Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1994, Blaðsíða 4
26
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
t@nlist
Hljómsveitin Tweety: Platan Bít er gerð fyrir íslenskan markað og því em textar
laganna á íslensku. DV-mynd Baldur
jpKitíigagnrýni
. / ];jj| m S §
' ■ : 7 I f 1
-’ j*
kV i £“*.; ’ “M 1 Æ*/
3 t
SSSÓL — „Blóð"
★ ★★
Rokk í
viðlögum
Ein besta tónleikasveit landsins
gefur út plötu fyrir þessi jól. Breski
upptökustjórinn Ian Morrow sá aö
eina leiðin til að ná fram þéttleika og
frumkrafti sveitarinnar væri að
breyta hljóðverinu í tónleikastað.
Platan var sem sagt tekin upp „live“
og frumkrafturinn beislaður. Þetta er
það fyrsta sem maður tekur eftir
þegar lagt er við hlustir. Öll spila-
mennska er til fyrirmyndar og má
þar sérstaklega hrósa nýjum með-
limum sveitarinnar, þeim Bimi
bassaleikara og Atla Örvarssyni
hljómborðsleikara, báðir falla eins og
flís við rass. Rokkið hefur tekið völd-
in hjá hljómsveitinni þó eitthvaö
vanti upp á. Skrefíð var ekki tekið til
fulls. Frábærlega vel útsettir „gítar-
frasar" eru aðalsmerki plöhmnar =
10 rokkstig. Sama er ekki hægt að
segja um melódíusmíðar í u.þ.b.
helmingi laganna. Helgi hefúr lengi
getað státað af góðum melódíum allt
frá því á dögum hans sem söngvari í
Grafík og þess vegna skrítiö að ekki
takist betur til. Lög eins og „Máni
þegir“, „Popparinn", „Óvin“, „Mar-
tröð„ og „Saklaus,, eiga það sam-
merkt að laglínumar em meira og
minna flatar. Helgi nær ekki að lyfta
sér nægilega í viðlögum til að mynd-
ast geti ris í lögunum. Lög eins og
„Einmanna", „Stríð", „Sleiktu mig
upp“ (besta lag plötunnar) og „Lof
mér að lifa“ em hins vegar dæmi um
það hversu vel getur tekist upp ef
vinna er lögð í hlutina og þar er
rokkskrefið tekið til fúlls, góðar lag-
linur í bland við fiábæra spila-
mennsku. Annað sem betur hefði
mátt fara er „mix“ á söngnum. Hann
er oft það aftarlega að ekki tekst að
greina orð frá orði. Þegar á heildina
er litið er hins vegar ljóst að Atli,
Bjöm, Eyjó, Haffi og Helgi em að
leita fyrir sér á nýjum brautum tón-
listarinnar og ég vona bara að þeir
halda áfram að þróa þessa nýju
stefiiu og taki skrefið til fulls. Það er
þörf á því að fleiri hljómsveitir taki af
skarið og leiti fyrir sér. En eitt er
víst, frumkrafturinn er til staðar hjá
SSSÓL.
Guðjón Bergmann
Megas-Megas
★ ★ ★ ★
Efnið og
umbúðirnar
Þessi fyrsta plata Megasar sannar
að umbúðimar skipta engu stórmáli
ef efnið er fyrsta flokks. Með umbúð-
unum á ég við útsetningar og undir-
leik. Lögin, textamir og túlkun
Megasar em jafn stórkostleg á að
hlýða á nýutgefiium geisladiski og
þegar platan kom fyrst út, fyrir
tuttugu og tveimur árum.
Platan „Megas" er tímamótaverk.
Fram til þess tíma að hún kom á
markað hafði lítið farið fyrir textum
á borð við þá sem Megas bauð upp á.
Látum sögutúlkunina vera. Hún bar
gamansemi og kerskni höfundarins
vitni. Orðfærið og formið var hins
vegar þannig að aðrir höfðu ekki
áður ort þannig söngtexta eða -ljóð.
Með fyrstu plötu Megasar má með
sanni segja að gáfumannapopp hafi
orðið að veruleika í heimi íslenskra
dægurlaga.
Megas sló að sjálfsögöu ekki í gegn
meðal allra íslendinga með fyrstu
plötunni sinni. Það er reyndar enn þá
býsna stór hópur sem hefur ekki tek-
ið hann í sátt sem höfúnd og söngv-
ara. En hafi það máðst út í minninu á
DV
Tweety spilar Bít
Það hefur far ið líkt fyrir dúettinum
Tweety og dúettinum Bong að hann
er orðinn að fullvaxinni hljómsveit.
