Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Page 7
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
23
Myndbönd
TITILL
UTGEF. TEG
1 1 j 6 [ Mrs. Doubtfire
Myndform Gaman
9 9 Pelican Brief
Sam-myndbönd
Fearless
12 6 3 Beetoven's 2nd
Myndform Spenna
1 Robocop
IMrs. Doubffire
Aðalhlutverk; RobinWilliams, SalIyFieid
ogPierceBrosnan
Robin Williams leikur hinn kærulausa heimil-
isfóður og leikara, Daniel Hillard. Hann er barn
í hjarta sínu og í barnaafmæli einu skortir að agi
sé á hlutunum og heimilið er í rúst á eftir. Eigin-
konan fær nóg og krefst skilnaðar og hann neyð-
ist til að ílytja að heiman. En hann þráir að vera
með börnunum og þegar hann sér að eiginkonan
fyrrverandi er að auglýsa eftir harnfóstru dulbýr
hann sig sem fröken Ðoubtfire og sækir um starf-
ið.
2Serial Mom
Aðalhlutverk: Kathieen Tumer, SamWat-
erstone, Ricky Lake og Matthew Ullard
Myndinni er leikstýrt af John Waters, sem gerði
myndirnar Cry Bahy og Hairspray. Handrit Wat-
ers eru þekkt fyrir að haía svartasta húmor sem
lengi hefur sést á hvíta tjaidinu, þar sem ekkert
sieppur undan háði hans. í Serial Mom lætur
hann hina fullkomnu eiginkonu og móður, Be-
verly leika tveim skjöldum. Á milli þess að elda,
þrífa og gefa eiginmanni og börnum góð ráð drep-
ur hún alla þá sem henni líkar ekki við. Myndin
er háðsádeila á fjöldamorðingjadýrkun i USA og
er „hryllilega fyndin" í bókstaflegri merkingu.
3Sfriking Distance
Aðalhiutverk: BruceWiilisogSarah
Jessica Parker
Bruce Willis leikur lögreglumann sem er sann-
færður um að morðingi fóður hans sé ekki sá sem
var dæmdur heldur leiki enn lausum hala og sé
nú byrjaöur að myrða að nýju. Mynd fyrir þann
meirihluta leigjenda sem kjósa góðan hasar.
TRIPLE OSCAR WINNER
tOMínta < nsi KWJW<íic»Bi.«.»8TCiuam fssana
• JANCCAMPION
BThePiano
Aðalhlutverk: HoliyHunter, HarveyKeit-
el, SamNeiil og Anne Paquin
Hér er á ferðinni mögnuð saga sem gerist á
síöustu öld og fjaliar um mállausa konu, Adu,
sem kemur til afskekkts héraðs á Nýja Sjálandi
til að giftast landnema sem hún hefúr aldrei séð.
Með henni í for er 9 ára gömul dóttir hennar og
meðal veraldlegra eigna hennar er forláta píanó.
Sá sem þetta skrifar segir ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
HANA. Brilliant, Daily Mail. Magnificent, The
Indipendent. Powerful, The Times. An Astoni-
hsing Masterpice, Premiere. Sensuous, Cosmo-
politan.
4Sister Act 2
Aðalhiutverk: Whoopi Goldberg og Kathy
Najimy
Óskarsverðlaunahafinn Whoopi Goldberg
(besta leikkonan - Ghost) snýr hér aftur í hlut-
verki nunnunnar í framhaldi hins vinsæla tarsa
Sister Act. Vafalaust verður enginn svikinn af
þessari hreinræktuðu skemmtun.
11 } 17 j 2 ; Beverly Hillbillies j Sam-myndb. | Gamanj
3 j Dream Lover
J Háskólabíó
i Philadelphia
Skífan
6 1 On Deadly Ground
Warner-myndi
Spenna
Striking Distance
Skífan J Spenna
7 J 4 J 5 í Jurassic Park j ClC-myndir j Spenna
Sam-myndbönd J Gaman
Piano
Skifan
Drama
Bronx Tale
Myndform
Drama
Myndbandalistinn:
Mamman tekur til sinna ráða
Mrs. Doubtfire hefur nú verið sex
vikur á myndbandalistanum og þar
af hefur hún verið í 1. sæti í fimm
vikur. Engin önnur kvikmynd hef-
ur náð þessum árangri á árinu og
það sem er kannski merkilegast við
þetta er að vinsælasta kvikmynd
allra tíma, Jurassic Park, náði ekki
að velta madömunni úr 1. sætinu.
Leikstjóri Mrs. Doubtfire er Chris
Columbus en hann er sjálfsagt
þekktastur fyrir að hafa leikstýrt
báöum Home Alone myndunum og
þar með að sumu leyti ábyrgur fyr-
ir því að Macauley Culkin er hæst
launaða barnastjama frá upphafi
vega.
Vinsældir Mrs. Doubtfire eru
fyrst og fremst Robin Williams að
þakka. Hann fer á kostum í hlut-
verki leikarans sem við skilnað er
meinað að fá að hitta börnin sín.
Hann tekur á það ráð að klæðast í
gervi viröulegrar skoskar madd-
ömu og sækir um barnfóstrustarf
hjá fyrrum eiginkonu sinni. Robin
Williams er þekktur fyrir að geta
breytt rödd sinni og þeir hæfileikar
nýtast honum vel í myndinni. í
byrjun má sjá hann fara á kostum
í vinnu sinni við að tala inn á
teiknimyndir en á sínum tíma var
um það talað að hann fengi tilnefn-
ingu til óskarsverðlauna fyrir túlk-
un sína á andanum í teiknimynd-
inni Aladdín. Það er óhætt að segja
að Mrs. Doubtfire reynist börnum
sínum betri en enginn í samnefndri
mynd og það verður einnig að segj-
ast um móðurina í Serial Mom, sem
Kathleen Turner leikur eftirminni-
lega, þótt það sé á nokkuð annan
hátt.
Serial Mom er ein þriggja nýrra
kvikmynd sem koma inn á hstann
þessa vikuna. Hinar tvær eru Blue
Chips, með Nick Nolte og körfu-
boltastjörnunni Shaquel O’Neill í
aðalhlutverkum, og að sjálfsögðu
er þaö körfuboltinn sem allt snýst
um í myndinni. Hin ntyndin er
þriðja myndin í Robocop kvik-
myndaseríunni.
Leikstjóri Serial Mom er John
Waters, sem fyrir nokkrum árum
var ekki hátt skrifaður í Holly-
wood. Hann var ábyrgur fyrir væg-
ast sagt subbulegum kvikmyndum
þar sem hinn feitlagni Divine lék
yfirleitt aðalhlutverkið. Waters
hefur snúiö við blaðinu og er orð-
inn sá leikstjóri vestan hafs sem
lætur best að gera kvikmyndir með
nokkuð dökkan húmor og húmor-
inn er af svartari gerðinni í Serial
Mom. Eins og áður sagði leikur
Kathleen Tumer móður sem lætur
ekkert koma í veg fyrir að allt gangi
fjölskyldu hennar í haginn og eru
morð alls ekki undanskihn séu þau
einhverjum íjölskyldumeðlimnum
í hag. Það verður svo að koma í
ljós í næstu viku hvort hin bústna
maddama Mrs. Doubtfire heldur
velli eða óða móðirin í Serial Mom
nær að krækja í efsta sæti mynd-
bandalistans.
Mrs. Doubtfire (Robin Williams) bregður á leik með börnum sinum.