Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 5
FÖSTUDAGUR 21. OKTÖBER 1994 21 Eitthvað ósagt Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum sýnir leikritið Sápu eftir Auði Haralds á föstudagskvöid kl. 21. Síðan verður sýning á leikrit- inu Eitthvað ósagt eftir Ten- nessee Williams á laugardags- kvöld. Það er Alheimsleikhúsið sem sýnir og eru leikarar tveir, þær Anna Elisabet Borg og Stein- unn Ólafsdóttir. Leikritið gerist á heimili fröken Kornelíu Scott í Suðurríkjum Bandaríkjanna og Sallar um samband Kornelíu og einkaritara hennar, Grace Lan- caster. Leikritið tekur um það bil 40 mínútur í flutningi og geta gestir keypt sér veitingar á með- an. Norræna húsið: Svíþjóð og Evrópu- sambandið Sendiherra Svnþjóðar á íslandi, Pár Kettis, mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu á sunnudag kl. 16. Hann fjallar þar um væntan- lega þjóðaratkvæðagreiðslu Svía um aðild að Evrópusambandinu. Svíar munu ganga að kjörborði sunnudaginn 13. nóvember. Mikil spenna ríkir í Svíþjóð. Sendiherr- ann mun svara fyrirspurnum gesta að fyrirlestrinum loknum. Nína hin ástsjúka Óperustúdíó Eugeníu Ratti og Jóhönnu G. Möller mun flytja í konsertformi óperuna Nína hin ástsjúka eftir G. Paisiello í Haih- arborg í kvöld og annað kvöld kl. 20.30. Óperustúdíóið hefur starf- að undanfarnar fiórar vikur og eru umræddir tónleikar ávöxtur þeirrar vinnu. Flytjendur eru Ema Blöndal, sópran, Sigurjón Jóhamiesson, tenór, Kristján Valgarðsson, bassi, Aðalheiður Magnúsdóttir, sópran, Álfheiður Hanna Brekkan, sópran, Díana ívarsdóttir, sópran, Þuríðnr Baxter, sópran, og Sigurður Bernhöft, tenór, ásamt kvenna- kór undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Tónleikar í Langholts- kirkju Fyrstu tónleikar Hljómsveitar Tónlistarskólans í Reykjavík á þessu skólaári verða haldnir í Langholtskirkju á sunnudag kl. 20.30. Á efnisskrá eru Hátiðarfor- leikur eftir Dmitri Sjostakovitsj og Sinfónía nr. 9 í E-dúr op. 95 eftir Anonin Dvorák. listasögu- námskeið að Kjarvals- stöðum Á laugardag kl. 11 hefst nám- skeiö fyrir börn og unglinga á aldrinum 12-16 ára um listasögu 20. aldarinnar á Listasafni Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum. Námskeiöið verður í fyrir- lestraformi og verða fyrirlestr- arnir sex talsins. Fyrirlesari verður Þorbjörg Br. Gunnars- dóttir safnaleiðbeinandi. Byrjað verður á að skoða myndgerð fyrri alda: Af hverju f óru menn að búa til myndir? Hvaða tilgangi þjón- aði myndlistin? Hlutverk mynd- lístarmanna i samfélaginu. Leikhús Þjóðleikhúsið Stóra sviðið Gaukshreidriö föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Gauragangur laugardag kl. 20.00 Lítlasviðið DóttirLúsífers laugardag kl. 20.30 Smíðaverkstæðið Sannar sögur af sálarlífl systra föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Borgarleikhúsið Stóra svióið: Leynimelur13 laugardag kl. 20.00 Litlasviðið Óskin föstudagkl. 20.00 laugardag kl. 20.00 sunnudag kl. 20.00 Islenst .i óperan Hárið föstudag kl. 20.00 föstudagkl. 23.00 laugardag kl. 23.30 Tjarnarbíó Sannurvestri föstudag kl, 20.00 Leikfélag Akureyrar Karameflukvörnin laugardag kl. 14.00 sunnudag kl. 14.00 BarPar laugardag kl. 20.30 Frú Emilía Macbeth föstudag kl. 20.00 Kirsuberjagarðurinn sunnudag kl. 20.00 Kaffileikhúsið Sápa föstudagkl.21.00 Eitthvað ósagt laugardag kl. 21.00 Málþing Framsóknar- flokksins Framsóknarflokkurinn efnir til málþings um menningu á laugardag kl. 10 árdegis að Hótel Lind, Rauðar- árstíg 18. Málþingið er undirbúið af málefnahópi sem starfar innan Framsóknarflokksins að mennta- og menningarmálum. Það er haldið í þeim tilgangi að efna til umræðu um stöðu menningarmála í landinu, hvað sé á döfmni og hvað sé fram tmdan. Þá verður fjallað um sam- skipti listgreina við ríkisvaldið. Með- al annars verður velt upp þeirri hug- mynd að setja á stofn menningarráð í líkingu við það sem þekkist hjá nágrannaþjóðum. í tilefni af degi tón- listar 22. október mun Katrín Sigurð- ardóttir syngja einsöng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur 2. starfsár sitt á laugardaginn með sinfóníettutónleikum og á þeim verður leikin tónlist frá fyrri hluta 20. aldar. Tónleikarnir verða haldnir í sal Tónlistarskólans