Ólafur Hólm trommuleikari, Eiður
Amarson bassaleikari og Máni
Svavarsson hljómborðsleikari eru
gengnir til liðs við Andreu Gylfa-
dóttur og Þorvald Bjama Þorvalds-
son og nýkomin er út platan Bít.
Tweety lét fyrst heyra í sér í vor er
leið. Þá kom lagið So Cool út á
safnplötu og nokkra síðar lagið Lolly-
pops. Bæöi lögin vora með enskum
textum. Þau er að finna á Bíti en hin
lögin átta sem er að finna á plötunni
era sungin á íslensku.
„Ástæðan er einfold," segir Þor-
valdur Bjami. „So Cool og Lollypops
vora ætluð fyrir erlendan markað.
Við höfum gert samning við hol-
lenska fyrirtækið CNR sem ætlar að
gefa So Cool út sjötta janúar næst-
komandi. Það er búið að útbúa fimm
ólíkar hljóðblandanir að laginu og
þær koma allar út á „maxi single“
eða stórri smáskííú. Klukkan gengur
hins vegar talsvert mikið hægar hjá
Hollendingunum en við eigum að
venjast og við gátum einfaldlega ekki
setið aðgerðalaus meðan þeir voru að
gera klárt fyrir útgáfu So Cool. Þess
vegna ákváðum við Andrea að fjölga
í sveitinni þegar við uppgötvuðum að
ýmsir sómamenn voru á lausu og
saman tókum við upp átta lög fyrir
íslenskan markað og þá höfðum við
þeim rúmu tveimur áratugum síðan
platan kom fyrst út hvers vegna höf-
undurinn fékk viðumefiiið Meistari
Megas rifjast það svo sannarlega upp
við að hlusta á þessa endurútgáfu á
geisladiski. Það var kominn tími til
að hún kæmi út á ný.
Ásgeir Tómasson
Madonna - Bedtime Stories
★ ★
Misheppnuð
tilraun
Margt bendir nú til þess að vegur
Madonnu á tónlistarsviðinu fari
minnkandi eftir glæsilegan feril
undanfarin tíu ár. Þessi nýja plata
hennar sýnir að mínu mati listamann
sem reynir að fylgja tískustraumum í
tónlist en ræður ekki fyllilega við
það. Gott dæmi um tilraun hennar
við það nýja sem er að leysa hana af
hólmi eru innkaup hennar á lagi
Bjarkar og Nellee Hooper, Bedtime
Stories, og að láta plötuna meira að
segja heita eftir laginu. Lagið er
nefhilega ekkert sérstakt, enda ein-
hver afgangur af því sem valið var úr
fyrir Debut plötu Bjarkar. Madonna
reynir sem sagt að halda sér ferskri
með því að leika nútíma soul-fónk-
rapp danshúsatónlist en tekst, því
miður fyrir hana, afar misjafhlega
upp. Kannski er það vegna þess að
hún virðist vera pikkfóst í þessu
værðarlega koddahjali sem einkennt
hefúr alla framkomu hennar
undanfarin ár. Fyrir vikið verða
lögin eins og innpökkuð í bómull;
lulla flest í gegn án nokkurra átaka,
allt slétt og fellt. Þessi tónlist gæti
sem best hentað á næturklúbbum þar
sem léttklæddar stúlkur stíga hægan
dans í rauðu Ijósi.
Sigurður Þór Salvarsson
lögin náttúrlega með íslenskum
textum.“
Þorvaldur Bjami segir að hugsan-
lega verði gengið frá einhveijum af
nýju lögunum til útflutnings síðar.
Enskir textar era til við þau flest og
ef hollenskum samstarfsmönnum líst
á þau verður hafist handa. En
hvemig er tónlist Tweety að þróast?
Stöðugar breytingar?
„Það má segja að nýju lögin á Bíti
séu órökrétt framhald þess sem við
vorum að gera fyrr á árinu,“ segir
Þorvaldur Bjami. Danstakturinn er
vissulega til staðar, samanber nafnið
á plötunni, en þó er þetta ekki
hreinræktuð dansplata. Ætli við
leyfum okkur ekki meira að vera við
sjálf núna en áður.“
Jólísól
Þorvaldur Bjami Þorvaldsson er
„Auðvitað er erfitt fyrir unga og
óþekkta hljómsveit að koma sér á
framfæri. Við fengum reyndar góðan
byr í seglin síðasta sumar þegar viö
komumst í efsta sæti íslenska listans
en samt verðum við að hafa okkur
eins mikið í frammi og við getum,
reyna að komast í sjónvarpsþætti og
spila og fara að árita þegar þar að
kemur. Sem sagt taka þátt í sam-
keppninni af fremsta megni.“
Þetta segir Friðrik Júlíusson,
trommuleikari hljómsveitarinnar
Spoon sem sendi á dögunum frá sér
sína fyrstu plötu sem heitir eftir
hljómsveitinni. Lagið sem hann
nefnir er vitaskuld Taboo sem komst
í efsta sæti listans síðastliðið sumar,
flestum að óvörum.
