt hafi
verið af tveimur skotum á flugvellin-
um en ekki er vitað hver skaut að
hverjum. Nokkrum skotum var
einnig hleypt af í íbúðarhúsinu en
engin meiðsl hlutust af. Tvisvar
sinnum var skotið aö lögreglunni og
þremur skotum var hleypt af inni í
íbúðinni.
Ræningjarnir kröfðust fyrst um tvö
hundruð mihjóna íslenskra króna og
flugvélar með fulla bensíngeyma en
síðpr heimtuðu þeir að fá sem svarar
um 350 mihjónum króna. Loks
breyttu þeir kröfu sinni í sjö bundruð
mihjónir. Þeir vhja einnig fá tvo flug-
menn og lækni með sér í flugvélinni.
Lögreglan í Larvik hefur beðið um
aðstoð og fóru menn úr víkingasveit-
inni í Ósló þangað um miðnættið.
NTB
Mannskæðustu
ferjuslysin
Ferjuslysið á Eystrasalti í fyrri-
nótt, þegar rúmlega átta hundruð
manns fórust með eistnesku feij-
unni Eistlandi, er eitt hið mann-
skæðasta í heiminum á friðartím-
um. Hér á eftir fer listi yfir
mannskæð fyrri slys;
20. desember 1987: Ferjan Dona
Paz sökk eftir árekstur við tank-
skip við Fihppseyjar og fórust
ahs 4386 manns.
22. apríl 1980: Eyjaferjan Don
Juan sökk á Fihppseyjum eftir
árekstur við pramma og fórust
að minnsta kosti þúsund manns.
25. maí 1986: Sex hundruð að
minnsta kosti fórust þegar feiju
hvolfdi í Bangladess.
15. desember 1991: Rúmlega 470
týndu lífi þegar feijan Salem Ex-
press steytti á skeri undan
Rauðahafsströnd Egyptalands.
27. janúar 1981: Eldur braust út
I indónesískri bílaferju. Opinber
fjöldi látinna var 431 en margir
farþegar voru óskráðir og þvi
óvíst um raunverulegt manntjón.
31. ágúst 1986: Sovéskt farþega-
skip lenti í árekstri viö flutninga-
skip í Svartahafi og fórust 425
manns.
15. desember 1970: Suöur-kóresk
feija fór á hliðina og sökk og fór-
ust323raenn. Reuter