Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Qupperneq 8
24
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
Myndbönd
Kathleen Turner í hlutverki sínu í gamanmyndinni Serial Mom sem sýnd var við miklar vinsældir í sumar.
Kathleen Turner:
Fj ölhæf leikkona
Bandaríska leikkonan Kathleen
Tumer er mörgum bíógestum liðins
sumars í fersku minni sem hin
„fullkomna“ móöir í gamanmynd-
inni Serial Mom sem gekk lengi
fyrir fullu húsi. Þessi fjölhæfa leik-
kona lýsir sjáif hlutverki sínu í
þessari mynd sem því geggjaðasta
sem hún hefur nokkum tíma leikið.
Enda var varla von á öðru þegar
hæflleikar hennar og kvikmynda-
leiksfjórans Johns Waters fóm sam-
an.
í Serial Mom leikur Kathleen
Tumer húsmóður sem virðist jafn
hrein og bein á yfirborðinu og ný-
fægt eldhúsgólfið, á fyrirmyndar-
mann, böm og góða nágranna.
„Hennar eini, en verulegi, galli er
að hún er gjörsamlega ófær um að
skilja á milli pirrandi smáaatvika í
daglega líflnu og lífshættulegra
kringumstæðna. Pimandi viðmót gat
umbreytt þessari konu í gjörsamlega
stjómlaust morðkvendi," segir Kath-
leen Tumer.
Farsæll ferill
Þessi fjölhæfa leikkona á þegar
farsælan feril að baki. Eftir að
Tumer útskrifaðist frá listaskóla í
Maryland fór hún að leika á sviði í
New York og í sápuóperu sem
nefndist The Doctors, eða Lækn-
amir. En Tumer sló fyrst verulega í
gegn í myndinni Body Heat þar sem
hún lék á móti William Hurt. Var
hún tilnefnd til Golden Globe verð-
launanna sem nýstimi ársins fyrir
frammistöðu sína í þeirri mynd og
auk þess sem besta leikona hjá
bresku kvikmyndaakademíunni.
Eftir Body Heat reis stjama
Kathleen Tumer nokkuð hratt. Eftir
leik í kvikmyndinni Romancing the
Stone, þar sem hún lék með Michael
Douglas og Danny De Vito, var
Tumer á ný umvafln hrósyrðum og
tilnefningum. Var hún tilnefnd til
Golden Globe verðlaunanna sem
besta leikkonan af kvikmyndagagn-
rýnendum í Los Angeles. Lék hún
síðan í framhaldsmynd með þeim
félögum, Douglas og De Vito. Eftir
aðalhlutverk í mynd Francis Ford
Coppola, Peggy Sue Got Married,
eða Peggy Sue giftir sig, var hún
tilnefnd til óskarsverðlauna og Gold-
en Globe verðlauna sem besta leik-
konan og hreppti þau verðlaun hjá
samtökum bandarískra kvikmynda-
gagnrýnenda. Tumer hreppti loks
Golden Globe verðlaunin fýrir besta
leik í kvenhlutverki fyrir myndina
Prizzi’s Honor, mynd um leigumorð-
ingja, þar sem hún lék á móti Jack
Nicholson og Angelicu Houston.
Auk ofantalinna mynda má
nefnda þriðju framhaldsmyndina
með Douglas og De Vito, auk til-
raunar til að leika harðskeyttan
einkaspæjara í V.I. Warshawsky. Þá
em ótalin ýmis sviðsverk sem hún
hefur leikið í en Tumer hefur alltaf
gefið sér tíma frá kvikmyndleiknum
til að leika á sviði.
Kathleen Turner er mjög fjölhæf leikkona sem hefur hlotið fjölda tilnefninga
fyrir leik sinn í kvikmyndum.
Samviskan kvelur
Á fyrri hluta sjötta áratugarins var kommún-
istagrýlan allsráðandi í Washington og McCarthy;
isminn breiddist til alira ríkja í Bandaríkjunum. í
Golden Gate leikur Matt Dillon FBI-manninn Kevin
Walker sem lítur á starf sitt sem köllun. Honum og
félaga hans er falið að sanna á innflutta Kínverja
að þeir séu kommúnistar. Ekki gengur það sem
best, enda Kfnverjamir blásaklausir. Walker sér þó
leið til að koma einum þeirra í fangelsi og þó hann
geri sér grein fyrir að sakagiftimar eru hæpnar er
hann ánægður með hrósið. Samviskan fer ekki að
plaga hann fyrr en tiu árum siöar þegar honum er
fengið það verkefni að fylgjast með Kínverjanum
sem nú hefur veriö látinn laus. Golden Gate er
athyglisverð fyrir sérstök efnistök og hún er
skemmtilega stílfærð og sviðsetningar mjög vel
unnar. Matt Dillon hefur sýnt í undanfómum
myndum, nú síöast í The Saint of Fort Washington, að hann er vaxandi leikari
og túlkun hans á Walker er góð. Þá er Bruno Kirby einnig góður í hlutverki
félaga hans sem kemst til æðstu metorða hjá FBI, enda plagar samviskan hann
ekki.