„Að minnsta kosti komu vinsaeld-
irnar flatt upp á okkur,“ segir
Friðrik. „Þegar á allt er litið gerði
þetta atvik okkur samt ekkert nema
gott. Jú, jú, það vildu ýmsir fá að gefa
lagið út en við ákváöum að bíða með
allt slíkt til haustsins. Reyndar
stóðum við í samningaviðræðum við
einn af stóra útgefendunum um skeið
um að gefa út plötuna okkar. Það
gekk ekki upp svo að við tókum bara v
bankalán og gáfúm hana út sjálf.“
Auk Friðriks era í hljómsveitinni
Spoon þau Höskuldur Öm Lárusson,
söngvari og gítarleikari, Ingi S.
Skúlason bassaleikari, Hjörtur
Gunnlaugsson sem leikur á gítar og
Emilíana Torrini söngkona. Hún
gekk í hljómsveitina fyrir tæpu ári
ásamt Friðrik. Hinir hafa starfað
saman í hátt í tvö ár og hófú raunar
samstarfið í samspili hjá Stefáni
Hjörleifssyni, gítarleikara í FÍH-skól-
anum.
„Við fengum stundum að hita upp
hjá Nýdanskri vegna tengslanna við
Stefán," segir Friðrik. „Þannig
kynntumst við Jóni Ólafssyni sem
hvatti okkur til að gera eitthvað
meira en að vera bara bílskúrs-
hljómsveit sem fengi að hita upp fyrir
aðra. Jón stýrði síðan upptöku lag-
með flefii en eina plötu í takinu um
þessar mundfi. Hann á mestan heið-
ur af plötunni Senn koma jólin sem
er nýkomin út. Þar syngja ýmsfi
söngvarar ellefu jólalög frá ýmsum
tímum. Flest era nýleg en eitt og eitt
er komiö til ára sinna.
„Markmiðið var að velja jólalög
sem höfðu ekki verið gefin út áður
hér á landi en orðið vinsæl með
erlendum flytjendum,“ segir Þor-
valdur. „Ég var að vinna í þessari
plötu í sumar og fram á haust. Síð-
astliðið sumar fór ég til Barcelona og
þá tók ég þessa músík stundum með
mér á ströndina og hlustaði á hana
þar. Sumir sneru sig næstum úr
hálsliðnum þegar þefi virtu fyrfi sér
þennan dularfulla náunga sem hlust-
aði á jólatónlist á ströndinni um
hásumar. Aðstæðurnar voru sem
sagt ekki mjög jólalegar meðan ég var
að melta tónlistina en skemmti-
legar.“
anna á plötunni og tók upp lögin að
stórum hluta.“
Friðrik Júlíusson vill lítið ræða
um hvað það kosti hljómsveitina að
gefa út plötu sína sjálf. „Viö gátinn
farið þá leið að skera allt við nögl og
gera hlutina eins ódýrt og okkur var
unnt. Hins vegar ákváðum við að
eyða kannski heldur mefia þannig að
allfi væra ánægðfi með útkomuna.
Síðan verðum við bara að vona að
platan fái góðar viðtökur þannig að
okkur gangi vel að standa í skilum.
Jólaútgáfan er alltaf happdrætti en
við ákváðum af frjálsum vilja að vera
með þannig að við verðum bara að
gera okkar besta."
9 9*1 7*00
Verð aðeins 39,90 mín.
31 Dagskrá rásar 1
4[ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5'| Myndbandagagnrýni
61 ísl. listinn
-topp 40
j] Tónlistargagnrýni
Hljómsveitin Spoon: Skyndilegar vinsældir lagsins Taboo gerðu ferli hljómsvert-
arinnar aðeins gott þótt þær kæmu kannski helst til fljótt. DV-mynd ÞÖK
Hljómsveitin Spoon gefur loksins út plötu sína:
Barátta þrátt fyrir
vinsældir síðasta sumars