Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Blaðsíða 3
'IMMTUDAGUR 17. NOVEMBER 1994
25
tónli0l:
Endurútgáfa gamalla íslenskra
dægurlaga blómstrar
- nýjustu titlarnir eru Stelpurnar okkar og Strákarnir okkar
Plöturnar Aftur til fortíðar, sem
hljómplötuútgáfan Steinar gaf út
fyrir nokkrum árum, vöktu verð-
skuldaða athygli fyrir vönduð
vinnubrögð. Jónatan Garðarsson,
útgáfustjóri Steina, átti heiðurinn af
þeim plötum og hann heldur áfram á
sömu braut þótt Steinar heyri nú
sögunni til og útgáfan Spor hafi
komið i stað hins fyrirtækisins. Á
dögunum komu út tvær plötur sem
eru einmitt af svipuðum meiði og
Aftur til fortíðar. Þær nefnast Stelp-
urnar okkar og Strákarnir okkar.
Jónatan á einmitt heiðurinn af þeim
og hann segist hafa unnið að því að
safna lögum á plötumar, raða þeim
niður og lagfæra hljóminn síðan I
fyrra.
„Það stóð til að Stelpumar kæmu
út í fyrra. Ég vildi hins vegar liggja
aðeins lengur yfir lagalistanum og
vinna lögin betur tæknilega áður en
ég léti plötuna frá mér fara svo að
útgáfunni varfrestað," segir Jónatan.
„Sú plata sem nú er komin út er
sennilega flórða eða fimmta útgáfan
sem ég setti saman. Ástæðan fyrir því
hve seint gekk er sennilega sú að ég
var að vinna að plötunni í tímahraki.
Hins vegar hafði ég nægan tíma fyrir
Strákana enda var ég mun fljótari að
púsla þeirri plötu saman.“
Jónatan segir að nauðsynlegt sé að
koma sjálfum sér í ákveðið hugar-
ástand eða stemningu þegar unnið er
við að setja saman safnplötur með
gamalli tónlist. Tvisvar fór hann
heim með lög sem hann vildi hafa á
Stelpunum okkar og hlustaði í ró og
næði. í bæði skiptin taldi hann sér
hafa misheppnast og byrjaði því upp
Mynd frá árínu 1958 frá einni af upptökunum með Skapta Ólafssyni. Frá vinstri eru Eyþór Þorláksson, Sigurbjörn „bassi" Ingþórsson, Guðmundur Steingrímsson, Skapti,
Gunnar Reynir Sveinsson og Emst Norman. DV-mynd Sveinn
á nýtt. „Þegar upp er staðiö hef ég
verið með þessa plötu í vinnslu í tiu
tilellefumánuði,“segirhann, „gripið
í hana öðru hverju með öðru og
loksins kom að því að ég var sáttur
við alla þættina."
Stelpumar okkar og Strákarnir
okkar hafa að geyma tónlist frá fyrstu
25 árum lýðveldisins, frá 1944 til ‘69.
í ráði er að á næsta ári komi út sams
konar plötur frá hinum 25 árunum og
er vinna þegar hafin við þær.
Á fimmta þusund
lög
Jónatan Garðarsson er búinn að
fást við endurútgáfur gamallar ís-
lenskrar tónlistar á geislaplötum í
nokkur ár og hefur jafnan nokkur
verk í takinu í einu. Safnplata með
þekktum lögum Ragnars Bjarna-
sonar bíður útgáfu. Einnig plata með
söng Guðrúnar Á. Símonar, bæði
klassík og dægurlögum. Þá segist
hann grípa i plötu með lögum
hljómsveitar Ingimars Eydals þegar
færi gefst. Á mánudaginn var kom
upp sú hugmynd að fara að huga að
Savanna tríóinu. Jónatan þarf því
ekki að kvíða aðgerðaleysi eða
verkefnaskorti á komandi árum.