á Húsavík og heljast kl. 20.30 á laugardag. Tónleik- arnir verða síðan endurfluttir í Ak- ureyrarkirkju á sunnudag kl. 17. Á efnisskránni um helgina verða verk eftir Luciano Berio, Jacques Ibert og Darius Milhaud. í tilfelli Berios er að vísu ekki um að ræða venjulega tónsmíði, heldur 7 þjóðlög í útsetn- ingu hans, tvö lög eftir hann sjálfan og loks ástaróð sem skrifaður var upp eftir 78 snúninga hljómplötu þjóðlagabands frá Azerbajdzhan. Saman heita lögin einfaldlega Folk Songs. „Leikritið er samofið harmrænu efni en jafnframt mjög spaugilegu," segir Þorsfeinn Gunnarsson. DV-mynd BG Borgarleikhúsið: Hvað ii m Leon- ardo? á fjalimar „Leikritið Hvað um Leonardo? ger- ist á taugahæli. Ég leik sjúkling sem er með heilaskemmdir vegna alkó- hóldrykkju. Minnið er ákaflega tak- markað og sjúklingurinn talar stöð- ugt og ruglar," segir Þorsteinn Gunn- arsson leikari en hann leikur aðal- hlutverkið í slóvenska leikritinu Hvað um Leonardo? sem Borgarleik- húsið frumsýnir í kvöld kl. 20. Leikritið er eftir Evald Flisar. Verkið er nýstárlegt í umfjöllun sinni um fólk sem lifir með ólæknandi sjúkdóma sem virðast eiga sér geð- rænar rætur en eru af taugalegum ástæðum. Það lýsir kringumstæðum þess á heimili fyrir sjúklinga af því tagi og er í senn skemmtilegt og sorg- legt. Ungur sálfræðingur fær áhuga á einum karlsjúklingnum og vill vinna um hann rannsókn. Bregður þá svo við að sjúklingurinn fer í stjarfa og þegar hann vaknar af dá- inu er hann gerbreyttur maður. „í leikritinu er ráðskast með sjúkl- inginn undir formerkjum vísinda eða læknislistar. Leikritið spyr spurn- inga um það hvort það sé siðferðilega rétt. Leikritið er samofið harmrænu efni en jafnframt mjög spaugilegu. Þetta er ekki raunsæisverk og ekki er verið að elta strangar læknis- fræðilegar útgáfur," segir Þorsteinn. Frú Emilíafrum- sýnirKirsuberja- garðinn Frú Emilía frumsýnir á sunnudag Kirsuberjagarðinn kl. 20. Kirsuberja- garöurinn er síðasta og líklega mikil- vægasta leikrit Tsjekhovs, gaman- leikur sem nálgast jafnvel farsann á köflum. Okkur birtist fyndið fólk, sem segir eitt og gerir annað, sem reynir að róa sjálft sig með því að tala um nágrannana, um veikindi sín, um gamla daga og fjarlæg lönd- og þráast við að opna augu sín fyrir sannleikanum. Kristbjörg Kjeld leikur frú Ranevskaju, aðalhlutverk leiksins. Aðrir leikarar eru Jóna Guðrún Jónsdóttir, Edda Heiðrún Backman, Þröstur Guðbjartsson, Ingvar E. Sig- urðsson, Steinn Ármann Magnús- son, Harpa Arnardóttir, Kjartan Bjargmundsson, Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Árni Tryggvason og Valgeir Skagfjörð. Emil í Norr- æna húsinu Sænska kvikmyndin Nya hyss af Emil i Lönneberga, sem er byggð á bók eftir Astrid Lindgren, verður sýnd í Norræna húsinu á sunnudag kl. 14. „EEEmiT gargar Anton pabbi svo hátt að það heyrist um allt Katt- holt og þá veit öll sveitin hvað hefur gerst, Emil hefur verið að fremja eitt af sínum prakkarastrikum. Þá er bara eitt sem Emil getur gert en það er að hlaupa eins hratt og fætur toga út á smíðaverkstæðið og tálga enn einn trékarlinn. Gauragangur 150. sinn Á laugardag kl. 20 verður fimmtug- asta sýning í Þjóðleikhúsinu á leik- ritinu Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var frumsýnt í febrúar á síðasta leikári og hefur verið sýnt við miklar vinsældir allra aldurshópa alveg síðan. Sýningar halda áfram fram eftir vetri og er þegar að verða uppselt á margar þeirra. Það er hljómsveitin Ný dönsk sem sér um tónlistina í Gauragangi en með nokkur helstu hlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Sigurður Sig- urjónsson og Ólafía Hrönn Jónsdótt- ir. Peter Tompkins, Erna Guðmundsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson. Söngur, óbó og orgel Erna Guðmundsdóttir sópran- söngkona, Peter Tompkins óbóleik- ari og Hilmar Örn Agnarsson orgel- leikari verða með tónleika á nokkr- um stöðum á Suðurlandi á næst- unni. Þau flytja íslenska og erlenda tónlist af ýmsum toga. Dagskráin verður flutt í Skálholtskirkju á fóstu- dag kl. 21, Víkurkirkju Vík í Mýrdal á laugardag kl. 16.30 og í Þorlákshöfn koma þau fram á kirkjukvöldi á þriöjudag kl. 20.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.