GOLDEN GATE - Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: John Madden.
Aðalhlutverk: Matt Dillon, Joan Chen og Bruno Kirby.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 92 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
Úr öskunni í golfið
Golferen er sænsk gamanmynd þar sem gert er
grín að þeirri dellu sem heltekur kylfmga sem á
annað borð taka golflð alvarlega. Aðalpersónan er
Stig Helmer sem hefúr misst vinnuna. Hann fær
atvinnubótavinnu í öskunni og dag einn dettur
hann í lukkupottinn. Hann er að hreinsa fyrir
framan golfklúbb þegar formaður klúbbsins vindur
sér að honum og lofar honum góðri umbun vilji
hann keppa við sig í golfi eftir viku. Boðið er
freistandi og þótt Helmer viti varla hvemig
golfbolti lítur út tekur haim boðinu. Ástæðan fyrir
keppninni er að vinkona formannsins sagði hann
svo lélegan í golfi að hún veðjaði milljón að allir
sem fengju kennslu í vikutíma myndu vinna hann
í keppni. Vinkommni er umhugað að sinn maður
vinni og Stig Helmer er sendur til Skotlands í læri
hjá gömlum meistara. Golferen er hin sæmilegasta
skemmtun, myndin er uppfull af þekktum bröndurum úr golflþróttinni sem
allir kylfingar kunna og raunar byggð á slíkum bröndurum, en frumleg
skemmtun telst myndin varla.
GOLFEREN - Útgefandl: Sam-myndbönd.
Aðalhlutverk: Lasse Aberg, Hege Schoyen og Jon Skolmen.
Sænsk, 1992. Sýnlngartíml 88 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
Fur ðufj ölskylda
Það er með eindæmum hvað Tracy Ullman
hefur getað gert sig ófriða og óaðlaðandi í House-
hold Saint. Það væri svo sem i lagi ef persónan
sem hún leikur væri vel uppbyggð, en svo er ekki.
Og þetta á við um nær allar persónur myndar-
innar. Þaö er ekki með nokkru móti hægt að fá
áhuga á þeim. Myndin gerist meðal ítala í New
York og segir frá kjötkaupmanninum Joseph
Santangelo sem vinnur Catherine (Tracy Ullman) í
spilum. Það furðulega gerist aö hjónaband þeirra
heppnast og afraksturinn er dóttir sem ekki er eins
og böm eru flest. Hún fyllist heilögum anda, telur
sig þurfa að bjarga heiminum og þegar hún segist
vera í beinu sambandi við Jesú Krist er henni
komið fýrir á hæli. Hugmyndin að Household Saint
er ekki svo galin og húmorinn, sem aö visu er
stundum langsóttur, er lúmskur, en þegar á heild-
ina er litið er myndin fráhrindandi og úrvalsleikarar hafa oftast verið betri.
Það er helst að Lili Taylor i hlutverki dótturinnar nái að lyfta myndinni upp úr
lágkúrunni. _
HOUSEHOLD SAINT - Útgefandl: Myndform.
Leikstjóri: Nancy Savoca.
Aðalhlutverk: Tracy Ullman. Vlncent D'Onofrlo og Llll Taylor.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 99 mín. Bönnuð bömum innan 12 ára. -HK
Wiiii
Löng, heit sumarnótt
Það er ljóst eftir langt eintal sögumanns um
„týnda fljótið” i fenjum Louisiana að Scorchers er
óvenjuleg mynd sem gerist á einum sólarhring og
minnir uppbyggingin á leikrit. Gifting stendur
fyrir dyrum en presturinn er vant við látinn í
fanginu á bæjarhórunni. Hann nær þó að gifta
Splendid og Dolan og allir búa sig undir veislu á
meðan Dolan sinnir skyldum sínum. Það gengur þó
ekki vel að fá Splendid upp i rúm og það lendir því
í verkahring fóður Splendid að gera henni grein
fyrir skyldum sínum. Á bar einum á meðan skylm-
ast tveir gamlir vinir með orðum og bætist bæjar-
hóran 1 hópinn og segir frá leyndarmálum sem
karlamir gleypa við. Fjórða persónan bætist í þann
hóp, svívirt eiginkona sem telur hóruna hafa
afvegaleitt eiginmanninn. Á hinu sviðinu, i svefh-
herbergi þeirra nýgiftu, koma einnig leyndarmál ______________
upp á yfirborðið. Scorchers er misgóð mynd. Atriöin á bamum, þar sem þau
lífsreyndu tjá sig, eru skemmtileg og vel leikin en rifrildi ungu hjónanna verð-
ur fljótt leiðigjamt. í raun má segja að maður sé að horfa á tvær ólikar kvik-
myndir steypta í eina.
SCORCHERS - Útgefandl: Sam-myndbönd.
Leikstjóri: David Beaird.
Aðalhlutverk: Faye Dunaway, Denholm Elliot, James Earl Jones og Emlly Lloyd.
Bandarísk, 1993. Sýningartími 94 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK