Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 23 Messur Arbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Friður Sigurðar- dóttir og Halla Jónasd. syngja stólvers. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjubíllinn ekur. Breiðholtskirkja: Bamaguðsþj. kl. 11. Guðsþj. kl. 11. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20.30. Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Barnasamkoma I Digraneskirkju kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 11. Barnastarf I safnaðarheimilinu á sama tíma. 5 ára börn boðin sérstaklega velkomin. Messa kl. 14. Kirkjukaffi I safnaðarh. eftir messu. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Magnús Björnsson. Eyrarbakkakirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 11. Fella- og Hólakirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. (Ath. breyttan tíma). Kvenfélagskonur lesa ritn- ingarlestra. Kaffisala kvenfélagsins. Frikirkjan i Hafnarfirði: Bama- guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Elin Jóhann- esdóttir sr. Einar Eyjólfsson. Fríkirkjan i Reykjavik: Guðsþjón usta kl. 14. Sr. Cecil Haraldsson. Grafarvogssókn: Barnaguðsþjón usta kl. 11. Valgerður, Hjörtur og Rúna að- stoða. Guðsþjónusta i Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 13. Guðsþj. kl. 14. Fundur með for- eldrum fermingarþarna úr Foldaskóla eftir guðsþj. Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. Grindavikurkirkja: Barnastarf kl. 11. Helgistund í Víðihlið kl. 11. Barnakórinn syngur. Guðsþjónusta kl. 14. Eldri borgarar aðstoða v/athöfnina. Dr. Einar Sigurbjörns- son, prófessor i trúfræði predikar. Guð- mundur Sigurðsson syngur einsöng. Barn borið til skírnar. Kaffiveitingar í safnaðarh. í boði sóknarnefndar. Hallgrímskirkja: Fræðsiustund ki 10. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson flytur erindi sem ber yfirskriftina: Lúther, bænin og sam- timinn. Messa og barnasamkoma kl. 11. Sr. Barnakór Hallgrímskirkju syngur, stjórnandi Bjarney I. Gunnlaugsdóttir. Karl Sigur- björnsson. Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Barnakór Hjallaskóla syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta ki. 11. Altarisganga. Barnastarf i safnaðarheim- ilinu Borgum á sama tima. Ægir Fr. Sigur- geirsson. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Fjöiskyidu- guðsþjónusta 23. okt. kl. 11. Nemendur úr tónlistarskóla Njarðvikur leika á hljóðfæri. Sigfús Kristjánsson, formaður FEB Suður- nesjum, prédikar. Eldri borgarar i Keflavik- Njarðvik-Höfnum sérstaklega boðnir vel- komnir. Kaffi og kökusala i safnaðarsal að lokinni athöfn. Baldur Rafn Sigurðsson. Keflavíkurkirkja: Kirkjudagur eldri borgara: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabilinn. Messa kl. 14 (altarisganga). Kór Keflavikurkirkju syngur. Kaffiveitingar i Kirkjulundi að lokinni messu, i boði félags eldri borgara. Akstur frá Suðurgötu 14-17 kl. 13.30 og skömmu siðar frá Hlévangi. Landspitalinn: Messa ki. 10 Sr. Jón Bjarman. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Lang- holtskirkju (hópur II) syngur. Barnastarf á sama tíma. Molasopi að guðsþj. lokinni. Laugarneskirkja: Messa ki. 11. Drengjakór Laugarneskirkju syngur. Barna- starf á sama tima. Sr. Ólafur Jóhannsson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Mun- iðkirkjubilinn. Guðsþj. kl. 14. Sr. Árleg kaffi- sala og þasar kvenfél. að guðsþj. lokinni. Oddakirkja á Rangárvöllum: Fyrsta barnasamkoma vetrarins i húsakynnl- um Grunnskólans á Hellu kl. 11. Hátiðar- messa i Oddakirkju kl. 14 i tilefni af 70 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Kvenfélag Odda- kirkju annast kaffiveitingar i Hellubiói að athöfn lokinni. SeljakÍrkja:Bamaguðsþjónusta kl. 11. Farið verður í Breiðholtskirkju. Lagt af stað frá Seljakirkju kl. 10.45. Guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónustunni verður útvarpað. Sr. Valgeir Astráðsson prédikar. Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Fermdir verða Gisli Dan Gíslason og Ingi Dan Ölafsson, Dalseli 8. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Barnastarf á sama tíma í umsjá Elínborgar Sturlud. og Sigurlinar ivarsd. Stórólfshvolskirkja Hvolsvelli: Barnastarf vetrarins hefst með fjölskguðsþj. kl. 10.30. Sóknarprestur. Stokkseyrarkirkja: Messa ki. 14.. Heil umferð í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudaginn: Njarðvíkingar taka á móti Grindvíkingum Heil umferö verður leikin í DHL- deildinni í körfuknattleik á sunnu- daginn. Stórleikurinn í þessari um- ferð er án efa viðureign íslandsmeist- ara Njarðvikinga og Grindvíkinga í Njarðvík en þessi félög áttust einmitt við í úrslitum um íslandsmeistaratit- ilinn á síðasta keppnistímabili. Báð- um þessum liðum er spáð velgengni í vetur og fyrstu leikir liðanna benda til þess að sú spá ætli að rætast. Körfuknattleiksvertíðin hefur far- ið vel af stað og í þessari umferð, sem leikin verður á sunnudag, er nánast ómögulegt að spá fyrir um sigurveg- ara í leikjunum sex. Haukar fá til að mynda bikarmeistara Keflvíkinga í heimsókn en hið unga lið Hauka hef- ur leikið vel að undanfórnu og skemmst er að minnast góðs sigurs þeirra á ÍR. Liðin sem komu upp úr 1. deild, Þór og ÍR, mætast á Akur- eyri en bæði félögin hafa þótt leika ágætlega og virðast til alls líkleg í vetur. Þrír hörkuleikir fara fram á Vest- urlandinu. Skallagrímur fær Val í heimsókn og þar mætir Tómas Hol- ton, þjálfari og leikmaður Skalla- gríms, sínum gömlu félögum. Skaga- menn og Tindastóll eigast við á Akra- nesi og þar verður um hörkuviöur- eign að ræða eins og ávallt þegar þau leiða saman hesta sína. Loks fá Snæ- fellingar KR-inga í heimsókn og þar verður á brattann að sækja fyrir hiö unga lið Snæfells. Leikirnir, sem all- ir fara fram á sunnudaginn, eru þess- ir: Skallagrímur-Valur 16.00 Akranes-Tindastóll 20.00 Þór-ÍR 20.00 Njarðvík-Grindavík 20.00 Haukar-Keflavík 20.00 Snæfell-KR 20.00 Þeir Guðmundur Bragason og Rondey Robinson munu eflaust taka hraust- lega á hver öðrum þegar Njarðvík og Grindavík mætast á sunnudaginn. Þessi lið léku til úrslita á siðasta keppnistimabili og myndin er tekin úr einum úrslitaleiknum þar sem þeir Robinson og Guðmundur eigast við. DV-mynd GS BarPar slær sýningarmet Næsta sýning Leikfélags Akur- eyrar á leikritinu BarPar eftir Jim Cartwright undir leikstjóm Hávars Sigurjónssonar verður á laugardag. Þetta er 59. sýningin á þessu vinsæla leikriti og er það jafnframt sýningar- met því enginn leiksýning hefur ver- ið sýnd jafn oft hjá LA. Sýningarmet- ið átti söngleikurinn Piaf sem sýndur var hjá Leikfélagi Akureyrar 1985. Sunna Borg og Þráinn Karlsson far með öll hlutverkin í BarPari, 14 að tölu. Það er óhætt að segja að þessi tveggja manna kabarett sem framinn er í fúlustu alvöra eins og leikstjór- inn Hávar Siguijónsson hefur nefnt sýninguna. Sunna Borg og Þráinn Karlsson fara með öll hlutverkin í BarPari. r Körfubolti: Leikiö í 1. deild karla og kvenna Þrír leikír verða háðir I 1. deild karla i körfuknattleik um helgina. Á laugardaginn klukkan 14 leika á isafírðí KFi og Leiknir R og klukkan 17 í Hafnarfirði )H og Höttur. Á sunnudaginn leika klukkan 201 Digranesi Breiðablik og Þór Þ. í 1. deíld kvenna leika á morgun í Seljaskóla klukkan 17 iR og Tindastóll. Handbolti i Margir leikir fara fram í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik um helgina. Leik- irnír um helgina eru þessir: föstud. kl. 19.00.ÍBV-Ármann föstud. kl. 20.30.ÍBV-b-Grótta föstud. kl. 20.30 Völsungur-UBK föstud. kl. 20.30.Þór-Vlkingur laugard.kl. 13.30.........KA-iR laugard. kl. 16.00.Fylkir—Valur laugard. kl. 16.30....Grótta-b-HK laugard. kl. 17.00...Fjölnir-FH laugard. kl. 17.30 Self.-b-Haukar laugard. kl. 19.00..ÍR-b-Stjarnan sunnud. kl. 13.30.......BÍ-UMFA sunnud. kl. 15.30.......ÍH-b-lH sunnud. kl. 20.00...FH-b-Selfoss sunnud. kl. 20.00...Keflavík-KR Blak: KA mætir HK Þrir leikir fara fram í ABM-deild karla i blaki um helgina. i kvöld klukkan 19.30 leika á Akureyri KA og HK og í Ásgarði Stjarnan og Þróttur N. klukkan 20. Á iaug- ardaginn leika HK og Þróttur klukkan 14 í Digranesi. I ABM- deild kvenna eru tveir leikir. i kvöld mætast á Akureyri KA og HK klukkan 21 og HK og Víking- ur eigast við í Digranesi klukkan 1 5.30 á morgun. Júdó: Haustmót JSf Haustmót Júdósambands ís- lands verður haldið í íþróttahúsi Grindavíkur á laugardaginn. Keppnin hefst klukkan 13.30 og verður keppt í flestum þyngdar- flokkum karla og kvenna og er um eintaklíngskeppni að ræða. Útivist: Fjallaferö um veturnætur Á föstudagskvöld verður ekið til Hveravalla. Á laugar- dag verður gengið í Þjófadali og víðar. Eftir gott bað í laug- inni verður sest að sameigin- legu borðhaldi á laugardags- kvöld. Á sunnudag verður meðal annars komið við í Hvítárnesi og síðan ekið heim um Þingvelli. Fararstjórar eru Ágúst Birgisson og Eyrún Ósk Jensdóttir. Á sunnudag kl. 10.30 verð- ur gengið niður í Húshólma og skoðaðar sérstæðar minjar um byggð í Ögmundarhrauni sem fór undir hraun, líklega á síðari hluta tólftu aldar. Þor- leifur Einarsson jarðfræðing- ur verður með í för.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.