Hann segist ekki vera viss um hve
mörg lögin séu sem Spor á útgáfurétt
á. „Ætli þau séu ekki rúmlega fjögur
þúsund," segir hann hikandi,
„kannski fimm þúsund. Það er
ómögulegt að svara nákvæmar. Jú,
jú, ég get sjálfsagt haldið áfram fram
á efri ár ef ég endist svo lengi. Nýjar
hugmyndir eru sífellt að skjóta upp
kollinum. Ég fæ þær ekki nærri allar
sjálfur. Stundum hnippa sölu-
mennimir í mig. Fólk hefur jafnvel
samband og stingur einu og ööru að
mér. En staðreyndin er sú að engar
almennilegár skrár eru til yfir þá
tónlist sem var hljóðrituð og gefin út
í gamla daga. Ég verð þess vegna að
grúska í gömlum blöðum og ritum til
að komast að því hvað kom út. Það
er jafnvel ekki fyllilega á minni
flytjendanna að treysta. Rétt eins og
þú getur ekki svarað því hvaða grein
þú skrifaðir á poppsíðu Dagblaðsins
fjórða febrúar 1978 muna þeir ekki
endilega hvaða lög þeir tóku upp
þetta eða hitt árið. Þeir voru bara að
sinna atvinnunni sinni og áhuga-
málinu.
Tvö sjónarmið
Jónatan segist hafa tvö sjónarmið
að leiðarljósi þegar hann ákveður
hvað af gamla íslenska poppinu skuli
endurútgefið. Annars vegar hvort
efnið er sögulegs eðlis, liggur jafnvel
undir skemmdum og þarf því nauð-
synlega að varðveitast á geislaplötu.
Hins vegar er það markaðssjónar-
miðið.
„Ég þarf reyndar ekki að velta hinu
síðamefnda svo mjög fyrir mér,“
segir hann. „Áður en ráðist er í gerð
plötunnar þarf að selja hugmyndina
innanhúss ef svo má segja. Aðrir en
ég verða að segja sitt álit á því hvort
platan sem kynnt er eigi erindi á
markaðinn. Vissulega hefur ein og
ein útgáfa farið forgörðum en flest
hefur tekið vel við sér. Við forum
hægar í sakimar núna en þegar við
vorum að byrja þessar endurútgáfur.
Núna er mun betra að eiga við þetta
form. Meiri alúð er lögð við það en
fyrr að laga til hljóminn án þess þó
að það sé á kostnað þess hvemig lögin
hljómuðu upphaflega. Til dæmis
hefði ég viljað geta komist í eina af
vinsælustu endurútgefnu plötunum
og gera nokkrar breytingar. Þetta er
fyrri safnplatan með lögum Vil-
hjálms Vilhjálmssonar. Hún er vissu-
lega ágæt en við flýttum okkur dálítið
með hana á sínum tíma og þegar frá
líður heyrir maður hvað hefði mátt
betur fara.“
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að i hverri
viku era birtar þrjár léttar spum-
ingar um tónlist.
Þrir vinningshafar, sem svara
öllum spurningum rétt, hljóta svo
geisladisk að launum frá fyrirtækinu
Japis. Að þessu sinni er það platan
„Æ“ með hljómsveitinni Unun sem
er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hverjir skipa hljómsveitina
Unun?
2. Hvar er Birthmark-platan tekin
upp?
3. Hvað kostar Now 29 í verslun
Japis?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Hvar er Birthmark-platan tekin upp?
DV-mynd GVA
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
24. nóvember og rétt svör verða birt
í blaðinu 1. desember.
Hér era svör in úr getrauninni sem
birtist 3. nóvember:
1. Drápa.
2. Frá ísafirði.
3. Siggi Bjöms.
Vinningshafar úr þeirri
getraun em:
Hólmfríður Þórhallsdóttir
Fálkagötu 26,107 Reykjavík.
Jakob Ragnar Jóhannsson
Birkimel 5,560 Varmahlíð.
Helga Ósk Víðisdóttir
Rimasíðu 8, 603 Akureyri.