Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Side 11
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
11
Fréttir
FIA óttast kjaraskerðingu hjá Flugleiðum:
Flugvélakostur er ástæða
taps á innanlandsf luginu
- segir Tryggvi Baldursson, formaður FÍA
Félag íslenskra atvinnuilug-
manna, FÍA, hélt fjölmennan félags-
fund sl. mánudagskvöld. Á fundinum
kom fram ótti flugmanna við þau
áform Flugleiða að skerða kjör þeirra
með stofnun sérstaks fyrirtækis um
innanlandsflugið. Eins og DV hefur
skýrt frá þurfa Flugleiðir að byrja á
því að breyta kjarasamningum
starfsmanna vegna nýja félagsins.
Ætlun Flugleiðamanna er að lækka
áhafnarkostnaðinn og minnka þann-
ig tapið af innanlandsfluginu.
Tryggvi sagði það ósanngjarnt að
halda því fram að hár launakostnað-
ur vegna flugmanna væri helsta or-
sök taprekstrar, áhafnarkostnaður
væri lægri á íslandi en hjá flugfélög-
um nágrannalandanna vegna jafn-
launasamnings sem gerður var á
niunda áratugnum.
Tryggvi telur að halli innanlands-
flugsins stafi fyrst og fremst af flug-
vélakostinum.
„Aðstæður hafa breyst frá því nýju
Fokker-vélarnar voru teknar á kaup-
leigu. Markaðsvirði þessara flugvéla
er töluvert lægra heldur en Flugleið-
ir eru að borga fyrir þær í dag,“ sagði
Tryggvi.
Hann sagði að Flugleiðir væru að
greiða 3,4 milljónum króna meira á
mánuði fyrir Fokker 50 vélarnar
heldur en markaðsverð í dag á sömu
vélum, sem reyndar væru 5-6 ára en
gerðu sama gagn. Miðað við vélarnar
fjórar eru Flugleiðir því að greiða á
ári ríflega 160 milljónum meira en
ella. Þar til fyrsta vélin losnar úr
kaupleigu árið 1997 munu Flugleiðir
tapa tæpum hálfum milljarði miðað
við markaðsvirði áþekkra Fokker 50
véla í dag. .
staðgreiðsluafs
ínnig af póstkrc
liddum innan 7
EK1 UTILIFf Í7 zí
GLÆSIBÆ - SÍMI 812922
Stanislaws.
Pólskt-íslenskt
brúðkaup
íKraká
Adrianna Bandosz, verkfræðingur
og arkitekt, og Eyjólfur Símonarson
arkitekt voru í tvígang gefin saman
í hjónaband í Kraká, hinni fornfrægu
höfuðborg Póllands á öldum áður, í
annarri viku september. Fyrst hjá
borgardómara 7. september, - arfur
frá þeim tíma þegar ríkið viður-
kenndi ekki kirkjuna en vildi fá sínar
tekjur af giftingum - og síðan 10.
september kaþólst brúðkaup í kirkju
heilags Stanislaws frá 15. öld.
Adriana er dóttir Önnu Burz-
ynska-Bandosz, af ungverskum ætt-
um, í 1. fiðlu Sinfóníuhljómsveitar
Kraká-borgar, og Wieslaw Bandosz
verkfræðings. Foreldrar Eyjólfs eru
Anna Eyjólfsdóttir myndlistarkona
og Símon Hallsson borgarendur-
skoöandi.
Skilnaður
um áramót
Vegna fréttar í DV á föstudag í síð-
ustu viku skal tekið fram að hjón í
íbúð í eigu bæjarsjóðs Hafnarfjarðar
að Hvammabraut 4 skildu um ára-
mót þó aö skilnaðurinn hafi ekki
formlega tekið gildi fyrr en í mars.
Hjónin fengu íbúðina á leigu fram
hjá kerfmu í Félagsmálastofnun
Hafnarfiarðar fyrir um tveimur
árum en bæjarsjóður tók hana upp
í skuld fyrir fjórum árum.
íris Hólmarsdóttir segir að þau
hafi sótt um hjá Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar og samskipti verið við
stofnunina vegna íbúðarinnar. Ekki
hafi beinlínis verið óskað eftir aðstoð
Guðmundar Árna Stefánssonar fé-
lagsmálaráðherra þegar þau hjón
stóðu á götunni heldur Alþýðu-
flqkksins.
íbúðin við Hvammabraut tilheyrir
ekki félagslega kerfinu í Hafnarfirði.
Knappstaðakirkj a í Flj ótum:
Garður hlaðinn umhverfis kirkjuna
Öm Þórarinsson, DV, fljótum;
Fyrir skömmu lauk vinnu við að
hlaða upp garð umhverfis kirkjuna
að Knappstöðum í Stíflu. Garðurinn,
sem alls er um 120 metra langur og
einn metri á hæð, er hlaðinn úr grjóti
með torfi efst. Hann er ætlaður sem
girðing utan um kirkjugarðinn á
Knappstöðum.
Byijað var á þessu verki í fyrra-
sumar og þá hlaðnir upp þrír veggir.
Sá fjórði var svo tekinn í byijun sept-
ember og er nú aðeins ólokið frá-
gangi við kirkjugarðshlið.
Helgi Sigurðsson frá Stóru-Ökrum
í Blönduhlíð sá um verkið og haföi
með sér 3-4 menn við það. Helgi hef-
ur fengist við hleðslu á ýmsum
mannvirkjum undanfarin sumur og
hleður jöfnum höndum úr torfi og
grjóti.
Það er áhugamannahópur um
varöveislu Knappstaðakirkju sem
Vaskir hleðslumenn að störfum á Knappstöðum, t.f.v. Jón Númason, Gunn-
laugur Jónsson, Helgi Sigurðsson, Jón Sveinsson og Ríkharður Rikharðs-
son.
stendur fyrir framkvæmdinni.
Kostnaður er um 2 millj. króna en
framlag fékkst úr kirkjugarðasjóði
vegna hluta af kostnaðinum. Þetta
er ekki eina framkvæmdin við
DV-mynd Örn
Knappstaðakirkju í ár því þar var
fyrir skömmu byrjað aö aka efni í
bílaplan. Vonir standa til að gerð
þess ljúki á næsta ári.
#• índesíf
Heimilislæki
Þurrkari
SD 510
Tímarofi 140 mín.
Tekur 4,5 kg.
Verð kr. 37.517,-
35.641,- stgr.
Umboðsmenn um land allt
BRÆÐU.RNIR
r)J ÖRMSSON HF
Lágmúla 8, Sími 38820
Sýning íKrjnglunni 30. sept. -15. okt. 1994
.
HANS PETERSEN HF
flutningsþjónusta, Vesturgötu, Hafnarfiröi, sími 651600, sá um flutninga vegna sýningarinnar.
L' |Fj i
IJ i ii